Vísir - 02.12.1963, Síða 1
II' - IHfH ' -vflHBI
Forsetaförinni að íjúka
53. árg. — Mánudagur 2. desember 1963. — 162. tbl.
Heimsókn forseta íslands
til Bretlands er nú að ljúka.
Á föstudaginn heimsótti
hann háskólann í Leeds en á
laugardag og sunnudag dvald
ist hann í Skotlandi og gisti
Edinborg. Hann er væntan-
legur aftur heim annað
kvöld.
Við háskólann í Leeds
heimsótti forsetinn m. a. hið
íslenzka bókasafn hans, en
það mun vera stærsta ís-
lenzka bókasafn í Bretlandi.
í því eru 16 þúsund bækur.
Uppistaða þess er hið mikla
bókasafn Boga Melsteð, sem
háskólinn keypti 1929.
í dvöl sinni í Edinborg gisti
forsetinn í Caledonian hóteli.
Þó hinni opinberu heimsókn
forsetans til Bretlands væri
lokið, var þessi heimsókn til
Edinborgar með sniði opin-
berrar heimsóknar. Þar sat
forseti m. a. messu í dóm-
kirkju Edinborgar St. Giles
Cathedral og borgarstjóri og
aðrir fyrirmenn Skota tóku á
móti honum og héldu honum
veizlu. Var þar rætt um þau
margvíslegu tengsl, sem jafn
an hafa verið milli fslands og
Skotlands.
Víðtæk leit ófram að vb. Hólmari
Víðtæk leit hefur ver-
ið gerð síðustu daga
fyir Suðurlandi að vél-
bátnum Hólmari GK
546, sem saknað var s. 1.
föstudag. Á Hólmari er
fimm manna áhöfn allt
ungir menn, milli tvít-
ugs og þrítugs, nema
matsveinninn, 76 ára.
Gengið hefur verið á
fjörur, flugvélar hafa
leitað og einnig er varð
skip á þeim slóðum, sem
síðast heyrðist til báts-
ins. — Leitarflokkur úr
Álftaveri fann í gær lest
arfjalir og olíubrúsa, en
ekki hefur enn fengizt
staðfest að það sé úr
Hólmari.
Vélbátsins Hólmars GK-546
frá Sandgerði sem er um 50
tonn, var saknað sl. föstudag.
Síðast heyrðist til hans kl. 9,20
á föstudagsmorguninn og var
hann þá staddur um það bil
10 sjómílur austur af Alviðru-
hömrum á Mýrdalssöndum á
ieið til Vestmannaeyja. Bátur-
inn var á togveiðum austur af
Ingólfshöfða á fimmtudag, á-
samt vélbátnum Guðmundi góða
frá Reykjavík. Lögðu báðir bát-
arnir af stað, vegna veðurs til
Vestmannaeyja, en Hólmar var
um hálfum öðrum tíma á eftir.
Um þetta leyti voru 8 — 10 vind
stig, en nokkru seinna versnaði
veðrið. Það var klukkan 12,30
á föstudaginn sem skipstjórinn
á Guðmundi góða kallaði Hólm-
ar upp í talstöðina, en fékk
ekkert svar.
Snemma á laugardagsmorgun
inn byrjaði Slysavamarfélagið
að skipuleggja leit að bátnum
og samkv. upplýsingum frá Lár-
usi Þorsteinssyni, hefur einkum
verið leitað á svæðinu frá Ing-
Framhald ð bls. 6
Samninganefnd vinnuveitenda, Björgvin Sigurðsson framkvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bands íslands er á miðri myndinni og ræðir við Þórhall Ásgeirsson ráðuneytisstjóra ór
sáttanefnd rikisins.
Samningaviðræður halda ófram:
Sérkröfur félaganna ræddar
-<s>
Stöðugar samningaviðræður
voru um helgina milli fulltrúa
verklýðsfélaganna og atvinnu-
rekenda um launamál. 1 gær
voru fundir með samninganefnd
um starfsgreinanna til þess að
ræða um sérkröfur verklýðsfé-
laganna. Mun hafa orðið nokk-
ur árangur í þeim viðræðum.
Ekkert var hins vegar rætt
í gær um hinar sameiginlegu
kröfur allra félaganna svo sem
kauphækkun og vinnutíma.
RÆTT UM AÐ HRAÐA
SAMNINGUM SEM MEST
Á laugardaginn var haldinn
fundur í hinni stóru samstarfs-
nefnd allra verklýðsfélaganna,
samninganefnd atvinnurekenda
og sáttanefnd ríkisins. Fóru
fram viðræður milli þessara
nefnda um það hvernig bezt
væri að hraða samningum sem
mest og var það m. a. ákveðið
þá að halda fund þann, er hald-
inn var á sunnudag, til þess að
ræða um sérkröfur félaganna.
IÐJA RÆÐIR VERKFALL.
Iðja, félag verksmiðjufólks í
Reykjavík hélt félagsfund í gær
um samningamálin. Var þar
rætt m. a. um það hvort félagið
ætti að boða vinnustöðvun 10.
desember til þess að það geti
látið verkfall koma til fram-
kvæmda 10. um leið og önnur
verklýðsfélög, náist ekki samn-
Framh. á bls. 6.
Samninganefnd verklýðsfélaganna.
Bls. 3 Helmsókn f
Hrafnistu.
— 8 Aldous Huxley
fallinn frá.
— 9 Henni héldu engin
bönd. Viðtal vlð
Gunnfríði Jónsdótt-
ur, myndhöggvara.
Hátlðahöld stúdenta 7. desember:
n
Upphaf nýs endurreisnarskeiis
11
sagdi dr. Broddi Jóhannesson i aðalræðu hátiðahaldanna i gær
Stúdentar héldu 1. desember
hátíðlegan. Guðsþjónusta var í
kapellu Háskóla Islands. Sam-
koma var í hátíðasal háskólans.
Flutti dr. Broddi Jóhannesson,
aðalræðuna: Staða einstaklings-
ins í þjóðfélagi. Um kvöldið
var fagnaður að Hótel Borg.
Sigurður K.G. Sigurðsson,
stud. theol, flutti ræðu í kapell-
unni, en sr. Þorsteinn Björnsson
þjónaði fyrir altari. Hófst at-
höfnin kl. 10.30.
Kl. 14 var hátfðasamkoma í
hátíðasal Háskóla Islands. Hrafn
Bragason, stud. jur. setti hátíð
ina, félagar úr Musica Nova
léku og dr. Broddi Jóhannesson
flutti aðalræðu dagsins en stúd
entar höfðu ákveðið að helga
daginn stöðu einstaklingsins í
nútíma þjóðfélagi, og fjallaði
ræða dr. Brodda um það efni.
Hann hóf mál sitt á þvi að
skilgreina hugtökin einstakling-
ur og þjóðfélag. Hann taldi hug
takið „einstaklingur" vera mjög
óljóst. I vísindum væri tilhneig
ing til að nota um einstakling-
Framh. á bls. 6.
t »