Vísir - 25.11.1963, Síða 8

Vísir - 25.11.1963, Síða 8
8 V í S I R . Mánudagur 25. nóvember 1963. VISIR Utgetandi: Blaðaútgáfan VISI5. Ritstjóri: Gunnar G. Schrajt. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorstemson Fréttastjóri: Þorsteinn 0 Thorarensen Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og afgreiðsia Ingólfsstræti 3. Áskriftargjald er 70 krónur á mánuði. ! lausasólu 5 kr. eint. — Sfmi 11660 (5 llnur).* Prentsmiðja Visis. — Edda h.f. Vindhögg Timans J>egar draga tók til sátta í landhelgisdeilunni við Breta og um það leyti sem samkomulagið var gert, urðu Tíminn og forkólfar Framsóknarflokksins sér svo rækilega til skammar í málflutningi sínum, að seint mun gleymast. Margir gætnir og þjóðhollir fylgismenn Framsóknar liðu þá önn fyrir skrif Tímans og ræður foringjanna. Öll þjóðin, að undanteknum nokkrum ill- vígustu liðsoddum Framsóknar og kommúnista, fagn- aði samkomulaginu og sjómannastéttin studdi það ein- róma. í málefnafátækt sinni fyrir síðustu kosningar reyndu þeir enn að gera sér mat úr landhelgismálinu, en með sama árangri og áður. Það var því gild ástæða til að ætla, að þeir hefðu loksins lært svo mikið af þessum frumhlaupum, að þeir hefðu vit á að þegja um málið framvegis; en þar var þeim ætlað meira vit en efni stóðu til. Það er ekki nema von að Tíminn vilji hvíla sig svo- lítið frá hagfræðinni, ef-tir alla löðrungana, sem hann hefur fengið í þeim umræðum, en það er sannarlega. að farið úr öskunni í eldinn, þegar blaðið hættir sér nýlega út í skrif um lausn landhelgisdeilunnar. Allt sem blöð og ræðumenn stjórnarandstöðunnar hafa um það mál sagt, er svo marg hrakið, að ástæðu- laust er að fara um það mörgum orðum nú, en eitt atriði í forustugrein Tímans s. 1. fimmtudag er þó rétt að athuga svolítið. Blaðið segir að skrif stjórnarblaðanna undanfarna daga, í sambandi við heimsókn forseta íslands til Bret- lands, beri með sér að þau líti svo á, „að íslendingar eigi ekki að setja markið hærra en að hafa 12 mílna fiskveiðilandhelgi eins og nú er“ og „telji samninginn frá 1961 fullnægjandi og viðunandi málalok“. Hvaða stjórnarblað hefur sagt þetta eða nokkuð, sem túlka mætti á þennan hátt? Það getur Tíminn auð- vitað ekki sýnt fram á. Hann er aðeins með órökstudd- ar aðdróttanir, eins og svo oft áður. Þótt leitað væri með logandi ljósi í skrifum stjórnarblaðanna, yrði ekki fundin þar ein einasta setning, sem þannig yrði, skilin eða skýrð með heiðarlegu móti. Með rangfærslum og útúrsnúningum er auðvitað hægt að fá sitthvað út úr máli manna, en í þetta sinn reynir Tíminn jafnvel ekki að gera það með dæmum, og má að því sjá, að sú full- yrðing, sem hann slær fram um fyrrnefnd skrif stjórn- arblaðanna, muni ærið langt sótt. Því hefur margsjnnis verið lýst yfir af forustumönn- um Sjálfstæðisflokksins, að lokatakmarkið í landhelg- ismálinu sé landgrunnið allt. Á þeirri stefnu hefur eng- in breyting orðið. Forsaga Framsóknarflokksins í því máli er hins vegar ekki svo glæsileg, að þjóðin fáist til að trúa því, að hann sé þar til forustu kjörinn, fremur nú en áður. Það er því algert vindhögg hjá Tímanum, að fara að byrja aftur á glósum og getsökum um þessa hluti. ★ r yndon B. Johnson hinn nýi forseti Bandaríkjanna er 55 ára gamall, fæddur 27. ágúst ár ið 1908. Hann er Texas-búi og því var hann einmitt í fylgdar- liði Kennedys forseta á ferð hans í Texas, til að vera leið- sögumaður hans í heimaríki sínu. Foreldrar hans voru fátæk bændahjón og varð hann snemma að (ara að vinna fyrir sér sjálfur, sem sendill og af- greiðslupiltur í nágrannaborg. Skólanám sitt varð hann að kosta sjálfur og stundaði það með vinnunni. Tókst honum að ljúka prófi í kennaraskóla, vann síðan að barnakennslu en einn- ig að ótal öðrum störfum sem buðust. En að öllu leyti hefur hann hafizt upp af sjálfdáðum fyrir sérstakar gáfur og þrek. Fyrstu þáttaskilin í lífi hans urðu 1932 er þingmaður nokk- ur réð hann sem einkaritara