Vísir - 04.03.1964, Page 7

Vísir - 04.03.1964, Page 7
V1SIK . Miðv'kudag 4. marz 1964. 7 FJARSKIPTALÖGIN Svar við athugasemd 'p’g þakka Gunnlaugi Briem póst- og símamálastjóra fyr ir stutt innlegg um fjarskipta- lögin í Visi hinn 28. febrúar s. 1. í tilefni af greinarstúf mínum í sama blaði 2 dögum áður. Það skeður of oft, að forstjórar rík- isstofnana þegja í hel gagnrýni á stofnanir sínar og því var inn legg Gunnlaugs vel þegið. Greinarkorn þetta var að orð- færi og innihaldi jafn auðskilið og skilmerkilegt og hinn frægi 10. paragraff í III. kafla gjald- skrár og reglna landssímans AU ir handhafar símaskrárinnar geta lesið þennan paragraff og Iært af honum. Þá þakka ég þær upplýsingar að merkjalagn- ir, svo sem dyrabíöllur, hafi þeg ar á árinu 1942 verið undan- þegnar einkarétti ríkisins. Þetta atriði hafði farið framhjá mér, sennilega vegna þess að ég bjó erlendis um það leyti. Gunnlaugur Briem bendir rétti lega á, að fjöldi annarra ríkja hafi I lögum sínum svipaðan einkarétt I fjarskiptamálum og hér gildir. En það, sem gerir gæfumuninn, er þetta: Veldur, hver á heldur, þjónn eða drott- inn. Ég ræddi í grein minni um einkarétt ríkisins og fram- kvæmd hans. Gunnlaugur Briem staðfestir, að hann þurfi að hafa þennan einkarétt til þess að geta rækt skyldur sínar sem póst- og símamálastjóri gagn- vart alþjóðafjarskiptasamningn- um etc. og þessum einkarétti beitir hann eins og drottinn, oft af litlum skilningi á þörfum ein- staklinga og atvinnuvega. Það er t. d. eins og póst- og síma- málastjórnin eigi sjálf allar tíðn ir í rafsegul-tlðnisviðinu og skammti þær af náð til afnota, en í Bandarlkjum Norður-Am- erlku telur FCC þjóð sína eiga þessar tíðnir og deilir þeim öll- um út meðal þegnanna, svo þær komi að sem beztum notum og hverri þjónustuþörf sé fullnægt. Nú spyr ég: Hvernig fara síma stjórnir Norðurlanda, Þýzka- Iands og Englands að því að rækja eftirlitsskyldur slnar I f jarskiptamálum og leyfa þó þegnum þessara landa fullkomið frjálsræði til þess að stunda iðn að, innflutning og viðhald fjar- skiptatækja og hluta til þeirra innan ramma skynsamlegra reglugerða og eftirlits. í öllum þessum löndum eru mörg einka- fyrirtæki, sem framleiða fjar- skiptatæki allra tegunda I harðri samkeppni og halda þannig verð lagi niðri og póst- og símamála- stjórnin á mikil viðskipti við sum þessara fyrirtækja. En hér á landi er íslenzka ríkið I oinka- réttaraðstöðu að framleiða tal- stöðvar á embættismennsku- grundvelli, án nokkurrar sam; keppni, nema tollverndaðs inn- flutnings frá frændþjóðum okk- ar. Hvenær hafa embættismenn, sem eru á kafi I pappírsvinnu, reglugerðum. og uppáskrift á reikninga, fundið upp nokkuð nýtt I fjarskiptamálum eða vís- indum? Nei, það gerðu þeir Edi- son og Marconi og við allt aðrar reglugerðir en hér ríkja. Mér er nær að halda, að ef allar þjóðir byggju við sams konar frelsi og við I fjarskiptamálum, þá væri bara landssíminn alls ekki til og þegnarnir notuðust við sendiboða á tveim eða fjór- um fótum eða merkjagjafir með reyksúlum, eins og Indlánar. Einhvern veginn hef ég fengið þá hugmynd, að