Vísir - 11.03.1964, Síða 10
10
VÍSIR . Miðvikudagur 11. marz 1964.
Fyrir S K 0 D A
Framluktir compl. — kveikjur compl.
Hraðamælar — hitastillar — háspennukefli
Viftureimar — rafkerti — bílaperur allar gerðir.
SMYRILL . LAUGAVEGI 170 . Sími 1 2260
Húsgagnabólstrun
Klæðum og gerum við gömul húsgögn.
Húsgagnabólsfrunin
Miðstræti 5 Símar 15581 og 21863.*
Samvinnuskólinn
BIFRÖST
Inntökupróf í Samvinnuskólann, Bifröst, fell-
ur niður næsta haust, þar sem I. bekkur skól-
ans er þegar fullskipaður. Haldið verður
áfram innritun til prófs haustið 1965.
SAMVINNUSKÓLINN, BIFRÖST
Stálhúsgrind
Stálhúsgrind tunnuverksmiðjuhúss á Siglu-
firði, sem skemmdist í bruna í janúarmánuði
s.l.,,er til sölu til niðurrifs og brottflutnings.
Tilboðum sé skilað til skrifstofu vorrar á
Siglufirði fyrir 18. þ. m.
Siglufirði, 9. marz 1964,
Tunnuverksmiðjur ríkisins.
HEIMDALLUR
F. U. S.
Mólfundaklúbburinn
Miðvikudagskvöldið 11. marz:
Kl. 20.30 hefst málfundur í Valhöll v/Suður-
götu um
ATÓMLJÓÐ og ABTRAKTLIST
Framsögumenn:
Bjarni Lúðvíksson,
Friðrik Friðriksson,
Ólafur Ragnarsson.
í upphafi fundar verður sýnd kvikmyndin:
Hvað er nútímalist?
Launþegaklúbburinn
Fimmtudagskvöldið 12. marz:
Kl. 20.30 verður annar fundur Klúbbsins.
Gunnar Helgason, formaður Verkalýðsráðs
Sjálfstæðisflokksins, mun flytja stutt erindi
um Þróun verkalýðshreyfingarinnar á íslandi.
í lok fundarins verður sýnd kvikmyndin:
Ofar skýjum og neðan.
VÉL AHREINGERNIN G OG
HÚSGAGNAHREINSUN
Vanir og
vandvirkir
Ódýr og
örugg
þjónusta.
ÞVEGILLINN, simi 36281
VÉLHREINGERNING
n
a
□
’a
a
TJ
1
TJ
3
71
n
n
□
□
□
□
□
□
□
□
□
n
n
□
□
n-
n
u
□
□
□
El
□
□
Sími 21857 °
ÞRIF. - |
□
□
n
ÍÓPAVOGS- □
IÚAR!
Vlálið sjálf, viðn
lögum fyrir ykkg
it litina. Full-a
tomin þjónusta.^
LITAVAL □
4lfhólsvegi 9 °
Kópavogi. EJ
Sími 41585.___|
;
GR
i'i -ý \
Vanir
menn
Þægileg
Fljótleg
Vönduð
vinna
Teppa-
Og
húsgagnahreinsun
Sími 34696 á daginn
Sími 38211 á kvöldin
og um helgar.
Teppa- og húsgagnahreinsunin
Sængur
REST BEZT-koddar
Endurnýjum gömlu
sængurnar. eigum
dún- og fiðurheld ver |
Seljum æðardúns- og |
gæsadúnssængur - n
og kodda af ýmsum «
stærðum.
DÚN- OG
FIÐURHREINSUN
Vatnsstíg 3. Simt 18740
STEINHÚDUN H.F.
Jafnt fyrir híbýli sem
vinnustaði: ULBRIEA
húðun á GÓLF og
STIGA, án samskeyta.
mikið slitþol, einlitt og
og litmynztrað. ULBRIEA
v. á LOFT og VEGGI.
Vamar sprungum, spara
má fínpússningu,
fjölþreytt áferð og
Slysavarðstofan
Opið allan sólarhringinn. Simi
21230. Nætur- og ‘-elgidagslækn-
Næturvakt í Reykjavík vikuna
8.— 15. marz verður í Ingólfs-
apóteki.
Nætur- og helgidagalæknir i
Hafnarfirðí frá kl. 17 11. marz
til kl. 8 12. marz: Bragi Guð-
mundsson Bröttukinn 33, sími
50523.
Útvarpið
Miðvikudagur 11. marz.
Fastir liðir eins og venjulega
17.40 Framburðarkennsla
í dönsku og ensku.
18.00 Útvarpssaga barnanna:
„Landnemar" eftir Frederick
Marryat, í þýðingu Sigurðar
Skúlasonar, VI. (Baldur
Pálmason).
20.00 Varnaðarorð: Vilberg Helga
son öryggiseftirlitsmaður tal
ar um lestun og losun
skipa.
20.05 Létt lög: Fritz Schulz Rei-
chel píanóleikari og Bristol
Bar sextettinn leika.
