Vísir - 02.12.1963, Síða 9

Vísir - 02.12.1963, Síða 9
V í S IR . Mánudagur 2. desember 1963. f Samtal við Gunnfríði Jóns- dóttur myndhöggvara Hún situr á gamalli tröppu í vinnustofunni, sérkennileg kona með dökkt, slétt hár, skipt í miðju, brún augu, sem leiftra, þegar hún talar, sterkt andlit, dimma rödd. í baksýn eru tvær háar, hvítar styttur: landnámskonan og klerkur á bæn. Hún er mælsk og hefur mikið að segja, hver sagan rekur aðra án tillits til samhengis eða tímaröðunar. Hún heitir Gunnfríður Jóns- dóttir og er ein hinna fáu íslenzku kvenna, sem lagt hafa fyrir sig höggmyndalist. „Ég byrjaði ekki fyrr en ég var komin á fimmtugsaldur, en þá héldu mér engin bönd leng- ur“, segir hún með áherzlu og styður krepptum hnefanum á borðið fyrir framan sig. „f 20 ár var ég eina konan hérna á fslandi, sem vann að högg- myndalist, og marga hnútuna fékk ég út af því — fólk hefur oft hneykslazt á mér um dag- ana, en það er ég ekkert hrædd við. ,Ég held, að hún þurfi ekki að vera að þessu; það eru nógu margir karlmenn til að gera það‘, sögðu margir og fannst ég hálfvitlaus. En ég hélt mínu striki, þó að ég fengi skammir fyrir. ,Gunnfrfður getur þetta, og Gunnfríður getur hitt‘, sagði fólk. ,Það er ekki fyrir fjandann „í hvaða löndum varstu?“ „Fyrst tvö ár í Kaupmanna- höfn, svo skrapp ég eitt sumar til Þýzkalands, fimm ár var ég I Stokkhólmi og þrjú I París. Ég komst líka suður til Grikk-^ lands og Ítalíu, og alls staðar skoðaði ég söfn og kirkjur. Það skildi enginn, að saumakona eins og ég hefði áhuga á slíku, en ég talaði ekkert um, að auð- vitað þráði ég að læra, þótt ég hefði engin efni á því. Ég var svo viðkvæm, að ég þoldi ekki að hugsa mikið um það. Ég fékk aldrei grænan eyri I náms- styrk — ríkissjóður er ekki á hausnum af því að hann hafi kostað mig. En ég var alltaf ákveðin að fara til útlanda. ,Nú fer ég og verð úti 10 ár og kem einu sinni heim á þeim tíma', sagði ég, áður en ég fór. Og það rættist“. „Nú, þú hefur þá spásagnar- gáfu Iika?“ „Já, og á ekki langt að sækja það. Afi minn var Einar fræðimaður á Bólu, og þeir köll- uðu hann galdramann og fræði- mann, já, allt kölluðu þeir hann afa minn“. ÓÍSLENZKT ÚTLIT „Þú ert úr Skagafirðinum?" „Já, komin af Skagfirðingum langt aftur I ættir, miklum hag- leiksmönnum, en það var ég búin að segja þér. Ég hef alltaf Gunnfríður með tvær af stærstu styttum sínum, Landnámskonuna og Klerk á bæn. (Myndirnar tók Ijósm. Vísis, B. G.) hann svo. ,Ónei, þetta er nú frá henni mömmu minni', svar- aði ég, því að hún var alveg eins. Það héldu margir, að ég Reykjavíkur?" „1915, og eftir það fór ég aldrei heim nema I kaupavinnu á sumrin. Alltaf varð maður að og var alltaf vitlaus í arkítektúr og stúderaði kirkjur bæði hér og annars staðar. Sjáðu bara hann Guðmund góða — ég kalla Henni héldn engin bönd sjálfan að koma henni á kné‘, sagði einn kunningi minn, sem þekkti mig vel. Ónei, um að . gera að vera aldrei hræddur og gefast aldrei upp“. Og hún hlær hressilega, eins og hún sé tilbúin að storka öll- um heiminum. AF HAGLÉIKSMÖNNUM KOMIN „Maður er nú búinn að gera æði margt um dagana, elskan mln“, heldur hún áfram, „enda er ég komin af miklum hag- leiksmönnum, sem gerðu alla hluti jafnvel. Fólk skilur ekki, að hægt sé að gera allt jafnvel, en þeir, sem á annað borð eru hagir, eru hagir á allt. Hefði ég ekki kunnað handverk, myndi ég aldrei hafa komizt langt. Ég vann fyrir mér með saumaskap og gat þannig verið 10 ár I útlöndum, ferðazt um Evrópu, skoðað listasöfn og menntað mig sjálf. Ég saumaði fyrir gott fólk I Stokkhólmi, greifa og hvaðeina. Þar leið mér vel“. „Gaztu stundað listnám með saumaskapnum?