Vísir - 27.01.1964, Blaðsíða 5
VlSIR . Mánudagur 2/. jcmuar 1964.
5
Jón Sigurðsson
slökkviliðsstjóri
lótinn
Jón Sigurðsson, slökkviliðs-
stjóri, andaðist á laugardagsmorg-
un í Borgarspítala, en hann hafði
legið mjög þungt haldinn allt frá
því að hann veiktist í byrjun nóv-
embermánaðar síðastliðins.
Jón var fæddur 10. desember
1906, sonur Sigurðar fangavarðar
Péturssonar, og konu hans Guð-
ríðar Gilsdóttur. Jón varð stúdent
1928 og lauk verkfræðiprófi í
Kaupmannahöfn 1937. Eftir það
starfaði hann hjá bæjarverkfræð-
ingi og var deildarverkfræðingur
hjá Vatns- og hitaveitunni. Slökkvi
liðsstjóri var hann skipaður árið
1945. Um nokkurra ára bil gegndi
hann einnig starfi vatnsveitu-
stjóra og ýmsum trúnaðarstörfum
öðrum og tók virkan þátt í félags-
málum. Jón var kvæntur Karenu
Guðmundsdóttur, Eiríks stór-
kaupmanns, og eignuðust þau tvær
dætur, Elísabetu og Sigríði.
Jón var mikill drengskaparmað-
ur og naut almennra vinsælda.
— a.
Bófur —
Framh. af bis. 1.
Talið er, að aðeins hafi liðið 5
mín. frá því Hrönn slitnaði upp
þar til báturinn hafði oltið heil-
an hring í fjörunni. ,,Það er
hörmuleg sjón að horfa á bát-
ana velta á sjónum úti á ból-
inu í afspyrnroki, vitandi það,
að ekkert sé hægt að gera, ef
þeir slitna upp,“ sagði frétta-
ritari Vísis í Þorláksþöfn.
Hrönn var keypt til Þorláks-
hafnar í sumar vestan af ísa-
firði, og er eigandi Karl Karls-
son, skipstjóri.
Nýr og glæsilegur bátur,
Friðrik Sigurðsson, eign þeirra
bræðra Friðriks og Guðmundar
Friðrikssona, lá einnig úti á
bólinu. Þeir bræður fóru strax
út í bátinn um nóttina. Héldu
þeir til í bátnum yfir nóttina og
höfðu vélina í gangi. Um morg-
uninn sigldu þeir Friðriki Sig
urðssyni til Grindavíkur. Engar
skemmdir urðu á húsum né
hafnarmannvirkjum af völdum
veðursins í Þorlákshöfn.
OKAFLIAF SÍLD
Áframhald er á mokafla á slld-
armiðunum þegar gefur. í morgun
fengu þeir fáu bátar, sem voru á
miðunum, 6 bátar, ágæt köst er
birta tók1, en undir morguninn
lygndi eftir að bræla hafði verið
alian daginn í gær og mestalla
nóttina. í fyrrinótt var metveiði.
Þá — aðfaranótt laugardags —
voru margir bátar á miðunum í
Meðallandsbugtinni og nam afli
um 40 báta nærri 50,000 tunnum
og var þetta þvl langbezta veiði-
nóttin á allri vertíðinni og þetta
var yfirleitt góð síld, og sumir
bátarnir fengu nær eingöngu á-
gæta og stóra síld, hæfa til flök-
unar og söltunar eða um 80%.
Þeir fóru með aflann til Reykja-
víkur, Akraness og Suðurnesja,
auk Vestmannaeyja. Orsök þess
hve fáir báta.r eru á miðunum nú
er sú, að margir voru ókomnir á
miðin eftir langa siglingu og los-
un, og sumir biðu þess að lægði.
