Vísir - 18.02.1964, Síða 7

Vísir - 18.02.1964, Síða 7
V f SIR . Þriðjudagur 18. febrúar 1964. Samkeppni um minnis- merki Bjarna frá Vogi maður dómnefndar sagði að verk- efnið væri nokkuð erfiðara sökum þess að ekki hefði verið ákveðinn staður ennþá, og hefðu því lista- mennirnir ekkert umhverfi að miða við. Yrði því, þegar til þess kæmi að velja stað, að velja hann með tilliti til verksins. Hann tók það fram að lausn verkefnisins væri alls ekki bundin við líkneski, „symbóliskt" verk yrði ekki síður vel þegið. Aðrir í dómnefnd eru: Jón Bjarnason hæstaréttarlögm. og Þor valdur Skúlason listmálari. Lausn- um verður að skila eigi síðar en 20. sept. 1964, en verðlaunin verða veitt 13. okt. 1964. Leikstjóri Klemenz Jónsson — Þýtt og endursamib hefur Stefán Jónsson Ein 25.000.00 króna verðlaun verða veitt þeim listamanni sem ber sigur úr býtum í hugmynda- samkeppni um minnismerki, sem reisa skal Bjarna Jónssyni frá Vogi, til heiðurs og i þakklætisskyni fyrir brautryðjendastarf hans í ís- lenzkum listmáium. Á aðalfundi Bandalags íslenzkra listamanna var ákveðið að efna til þessarar samkeppni, og að öllum íslenzkum Iistamönnum skyldi heim il þátttaka. Tillögurnar skulu verða miðaðar við að verkið standi utanhúss og í Reykjavík, en að öðru leyti er lausn þess óbundin. Björn Th. Björnsson listfræðingur, sem er for Einhvers staðar stendur skrif að, að þess skuli getið, sem gert er. Og Þjóðleikhúsið á þakkir skildar fyrir það, að það virðist þegar frá upphafi hafa gert sér ijóst hverjum skyldum það er bundið yngri kynslóð- inni. Sumir kunna að halda því fram, að það hefði getað rækt þær betur. Ég hygg þó að það hafi staðið þar eins vel í stöðu sinni og með sanngirni verður af því krafizt, miðað við allar aðstæður og hvemig allt er í pottinn búið. Það hefur allt frá því, er það tók til starfa auðvéldað unglingum að njóta þess, sem það hafði á boðstól- um við þeirra hæfi hverju sinni með sérstökum sýningum fyrir skólafólk við vægu verði og hvatt það til að hagnýta sér það I sambandi við sýninguna á „Hamlet“ hefur það fengið hæf an mann úr starfsliði sínu til þess að flytja erindi í skólun- um um leikritið og höfund þess og þannig leitazt við að vekja áhuga unglinganna á sí- gildri leiklist — og þar hygg ég að sé komið inn á rétta leið. EflaUst mætti finna fleiri ráð og. leiðir, 'Og það verður vafalítið gert. En til þess að vel takist þurfa slíkar tilraunir líka að mæta velvild og skilningi. Leik listaruppeldið er ekki neinn hé- gómi, það er æskunni ekki síð ur mikilvægt en tónlistarupp- eldið. Þetta þurfa allir viðkom- andi aðilar að skilja. Á þvl upp eldi byggist leiklistin í landinu í framtíðinni. Og á því uppeldi byggist framtíðargengi Þjóð- leikhússins. Þá hefur Þjóðleikhúsið og sýnt sérstök leikrit fyrir börn á ári hverju. Þau hafa að vísu verið misjöfn að gæðum eins og önnur viðrangsefni þess, enda ekki við öðru að búast. Þess ber og að gæta, að ekki er hlaupið að því að finna er- lend leikrit við hæfi íslenzkra barna, nema þá að gerðar séu á þeim talsverðar breytingar. Það er eflaust ekki fyrir neina hendingu, að barnaleikrit norska höfundarins T. Egner, hafa átt einstökum vinsældum að fagna — það er margt líkt með skyld- um. En Ieitt er til þess að vita, að enginn af okkar ágætu rit- höfundum skuli hafa tekið á sig rögg og samið frambærilegt leikrit fyrir börn til sýningar I Þjóðleikhúsinu. Ekki ætti efni- viðinn að skorta — þjóðsögurn ar ættu að vera hrein gullnáma hefði ekki orðið enn betra, ef Stefán hefði samið það einn og sjálfur, án allra áhrifa frá Disn ey og þeirri þýzku. 