Vísir - 11.03.1964, Blaðsíða 16
VISIR
Mlðvfkudagur 11. marz 1964.
Engin móttaka í
danska sendiróðinu
Vegna fráfalls Páls Grikkjakon-
ungs hefur verifl fyrirskipuð hirð-
sorg í Danmörku. Þess vegna verð
ur engin móttaka hjá ambassador
Dana Bjame Paulson og frú á af-
mælisdegi Friðriks níunda Dana-
konungs i dag.
Blöðin fari varíega í nafn
birtingu sakamanna
— sagði forsætisróðherra í Blaðamannaklúbbnum
Islenzk blöð hafa það að veru sökunauta), sagði Bjami Bene- kveldi. En ég tel, sagði ráð-
Iegu leyti á sínu valdi, hvort diktsson forsætisráðherra í herrann, að blöðin eigi að fara
þau birta nöfn sakamanna (eða Biaðamannaklúbbnum í gær- mjög varlega i nafnabirtingar
Þegar fréttamenn flugu með vél Landhelgisgæzlunnar i morgun yfir landhelgissvæðið var aðeins einn togari í undanþáguhólfi milli 6 og
12 milna markanna. Það var Jón forseti og var þessi mynd þá tekin af honum. Enginn erlendur togari sást nálægt landhelgislínunni.
Landhelgisflugvélin sá 25
togara að veiðum í morgun
eins og þau hafa gert undanfar-
in ár.
Forsætisráðherra sagði, að eft
ir að mál hefðu verið tekin til
dómsrannsóknar væru réttar-
höld yfirleitt opin og blaða-
menn gætu fylgzt með þeim og
birt nöfn, ef þau viidu, enda
þótt dómur væri ekki fallinn í
málunum. Ráðherrann sagði
að sérstakar ástæður yrðu að
vera fyrir hendi til þess að dóm-
ari gæti ákveðið, að dómsrann-
sókn skyldi vera lokuð og dóm
ari yrði ætíð að rökstyðja þá
ákvörðun sína. Hins vegar væri
lögreglurannsókn lokuð og blöð
in ættu engan rétt á því að fá
uppgefin nöfn sökunauta meðan
málin væru enn á þv,í stigi.
Kvað ráðherrann það óeðliiegt
að birta nöfn áður en málin
hefðu verið tekin til dómsrann-
sóknar. Þó kvað forsátisráð-
herra enga algilda reglu gilda í4
þessu efni. Afbrotamaður gæti
ef til vill verið staðinn að verki
og augljóst, að um sök væri að
ræða og gæti þá í slíkum tilfell-
um verið réttlætaniegt að birta
nöfn afbrotamanna.
En forsætisráðherra sagði, að
eftir þvf sem hann hefði fengizt
lengur við dómsmálastjórn hér
á landi hefði hann hneigzt meira
að því að fara varlega í nafn-
birtingu sökunauta og sakg-
manna. Yfirleitt væri ógæfa
þeirra manna, er fremdu afbrot
nægilega mikil og byrði aðstand
enda nógu þung þó ekki væri á
hana bætt með því að brenni-
merkja ógæfumanninn með nafn
birtingu. Að vísu yrði þetta að
fara eftir tegund afbrotsins. Ár-
ásir, er ungmenni fremdu í öl-
æði væru yfirleitt þess eðlis,
Framhald á bls. 5.
— aðeins
Landhclgisgæzlan bauð i morg
un fréttariturum blaða og út-
varps i flugferð út á miðin fyr-
ir Suðvesturlandi til að athuga
staðsetningu togara, sem kynnu
að vera að veiðum í námunda
við nýju landhelgismörkin. Það
var gæzluvélin Sif, sem flaug,
skipherra var Garðar Pálsson.
Flugvéiin hóf sig til flugs kl.
innan markanna
8.20 í morgun og lenti kl. 11.10
á Reykjavíkurflugvelli Flogið
var til að byrja með norður yfir
Faxaflóa og út á miðjan Breiða-
fjörð, þar var snúið við og flog-
ið sem næst nýju landhelgis-
mörkunum suður fyrir Reykja-
nes, út af Eldey og suður fyrir
Surtsey. Þaðan var stefnan tek-
in austanvert við Vestmannaeyj
Lodge efstur í
New Hampshire
I gær fóru fram forkosningar
i New Hampshire, Nýja Eng-
landi, og gengu 150 þús. kjósend
ur að kjörborðinu til þess að
láta í ljós óskir sínar um for-
setaefni flokkanna í kosningun-
um í nóv. í haust. tJrslitin urðu
þau að langmest fylgi sem for-
setaefni republikana hlaut
Henry Cabot Lodge, og kom hið
mikla 'fylgi hans óvænt þótt
hann sé Nýja Englands maður,
og viðurkenndu þeir Nelson
Rockefeller og Barry Goldwater
sigur hans, er lokið var talningu
helmings atkvæða.