Um afla eftirtalinna báta að-
faranþtt laugardags er blaðinu
kunnugt: Hamravík 1500, Faxi
1800, Ásbjörn 1100, Óláfur Magn-
ússon 1250, Rifsnes 140, Lómur
1350, Snæfell 1600, Helga 1800,
Arnfirðingur 1500, Elliði 1650,
Árni Magnússon 2000, Auðunn
1400, Vigri 1700, Ögri 1700, Húni
II 1000, Grótta 1700, Engey 1700,
4 slnsasf —
Framh. af bls. 16.
á þeim þriðja. Allir bílarnir
skemmdust, langmest þó þeir sem
skullu fyrst saman, enda eru
þeir báðir stórskemmdir.
Stúlka sem sat í framsæti hjá
ökumanni þeim, sem árekstrinum
olli kastaðist fram úr sætinu og
lenti með höfuðið á spegli og
síðan á bílrúðuna. Hún skarst á
enni og var flutt í slysavarðstof-
una, þar var búið um sár hennar
en að því búnu Ieyft að fara
heim.
Hraði bifreiðarinnar var svo
ofsalegur að hemlaför hennar
mældust 20 metrar þótt upp
bratta brekku væri að fara, enda
mun ökumaðurinn hafa viður-
kennt fyrir lögreglunni að . hann
hefði verið á ólöglegum hraða.
Þriðji stóráreksturinn varð í
morgun á 9. tímanum suður í
Fossvogi. Á mótum Fossvogs-
vegar og Reykjanesbrautar rák-
ust tvær stórir amerískir bílar á
í ofsahörðum árekstri og stór-
skemmdust báðir. Annar svo að
ólíklegt þykir að það svari kostn-
aði að gera við hann. Ökumenn
beggja bílanna slösuðust, skárust
í andliti, en þó ekki alvarlega að
því er talið var. Farþegi sat I
framsæti annars bílsins og ein-
mitt hægra megin, þar sem aðal-
höggið varð. Hann slapp við
meiðsli og þykir það ganga ótrú-
leika næst.
Áreksturinn er talinn hafa or-
sakazt af því að annar ökumanna
kveðst hafa fipazt í akstri. Segir
hann að ljós fólksbifreið hafi
komið af Fossvogsvegi inn á
Reykjanesbrautina rétt í þeirri
andrá sem áreksturinn varð og
við það hafi hann sveigt bíl sín-
um til hliðar og um of inn á veg-
inn. Rannsóknarlögreglan biður
ökumann þessarar ljósu bifreiðar
að koma til viðtals.
Krossgátuverðlaun
Dregið hefur veriö n:n verðlaun I krossgátunni frá 18. ianúar. Hlýfur
þau Magnús Jónsson, Skúlaskeið 6 í Hafnarfirði og má hann vitja
500 króna verðlauna í skrifstofu blaðsins.
Akraborg 1600, Margrét 1700,
Sigurkarfi 1600, Hrafn Svein-
bjarnarson III 1600, Guðbjörg
1600, Bergur 1400, Pétur Sigurðs-
son 1200, Gulltoppur 1000, Víðir
II 950, Fákur 800, Huginn 400,
Ársæll Sigurðsson II 800, Hafþór
700, Árni Þorkelsson 650, Ófeigur
II 900, Guðm. Þórðarson 500, Marz
1100, Kópur 900, Hafrún 600, Reyn
ir VE 800, Þorgeir 900, Halldór
Jónsson 950.
Frú Sigþrúður Guðjónsdóttir, formaður kvenfélagsins Hringsins í Reykjavík afhendir Sigurði Sigurðssyni
Iandlækni áttundu milljónina í barnaspitalasjóðinn.
Barnaspítalinn mun
i ar
„í gær afhenti frú Sigþrúður
Guðjónsdóttir mér eina milljón
króna frá Kvenfélaginu Hringn-
um í Reykjavík t'l barnaspítal-
ans, sem verið er að koma upp
í nýju Landspítalabyggingunni,
og er það áttunda milljónin sem
Hringskonur safna og gefa til
barnaspítalans af sínum lands-
kunna áhuga og dugnaði“, sagði
dr. Sigurður Sigurðsson land-
Iæknir í samtali við Vísi í morg
un. Lét hann fylgja mikil viður-
kenningarorð um starfsemi
Hringsins í þágu barnaspítala-
málsins.