20.20 Kvöldvaka:
a) Lestur fornrita: Norðlend
ingasögur, — Víga-Glúmur
<Helgi Hjörvar).
b) Kórsöngur: Borgfirðinga-
kórinn syngur.
c) Heimilisandinn, — þriðji
þátturinn, sem Leikhús æsk
unqar flytur á vegum Æsku-
lýðsráðs Reykjavíkur. Aðal-
umsjón hefur Hrefna Tynes
á hendi.
d) Vignir Guðmundsson
blaðamaður flettir þjóð-
sagnablöðum.
e) Sigurbjörn Stefánsson
flytur vísnaþátt.
21.45 Islenzkt mál (dr. Jakob
Benediktsson).
22.10 Lesið úr Passíusálmum (38)
22.20 Lög unga fólksins (Guðný
Aðalsteinsdóttir).
23.10 Bridgeþáttur (Stefán Guð-
Johnsen).
23.35 Dagskrárlok.
Bl’óðum
flett
í skaparans nafni ýtt var út
opnu skipi, er ieyst var festi.
Með Andrarímur í andans nesti
en annars harðfisk og blöndukút,
en munaðaraukinn eini og beztj
ögn af sykri í vasaklút.
Jakob Thorarensen.
Fyrir tæpum tuttugu árum
gerðist sá einstæði atburður á
Alþingi, að samþykkt var frum-
varp að heimild til handa ríkis-
stjórninni um að taka öll sam-
kvæmissalarkynni á Hótel Borg
leigunámi eitt kvöld til veizlu-
fagnaðar. Formenn allra stjórn-
májaflokkanna voru flutnings-
menn að frumvarpi þessu. Frum-
varp þetta var flutt í tilefni af
fyrirhugaðri lýðveldisstofnun á
íslandi, en svo stóð á, að einhver
deila var á milli hóteleiganda og
hljóðfæraleikara og veitingastarf-
semin rekin án hljóðfæraleiks í
sölum hótelsins um þessar mund-
ir. Var því þetta ráð tekið til
þess að unnt yrði að minnast lýð-
veldisstofnunarinnar með viðeig-
andi veizluhaldi, tónlist og öðru,
sem með þótti þurfa til að setja
hátíðarblæ á samkomuna.
fuglar, eins og dúfurnar verða að
teljast, og þar af leiðandi ekki
hægt að ætlast til sama vits af
þeim og hinum fuglunum ... satt
bezt að segja, þá er það líka
ýmislegt annað, sem ég er hrædd
ur um, að einhvern tíma hefði
þótt vita á- eitthvað ekki gott
ekki nóg að þessir fuglar séu
hættir að átta sig á hlutunum,
mannfólkið, fjárinn hafi það,
hreint ekkert betra og kvenfólk-
ið held ég þó verst... það sat
jeppi úr borginn fastur hérna fyr-
ir neðan bæinn um daginn — í
forarvilpu, auðvitað, ekki er það
snjórinn ... og þegar ég labba nið
ur túnið til að koma til aðstoð-
ar, ja, þá verð ég nú að segja að
mér birti fyrir augum.. þrjár
Reykjavíkurdömur maður, og
þær ekki af lakara taginu —
en búningurinn maður, og það
um miðjan vetur og þó sér í
lagi fótabragðið ... já, á ein-
hverjum skóblöðkum, sem ekkert
voru nema hællinn, og berar of-
an á brjóst... nú, ég verð að
segja það, að mér var ekki óljúf-
ara að rétta þeim hjálparhönd,
þar fyrir — en ég segi ekki nema
það, að það eru ekki einungis
þessar fleygu fiðruðu borgardúf-
ur, sem ruglazt hafa í ríminu, mað
ur, ég held bara að það sé allur
mannskapurinn, og hvað svo sem
þetta boðar, þá boðar það eitt-
hvað...
litaval.
Símumw
□
□
□
□
□
= □
□
□
□
□
□
□
□
n
i Q
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
□
i rj
□
□
□
n
□
u
□
□
□
Eina
sneid
... Þar sem varla getur talizt við-
eigandi að ræða um handknatt-
leik að sinni, verður þessi kafli
ekki lengri í dag ...
Tóbaks-
korn
.. segi ég það enn, að ekki
er einleikið með þessa veðráttu,
og einhvern tínia hefði það þótt
boða stórtíðindi, þegar fuglar
taka að verpa og unga út á Góu,
jafnvel þótt það séu Reykjavíkur-
Það dróst ekki lengi að hann
rættist, spádómurinn í þessum
þáttum hérna um daginn, að þess
yrði kannski ekki svo langt að
bíða að skipin tækju upp á því
að leggjast á hliðina og jafnvel
sökkva uppi í slipp... og það
var ekki skip af óvandaðra taginu
varðskip var það, sökk ekki að
vísu uppi í sjálfum slippnum, en
lagðist þar á hliðina eins og síld
arbátur úti á miðum. Óþarft er
að taka það fram, að þetta gerð-
ist í blíðskaparveðri — en fyrst
það hefur nú sýnt sig, að ekki
veitir af að gerð sé stöðugleika-
prófun á herskipaflota vorum, áð
ur en hann er settur á dráttar-
sleðann ... ja, hvað mun þá um
skip í hinum flotanum?