Vísir - 11.03.1964, Blaðsíða 8

Vísir - 11.03.1964, Blaðsíða 8
8 VlSIR . Miðvikudagur 11. marz 1964. VISIR Utgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR Ritstjóri: Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen Ritstjómarskrifstofur Laugavegi 178 Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3 Áskriftargjald er 70 krónur á mánuði ! lausasölu 5 kr. eint. — Sími 11660 (5 linur) Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f. Sigurdagur þess verður lengi minnzt, hve vel viðreisnarstjórn- inni tókst að leysa landhelgisdeiluna við Breta með samningnum um 12 mílna landhelgina fyrir réttum þremur árum. Þá fékkst full viðurkenning Breta eftir áralangar væringar. Ekki minna virði var, að þá fékkst einnig fram veruleg breyting á grunnlínum landhelg- innar á fjórum stöðum umhverfis landið. Sú breyting leiddi til stækkunar 12 mílna landhelg- innar um rúmlega 5 þúsund ferkílómetra. Með landhelgissamningnum frá 1961, sem í dag rennur út, fengu Bretar takmörkuð veiðiréttindi á nokkrum stöð- um við landið. Reynslan hefir sýnt, að þau réttindi skertu á engan hátt fiskistofnana við landið — og nú i eru þau úr sögunni. Þess vegna fagnar gjörvöll ís- lenzka þjóðin í dag unnum sigri og minnist þess, hve farsællega stjórn Ólafs Thors leysti hinn mikla vanda i fiskveiðideilunnar. 1 Tólf mílna landhelgi var lýst yfir 1958 að lokinni fyrri Genfarráðstefnunni. Sú yfirlýsing var rökrétt fram- hald þess mikla starfs, sem áður hafi verið unnið á i þessu sviði. Fyrsti áfanginn var löggjöfin um vísinda- lega verndun fiskimiðanna 1948. Árið 1950 gaf Ólafur Thors, þáverandi sjávarútvegsmálaráðherra, út fyrstu reglugerðina á grundvelli þeirra landgrunnslaga og gilti hún fyrir Norðurland. Þar var landhelgin fyrsta sinni ákveðin 4 mílur og beinar grunnlínur dregnar. Árið 1952 var síðan mikilvægasta skrefið stigið, þegar landhelgin umhverfis allt landið var ákveðin 4 mílur, fjörðum og flóum lokað og beinar grunnlínur dregnar. Setning þessarar reglugerðar, sem Ólafur Thors gaf út, var stærsti sigurinn í baráttunni fyrir vemdun fiskimiðanna. Það svæði, sem var friðað fyrir botn- vörpuveiðum, var þá stækkað um nær 20 þúsúnd fer- kílómetra. Með reglugerðinni frá 1952 var og horfið frá hinni brezku reglu um 3 mílna landhelgi, en samn- ingnum frá 1901 hafði verið sagt upp þegar 1949, er Bjami Benediktsson var utanríkisráðherra. §aga síðari ára er mönnum í fersku minni. Eftir að fyrri Genfarráðstefnunni mistókst að ná samkomu- lagi um fiskveiðitakmörkin voru þau færð út 1958 í 12 mílur. Það leiddi til hins mesta ófriðar af hálfu Breta, þar sem lífi íslenzkra sjómanna og varðskips- manna var oft mikil hætta búin. Höfuðnauðsyn var því að leysa fiskveiðideiluna á friðsamlegan hátt, en það hafði vinstri stjórninni ekki tekizt. Hér vann viðreisn- arstjórnin einn sinn stærsta sigur, er henni tókst að leiða deiluna farsællega til lykta með landhelgissamn- ingnum. Viðræðurnar fóru fram undir forystu Guð- mundar í. Guðmundssonar bæði hér og í London. En óhætt er að fullyrða, að fundur Ólafs Thors og Mac- Millans síðla árs 1960 réði þar úrslitum. í landhelgismálinu hafa margir lagt dyggilega hönd á plóginn, en ekki er það ofmælt að öðrum fremur hafi þeir Ólafur Thors og Bjarni Benediktsson, núver- andi forsætisráðherra, markað þar stefnuna. Mexikönsk byggingar- list sýnd í Bogasalnum Á sunnudag var opnuð merki- leg sýning í Bogasal Þjóðminja- safnsins, og þar sýnd mexikönsk byggingalist, sem sýnir þróun hennar þar f landi 4000 ár, allt til þessa dags. Sýningin er haldin á vegum arkitektafélags íslands, formaður þess er Aðal- steinn Richter, skipulagsstjóri Reykjavíkurborgar. Meðal gesta við opnun sýningarinnar var for seti islands, ambassador Mexico í London, Antonio Armentariz, ásamt sendiherrum erlendra ríkja hér á landi, ráðherrum og fleiri gestum. Þjóðminjavörður, Kristján Eld járn, bauð gesti velkomna og for maður Arkitektafélagsins Aðal- steinn Richter flutti ávarp og skýrði sýninguna, sem hann taldi mjög merka og aðgengi- lega, ekki aðeins fyrir listfræð- inga og