Vísir - 10.03.1964, Blaðsíða 4

Vísir - 10.03.1964, Blaðsíða 4
I " i V1 SIR . Þriðjudagur 10. marz 1064 -x Jf'YRIR fjórum vikuni kom úng ljóshærð þokkagyðja frá Sví þjóð til Bretlands. Hún heitir Britt Eklund og var þá óþekkt meB öllu. En eins og margar stúlkur á hennar aidri átti hún fagra drauma um frægð og vel- gengni. Hún var ein af þeim stúlkum sem dreymdi um að verða kvikmyndastjarna. En það virtist eiga óralangt í land. Hún ákvað að taka sér gist- mgu á einu dýrasta hóteli Lund- úna. Það þýddi ekki annað en að bera sig vil þótt pyngjan væri létt. Um nóttina svaf hún vært í gistiherbergi sínu. Hún hafði ekki hugmynd um það, að þá höfðu þa^ umskipti orðið í Iífi hennar, sem minna á söguna um öskubusku. * sama hóteli gisti þessa nótt einn frægasti leikari og kvik myndahöfundur Bretlands, Peter Sellers. Það vildi svo til, að nokkrum nóttum áður hafði SKÁKÞÁTTUR Ingvar Asmundsson — Þórir Ólafsson Björn Þorsteinsson, skák- meistari Reykjavikur Hér sjást hin ástföngnu ungu hjón Britt Eklund og Peter Sellers. Þau sýna hér gimsteinahringinn, sem hann gaf henni sem tryggða- pant en á honum eru þrjár raðir gimsteina, ein röð rúbína, önnur af dembntum og þriðja af smarögðum HRAÐSOÐIÐ BRUÐKAUP pETER SELLERS náfölnaði og roðnaði til .skiptis. Honum varð það ljóst, áð hér voru sjálf örlögin að grípa í taumana. Hér var hamingjan mætt til stefnu- móts við hann. Peter Sellers er ekki vanur að vera lengi að framkvæma hlut- ina. Hann rauk þegar í stað upp á herbergi þeirrar sænsku og um kvöldið opinberuðu þau trú- lofun sína. Þau lifðu hamingjusamt trúlof unarstand í nokkra daga og á meðan var unnið að því að sauma brúðarkjól og undirbúa heimilisstofhun. gera það sem fyrst, því að kvik myndaleikarar værtt-hvihlyndir. Þegar þau komu ú't úr kirijj- unni beið þar heilt herfylki af blaðaijósmyndurum, en Britt Eklund, veifaði brúðarkransin- um til þeirra og hrópaði sigri hrósandi: „Jæja, þá er ég orðin frú Sellers“. 7* >f JjREMUR vikum eftir fyrstu kynnin hljómuðu brúðkaups klukkurnar í lítilli kirkju í Lond on. Viðstödd voru m.a. foreldrar Britt Eklund, en móðir hennar hafði hvatt hana til að giftast hinum enska kvikmyndaleikara hið bráðasta. Það væri bezt að pRITT SELLERS ætlar þó ekki að setjast niður í frúar- stand. Þegar Peter Sellers stundi upp bónorðinu við hana, svaraði hún skjótlegn „Já”, en bætti við „ef ég má halda áfram að leika“. Og þannig var hjúskaparsamn- ingurinn gerður, að hún má halda frjáls inn á brautir frægð arinnar. Brautir sem opnast og verða henni greiðfærari vegna síðustu atburða. * Brúðguminn ber unga brúði sina inn í sveitasetrið Brookfield House. hann dreymt draum um það, að hann aétti að höndia hamingj- una. Og f draumnum var hopum sagt frá því, að hamingjan væri fólgin f upphafsstöfunum B. E. Hann tók að leita að þessum bókstöfum og nú fann hann þá i anddyri gistihússins, þegar hin unga og- dáfriða stúlka gekk þar um. Stúlkan vakti athygli Peter Sellers og hann leitaði upplýs- inga um, hvað hún héti. Hún heitir Britt Eklund, var svarið. Eins og þegar hefur verið skýrt frá hér í blaðinu, varð Björn Þorsteinsson efstur á Skákþingi Reykjavíkur með 9 vinninga af 9 mögulegum eða 