Vísir - 10.03.1964, Qupperneq 10
10
V í SIR . Þriðjudagur 10. marz 1964.
Á Landmannaafrétt
Framh. af bls. 9
á smábílum byggða milli eftir
endilöngum Sprengisandi. Þar
verður reyndar að laga á nokkr-
um stöðum, einkum þegar nær
dregur byggð, meir þó í nám-
unda við Bárðardal heldur en
Eyjafjarðardali. Ennfremur verð
ur að merkja leiðina, því þar er I
mikið um aukaslóðir og auðvelt j
að villast.
Tungná er um 80 metra breið
« Haldi. Ég spurði vegamála- ,
stjóra nýverið að þvf, hvers '
vegna ekki yrði byggð brú á
ánni. Hann sagði, að það væri
að sínu áliti æskilegra. Hins veg
ar yrði brú 5 — 6 sinnum dýrari
heldur en kláfferja. Og sam-
göngur yfir Sprengisand eru
vart hugsanlegar nema tvo mán-
uði á ári.
XI
Þegar Guðmundur Jónasson
renndi f hlað á Haldi sunnu-
daginn 1. marz var þar fyrir
eitt mikið ferlfki, sem við hugð-
um í fyrstu vera bifreið. Nán-
ari athugun leiddi í ljós, að
þetta var svefnvagn Sigurjóns
Ritt vatnamælingamanns. Þenn-
an lúxusvagn dregur hann á
eftir sér norðiur allan Sprengi-
sand, allt norður í Illugaver
og Sóleyjarhöfða.. Þrír til fjórir
menn geta sofið f vagninum og
átt þar góða ævi. Annars er
Sigurjón oftast á ferð við ann-
an mann og lætur það duga.
Sigurjón fer helzt í hverjum
mánuði ársins norður fyrir
Tungná í vatnamælingaleið-
angra. Stundum kemur áin þó
í veg fyrir þessar áætlanir Sig-
urjóns, þvf hún er iðulega ófær
á vetrum, ekki sízt á meðan
hana er að leggja. Þá bólgnar
hún mjög upp og dýpi hennar
getur orðið margfalt á við það
venjulega. Eitt dæmi sagði Sig-
urjón mér um breytilegt dýpi
Tungnár á Haldi. Þar hefur ver-
ið byggður vatnshæðarmælir á
syðri bakka árinnar, 10 metra
hátt mannvirki yfir vatnsflöt-
inn. En það hefur komið fyrir
að áin hefur hrannazt þarna upp
svo að mælishúsið eitt stendur
upp úr hrönninni, þannig að ár-
borðið hefur hækkað um 8
metra frá venjulegu vatnsborði
hennar.
XII
Nokkrum kílómetrum fyrir
neðan Hald er eitt bezta vað,
sem þekkist á Tungná. Það er
kallað Tangavað, eftir Sultar-
tanga, en svo heitir sporðurinn
milli Tungnár og Þjórsár.
Talið er, að þetta sé hið forna
vað á leiðinni yfir Sprengisand.
Á sfðustu áratugum hefur vað-
ið týnzt, en fannst aftur fyrir
nokkrum árum. Stundum hafa
jeppar, sem ætlað hafa yfir
Sprengisand, verið ferjaðir yfir
á Tangavaði á stórum trukk og
gefizt vel. En eftir að kláfferj-
an kemur yfir á Haldi gerist
þess arna ekki lengur þörf.
Guðmundur Jónasson leggur
að þessu sinni Ieið sína að
Tangavaði, síðan áfram niður
með Tungná þangað sem þær
koma saman í einni móðu,
þeirri stærstu á Islandi, Þjórsá
og Tungná. Þar heitir Ármót.
í Tungná myndast mikill og
fagur foss við ármótin, foss,
sem næsta fáir hafa séð því að
honum liggur engin gata, eng-
inn vegur né slóði. Það er ekki
nema traustum og sterkum bfl-
um og dugmiklum öræfabílstjór
ur.i, sem treystandi er yfir veg-
leysuna þangað. En ferðin svar-
ar kostnaði. Ármótafoss er f
senn mikil' og fagur. Handan
hans er hátt standberg, þver-
hnípt. Og það sérkennilegasta
af öllu er að sjá hvernig fljótið
hefur brotið sér farveg inn í
þetta berg, brotið göng í gegn-
um það og brýzt í hamförum
og boðaföllum út úr þvf aftur.