Vísir innti landlækni eftir
því hvenær hinn nýi barnaspít-
ali Hringsins myndi geta tekið
til starfa. „Við viljum mjög
gjarnan að hann geti tekið til
starfa á þessu ári ,helzt upp úr
miðju ári, og má hafa það eftir
mér að stefnt sé að því að hann
taki til starfa í ár, sagði Iand-
' læknir. Það hafa orðið slæmar
tafir á þessari aðkallandi fram
kvæmd vegna verkfalia á sl.
ári. En við vonum samt að þetta
geti orðið“.
Skák
Framh. af bls. 16.
sína skák í bið en þeir lentu í
miklu tímahraki og urðu að leika
8-10 leiki á nokkrum sekúndum og
úr þeirri orrahríð kom Johannessen
út með 2 peð yfir og biðskák, sem
er sigurvænleg fyrir hann.
í 9. umferð, sem tefld var í gær
vann Wade Gaprindasvili og átti
frumkvæðið allan tímann og tefldi
mjög vel, Gligoric vann Ingvar, er
gerði skyssu í miðtafli sínu. Jo-
hannessen vann Magnús Sólm. í
örstuttri skák og Tal vann Arin-
björn eftir að sá síðarnefndi hafði
varizt vel. Drottningarkaup á ó-
hentugum tíma leiddu hins vegar
til tapaðs endatafls.
Hér birtist skák þeirra Tals og
ArinBjarnar:
Hvftt: Tal
Svart: Arinbjörn Guðmundsson.
Spánski leikurinn.
1. e4 - e5
2. Rf3 - Rc6
3. Bb5 - a6
4. Ba4 - Rf6
5. 0-0 - Be"
6. Hel - b5
7. Bb3 - <16
8. c3 - 0- 0
9. h3 — Raö
10. Bb2 - c5
11. d4 - Dc7
SötoBaBSKS. X :.3M
12. Rbd2 - cxd4
13. cxd4 - Hd8
14. Rfl - d5
15. Rxe5 — dxe4
16. Rg3 - Bd6
* 17. Bf4 - Bb7
18. Hcl - Db6.
19. Rxe4 — Rxe4 .
20. Bxe4 — Bxe4
21. Hxe4 - Db7
22. Hel - Rc4
23. Dg4 - HacS
24. Bg5 — Rxe5
25. dxeo — Hxcl
26. Hxcl - Be7
27. Bf6 - Bxf6
28. exf6 — g6
29. Df4 - Db6
30. Hc7?
(Tal sagði á eftir að hann teldi,
að hér hefði Hel verið betri leik-
ur).
30..........h5
31. g3 - Dd6
32. HcS - Kh7
33. HxH - DxH
34. De5 - Dc8
35. De7 - Kg8
36. Ith2 - Deb?
(Svartur hefur mikla jafnteflis-
möguleika, ef hann fet ekki í
drottningarkaup. Eru þau kaup
mestu mistök).
37. Dxe6 — fxe6
38. g4 — hxg4
39. hxg4 — g5 .
40. Kg3 - Kf7
41. Kf3 - Kxf6
42. Ke4 - gefið.
Guðmundur Pálmason og Frey-
steinn gerðu jafntefli í gær, en
skák Friðriks og Jóns Kristinsson-
ar fór í bið. Friðrik á að eiga unna
biðskák en ósamlitir biskupar veita
Jóni vissa viðnámsmöguleika. Jón
átti heldur betri stöðu gegn Frið-
rik til að byrja með en í mið-
tafli tókst Friðrik að snúa á Jón
og fékk tvö peð yfir.
Staðan, þegar skákin fór í bið
var þessi.
m
tl
Skák Inga R. og Trausta Björns
sonar var frestað vegna veikinda
Inga.
Biðskákir verða tefldar í kvöld
og skýrast línurnar þá taisvert i
mótinu.
•samaeaBIBi
■83