Vísir


Vísir - 27.01.1964, Qupperneq 16

Vísir - 27.01.1964, Qupperneq 16
VÍSIR Mánudagur 27. janúar 1964 Maður týnist austur í FSóa Umfangsmikil leit Sá atburður gerðist á bæ austur I Flóa í gærmorgun að 36 ára gamall maður, sem var að mjólka Uti í fjósi með bróð- ur sínum, gekk út, og hefir ekki sézt síðan þrátt fyrir mikla leit. Þegar maðurinn kom ekki aftur var farið að grennslast eftir honum á næstu bæjum, og þeg- ar leitin bar engan árangur var sporhundurinn Bangsi frá Hafn- arfirði fenginn til aðstoðar I gær. Hann snuðraði fyrst tölu- vert heima fyrir, en tók stefn- una tiltölulega fljótt á læk, sem er skammt frá bænum og veltur nú fram kólmórauður í vexti. Ekki vildi hundurinn þó stað- næmast lengi við lækinn held- ur leitaði hér og þar, og var fremur á honum að sjá að hann væri f óvissu. Þegar þessi tilraun bar eng- an árangur var afráðið að leita aðstoðar Hjálparsveitar skáta í Hafnarfirði, og var hún kvödd til leitar snemma í morgun með tilkynningu í útvarpinu rétt fyr- ir • dagskrárlok í gærkvöld. Sveitin lagði af stað austur fyr- ir fjall í morgun í 6 —8 jeppum, en hafði ekki fundinn hinn týnda mann er blaðið fór i prentun. 4 SLASAST 06 MAR6IR BÍLAR STÓRSKCMMAST Þrír miklir árekstrar urðu í Reykjavík um helgina, meiri eða minni slys á fólki í þeim öllum og sumir bflanna svo illa famir á eftlr aS þeir mega heita ónýtir í einum þessara árekstra er bifreiS ekiB meS ofsahraSa upp brekku unz hön lendir á annarrl bifreiS og ýtir henni á undan sér á tvær aSrar bifreiSir, sem allar skemmdust og a. m. k. tvær stórlega. Á Nóatúni við gatnamót Skip- holts urðu tvö umferðarslys um helgina, sem bæði orsökuðust af of hröðum og ógætilegum akstri. Á laugardagskvöldið klukkan rúmlega 10, ók stúlka bifreið norður Nóatún en þegar hún var að komast að gatnamótum Skip- holts gekk maður af vestri gang- stétt Nóatúns út á götuna og þvert í veg fyrir bifreiðina. Bif- reiðin var á mikilli ferð, mun meiri en telja verður hæfilegt miðað við umferð og aðstæður, að þvf er lögreglan tjáði Vísi og skipti það engum togum að mað- urinn varð fyrir bifreiðinni. Við áreksturinn virðist hann hafa kastazt upp á vélahlifina og bor- izt siðan með bifreiðinni unz hún nam staðar. Þá kastaðist maður- inn af vélarhúsinu og niður í götuna. Hann var fluttur í slysa- varðstofuna og síðan í Landa- kotsspítala. Um meiðsli hans er blaðinu ekki kunnugt. Hinn slas- aði heitir Baldur Steingrímsson verkfræðingur Baldur'sgötu 9. 1 gærkveldi varð harður á- rekstur við þessi sömu gatnamót, þ.e. Nóatúns og Skipholts,, er skeði á 12. tímanum fyrir mið- nætti. Þá er stórum amerískum bíl ekið með ofsahraða suður Nöatúnið og ætlar hann fram úr Volkswagenbíl rétt áður en kom- ið var að mótum Skipholts. 1 sömu andrá kemur bifreið úr Skipholtinu inn í Nóatúnið og við það sveigir Volkswagenbíll- inn til hægri, en ökumaður tekur um leið eftir ameriska bílnum sem var að komast upp að hlið hans og gat sloppið á síðustu stundu. En það er af ameríska bilnum að segja, að þegar þessi atburður skeði verður hann að sveigja til hægri, en þar var ó- hægt um vik þvi þar stóðu kyrr- stæðir bilar I röð beint fyrir framan. Ökumaðurinn hemlaði, en það dugði ekki til, bifreiðin skall með feikna afli á þeirri fremstu sem einnig var stór ame- rískur bfll. Hann kastaðist aftur á bak og lenti á næsta bíl og sá Framh. á bls. 5 Myhdin er tekln skömmu eftlr að slyslð varB. Lögregluþjónar og slökkviliðsmenn taka manninn upp af götunni og koma honum fyrir á börunum. Lengst til vinstri sést á bifreíSina sem ók á manninn. Ljósmynd Vfsis. B.G. Þannig lelt bíll'nn út eftir áreksturinn. TAL ER EFSTUR Á SKÁKMÓTINU Biðskákir í kvöid Skákmótið í Lídó hélt áfram um helgina og fóru 2 umferðir fram. Er Tal nú langefstur með 81/2 vinn ing, en næstur er G1 goric með 7 vinninga og biðskák, en Friðrik með 6*/2 og tvær biðskákir. Á laugardag fór 8. umferð fram og urðu þessi úrslit: Gaprindasvili vann Jón Kristinssón. Tal vann Trausta Björnsson og Freysteinn vann Wade. Jafntefli gerðu Arin- björn Guðmundsson og Guðmund- ur Pálmason, Magnús Sólmundars. og Ingvar, en skák Friðr.ks Ólafs- sonar og Gligoric fór í bið. Tefldu þeir Griinfeldt-vörn og fékk Frið- rik heldur frjálsa stöðu úr byrj- uninni, en svartur átti trausta stöðu og árásaráætlunin nokkuð vandfundin. Þar kom að Gligoric náði drottningarkaupum og eftir það var frumkvæðið hans. Virð.st Gligoric hafa betri stöðu, en skák- in líklpg til jafnteflis. Johannessen og Ingi fóru með Framh. á bls. 5 1ÝBRÆBISSINNA R SKRUBUI IBJti Lýðræðissinnar sigruðu glæsi- lega við stjórnarkjörið í Iðju, félagl verksmiðjufólks í Reykja vík. Hlaut B-listi stjórnar og trúnaðarmannaráðs 798 atkv., og alla stjórnarmenn kjörna. A- listi kommúnista hlaut 282 at- kvæði, en C-listl Framsóknar- manna hlaut 191 atkvæð:. B- listinn bætti við sig 1% atkv. frá þvi í fyrra en kommúnistar töpuðu sama magni. Kjörsókn var nú mun minni en i fyrra. B- listinn hiaut nú 61,5%, A-list- inn hlaut 21,7% og C-listinn hlaut 14,5%. Stjóm Iðju er skipuð þessum mönnum: Guðjón Sv. Sigurðs- son er formaður, Ingimundur Er lendsson, varaform., Jón Bjöms son, ritari, Steinn I. Jóhanns- son, gjaldkeri, Klara Georgsd., Guðm. Jónsson og Jóna Magn- úsdóttir meðstjórnendur. í Dagsbrún urðu úrslitin þau að A-listi stjómar og trúnaðar- mannaráðs, sem komniúnistar stóðu að, hlaut 1295 atkv., en B-listi iýðræðissinna hlaut 465 atkv. I fyrra hlutu kommúnist- ar 1389 atkv., en B-listinn 630. Mun minni kjörsókn var nú en í fyrra.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.