Vísir - 21.04.1964, Blaðsíða 1

Vísir - 21.04.1964, Blaðsíða 1
Dimmission í M.R. I morgun var Dimission við Menntaskólann i Reykjavík. — Skólinn var að kveðja stúdenta efni sín. Það á vel við að það gerist f yndisiegu veðri, því að sjaldan er hinu unga skóiafólki eins mikið vor og gleði í hug og á burtfarardaginn. Ný framtíð blasir við þeim, stú- dentspróf og háskólanám. Vegir skiljast, héðan burt skal halda og menn munu næsta ár dreif- ast til náms um ýmis þjóðlönd. En jafnframt er þessi skiln- aðarstund nokkrum trega bland- in, menn eru að kveðja gamla skólann sinn, þar sem þeir hafa lifað mörg ár í góðum félags- skap. Svo fjarlægist hópurinn við húrra-hróp niður brekkuna og húfum er kastaö í háaloft í kveðjuskyni. Uppi á bakkanum standa nemendur úr Iægri bekkj um eftir, en röðin kemur að þeim að kveðja næsta ár eða þar næsta. I.M. tók þessa mynd í morgun við Dimission. Þetta eru stúdentaefnin í vor, ef prófin ganga vel. Pétur Sveinbjarnarson. Nóttí Surtsey Einn af blaðamönnum Vísis, Pétur Sveinbjarnarson, átti fyrst ur manna næturstað í Surtsey, nú um helgina. Hann segir frá dvölinni þar og þeim hrakning um, sem hann og félagar hans Ientu í við landtökuna þar, í grein á bls. 7 í blaðinu í dag. Biuðíð í dug Myndsjá frá AUiance Francaise Hvemig vinna fræg skáld? 5 Kvikmyndagagnrýni 7 Blaðamaður Vísis gistir Surtsey 8 Viðtal við mennta- málaráðherra urn nýjan menntaskóla. Rætt við kunnan aflakóng. REYKJAFOSS í Bémo brotnaði og 5000 iÉtrn brennisteinssýrugeymir brotnuði Brestur í bómu á Reykja fossi varð nær valdur að stórslysi í Kaupmanna- höfn fyrir síðustu helgi, er unnið var að fermingu skipsins á ýmsum vörum til íslands. Meðal varanna, borð í ákipið, þar sem fjöldi hafnarverkamanna hélt sig. Er öruggt talið að stórslys hefði orðið, ef geymirinn hefði farið yfir borðstokkinn, en fyrir mildi var enginn maður nálægur á bryggjunni, þegar bóman brotn- aði og varð enginn því fyrir sýr- unni, þegar hún skvettist úr geyminum. Slökkviliðið var kallað til, en gat ekki að gert. Var þá kallað á björgunarmenn frá Falck- Zonen, sem réðust að geyminum íklæddir sérstökum fatnaði til varnar. Tókst þeim eftir talsvert erfiði að þétta geyminn þannig að hann læki ekki. Voru þá 3000 lítr- ar búnir að streyma úr honum á bryggjuna. Var geymirinn fluttur á vörubifreið eftir gagngerða hreinsun aftur til verksmiðju þeirrar sem framlj;iðir sýruna. Dönsku líafnarverkamennirnir voru að vonum mjög slegnir eftir atvik þetta, er tilviljun ein varð til þess að forða stórsíysi, og það mjög óhugnanlegu slysi. Lögðu verkamenn niður vinnu og sögðu efnivið Reykjafoss ekki nægilega tryggan. Var fermingu skipsins þó rétt að ljúka og aðeins eftir að taka um borð lítið eitt af stykkja- vöru. Seinkaði skipinu af þessurn sökum um einn dag. Hélt skipið þá til Gautaborgar og mun þaðan halda til Austfjarðahafna. sem skipað var út var geysimikill geymir með 5000 lítrum af brennisteins sýru. Geymirinn féll við skipshliðina augnabliki áð- ur en hann átti að fara um „Byssukúla.n kom í gegnum rúðuna og þaut síðan rétt fram hjá höndinni á mér“, sagði Garð ar Guðmundsson kranastjóri í stuttu viðtali við Vísi í morgun. Verkamenn, sem voru að vinna í grunni húsbyggingar að Aust- urbrún 6, vissu ekki hvaðan á sig stóð jveðrið, þegar þeir allt í einu heyrðu þyt frá byssukúl um fyrir eyrum sér. Við nánari athugun sáu þeir hvar maður stóð með byssu uppi á svölum á næsta húsi. Það var skömmu eftir hádegi í gær, að verkamenn, sem voru að vinnu í húsgrunni að Aust- urbrún 6, heyrðu allt f einu Framh. á bls. 6 Garðar Guðmundsson, krana- stjóri bendir hér á gatið eftir byssukúluna. —• (Ljósm. Vísis B. G.)

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.