Vísir - 18.02.1964, Blaðsíða 16
Þriðjudagur 18. febrúar 1964
Varðarfundur
Sjálfstæðisfólk! Munið Varð-
arfundinn I kvöld kl. 8.30 í
Sjálfstæðishúsinu. Sveinn
Bjömsson, verkfræðingur, for-
stjóri IMSÍ, ræðir um: Samstarf
í stað baráttu. — Ný stefna í
fjármálum. Síðan verða frjálsar
umræður-
tm
Biskup um útvurpserindið í gærkvöld:
„Slíkur áróður verður uð
teljust til skemmdurverku"
Vísir átti í morgun tal við herra
biskupinn, Sigurbjörn Einarsson, í
tilefni af því að á þessu ári eru
liðin 350 ár frá fæðingu séra Hall-
gríms Péturssonar. Fæðingardagur
hans er ókunnur, en biskupinn
sagði að hann hefði valið fimmta
sunnudag í föstu, bað er 15. næsta
mán., til að vera almennan minn-
ingardag séra Hallgríms á þessu
ári. Kvaðst biskupinn hafa ritað
prestum landsins og beðið þá að
minnast séra Hallgríms Pétursson-
ar í kirkjunum við guðsþjónustur
þennan dag „með þakkargjörð til
guðs fyrir hinn blessaða boðbera
og fyrir ómetaniega leiðsögn hans
um þriggja aida skeið“.
ÚTVARPSERINDIÐ
í GÆRKVÖLD
I tilefni af þessum minningar-
degi Hallgríms Péturssonar ræddi
biskupinn um erindi það, sem hald-
ið var um daginn og veginn í út-
'varpinu í gærkvöld og vikið
þar að minningakirkju séra
Hallgríms, Hallgrímskirkju á Skóla
vörðuhæð. Um þann þátt erindis-
ins, sem fjallaði um hana', sagði
biskup:
Þessi áróður er fyrir neðan allt
menningarlegt velsæmi á þess’um
vettvangi. Það er furðul., að menn
skuli í útvarpinu geta afflutt með
gífuryrðum stofnanir, sem er verið
að reisa og jafn víðtæk samstaða
er um og Hallgrímskirkju. Hall-
grímskirkja er ekki lengur aðeins
hugmynd, hún er á framkvæmda-
stiginu, eða á því stigi að slíkur
áróður verður að teljast til
skemmdarverka, þar eð vitað er
að ekki verður aftur snúið með
bygginguna. Samstaðan um þessa
kirkju er svo víðtæk, að þótt ein-
stakir öfgamenn heimti að þeirra
smekkur gildi og allir aðrir verði
að beygja sig fyrir honum, þá ráða
þeir ekki úrslitum. En þeir geta
gert óleik og tafið fyrir verkinu, og
það er aðeins til ills og engum
til góðs.
Hér á landi er jafnan mikið deilt
um mannvirki, listaverk og lista-
menn og skoðanir skiptar um ráð-
hús, hótel og þar fram eftir göt-
unum, og það er allt í lagi og
sjálfsagt að setja fram mismunandi
sjónarmið meðan málin eru á um-
Framh. á bls. 6
í SÓLSKININU
Það var heldur létt yfir fiestum
borgarbúum í gær, þegar þeir
spókuðu sig í sólskininu. Margir
notuðu tækifærið og fengu sér
smá göngutúr til þess að njóta
enn betur þessarar einstæðu veð
urbiíðú í febrúarmánuði. Mikill
galsi komst í skólabörnin og öll
leiksvæði iðuðu af æskufjöri. —
Gamla fólkið vestur á Elliheim-
ili kann einnig að notfæra sér
veðurblíðuna. I gær voru flest-
ir bekkirnir kringum Elliheimil-
ið þétt setnir og notaði I. M.,
Ijósmyndari Vísis, þá tækifærið
og smellti af þessum myndum.
Efri rnyndin er tekin af nokkr-
um gömlum hefðarkonum og
körlum, þar sem þau sitja á
bekk fyrir utan Elliheimilið og
spjalia um daginn og veginn. Á
neðri myndinni eru þær Fríður
Bjarnadóttir og Anna Helga Þor-
varðardóttir að virða fyrir sér
vorblómin.