100% vinningshlutfall og hlaut þar með titilinn „skákmeistari Reykjavikur 1964“. í öðru sæti varð Jón Kristinsson með 7 v. og þriðji Bjarni Magnússon með 6Y2 vinning. Þegar menn vinna mót á svo sannfærandi hátt sem nú ber vitni, fer vart á milli mála, að hér er um afbragðsskákmann að ræða. Enda er það svo, því að Björn er fyrir löngu kominn í hóp okkar allra öflugustu skák- meistara. Við óskum Birni til hamingju með þennan nýja sig- ur og birtum hér eina af vinn- ingsskákum hans úr mótinu. Hvítt: Björn Þorsteinsson Svart: Jón Kristinsson Spinskur leikur 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. Hel b5 7. Bb3 0-0 8. c3 d6 9. h3 Ra5 10. Bc2 c5 11. d4 Dc7. . . Þetta er hin dæmigerða staða, '"’feVhj út kémur, þegar 'teflt er íóícáéa áfbrigðið af Morphy vörninni. 12. Rbd2 Hd8. Eitt af meginstefnumálum svarts í þessari stöðu er að leika ... d5. Með síðasta leik sínum hyggst hann gera það án tafar, en vafasamt má telja, að undirbúningur sé enn nægilegur. 13. Rfl d5 14. Rxe5 dxe4 15. Rg3 Bd6. Of tímafrek áætlun. Gott virð- ist 15. — Bb7 og síðan ... Rc6. 16. De2 cxd4 17. cxd4 Bxe5 18. dxe5 Dxe5 19. Bd2 Rc6 20. Rxe4 Be6? Grófur afleikur. Svartur er sleginn blindu og sér ekki við hótun hvíts. Líklega var skást 20. - Bb7, t. d. 21. Bc3 Rd4 22. Dg4 b4! En ekki var heldur unnt að leika 20. — Bf5? vegna 21. Bc3 Rd4 22. Rxf6þ Dxf6 23. Bxd4 Hxd4 24. Df3 og vinnur lið. 21. Bc3 Rd4 22. Rxf6r Dxf6 23. De4! Df5 24. Dxd4! Svartur gafst upp, þar eð ekki verður komizt hjá mannstapi. Skákdæmi nr. 2. Hjónakossinn í anddyri kirkjunnar. Hvítur leikur og mátar í 3 leikj- um. Firma- keppnin Árið 1960 gekkst Skáksam- band Islands fyrir þeirri ný- lundu að efna til skákmóts fyr- irtækja og stofnana. Eftir keppni, fyrsta árs var sveitun- um raðað í flokka eftir styrk- leika, þannig að A-flokkur var talinn öflugastur, en F-flokkur slakastur. Flokkarnir eru þann- ig sex og sjö sveitir i hverjum. Gert er ráð fyrir að efsta sveit hvers flokks vinni sig upp í þann næsta fyrir ofan nema sú sveit, sem sigrar í A-flokki, en hún er sigurvegari, og ennfrem- ur að neðsta sveit hvers flokks hrapi niður í næsta flokk fyrir neð-n. Er flokkaskipun hafði verið ákveðin, hófst árið 1961 keppnl um bikar, sem Dagblaðið „Vís- ir“ gaf til mótsins. Hefur því verið keppt um hann alls þrisvar sinnum og hefur Stjórnarráðið unnið hann tvisvar en Útvegs- bankinn einu sinni (s.l. ár). Staðan i A-flokki á mótinu er nú þessi: 1. Stjórnarráðið A-sv. 6y2 v. 2. Útvegsbankinn 5 v. 3. Veðurstofan 4*/2 v. 4. Pósthúsið 3i/2 v. 5.—7- Landsbankiúft . j Alm. byggingárfél. Búnaðarbankinn l%v. Erlendar fréttir Lokið er keppni á III. svæðis- mótinu í Kecskemét og varð Tringov (Búlgaríu) sigurvegari með 10y2 v. 1 2.-3. sæti urðu Bilek (Ungvl.) og Pachman (Tékkósl.v.) með ðy2 v. hvor. Komast þeir allir 1 millisvæða- mótið, sem væntanlega verður haldið í Amsterdam siðar á þessu ári. Þ. Ó. 16 mm filmuleiga Kvikmyndavélaviðgerðir Skuggamyndavélar Flestar gerðir sýningarlampa Ódýr sýningartjöld Filmulím og fl. Ljósmyndavörur Filmur Framköllun og kópering Ferðatæki (Transistor) FILMUR OG VÉLAR Freyjugötu 15 • Sími 20235

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.