Vísir - 02.01.1964, Page 16
HÚS EYBILAGÐIST AF FLDIÁ
Fimmtudagur 2. janúar 1964.
wV\AA/WVWWVVVAAA^A<
Jólaget-1
raunin |
Lausnir i jólagetraun Vfsi
þurfa að berast til ritstjórnar
blaðsins fyrir 15. janúar. i|
»A(VWWS«^WVWWWV
Verkfalli FÍH
frestað til 18.
janúar
Verkfalli Félags fsl. hijóðfaeraleik
ara hefur verið frestað til 18. janú-
ar að beiðni veitingamanna. Aðeins
einn samningafundur hefur verið
haldinn og náðist ekki samkomulag
á honum.
SELTJARNARNÍS! í GÆR
Ibúðarhúsið Teigur að brenna
Skömmu fyrir hádegið f gær
varð mikill eldsvoði f húsinu Teigi
á Seltjamarnesi. Húsið er talið ó-
nýtt, ásamt öllu sem i því var.
Fólk bjargaðlst nauðuglega út,
enda allir f fasta svefni. Munaði
litlu að ungur piltur kafnaði í reyk,
en honum var bjargað meðvitund-
arlausum út.
Húsið Teigur er gamalt timbur-
hús, einlyft með íbúðarrisi og
stendur á háum steinsteyptum
kjallara. Eigandi þess er roskin
ekkja, Oddný Kjartansdóttir, bjó
hún f húsinu ásamt syni sínum
Ingimundi Steindórssyni og konu
hans og 5 börnum, sem öll voru
komin nokkuð á legg, þau elztu
um eða yfir fermingaraldur.
Á rishæðinni voru svefnherbergi,
þar sem eldri bömin sváfu, og þar
var gestkomandi maður, Ólafur
Árnason, sem svaf f einu herberg-
inu. Hitt fólkið svaf á neðri hæð-
inni.
Fólkið mun hafa vakað fram eft-
ir nóttu svo sem gerist og gengur
á nýársnótt. En klukkan langt
gengin 11 vaknar Ólafur og verð-
ur þess var að það er reykur í
herberginu hjá honum. Hann flýtir
sér þá fram á gang, sem allur er
orðinn fullur af reyk. Ólafur vekur
fólkið og segir að það muni vera
kviknað f húsinu, enda gýs á
samri stundu upp eldur sem magn-
ast ört við það er hurðir voru
opnaðar og gegntrekkur myndað-
Framh. á bls. 5
Benzínið kostarnú
5,70 kr. Ittriim
Björguðust út ánáttfötum
Benzfnhækkunin kom til fram
kvæmda í morgun. Kostar
benzínið nú kr. 5,70 á Ifter en
var áður 4,20 kr. pr. Ifter. Eins
og áður hefur komið fram f frétt
Vont veður, en
ekki til skaða
Akranesi i morgun.
— Hér var hart veður, en ekki
til skaða, sagði Sigurður Vigfússon
fréttaritari Vísis á Akranesi, er
blaðið spurði hann frétta af veðrinu
f gærmorgun.
— Þó hefði getað hlotizt tjón af,
sagði hann, — í bátahöfninni, ef
menn hefðu ekki gætt bátanna.
Sigurður kvað allflesta bátana
búa sig á línuveiðar, þó ekki alla,
enda beitulítið. Þrír bátar hafa róið
í desember og aflað sæmilega af
ýsu og þorski.
um hækkar benzínið fyrst og
fremst vegna nýrra laga um
vegamál, sem samþykkt voru á
þingi fyrir skömmu en þau lög
gera ráð fyrir þvf að stórauknu
fjármagni verði varið til vega-
gerðar.
í hinum nýju lögum um vega
mál var gert ráð fyrir að hækka
þyrfti benzínið um allt að 1,30
kr. pr. líter vegna vegafram-
kvæmda. En 20 aura hækkunin,
sem á sér stað þar umfram staf
ar m. a. af hækkuðum sölu-
launum olfufélaganna vegna ný-
afstaðinna kauphækkana og ann
arrar hækkunar á rekstursgjöld
um og vegna aukins söluskatts
en söluskatturinn leggst á hinn
nýja benzínskatt einnig.