Þessi sýn var fyllilega ferðar-
innar virði, jafnvel þótt maður
hefði ekkert annað séð en þenn-
an undurfagra foss einan.
VÉLAHREINGERNING OG
HÚSGAGNAHREINSUN
Vanir og
vandvirkir
menn.
Ódýr og
örugg
þjónusta.
ÞVEGILLINN, sími 36281
VÉLHREINGERNING
Vanir
menn
Þægileg
Fljótleg
Vönduð
vinna
Sími 21857
ÞRIF. -
D
□
iÓPAVOGS- °
ÍÚAR!
VTáliS sjálf, viðg
'ögum fyrir ykkn
rr litina, Full-§
<omin þjónusta.D
□
LITAVAL g
4lfhólsvegi 9 D
Kópavogi, g
Sími 41585. O
Teppc-
FASTEIGNAVAL
Skólavörðustig 3A II hæð,
Sfmar 22911 og 19255.
Endumýjum
gömlu
sængurnar.
Seljum
dún og
fiðurheld
Nýja fiðurhreinsunin
Hverfisgötu 57A
Sími 16738.
Hvít, rauð og blá terelyn pils telpna,
Rauðir og bláir Jackie prjónajakkar úr
edelon fyrir drengi og telpur.
Straufríar hvítar blúndublússur.
og
húsgagnahreinsun
Sími 34696 á daginn
Sími 38211 á kvöldin
og um helgar.
Teppa- og húsgagnahreinsunin
Sæagur
RESl BEZT-koddar °
Endurnýjum gömlu °
sængurnaT ^igum
dún- og fiðurheld vei g
Seljum æðardúns op g
gæsadúnssængur - g
og kodda af ýmsum °
stærðum.
DÚN- OG
FIÐURHREINSUN
Vatnsstfg 3. Sfml 18740
"ElTllElA
/neð fatnaéinn á fjölskylduna
Laugaveg 99, Snorrabrautar megiii - Síiui 24975
STEINHÚDUN H.F.
Jafnt fyrir híbýli sem
vinnustaði: ULBRIKA
húðun á GÓLF og
STIGA, án samskeyta.
mikið slitþol, einlitt og
og litmynztrað. ULBRIKA
á LOFT og VEGGI.
Vamar sprungum, spara
má fínpússningu,
k... , fjölbreytt áferð og
litaval. ; ;
Sími 2 38 82
□
a
a
a
a
a
D
D
D
D
D
a
D
a
a
D
D
a
D
D
a
a
n
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
□
a
n
P
! n
c
u
G
P
E
|D
D
Næturvakt f Reykjavík vikuna
8, —15. marz verður í Ingólfs-
apóteki.
Nætur- og helgidagalæknir f
Hafnarfirði frá kl. 17 10. marz
til kl. 8 11. marz: Eiríkur Björns
son Austurgötu 41 sími 50235.
Útvarpið
Þriðjudagur 10. marz.
Fastir liðir eins og venjulega.
13.00 „Við vinnuna": Tónleikar.
14.40 „Við sem heima sitjum":
Vigdís Jónsdóttir skólastj.
talar um hraðfryst matvæli
15.00 Síðdegisútvarp
18.00 Tónlistartími barnanna.
20.00 Einsöngur: Betty Allen
söngkona frá Bandaríkjun-
um syngur í Austurbæjar-
bíói við undirleik Árna
Kristjánssonar. (Hljóðr. í
janúar sl.)
20.20 Erindi: Nehru (Sigurður A.
Magnússon)
20.50 Mexíkó í fortíð og nútíð.
Dagskrá í tali og tónum i
tengslum við tvær sýning-
ar í Reykjavík um mexí-
kanska byggingarlist frá
fornum tímum og myndlist
nútímans. Meðal flytjenda:
Einar Egilsson, Ólafur Jens
son og Magnús Á. Árnas.
21.35 Söngmálaþáttur þjóðkirkj-
unnar: Dr. Róbert A. Ottós
son talar um kirkjuorgel og
orgelkaup níundi þáttur.
í þættinum leikur Jakob
Tryggvason á orgel Akur-
eyrarkirkju.
22.10 Lesið úr Passíusálmum (37)
22.20 Iívöldsagan: „Óli frá Skuld'
eftir Stefán Jónsson XVI.
22.40 Létt músik á síðkvöldi:
Tékkneskir listam. syngja
og leika þarlenda alþýðutón
list.