það sé eins og löggjafarvald og stjórnendur landsins líti á okkur þegnana sem einhverja gallagripi, sem ekki má trúa né treysta til ým- issa vandasamra verka eða hluta og þvl sé öruggast að banna þessi verk eða hluti. Þannig virð ist þetta vera I áfengismálum, umferðarmálum, fjarskiptamál- um og fjármálum. En einmitt slíkt vantraust og sllk bönn eru ekki I samræmi við eðli manns- ins, allra sízt Islendingsins, og því hefur þetta gert flesta ís- lendinga, aðra en ómálga börn, að lögbrjótum á ýmsum svið- um, oft ekki stórvægilegum, en lögbrot samt, og um leið gefið hinum óæðri hvötum mannsins næringu. Um afleiðingarnar les- um við daglega í blöðum. Ég hef oft veitt því athygli með unga menn, að sýni maður þeim traust og leggi maður þeim nokkurn vanda á herðar, þá vaxa þeir hið ytra og innra með vanda hverjum og að ábyrgð og áhuga á verkefnum sínum og það er einmitt þetta, sem lög og reglugerðir eiga að kalla fram I brjósti hvers einstakl- ings og um leið virðingu tyiir lögunum sjálfum. Ég held að enginn íslendingur sé fæddur með þeim hvötum að viljabrjóta lög, en lög og reglugerðir, Pins og önnur mannanna verk, gcta verið þannig, að þau mismur.i þegnunum, sýni beim vantraust eða séu alls ekki raunhæf, og slík Iög bióða óhlýðninni og þrjózkunni heim. Því geta þau verið verri en engin lög. Fjarskiptalögin eru vond idg. Þau banna mér að stunda oað fag, sem ég hef lært, nema ég vinni hjá einum ákveðrmm vinnuveitanda, sem einn má. Þessi lög taka af mér itvinnu- réttindi, sem verkfræðingar ann arra verkfræðigreina hafa ó- skertan hér á landi, og I þvi er mér mismunað. Óbeint segja þessi lög blákalt, að mér sé ekki treystandi til þess að stunda fag mitt, því ég ætli mér að brjóta alþjóðareglur. Þessi lög eru með dylgjur I minn garð og það þoli ég ekki. Því mót- mæli ég þessum lögum og kalla þau ólög. Það er þetta, sem ég bið póst- og símamálastjóra að taka eftir og hæstvirt Alþingi að leiðrétta. Ég vil hér tilfæra glöggt dæmi um mismunandi framkvæmd fjarskiptalaga I Noregi og á ls- landi. Ég annars vegar og Willy Simonsen I Osló hins vegar luk- um báðir verkfræðiprófum 1 sama fagi I Dresden 1940 og 1939. Að lokinni slðustu heims- styrjöld hvarf Willy til Noregs en ég til íslands. Nú er Willy búinn að byggja upp heims- þekkt stórfyrirtæki, SIMRAD, og hefur m. a. selt ísiendingum talstöðvar, dýptarmæla og asdic tæki I Islenzka fiskibáta fyrir um 200 milljónir Isl. króna. Ég aftur á móti hef þvælzt milli þriggja ríkisstofnana hér heima og þegar ég loks komst I sér- grein mína, þá þurfti verkfall að binda endi á þann starfsfer- il, einmitt fyrir stéttvísi Gunn- Iaugs Briems. Reyni ég að vinna fyrir mér sem sjálfstæður at- vinnurekandi I fagi mínu, þá bannar Gunnlaugur Briem það einnig, allt I skjóli einkaréttar rlkisins. Eina leiðin fyrir mig virðist vera sú, að stunda verzl- un með fjarskiptatæki, en líka þar þarf ég að leita til Gunn- laui Briems. Ég vil ekki láta lesendur halda að ég sé kann- ske eins fær verkfræðingur og Willy Simonsen, en dæmi þetta sýnir glögglega aðstöðumuninn I lifsbaráttu okkar. Ég bið les- endur