ínn. Þannig fluttist hann til Washington. Fékk hann þá mik inn áhuga á stjórnmálum og gafst tækifæri til að ljúka há- skólaprófi i lögfræði með kvöld skólanámi. í rið 1936 var hann kjörinn á þing sem fulltrúi demo- krata í fulltrúadeildinni og sat hanri síðan á þingi til 1960, að undanskildum tveimur árum í heimsstyrjöldinni er hann gegndi herþjónustu og barðist hann eins og Kennedy á Kyrra Johnson varaforseti í heimsókn sinni til íslands í haust. — Lækjartorg í baksýn. Fátækur piEtur sem vann sig upp með gáfum og dugnaði hafsvígstöðvunum og sýndi þar mikið áræði og hetjulund. Hann sat í fulltrúadeildinni fram til ársins 1948, er hann var kjörinn til öldungadeildarinnar. Þar jukust völd hans og áhrif skjótlega, vegna sérstakra stjórnmálahæfileika hans. Hann var kjörinn forustumaður Demo krata í öldungadeildinni 1951, en þá var flokkurinn í minni- hluta þar. Var hann þá yngsti þingflokksleiðtogi sem nokkurn tíma hafði verið á þingi. 1 kosningunum 1953 náðu Demokratar meirihluta í öld- ungadeildinni og jukust áhrif Johnson mjög við það, því að hann hélt áfram forustu þing- flokksins. Á næstu árum varð hann frægur maður sem leið- togi á þingi og er það mál manna, að enginn þingleiðtogi hafi orðið eins valdamikill og hann. Var þá stundum sagt, að tveir menn stjórnuðu Banda- ríkjunum í góðu samstarfi og voru þó sinn úr hvorum flokki, Eisenhower forseti og Johnson leiðtogi meirihiut.ans í Öldunga- deildinni. Leitaði Eisenhower þá stöðugt eftir hjálp hans til að koma nauðsynlegri löggjöf fram. Xlið frábæra starf Lyndon Johnsons á þingi leiddi bráðlega augu manna að honum sem líklegu forsetaefni Demo- krata. Á flokksþinginu 1960 var hann í fyrstu með flest atkvæði og um skeið horfur á að hann yrði fyrir valinu. En þá skaut Kennedy upp og komst fram fyrir hann. Þeir voru þannig helztu keppinautarnir um fram- boðið. En strax og Kennedy hafði verið valinn stakk hann upp á því, að Johnson yrði val- inn sem varaforsetaefni og samþykkti þingheimur það með miklum fagnaðarlátum. Sættust þeir þá heilum sáttum. Kennedy sigraði í forsetakosn ingunum heldur naumlega yfir Nixon og var það talið aug- ljóst, að Johnson átti sinn mikla þátt í sigri hans. Honum tókst sem Suðurríkjamanni að sveigja fylgi Suðurríkjanna til Demokrata, þrátt fyrir allmik- inn kurr þar undir niðri. egar hann tók við stöðu sinni sem varaforseti laun- aði Kennedy honum með því að veita honum meiri völd og að- stöðu, en nokkrum varaforseta Bandaríkjanna hefur verið veitt Var Johnson jafnan virkur með limur í ráðuneyti forsetans. Meðal verkefna hans hefur verið að ferðast víða um heim sem sérstakur fulltrúi Kennedy forseta. Ein frægasta ferð hans af þvf tagi var, er hann heim sótti V-Berlín fáeinum dögum eftir að kommúnistar reistu múr inn illræmda á hverfamörkun- um. Þá talaði hann kjark í Berl- ínarbúa með áhrifamiklum hætti og er framkoma hans þá öllum borgarbúum ógleymanleg. þannig hefur hann ferðazt víða um heim, um Asíul., Suður-Ameríku, Afríku og Evrópu. Hvarvetna hefur hann unnið sér hylli fyrir látlausa og vingjarnlega framkomu. — Þannig kom hann og fram í heimsókn sinni til íslands í haust og varð sú heimsókn vissulega til að styrkja vináttu- böndin milli stærsta og minnsta ríkisins. Síðustu heimsókn sína til annarra ríkja fór hann nú í nóvember tii smáríkisins Lux emborgar. íslenzkir blaðamenn sem þá voru þar í heimsókn sáu hann þar og fundu þar þann velvilja og vináttu sem heim- sókn hans vakti upp með 'ann- arri smáþjóð. JLJann kynntist eiginkonu sinni frú Lady Bird á fyrstu árum sínum í Washington. — Kvæntist hann henni árið 1933 og varð það honum m.a. nokk- ur stuðningur að hún var af sæmilega efnuðu fólki komin, en þau hafa jafnan verið samhent. Þau eiga tvær dætur, Lyndu, sem íslendingar kynntust er hún fylgdi honum hinga", =n hún er 19 ára og Lucy, sem er 16 ára. Stutt æviatriði Lyndon B. Johnson forseta

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.