Vísir - 27.01.1964, Blaðsíða 2

Vísir - 27.01.1964, Blaðsíða 2
V í SIR . Mánudagur 27. janúar 1964. JON BIRGIR PETURSSON Leikmenn tóku leikinn ísín- j staðan ur hendur og græddu stíg Fram vann Víking 23:22 í geysi- spennandi viðureign Leikmenn Fram unnu bæði stigin í æsispennandi viðureign við Víking í gærkvöldi með 23:22 sigri, sem þó fékkst því aðeins að toga dómarann Val Benediktsson út í horn til markdómara, sem hafði séð eitthvað athugavert við mark sem Valur hafði verið búinn að dæma gilt. Er furðulegt að alþjóðadómari skuli Iáta Ieikmenn hreinlega neyða sig til aðgerða sem þessara. E. t. v. var markdómarinn að gera rétt, en mark sem dómarinn dæmir gilt, . . . . er líka GILT. Hálogaland eins og það var í gærkvöldi sýndi fjölmörgum áhorfendum að það er vart hægt að reikna með miidum eða stórum sigrum landsliðsins okkar í HM í Tékkó- slóvakíu. A. m. k. Iogaði hatrið og reiðin í sumum landsliðs- mönnum gagnvart hvor öðrum, að með ólíkindum má telja að þessir sömu menn geti lagt hvor öðrum lið á þessum sama orustu- velli eftir nokkrar vikur. Frh. á bls. 7. , Staðan og markhæstu menn. Eftir leikina í 1. deild í gær1 | er staðan þessi: , * ÍR-KR 28-17. ÍK Fram —Víkingur 23—22. ' ] Fram 5 4 0 1 8 114:116 < i ÍR 5 3 1 1 7 130:114 < ’FH 4 2 115 118:1011 j Vík. 5 2 0 3 4 117:122! \ KR 5 2 0 3 4 118:140 < [Árm. 4 0 0 4 0 72:94 1 Gunnl. Hjálmarsson, ÍR, 46 < i Ingólfur Óskarsson, Frám, 46 ] i Karl Jóhannsson, KR, 41 ( 1 Hermann Samúelsson, KR, 34 < , Rósmundur Jónsson, Vík., 32 ] i Hörður Kristinsson, Árm., 30 ( [ Reynir Ólafsson, KR, 28 ] i Guðjón Jónsson, Fram, 27 t 1 Ragnar Jónsson, FH, 27 < ] Páll Eiríksson, FH, 21 ] > Ágúst Oddgeirsson, Fram, 20 i ] Birgir Björnsson, FH, 20 ] i Jóhann Gíslason, Víking, 19 ( 1 Sigurður Einarsson, Fram, 19 < ] Örn Hallsteinsson, FH, 19] „StríBsdms" setti Qma- Fáninn í hálfa stöng í OL-þorpinu. Áströlsku þátttakendurnir minnast látins félaga síns á laugardaginn. ENN BANASL YS í INNSBRUCK N'itján ára Astral'iumaöur keyrði á / fullri ferð á tré og lézt þegar Enn einu sinni heimsótti dauð- inn iþróttafólkið í Innsbruck, sem æfir nú fyrir Olympíuleikana, sem hefjast í vikunni. Fyrra slysið var í bobsleðabrautinni er fimmtug- ur Breti Iét lífið, nú var það ung- ur Ástralíumaður sem lézt í slysi á laugardaginn. Það var hinn 19 ára gamli Ástralíumaður Ross Molne, sem lézt eftir að hann ók á fullri ferð á tré, en hann hafði al- gjörlega misst stjórn á sér í gler- harðri brunbrautinni. Molne var fluttur með þyrlu af slysstaðnum, en var látinn þegar I sjúkrahús var komið. Mótsstjórn'n í Innsbruck sagði blaðamönnum I gærkvöldi að dauði Molne hefði orsakazt af ókunnug- Ieika hans á brautinni og aðstæð- unum. Þátttökulöndin hafa verið beðin að draga til baka þátttakend ur ,sem ekki hafa möguleika að þeirra áiiti og er þetta gert með tilliti til slysahættunnar, sem fylg- ir þessari hættulegu íþrótt, sem brunið er. En ekkert gat komið K.R Flauta dómarans í leik KR og ÍR í gærkvöldi í 1. deild í handknattleik hef- ur eflaust verið orðin rauð glóandi að leik loknum. Leikurinn allur einn „pípu konsert“ frá upphafi til enda, sem kom til af hörð um og óvægilegum leik, jafnvel óvenju harkalegum leik á Hálogalandi, sem seg ir nokkuð. ÍR var langtum betra liðið í viðureigninni, liðsmenn KR komust úr jafnvægi strax nokkuð snemma leiks og sú mikla KR-maskína komst aldrei að gagni í gang í leiknum, ÍR vann með 28:17, sem var mun stærri sigur en búast mátti við. KR byrjaði vel og Sigurður Ósk- arsson skorar 2 mörk. Eftir þetta hefur KR forystu þar til að ÍR jafnar I 6:6 og missti ekki foryst- una eftir það. KR hafði á tímabili yfir 6:3, en góður kafli ÍR færði þá í 10:7, — eða 7 mörk ÍR gegn einu KR-marki. I hálfleík hafði ÍR yfir 13:9. Seinni hálfleikurinn leiddi í ljós talsverða yfirburði ÍR, en var þó mjög harkalega leikinn á báða bóga. ÍR náði 15:9 mjög snemma og var leikurinn þá að heita má út- kijáður, það var greinilegt að KR- liðið ætlaði ekkiáð gera nein stór- virki. ÍR jók stöðugt forskotið og gleði leikmanna 3ð sama skapi. Þegar Gunnlaúgur Hjálmarsson Frh. á bls. 7. Þórólfur átti góian leik — en sknpið hljóp mei hann í gönur Þórólfur Beck átti stóran þátt I að lið hans, St. Mirren, vann Stanrear með 2:0 í bikar- keppninni um helgina,- Hann átti stærstan þátt í seinna markinu í þessum leik, sem þótti illa leikinn, en harkan lát- in sitja í fyrirrúmi. Leikmenn voru mjög reiðir og skapið hljóp með tvo menn í gönur, Þórólf og einn ieikmanna Stanrear. Dómarinn kallaði Þórólf til sín eftir árekstur hans við mótherja sinn og á- minnti hann og „bókaði", en þá spyr dómari leikmann um nafn og skrifar í litla vasabók, sem allir brezkir dómarar hafa með sér í leiki, en séu menn „bók- aðir“ verður framferði þeirra kært til knattspyrnusambands- ins, sem venjulega sendir málin til dómstóls. Mál Þórólfs og 12 annarra leikmanna skozkra verða send þessa leið, en éngin brotanna eru alvarlegs eðlis, en venjulega munu knattspyrnumenn vera dæmdir í létta fjársekt, en stundum í keppnisbann um stuttan tíma. KR-ingar reyna að hindra skot Gunnlaugs, en skotið fer í gegn.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.