Vísir - 07.03.1964, Qupperneq 16
VISIR
Laugardagur 7. marx 1964.
ISLINZK HROSSARÆKT
HAFIN ISVISS
Svisslendingar eru byrjaðir
að rækta íslenzka hesta. Hafa
fengið graðfola að heiman og
fyrstu tryppht undan honum
eru orðin eins og tveggja vetra
gömul, 18 talsins.
Frá þessu skýrði Friedrich
Kem frá Btilach í Sviss f við-
tali við Vísi á Keflavíkurflug-
velli f gær, en hann hefur sam-
tals keypt 363 hesta af Islend-
ingum og flutt til slns heima-
lands.
— Hvenær byrðuðuð þér að
kaupa fslenzka hesta?
— Ég keypti þá fyrstu 1957
og er búinn að kaupa 363 tals-
ins. Þar af 172 á s.l. ári.
— Hvað gerið þið við þá í
Sviss?
— Þetr eru notaðir til reiðar.
Og eru ákaflega vinsælir. Þetta
spyrst mann frá manni og allir
vilja fá að vita hvar sé hægt
að kaupa þessi skemmtilegu
dýr.
— Eru fleiri innflytjendur ís-
lenzkra hrossa I Sviss heldur
en þér?
— Ekki í stórum stíl. Ég
held að ég hafi riðið á vaðið
með þessi kaup. Það eru
kannski einhverjir einstakling-
ar, sem hafa keypt einn og einn
hest. Núna er t.d. með okkur
ungur Svisslendingur sem hef-
ur verið hér á Islandi I vetur.
Hann hefur keypt 2 hross og
verður okkur samferða út.
— Hvað hafið þið gefið bænd
um fyrir hrossin?
— Mjög misjafnt eftir gæðum
hrossanna. Hæst 13 þús. kr. I
vetur. En áður höfum við gef-
ið allt að 15 þús. kr. fyrir einn
hest.
— Á hvaða verði seljið þér
þá aftur.
- Frá 22-25 þús. kr. yfir-
leitt. En flutningurinn er dýr
og margt sem til greina kemur.
— Þér hafið einnig keypt
graðhesta?
— Já, I þessum hópi er tvæ-
vetur foli, brúnn, sem er hugs-
aður til undaneldis. Áður keypti
ég graðhest og er búinn að ala
undan honum 18 folöld. Annars
hafa hryssurnar sem við höfnm
keypt hér oft verið fylfullar og
3ja hver hryssa sem ég keypti í
fyrra eignaðist folald eftir að
Framhald á bls. 6.
Glæsilegur pólskur skut-
togari í Reykjuvíkurköfn
Friedrich Kem með eitt hrossið.
SIALFSTÆÐISFDLK!
Munið Varðar-kaffið í Valhöll
í dag kl. 3—5.
S.I. fimmtudag kom hingað til
Reykjavfkur pólski skuttogarinn
Pegaz. Erindi togarans hingað
til Reykjavikur er að sækja skip
brotsmennina af pólska togar-
anum Wizlok, sem strandaði á
Landeyjasandi. Pegaz er glæsi-
legur verksmiðjutogari, aðeins
15 mánaða gamall og búinn öll-
um fullkomnustu tækjum. —
Fréttamönnum var í gær boðið
að skoða togarann undir leið-
sögu skipstjórans, Brzezensr.
Pegaz heldur héðan beint til
Póllands með allar frystigeymsl-
itr fullar af fiski svo og mjöl-
geymslur. Hér er einnig staddur
í Reykjavík forstjóri Dalmer
Deep Fishing Company, en það
félag á alls 41 togara, þ. á m.
Pegaz og Wizlok, sem strand-
aði á Landeyjasandi fyrir
nokkru. Forstjórinn bað blöðin
að færa þeim fjölmörgu, sem
aðstoðuðu við björgun skipverj-
anna af Wizlok, beztu þakkir,
svo og þeim mörgu, sem hafa
gert dvöl skipbrotsmannanna
hér I Reykjavfk ánægjulega.
Brzezensr skipstjóri sagðist
hafa dvalizt hér á stríðsárun-
um, en þá var hann sjóliðsfor-
ingi á ensku herskipi, sem sigldi
undir pólsku flaggi. „Þótt liðnir
séu 160 dagar frá því að við
komum siðast I höfn eru aliir
hinir ánægðustu. Pegas er með
fullfermi af fiski og I fristund-
um okkar höfum við séð kvik-
myndir og lesið bækur. Þá eru
og starfandi hinir ýmsu klúbbar
meðal áhafnarinnar, en alls
starfa um borð 104 menn,“ sagði
Brzezensr.