1 því formi sem það er sýnt, virðist manni þvl á stundum bregða til skrum skælingar á listaverki Disneys, enda þýðingarlaust að ætla sér að ná neinni líkingu af þvl á leiksviði. Þetta á einkum við um dvergana. Ekki þar fyrir, að þeir sem. leika þá, leika vel og leggja sig alla fram, enda eru þar vanir og vandvirkir leik arar að verki. En gagnvart dvergum Disneys verður að- staða þeirra vonlaus. Hvað um það, ef leikendurnir I Þjóðleikhúsinu léku alltaf fyr ir jafn þakkláta frumsýningar- gesti og þá fulltrúa yngri kyn- slóðarinnar, / sem þar voru varðandi efni I barnaleikrit. Ef laust kemur þetta eins og annað En þossaer þ.egar> qfótjtj löng, bið.'M- -j5• tr[ jg r .iníyoid Barnaieikrit þtfbissemnliÞjöð-jsg! leikhúsið hefur tekið til sýning- ar að þessu sinni er að vísu íslenzkt I eina röndina, að því leyti til, að hinn kunni barna- bókahöfundur, Stefán Jónsson, hefur um það fjallað og betrum bætt það úr höndum erlendra höfunda. Það er og öllum börn- um og öllum fullorðnum gamal- kunnugt að efni til, sagan af Mjallhvít og dvergunum sjö I leikritsformi, einhverju hugþekk asta ævintýri, sem um getur. Spurning er þó, hvort leikritið staddir sl. laugardag, þyrftu þeir hvorki að kvarta né kvíða. Þeir skemmtu . sér konunglega og yoru. ekki feimnir við að láta það I Ijós, og grun hef ég um það, að margir af þeim eldri hafi skemmt sér dável líka. Tjöldin voru hin skrautlegustu, búning ar allir íburðarmiklir, hirðmenn irnir stoltir og þó kátbroslegir I aðra röndina og þarna var dansað og sungið af fjöri og list og allt eins og 1 ævintýri á að vera, Bryndís Schram leikur Mjall hvít kóngsdóttur. Hún er ljóm- andi falleg á sviði, sviflétt I hreyfingum og dans hennar með ágætum. Til leiks gerir hlut- Þjóðleikhúsið: Mjallhvlt og prinsinn úr riágrannaríkinu — Bryndis Schram, Jóhann Pálsson yerkið ekki miklar kröfur, en hún skilaði öllu eins og efni : sfððu til og átti óskipta sarnúð yngri áhorfenda, þegar ljóta kerlingin var eitthvað að áreita hana. Helga Valtýsdóttir leikur drottningarflagðið, og hefur oft boðizt brattara, gervið var á- gætt — ekki hvað sízt dular- gervin — og leikur hennar all ur vel hugsaður og útfærður. Ég heyrði einn snáðann hafa orð á því eftir sýninguna, að hann skyldi sjá svo um að hún kembdi ekki hærurnar — hann notaði raunar ekki það orðalag — og það fannst mér sönnun þess að það hlutverk væri í góð um höndum. Ævar Kvaran leik ur veiðimanninn „sem aldrei hef ur gert nokkurri skepnu mein“ og leikur það þannig, að mað- ur á auðvelt með að trúa því. Bessi Bjarnason er forkostuleg- ur hirðmaður og Nína Sveins- dóttir kát og fjörug hirðpinka, Árni Tryggvason, Flosi Ólafs- son, Lárus Ingólfsson og fleiri forkostulegir dvergar Jóhann Pálsson glæsilegur konungsson úr nágrannaríkinu — og þannig mætti lengi telja. Ég þykist viss um það, að Mjallhvlt verði vel tekið af yngri kynslóðinni I þessum bún ingi. Börn spyrja vitanlega ekki að þvf, hvort þeir, sem að þvl standa, eigi þakkir skildar, þau leggja nú einu sinni sitt mat á hlutina. En Klemenz Jónsson hefur unnið þarna gott starf sem Ieikstjóri og Gunnar Bjarna son sem sviðsgerðarmaður, svo og allir aðrir sem að þessari sýningu standa. Loftur Guðmundsson. MJALLHVÍT Emra

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.