blaðsins afsökunar á þvf að ég skuli servera einkamál mln þannig fyrir alþjóð, en ég færi mér það til afsökunar, að ég er að leita að svari við þvl, hvort ég eigi tilverurétt I mlnu eigin landi og ég hef þegar reynt það, að þessi réttur er ekki færður mér á silfurdiski. Landssiminn hefur alla að- stöðu til þess að vera óskabarn þjóðarinnar, elskað og virt. Þó hef ég tekið eftir þVÍ, að fjöldi manna skoðar Landssfmann sem persónulegan óvin sinn, þeir eru sífellt á verði gagnvart þess ari stofnun, eiga I útistöðum og sffelldri baráttu við hana. Hvern ig víkur þessu við? Ekki er þetta þannig f öðrum þjðnustu- greinum hins opinbera. Hér hlýtur eitthvað að vera að. Rvík, 1. marz 1964, Stefán Bjamason verkfræðingur Vilja gera 1. des. að æskulýðsdegi Bandalag æskulýðsfélaga Reykja vikur hélt nýlega ársþing sitt í Þjóð leikhúskjallaranum. Það telur nú 32 aðildarfélög og mættu þar um 40 fulltrúar. Á þingi þessu ríkti mikill áhugi um félagsmál, samtök og umbætur I skemmtanal. unga fólksins I borg inni, en þau mál hafa verið mjög í molum. málefni, sem mest voru rædd og koma eiga til framkvæmda á bessu ári voru þessi: 1) Halda skal nú þegar í vor ráðstefnu um vandamál æskunnar og Ieiðir til úrbóta og bjóða þangað forráðamönnum fræðslu og félags- mála. 2) Efnt verði til fjölmenns leið- toganámskeiðs þegar á næsta hausti þar sem skólafólki sé ætluð sérstök þátttaka. 3) Gefin skal sem fyrst út hand- hæg félagshandbók fyrir íslenzk æskulýðssamtök. Væri þar sjálfsagt að leita samstarfs við önnur æsku- lýðssamtök t. d. Æ. S. í. og Æsku- lýðsráð Reykjavíkur. Skyldi slík bók hafa sem flestar leiðbeiningar um skemmtikrafta og skemmtiatriði, leiki, dansa og lista menn, gildi þroskandi tómstunda- starfs o fl. 4) Halda skal árlega sérstakan æskulýðsdag, þar sem unga fólkið annaðist sjálft leiksýningar, listsýn- ingar, tónlist, danssýningar og alls konar starfsemi, sem bezt sýndi þroska þess og hugðarefni á hverj um tíma. Enn fremur yrði þá sér- stök íþróttakeppni, sem kennd yrði við þennan dag, t. d. í handknatt- leik og frjálsum íþróttum. Þetta yrðu e. k. Olympíuleikar reyk- vískrar æsku, þar sem hún sýndi atgjörvi sitt til likama og sálar und ir kjörorðinu: „Fögur sál I hraustum likama“. Þar yrðu verðlaun veitt fyrir þeztu afrek I myndlist, tónlist, mælsku, framsögn, íþróttum o.s.frv. Helzt kom til orða að velja 1. des. til þessa fagnaðardags æskunn ar og gefa honum þannig aukið gildi, sem minningardegi um ís- lenzkt sjálfstæði og þjóðlega endur reisn. 5) Rætt var um, að skólafélög borgarinnar gengju tii samstarfs um árlega skemmtun I Háskólabíói, þar sem fram kæmi hið bezta, sem sýnt er og gjört á árshátíðum skól anna. Væri sllk skemmtun ólíkt hollari og meira til menningarauka en margt annað, og þar gæfist foreldrum nemenda og öðru utan- skólafólki, sem næst stendur, kost ur á að sjá, hvernig félagslif skól- anna þroskar nemendur. RÍKID HAFNAR KRÖFUM BSRB FuIItrúar ríkisstjómarinnar hafa nú lagt fram I Kjaradðmi gagnkröf- ur sfnar varðandi laun oplnberra starfsmanna. Krefst rikið þess i fyrsta lagi, að Kjaradómur standi