Vísir - 27.01.1964, Blaðsíða 15
75
VÍSIR . Mánudagur 27. janúar 1964.
aSBHHHHi
— Hvers vegna þegið þið?
spurði Paroli. Ég vil heyra álit
ykkar — einn getur mælt fyrir
munn ykkar allra.
Læknaneminn, sem álitinn var
duglegastur, steig fram eitt .eða
tvö skref og sagði:
— Herra læknir, ég er nokk-
um veginn viss um, að það er
efi, sem við vildum láta í ljós,
næstum vissa —.
— Um hvað?
, — Að hér verði engri lækn-
ingu við komið. -
- Og hver hefir sagt ykkur
það?
— Höfundar þeirra læknis-
fræðilegu rita, sem við höfum
lesið, og kennararnir okkar.
Paroli brosti háðslega og
sneri sér að Grisky:
— Og hvar er þessi kona?
— Ég lét fara með hana í
sjúkrastöfu númer 12. Hún bíð
ur þar með syni sínum, herra de
Gevrey.
Þegar Paroli heyrði þetta
nafn, kipptist hann við.
Herra de Gevrey, sagði hann
við sjálfan sig og minntist frétt
ar, sem hann hafði gluggað í,
er hann beið í biðstofu Griskys
læknis, en fréttin hafði fjallað
um morðið í hraðlest nr. 13, og
var í henni sagt frá því, að de
Gevrey hefði málið með hönd-
um.
- Það er rannsóknardómari
með þessu nafni í París, sagði
hann svo með spurnarhreim í
röddinni. Og ef svo er —- er
hann sonur þessarar konu?
— Já.
Paroli hugsaði um hve ein-
kennilegt það væri, að spor hans
og þessa manns skyldu hafa
|g Nýtt! Nýtt!
Vatnsþéttum regnfrakka og
allan annan' ytri fatnað.
Sendum — sækjum
Efnalaugin
LINDIN
Skúlagötú 51 . Sími 18825
Hafnarstræti 18 . Sími 188°
legið til húss Grisky, en upp-
hátt sagði hann hressilega:
— Eigum við þá að koma,
kæri læknir? Og þið, herrar mín
ir, komið líka.
Og svo var lagt af stað í átt-
ina til stofu nr. 12.
De Gevrey stóð við hlið móð-
ur sinnar, þegar þeir komu inn.
Grisky gekk til hans og sagði,
er hann hafði heilsað honum:
- Þér eruð stundvís sem
jafnan, herra de Gevrey — kom-
ið jafnvel fullsnemma, eins og
núna.
— Já, afsakið, en ég er óeir-
inn, get ekki um annað hugsað
en að fá þetta afstaðið nú þeg-
ar, svo að móðir mín fái fulla
sjón aftur. Þér hafið gefið mér
von um að uppskurðurinn heppn
ist og hún fái sjónina aftur.
— Ég er ekki sá eini, sem
ber ábyrgð á þessari aðgerð.
Leyfið mér að kynna stéttar-
bróður minn og eftirmann, Ang-
elo Paroli lækni.
- Eftirmann? spurði de Gev-
rey undrandi.
— Þessi stofnun hefir verið
hans stofnun seinustu tfu dag-
ana. Það verður þannig hann,
sem verður að taka ákvörðun-
ina — hvort hyggilégt er eða
ekki, að gera þessa djarflegu til-
raun., því, lífi móður yðar gæti
verið teflt í hættu.
Frú de Gevrey reis skyndilega
á fætur.
— Ef svo er, sagði hún titr-
andi röddu, held ég að bezt sé
að hætta við þetta. Ég vil ekki
yfirgefa þig, sonur minn. Ég
vil heldur vera blind hjá þér en
verða að fara frá þér. Þótt ég
geti ekki séð þig, heyri ég til
þín, veit af þér, nýt umönnunar
þinnar. Það mun veita mér næga
lífshamingju.
— Ég bið yður, kæra frú, að
varðveita ró yðar, sagði Paroli,
og ég bið yður hins sama, herra
de Gevrey. Eigum við ekki að
hugsa sem svo,. að minn kæri
stéttarbróðir kunni að vera var-
færinn um of — og vilji forð-
ast að vekja of miklar vonir. Ég
vona fastlega, að það eigi eftir
að koma í ljós, að hann hafi
verið óþarflega svartsýnn. Ef ég,
að undangenginni rannsókn á
augum frúarinnar, tel líkur fyr-
ir að hún fái bata, mun ég ekki
hika við að framkvæma aðgerð-
ina og ég tek einn á mig alla
ábyrgð.
— Hvað gagnar mér, þótt þér
takið á yður alla ábyrgð, sagði
Richard de Gevrey með áherzlu.
Ég krefst þess, að lífi móður
minnar verði ekki ...