Eins og fyrr segir er Pegaz
mjög fullkominn skuttogari og
var skipstjórinn ánægður með
skipið. „Allur fiskur, sem veið-
ist, er fullunninn — engu er
hent. Þegar skipið kemur f höfn
tökum við frystan fiskinn úr
frystihólfunum og mjölgeymsl-
an er losuð. Það er um að gera
að nýta aflann sem mest og
bezt,“ sagði skipstjórinn.
LEIKMBNN YFIRCÁFU VÖLUNN
ÓÁNÆCDIR ÞRÁ TTFYRIR SICU.T
ÍSLAND VANN ECYPTALAND 16:8
tsland vann í gær-
kvöldi sigur yfir leik-
mönnum Egypta með 16
gegn 8. íslenzku leik-
mennirnir gengu þó óá-
nægðir frá leik og ástæð
an var sú að leikaðferð-
in sem beita átti, fór út
um þúfur að mestu leyti.
„Við verður að gera mun
betur, eigi sigrar að nást
gegn Svíum og Ungverj-
um“, sagði Ásbjöm Sig-
urjónsson, form. HSÍ í
viðtali við Vísi í gær-
kvöldi.
Heimsmeistarakeppnin hófst í
öllum 4 borgunum samtímis, en
það er í Prag, Pardubice, Brati-
slava og Gottvaldow. Fór fram
athöfn og gengu öll þátttöku-
liðin inn á leikvanginn en for-
menn framkvæmdanefndanna á
hverjum stað settu keppnina.
I Prag setti þó formaður alþjóða
handknattleikssambandsins
keppnina, en þar fór aðalsetn-
ingarathöfnin fram.
íslendingar byrjuðu mjög illa
gegn Egyptum og höfðu undir
eftir 10 mínútur 2:3. Smám
saman tókst þó að mola mót-
stöðuna niður en í hálfleik var
staðan aíeins 8:5 fyrir ísland.
í seinni hálfleik var aldrei um
annað en íslenzkan sigur að
ræða og leik lauk með stórum
sigri Isla:.ds 16:8.
Egyptarnir voru mjög fljótir,
einkum báðir kantmennirnir,
sem skoruðu 5 af mörkum liðs-
ins með snöggum upphlaupum.
íslendingarnir voru heldur
slakir í þessum leik, svo sem
fyrr segir, og enginn nálægt
sínu bezta. Mörkin skoruðu
þeir Gunnlaugur Hjálmarsson
og Ragnar Jónsson 4 hvor,
Sigurður Einarsson og örn
Hallsteinsson 3 hvor og Hörður
Kristinsson og Karl Jóhannsson
1 hvor.
Ingólfur Óskarsson var ekki
með íslenzka liðinu. Hann var
í hópi varamanna allan leikinn
og ekki þótti ástæða til að
,,kynna“ hann nánar njósnurum
Svía og Ungverja, sem voru
meðal 3000 áhorfenda í gær og
kýnntu sér einstaka leikmenn
íslands af miklum áhuga.
Þegar Vísir ræddi við Ás-
björn Sigusjónsson á Hotel
Carlton í gærkvöldi voru ís-
lenzku landsliðsmennimir um
það bil að festa blund og sagði
Ásbjörn piltana vera ákveðna
í að selja sig dýrt gegn Svíun-
um. Það er hins vegar af Svíun
um að segja að þeir voru á
sama tima í skemmtisölum hó-
telsins við glaum og gleði.
Ásbjörn sagði að hann gerði
sér meiri vonir um að komast
eitthvað áleiðis með Svíana, sem
hann kvað þunga og silalega,
og leika án nokkurrarsérstakrar
„taktíkur". Ungverjar voru hins
vegar mun léttari og skemmti-
legri leikmenn. Það væri því
greinilegt að það yrði mikil bar
átta á mánudagskvöld þegar Is-
land keppir við Ungverja, en bú-
ast má fastlega við að sá leikur
verði jafnframt keppni um sæt-
ið í úrslitakeppninni með Svi-
um.
Önnur úrslit í gær voru þessi:
A-riðill:
V-Þýzkaland — Júgóslavia 14:14
A-Þýzkaland — USA 20:9
B-riðill
Svíþjóð — Ungverjaland 15:8
Island — Egyptaland 16:8
C-riðill
Tékkóslóvakía — Frakkland 23:14
Danmörk — Sviss 16:13
D-riðill
Rúmenía — Rússland 16:14
Japan — Noregur 18:14