Ekki varð bess vart, að benzín
væri neitt hamstrað fyrir ára-
mót vegna hinnar væntanlegu
hækkunar. Þrátt fyrir hækkun-
ina mun benzín enn vera hið
ódýrasta f Evrópu hér á landi.
— Mér, tókst að bjarga bux-
unum mfnum og konan tók
sængina með sér út. Það var
líka það eina sem okkur tókst
að bjarga. Allt innbúið brann
og húsið er talið ónýtt, sagði
Ingimundur Steindórsson, sem
bjó ásamt fjölskyldu sinni að
Teigi á Seltjamarnesi, þar sem
mikill eldsvoði varð á nýársdag.
Fréttamenn frá Vísi hittu Ingi-
mund í morgun, þegar hann var
að skoða húsið eftir bmnann.
Gífurlegur eldur var f húsinu
og Iæsti hann sig um öll her-
bergi hússins. 1 morgun var
búið að bera mest af húsgögn-
Framh á bls. 5.
Ljósmynd þessa tók I. M. ljósmyndari Vfsis f brunarústunum f morgun af Ingimundi og tveimur af
sonum hans.
Aflakóngur og verkalýðs-
foringi meðal orðufólks
Forseti íslands sæmdi eftir-
talda borgara riddarakrossi
hinnar íslenzku fálkaorðu í
gær:
Ásgeir Guðmundsson fyrr-
verandi óðalsbónda frá Æðey
fyrir búnaðarstörf, Eðvarð Sig-
urðsson alþingismann, formann
Verkamannafélagsins Dagsbrún
ar, fyrir störf í þágu verkalýðs-
hreyfingarinnar, Eggert Gísla-
son, skipstjóra á Sigurpáli frá
Gerðum, fyrir sjómennsku, Ey-
þór Tómasson, forstjóra Lindu
á Akureyri, fyrir iðnaðar- og fé-
lagsmálastörf, frú Oddnýju A.
Metúsalemsdóttir, Ytri-Hllð,
Vopnafirði, fyrir garðyrkju og
félagsmálastörf, frú Sesselju
Sigmundsdóttur, forstöðukonu
hælisins að Sólheimum í Grlms-
nesi, fyrir störf í þágu vangef-
ins fólks, og Þórð Guðmunds-
son skipstjóra á Akraborginni
fyrir sjómennsku og skipstjórn
arstörf.
Hinn 27. desember var Einar
B. Guðmundsson hrl. formaður
stjórnar Eimskipafélags Islands
sæmdur riddarakrossi Fálkaorð-
unnar fyrir störf I þágu við-
skipta og samgöngumála.
BIFREIÐ VELTUR
Það slys vildi til 30. desem-
ber, að stór vöruflutningabifreið
frá Kaupfélagi Borgfirðinga, er
var á leið suður frá Akureyri, fór
út af veginum við Bægisárbrú.
Náði bifreiðin ekki beygjunni á
brúna og féll niður í árgilið.
Slösuðust mennirnir tveir, er 1 bíln
um voru og bíllinn gereyðilagðist.
Fallið niður f gilið mun vera ein
ir 6 metra-r. Lenti bifreiðin þvers-
um í gilinu og lagðist á vinstri hlið
milli stórra steina. Skömmu eftir
að slysið átti sér stað, kl. 5 e.h.
30. desember kom þar að jeppi úr
Þingeyjarsýslu. Voru tveir menn f
honum. Tóku þeir eftir þvf, að brotn
að höfðu staurar við brúna og hjól
för bentu til þess að bifreið hefði
farið út af. Sáu þeir síðan bifreið-
ina niðri í gilinu og urðu þess
fljótt varir, að mennirnir tveir er
i henni voru, komusi. ekki út. Fór
annar maðurinn í jeppanum að
Syðri-Bægisá og hringdi þaðan á
aðstoð. Kom lögreglan á Akureyri
og læknir þegar á staðinn. Tókst
að losa mennina úr bifreiðinni með
því að nota vökvalyftur til þess að
losa bílflakið í sundur. Mennimir
voru talsvert slasaðir, báðir fót-
brotnir og annar handleggsbrotinn.
Auk þess höfðu þeir fengið slæm
Framh. á bls. 5.