“ „Onei, ekki beinlínis, ég var hindruð á allan hátt. Það þótti sjálfsagt, að konur væru ekki að fást við svona hluti, en eng- inn getur meinað manni að hafa opin augun og stúdera þannig. Ég þurfti að kynnast listasöfn- unum til að gera mér grein fyr- ir, hvað var sönn list og hvað ekki. Ég sá mikið, já, ég er nú hrædd um það“. verið svona dökk yfirlitum, enda sagði Einar Benediktsson skáld, þegar hann sá mig I fyrsta sinn: ,Sú er ekki rétt- feðruð', en auðvitað var hann að gera að gamni sínu. .Einhver hefur komið sunnan að‘, sagði væri útlendingur, og þegar ég var erlendis, átti ég að vera ítölsk eða frönsk, og meira að segja var nefnt héraðið á Italíu, sem ég átti að vera frá. Engum datt I hug, að ég væri íslenzk". „Hvenær komstu fyrst til vinna; það var engin hvíld I sveitinni, a. m. k. ekki á þeim árum. Ég fór I Kvennaskólann á Blönduósi, þegar ég var ekki fullra tuttugu ára, og skóla- gjaldið fékk ég lánað. Eftir vet- urinn tók ég próf úr fyrsta bekk; svo var það búið, því að skólinn brann árið eftir. Árið áður lá ég heilan vetur I tauga- veiki og lungnabólgu, sem ég fékk upp úr henni. Ég var allt- af meira eða minna veik frá því á fyrsta árinu og fram til tuttugu og tveggja. Síðan fór ég til Akureyrar og loks Reykja- víkur og vann fyrir mér með saumaskap. Ég lærði að sauma herraföt líka og allt I höndun- um. Það kom sér vel fyrir mig að kunna að sauma, bæði þá og síðar“. ÓGLEYMANLEGUR DAGUR „En hvenær byrjaðirðu að fást við höggmyndalistina?“ „Það skal ég segja þér — laugardaginn 18. ágúst 1931 kl. 1.30 e. h. Ég gleymi aldrei þeim degi. En það var eklji fyrr en 1940, sem ég byrjaði fyrir al- vöru og gerði þá litla skissu af ,Landsýn‘, styttunni, sem stendur I Selvogi rétt hjá Strandarkirkju. Sumum fánnst asnalegt af mér að velja mér svor.a trúarlegt efni, en ég held bara, að ég hafi verið fædd kaþólsk, þó að ég sé ekki I þeim söfnuði. Ég þaullas Hallgrím Pétursson, þegar ég var barn, styttuna .Klerkur á bæn‘, en hún er af Guðmundi góða, sem ég hef dáð alla mína ævi. Hún ætti að vera á Hólum, og ég vona, að hún verði einhvern tíma sett upp þar“. „Hvað var fyrsta myndin þín?“ „Drengshöfuðið, sem þú sérð hérna. Þegar ég kom aftur heim frá útlöndum, fór að sækja að mér þunglyndi, þvl að ég sá, að ég hafði látið tækifærin sleppa mér úr greipum alltof lengi og notað lífið vitlaust, og þá ákvað ég að byrja heldur strax en að bíða eftir, að ég væri búin að hálfdrepa mig, og um Ieið og ég var byrjuð, fór mér að líða betur. Síðan hef ég unnið við þetta, eftir því sem kraftar leyfðu, og hefði heilsan verið nógu góð, væru stytturn- ar orðnar fleiri. Það vita fáir af mér, þvl að ég hef haldið mig til baka — ég get ekki verið að bramboltast við að auglýsa mig úti um allar jarðir. En stundum hef ég fengið viður- kenningu, sem hefur glatt mig og örvað. Þegar norski mynd- höggvarinn Grimeland sá mynd, sem ég gerði af móður minni og sýnd var á Norðurlandasýn- ingunni 1 Stokkhólmi 1947, sagði hann: ,Geri þeir eins á íslandi, þá fer vel‘. Og finnski myndhöggvarinn frægi, Aalton- en, sagði um ,Á heimleið1, sem líkg var sýnd þar, að hún væri önnur bezta myndin á sýning- unni. ,Hún hefur klára og stóra Framh á bls u Gunnfríður með sjálfsmynd.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.