í frétt frá Concord
Hampshire segir að
hefði ekki verið sett á hina
opinberu lista með nöfnum
þeirra, sem til greina kæmu sem
forsetaefni ,en þegar búið var
að telja 90% atkvæða hafði
hann 30.106 atkv., Barry Gold-
water 19.683 og Nelson Rocke-
feller 17.922 atkv. og fyrrv.
varaforseti Richard Nixon 14.
769 atkvæði, en nafn Nixons
var ekki heldur á hinum opin-
beru listum.
; Aðrir fengu bara fáein atkv.,
þeirra meðal Margaret Chase
Smith, öldungadeildarþingm.
NBC-útvarpið hefir tilkynnt,
New að allir14 kjörmenn New Hamp
Henry shire á , flokksþinginu munj-
Cabot Lodge hafi sigrað méð yf- greiða atkvæði með Lodge sem
irburðum — þótt nafn hans forsetaefni.
«>-
ar og norður á Landeyjarsand,
yfir pólska togarann sem strand
aði þar á dögunum og að því
búnu tekin stefna vestur með
ströndinni og beint til Reykja-
víkur.
Veður var gott en skyggni yf-
irleitt lftið, einkum úti á Faxa-
flóa og Breiðafirði. Þar var lág-
skýjað og þokuslæðingur. Aftur
á móti var gott radarskyggni
eins og Garðar skipherra orðaði
það. Eru tvö radartæki f flug-
vélinni og annað þeirra dregur
200 mílur, en hitt 150 míiur.
Sást mjög vel í radarnum til
allra skipaferða fjær og nær.
Alls sáust 25 togarar að veið-
um, en allir utan markanna,
nema einn íslenzkur togari á
Selvogsbanka. Þó var hann lög-
lega staðsettur — klukkan var
ekki nema 10 — og ekkert hægt
við hann að segja. Allir hinir tog
aranna voru langt utan hólf-
anna, þann fyrsta fékk radarinn
i sjá sína norðarl. á Faxaflóa,
Þrfr togarar voru vestur af
Jökli, 1 á miðjum Breiðafirði, 4
út af Garðskaga, 3 á Eldeyjar-
banka, 12 suður af Geirfugiask,
Framhald á bis. 5. 1
Lárus Jóhannesson
Lárus Jóhannesson lætur
af embætti i fíæstarétti
Lárus Jóhannesson
hæstaréttardómari hefur
ákveðið að segja af sér
embætti. Gerði hann
þetta með bréfi til dóms
málaráðuneytisins og
var veitt lausn í gær.
í bréfi sínu tilgreinir hann
þá ásfæðu fyrir afsögn sinni,
að hann hafiíirá þyí i, september
sl. legið undir stöðugum ó-
sönnum og órökstuddum árás-
um og aðdróttunum af hálfu
blaðsins Frjálsrar þjóðar fyrir
alls konar lagabrot og glæpi
sem hann eigi að hafa framið
bæði fyrir og eftir að hann tók
sæti í Hæstarétti.
Þessum árásum kveðst Lárus
ekki vilja una og hafi hann því
höfðað meiðyrðamál gegn
Frjálsri þjóð. Hann kveðst ætla
að málaferlin geti orðið lang-
vinn og viðbúið að blaðið svari
þeim með nýjum æsiskrifum til
að skapa óró um Hæstarétt.
Kveðst Lárus ekki vilja eiga
þátt f að skapa óró um Hæsta-
rétt og því æskja þess að sér
yrði veitt lausn frá embætti,
sem hæstaréttardómari.
I stefnu sinni á hendur
Frjálsri þjóð vegna meiðyrð-
anna hefur Lárus Jóhannesson
krafizt þess að ummæli blaðsins
um hann verði dæmd dauð og ó-
merk, ábyrgðarmaðurinn Einar
Bragi verði dæmdur í fangelsis-
refsingu og auk þess verði blað
inu gert að greiða 500 þús. kr.
bætur vegna þess tjóns er Lár-
ur hefur orðið fyrir, ekki einung
is beint fjártjón heldur og bæt‘
,ur fyrir þjáningar, hneisu og ó-
þægindi svo og röskun á stöðu
og högum skv. 264 gr. hegning-
arlaganna.