— Til þess kemur ekki. Ég
legg heiður minn að veði. Ég
framkvæmi ekki uppskurðinn,
nema ég sé hárviss um, að lífi
móður yðar sé engin hætta bú-
in.
— Hvernig getið þér verið
viss?
— Ég veit vissu mína, þegar
ég hef rannsakað augu hennar
og ég bið yður nú leyfis, að
mega rannsaka augu hennar.
— Er það að þínum vilja, móð
ir mín? spurði de Gevrey.
— Að sjálfsögðu, til þess er
ég hingað komin. Og sjónin er
í rauninni þegar farin.
- Gerið þér þá svo vel og
framkvæmið skoðun yðar, lækn
ir.
Paroli tók í hönd konunnar
og leiddi hana að hægindastól
úti við gluggann. Hann lét hana
setjast þannig, að birtan féll á
andlit hennar. Allir viðstaddir
mynduðu hring um þau og menn
horfðu á áhugasamir og fullir
eftirvæntingar.
Paroli tók hin bláu- gleraugu
frúarinnar, hóf athugun sína á
augunum og var að þessu um
það bil fimm mínútur.
— Hve gömul eruð þér, frú?
spurði hann.
— Fimmtíu og sex ára.
— Og þér eruð hættar að geta
séð?
— Já, svo má heita.
— Hafið þér leitað til sér-
fræðinga?
— Já.
.— Og hvert var álit þeirra?
spurði Paroli og var vottur- háðs
í rödd hans.
- Enginn vildi gefa mér neina
von um, að uppskurður myndi
koma að gagni.
— Það er rétt, uppskurður
mundi ekki koma að gagni.
De Gevrey fölnaði.
— Og móðir mín er þá dæmd
til þess að vera blind ævilangt?
— Það sagði ég ekki. Þótt
uppskurður gagni ekki, er veg-
ur til heilbrigði.
— Þér — þér búizt þá við,
að geta hjálpað móður minni?
— Það vona ég fastlega.
— Þá mundi ég yður þakklát-
ur ævilangt og fúslega láta yður
fá allt, sem ég á, að launum.
— Þakklæti yðar mundi
nægja, sagði Paroli brosandi —
og ég get ekki einu sinni gert
kröfu til þess. Ég geri aðeins
skyldu mína — og — ég lofa
yður, að móðir yðar skal geta
séð á ný.
— Þökk, þökk, sagði de Gev-
rey hrærður.
Það er klettasylla hérna sem hefur klifrað upp i klettana til bara augunum og bið. Og hið er rammur að afli, en þetta er á-
ætti að vera sæmilega örugg fyr- að rannsaka allar aðstæður. — erfiða ferðalag upp klettavegg- kaflega þreytadi þolraun, og hann
ir okkur bæði, kallar Tarzan sem Hífðu þá, hrópar stúlkan, ég loka nn hefst einu sinni enn. Tarzan verður að taka á öllu
Hárgreiðslustofan
I HÁTÚNI 6, sími 15493.
I Hárgreiðslustofan
SÖLEY
i Sólvallagötu 72.
| Sími 14853.
* Hárgreiðslustofan
I P I R O L A
| Grettisgötu 31, sími 14787.
I Hárgreiðslustofa
IVESTURBÆJAR
I Grenimel 9, sími 19218.
| Hárgreiðslustofa
iAUSTURBÆJAR
(Marfa Guðmundsdóttir)
' Laugaveg 13. sími 14656
Nuddstofa á sama stað.
1 Hárgreiðslu- og snyrtistofa
I STEINU og DÓDÓ
i Laugaveg 18 3. hæð flyfta).
Sími 24616.
I Hárgreiðslustofan
Hverfisgötu 37, (horni Klappar-
stígs og Hverfisgötu). Gjörið i
I svo vel og gangið inn. Engar
I sérstakar pantanir, úrgreiðslur.
1 P E R IVI A, Garðsenda 21, sfmi ,
| 33968 — Hárgreiðslu og snyrti-
| stofa.
Dömu, hárgreiðsla við allra hæfi
'TJARNARSTOFAiy,
I Tjarnargötu 10, Vonarstrætis-
I megin. Sími 14662
Hárgreiðslustofan
Háaleitisbraut 20 Slmi 12614
, MEGRUNARNUDD.
Dömur athugið. Get bætt við I
1 mig nokkrum konum I megrun-
I arnudd Snyrtistofa Guðbjargar
| Guðmundsdóttur, Laugavegi 19.
i sími 12274.
SNYRTISTOFAN MARGRÉT j
1 Skólavörðustíg 21, sími 17762 i
i Snyrtistofa - Snyrtiskóli.
Eldhúsbarð —
iBdhússtólar
Miklatorgi