23.20 Dagskrárlok
5 jénvarp
Þriðjudagur 10. marz
16.30 The Shari Lewis show
17.00 Encyclopedia Britannica
17.30 Sing along with Mitch
18.30 Lock up
19.00 Afrts news
Gefðu mér hlátur þinn, söngglaði
sær,
og þinn sviflétta dans yfir votum
steinum,
þó að þú geymir í grafdjúpum
leynum
grábleikan dauðann, þú sýnir ei
neinum
annað en sólroðið andlit, sem
hVær.
Jóhann Sigurjónsson.
Veturinn 1848 61 kona af
Ströndum barn í hákarlalegu. Hét
hún Jófriður, vinnukona á Kross-
nesi í Árneshreppi, og var hús-
bóndi hennar og barnsfaðir for-
maður á skipinu. Þegar skipið lá
við stjóra úti á hákarlamiðum,
þann 28. febrúar, tók konan jóð-
sótt og ól heilbrigt og fullburða
meybarn, og gekk allt vonum
framar og slysalaust þótt hvorki
væri læknir né ljósmóðir til stað-
ar. Létu allir hásetarnir sér mjög
annt um að hjúkra mæðgunum
og hlynna að þeim, og allir tóku
þeir af sér einhverja skjólflík til
að skýla þeim með — nema barns
faðirinn, sem lét sig slfka smá-
muni engu varða, en ekki er þess
þó getið að hann bannaði það
mönnum sínum. Skömmu síðar
spilltist veður og var þá haldið til
Iands. Hvorug þeirra mæðganna
hafði mein af þessu, en ekki varð
telpan, sem skírð var Guðrún,
nema ársgömul — en talið er að
hún sé eina barnið, sem fætt er
í hákarlalegu ...
Heimild —
Strandamannabók.
1
Frúin bridgemeistari — sonur-
inn trommuleikari og trúlofaður
dægurlagasöngkonu — dóttirin á
tízkuskóla og heitbundin sál-
fræðingi — faðirinn ... jú, rétt, á
Kleppi ... hvemig datt ykkur það
í hug?
ef það skyldi hafa farið
fram hjá einhverjum, þá virðist
fólk ekki geta komið sér fylli-
lega saman um tvær stórbygg-
ingar að undanförnu — aðra í
byggingu, hina ekki svo langt
komna — og þarf varla að rekja
það nánar ... hitt munu færri
vita, að nú er svo að sjá sem
bráðum heimsfrægur húsagerðar-
maður, danskur, sem um þessar
mundir er að reisa eina nýtízku
söngleikahöll suður f Sidney, hafi
— eiginlega fyrir hendingu —
leyst vandann við báðar þessar
byggingar, svo að allir megi vel
við una ... það datt nefnilega
einhverjum í hug að fá hann til
að teikna listasafn, en þegar sniil
ingurinn fór að athuga umhverfið,
þar sem þvf hafði verið valinn
staður, leizt honum ekki á blik-
una — hvergi hægt að koma
slíkri byggingu þar fyrir svo sam-
ræmið færi ekki allt út um þúfur
... en sá danski dó ekki ráða-
laus; hann ákvað þegar, að öll
byggingin skyldi grafin í jörð
niður, svo að hún hneykslaði ekki
neinn ... Það er að vfsu kannski
helzt til seint séð, að sprengja
Hallgrímskirkjuna ofan í Skóla-
vörðuholtið, að minnsta kosti að-
alkirkjuna — en kannski mætti
hola turninum nokkuð niður, að
minnsta kosti svo að hann bæri
ekki hærra upp úr en Borgina og
nálæg hús við Pósthússtræti, en
þau virðast það hæsta, sem and-
stæðingar nefndrar byggingar
geta horft upp á við; héldist þá
áætluð lengd turnsins engu að
síður og mættu báðir aðilar þvi
vel við una ... öllu auðveldara
ætti að verða að hola ráðhúsinu
ofan í mjúka sandvilpuna við
Tjörnina; þyrfti jafnvel ekki að
grafa fyrir því, bara að láta það
síga jafnóðum, og setja svo flot-
holt á efstu hæðina, svp að það
hyrfi ekki alveg ... kannski yrði
þó vissast að leggja því við dufl,
og vissu menn þá að minnsta
kosti hvað orðið hefði af milljón-
unum, og mætti það eitt kallast
merkilegt nú til dags ...