LOFTLEIÐIR FL YTJA TIL
KEFLA VlKUR I MAÍ
Miklar breytingar ú hóteiinu í vændum
í sambandi við kaupin
á Canadair fiugvélunum
munu Loftleiðir flytja
alia sína flugþjónustu tii
Keflavíkur. Um þessar
mundir standa yfir samn
ingaviðræður jjm að
Loftleiðir taki að sér
rekstur hótelsins á
Keflavíkurflugvelli, og
ráðgert er að gera gífur-
legar breytingar á hótel-
inu, til þess að bæta að-
búnað og þjónustu við
farþega.
Loftleiðir hafa undanfarið
haft þar syðra flugafgreiðslu og
flugumsjón, ásamt skrifstofu.
Með tilkomu hinna nýju flug-
véla hyggst félagið flytja alla
sína flugþjónustu suður eftir í
maímánuði n.k. Loftleiðir munu
þá taka við þeim hluta hótels-
ins og veitingarsölunnar, sem
Varnarliðið hefur haft með
höndum. Að undanförnu hafa
farið fram samningaviðræður
um þetta mál, og búast má við
að ekki líði langur tími þar til
málið verði útkljáð. Þessar
samningaviðræður eru milli
Loftleiða og Varnarmálanefnd-
ar annars vegar og Vamarmála-
nefndar og yfirmanna Varnar-
Framh, á bls. 6
r
Islenzka sendirúðið kærði til lögreglunnar
Páll Ásgeir Tryggvason, sendi-
fulltrúi fslands f Stokkhólmi,
staðfesti i viðtali við Vfsi í morg
un, að eftir því sem bezt yrði
sóð á þessu stigi ..álslns hefði
verið gerð tih in til þess i
brúðkaupsveizlu í Stokkhólmi í
byrjun þessa mánaðar að ráða
tvítuga fslenzka stúlku af dög-
um. Kvað hann sendiráðið hafa
kært þetta mál til sænsku lög-
reglunnar og yrði það tekið fyr-
ir innan skamms. Hafði 33 ára
gamall sænskur verkfræðingur,
sem bjó með þessari íslenzku
stúlku, tekið fyrir kverkar henni
úti á svölum og barið höfði
hennar við handriðið með hót-
unum um að deyða hana. Stúlk-
unni tókst að hrópa á hjálp, en
þá flýði verkfræðingurinn af
hólmi og brúðkaupsgestirnir
komu stúlkunpi til hjálpar. Páll
Ásgeir Tryggvason taldi að þessi
maður myndi tæpast vera heill
á geðsmunum.
Sendifulltrúinn sagði, að stúlk
an, sem vinnur I verksmiðju í
Stokkhólmi með fyrrnefndum
verkfræðingi og var farin að búa
með( honum, hafi eitthvað
minnzt á líkamsárás við lögregl-
una, skömmu eftir að þessir at-
burðir gerðust. Meira hefði hún
ekki að gert, svo að sendiráðinu
hefði þótt öruggara, vegna henn
ar sjálfrar og almannaöryggis,
að kæra formlega. Hefði full-
trúi frá sendiráðinu því farið
með stúlkunni til lögreglunnar,
þar sem hún hefði skýrt frá öll-
um atvikum og árásarmaðurinn
síðan verið handtekinn. Kom þá
í Ijós að hann hafði áður hagað
sér undarlega. Sendifulltrúinn
sagði í viðtalinu, að Aftonbladet
í Stokkhólmi hefði slegið þess-
ari fregn upp og talið að mað-
urinn hefði ráðizt á stúlkuna í
afbrýðiskasti í brúðkaupsveizl-
unni.
Hér má skjóta því inn I, að
brúðurin í þessari veizlu var ís-
lenzk vinkona þeirrar tvítugu,
sem með verkfræðingnum var,
og var veizlan haldin í einka-
íbúð.
En við yfirheyrslu hins á-
kærða þykir hafa komið f ljós,
sem fyrr segir, að maðurinn sé
ekki heill á geðsmunum, þótt
afbrýðisemi kunni einnig að
hafa komið til. Vín hafði og ver-
ið haft um hönd í veizlunni og
hinn ákærði drukkið töluvert.
Sendiráð íslands í Stokkhólmi
mun reyna að greiða götu hinn-
ar íslenzku stúlku til Islands að
réttarhöldunum afstöðnum, ef
hún óskar þess.