óbreyttur, þ. e. kröfum BSRB um ' launahækkanir verði hafnað. j Til vara gerir ríkið þær kröfur, að ef einhverjar launahækkanir verði dæmdar opinberum starfs- mönnum nú, verði eftir- og nætur vinnukaup hjá ríkisstarfsmönnum lækkað til samræmis við það er gerist á hinum almenna vinnumark- aði. í rökum ríkisins segir, að rikis- starfsmenn hafi margvísleg hlunn- indi fram yfir launþega á almenn- um vinnumarkaði t.d. hafi I kjara- dómi verkfræðinga verið reiknað með. að hlunnindi þeirra samsvari 11% kauphækkun. Rfkisstarfsmenn hafi lífeyrissjóðsréttindi, aldurs- hækkanir. njóti meira atvinnuörygg is en aðrir Iaunþegar o. s. frv. Beri að taka tillit til alls þess f sambandi við launamál opinberra starfs- manna. 0 Aukin þjóðarfram- leiðsla. Um það geta vfst allir verið sammála hvar í flokki sem þeir standa, að leiðin til bættra lífskjara er aukin þjóð- arframleiðsla. Það liggur Ifka í hlutarins eðli. Því meiri verð mæti sem þjóðin framleiðir, þvf meira kemur til skiptanna I hlut hvers og eins þegns. Þess vegna er það eina raun- hæfa kjarabótin þegar til lengdar lætur, að auka þjóð- arframleiðsluna sem mest. Kauphækkanir sem eru í röngu hlutfalli við aukningu hennar eru aðeins til verð- bólgumyndunar í þjóðfélag- inu. Á bak við þær liggur ekki raunhæf verðmætaaukning í þjóðfélaginu. Þetta er stað- reynd, sem allar þjóðir vita. en það eru ekki allar þjóðir sem fara eftir þessu. Ná- grannaþjóðir okkar hækka launin um 3-4% á ári. Það er sú tala sem svarar til aukinn ar árlegrar þjóðarframleiðslu. Þá virkar kauphækkunin ekki verðbólgumyndandi. Hún verður með öðrum orðum raunhæf. Launþeginn fær 3- 4% meira af vörum og þjón- ustu fyrir kaupið sitt. Hér á iandi er öðrum reglum fylgt. Launþegamir fá allt að 30% kauphækkun á einu ári, þótt þjóðarframleiðslan aukist ekki nema um 4%. Allir vita hver afleiðingin er, hve mikil kjara bót það er I raun og sann- leika. Um það þarf ekki að fjölyrða. % Samdráttur undir vinstri stjóm. Á árum vinstri stjórnarinn- ar 1957 og 1958 nam aukning þjóðarframleiðslunnar 8,1%. En með ráðleysi slnu veikti vinstri stjómin svo grundvöll framleiðslunnar að aukningin 1959 nam aðeins 1.8%. Ólíkt varð ástandið eftir að viðreisn arstjómin tók við völdum. Ár ið 1962, síðasta árið sem töl ur era til um, nam aukningin hins vegar 5% og 3% hvort árið á undan fyrir sig. Þessar tölur sýna, að viðreisnarstjórn in styrkti mjög grandvöll fram leiðsluatvinnuveganna með af- námi hafta og uppbótakerfis- ins, myndun öflugra gjaldeyris sjóða og með greiðslujöfnuði við útlönd. % Verkefni næstu ára. Það hlýtur að vera stærsta verkefnið 1 efnahagsmálum á næstu árum að auka enn þjóð- árframleiðsluna. Aldrei hefur verið flutt meira inn af nýjum atvinnutækjum en einmitt slð ustu árin, á tímum viðreisnar innar. Þau tæki munu mala gull þegar þau komast öll í gagnið. En einu má samt ekkj gleyma. Það er ekki nóg að eiga góð tæki ef þau standa í foræði og dýi verðbólgu og ofþenslu. Það þarf að ná jafn vægi aftur til þess að unnt sé að nýta þá möguleika sem þjóðin hefur skapað sér. ■no

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.