byggingatæknifróða menn, heldur og fyrir almenning Hann gat þess einnig að sýning á eftirprentunum málverka eftir mexikanska listamenn yrði opn- uð n.k. þriðjudag í húsakynnum Arkitektafélagsins, Laugavegi 26. Hann endaði ávarp sitt með því að vænta þess að þessar sýn ingar yrðu merkur áfangi menn ingartengsla íslands og Mexico. Þá kynnti Einar Egilsson, ræð ismaður Mexico hér á landi, mexikanska ambassadorinn sem áður var nefndur, og mælti hann nokkur orð og öpnaði sýn- inguna. Á þessari sýningu kynnast Is- lendingar hinni fornu og stór- merku byggingalist Mexikana, pýramidum og öðrum fornlegum byggingamannvirkjum. Ennfrem ur er nútímabyggingalist á mjög háu stigi í Mexico, og eru sýnd ar fjölmargar ljósmyndir af forn um og nýjum byggingum. Sýning þessi er farandsýning, hefir farið víða um heim, m. a. verið haldin í mörgum borgum á Bretlandi. Friðrik boðið til Argentínu Friðrik Ólafs'syni hefur verið boðið að taka þátt í alþjóðlegu skákmóti í Buenos Aires £ vor en þar munu tefla 18 menn 9 argentínskir og 9 erlendir meist- arar. Mót þetta er byrjun á árlegu föstu móti og er ætlunin að halda áfram að bjóða 9 útlend- ingum til keppni við jafnmarga argentíska. Mótið í ár á að byrja 20. maí og stendur í mánaðar tíma. Friðrik sagði í viðtali við blaðið í gær að boðið hefði komið sér talsvert á óvart. „Ég hafði eiginlega hugsað mér að vera heima í sumar. Ferðalagið til Buenos Aires og veran þar tekur ekki minna en 6 vikur og það er fulllangt. Hins vegar er boðið freistandi og ekki að vita Friðrik Ólafsson nema ég taki því, ef skilmálarn ir eru ekki því verri“. Fóstru- og hjúkrunarstörf að komast í tízku? Islenzkar stúlkur virðast vera farnar að hugsa meira um fóstru störf og hjúkrun, en áður var og ekki ólíklegt að *þau störf verði tízkustörf á borð við flugfreyju- starfið. Þetta hefur glöggt komið í ljós á starfsfræðsludögum úti á Aðalfundur Félags frímerkja safnara er nýlega afstaðinn. Starfsemi félagsins á liðnu ári var all umfangsmikil. Fundir eru haldnir einu sinni í mánuði, að undanskildum júní til ágúst, en auk þess er herbergi félagsins að Amtmannsstíg 2 opið fé- lagsmönnum, starfsmánuðina, á laugardögum kl. 3-6 og þess utan einnig á miðvikudögum kl. 8-10. Á miðvikudögum eru almenningi jafnframt veittar ó- keypis upplýsingar um frí- merki og frímerkjasöfnun. Félagið gekkst fyrir því að landi að undanförnu og nú síð- ast á Akranesi um helgina, en Ólafur Gunnarsson, sálfræðing ur aðstoðaði Rotaryklúbb Akra- ness við starfsfræðslu þar. Boðið var til dagsins ungling- um úr Borgarfjarðar- og Snæ- haldinn var „Dagur frímerkis- ins“ þann 2. maí sl. Var þá kynnt sérstaklega með ýmsu móti söfnun frimerkja og bent á hina miklu uppeldislegu þýð- ingu sem frímerkjasöfnun getur haft. Eins og áður annaðist félag- ið útgáfu á fyrstadagsumslög- um vegna útgáfu nýrra ís- lenzkra frímerkja, en þær voru 5 á árinu. Hefir félagið nú gefið út alls 14 myndskreytt umslög, af þessum tilefnum. Eitt af áhugamálum félagsins Framhald á bls. 5. fellsnessýslum og komu nemend ur framhaldsskóla þar til Akra- ness. Voru um 100 starfsgreinar kynntar á þessum starfsfræðslu degi, sem hófst með því að Lúðrasveit Akraness lék og Björgvin Sæmundsson, bæjar- stjóri flutti ræðu. Fyrirspurnir um störf bárust frá 263 unglingum. Einkum var spurzt fyrir um sjómennsku og vélskólanám. Þó leizt flestum piltum illa á að eyða 7 árum í það nám, 4 af þéim árum x smiðju. Stúlkurnar spurðu nokk uð um flugfreyjustörf en meira um fóstru- og hjúkrunarstörf. Enginn spurði um störf við póst- og síma og fáir um störf í bygg ingariðnaðinum, og hefur það gerzt við þrjá slðustu starfs- fræðsludaga. Starfsfræðsludeginum á Akra- nesi lauk með fallegri sýningu á litskuggamyndum með tón og tali sem Samvinnuskólamenn sýndu, og hótelstj. á Akranesi sýndi borð með öllum síldar- réttum, sem íslendingar þekkja og bauð hann mönnum að smakka á réttunum, er starfs- fræðslunnj lauk. Að Iokum fóru menn í sokkaverksmiðjuna og skoðuðu hana. Útgáfa handbókar um íslenzk frí- merki undirbúin

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.