Vísir - 21.04.1964, Blaðsíða 6
Sveiflaði ársgömlu barni utan
í vegg svo það hlaut bana
Mjög sviplegur atburður gerðist
á Hellissandi á Snæfellsnesi um
helgina en þær mun maður hafa
orðið valdur að dauða barns síns,
rúmlega árs gamals.
Að því er Vísir hefur fregnað
varð atburður þessi um eittleytið
e. h. á sunnudaginn og með þeim
hætti að því að talið .er að mað-
urinn hafði tekið i annan fótlegg
barnsins og sveiflað þvi í kring um
sig. En slíka tilburði var hann
vanur að hafa við barnið, að því
er hann sjálfur segir. Að þessu
sinni hrasaði hann, enda eitthvað
undir áhrifum áfengis. Við það
mun hðfuð barnsins hafa slegizt í
vegg í herberginu, og beið það
samstundis bana. ,
Vísir átti í morgun tal við
sýslumann Snæfellinga, Hinrik
Fyrirlestur
Peters
Hallbergs
Dr. Peter Hallberg, dósent í
bókmenntasögu við Háskólann i
Gautaborg, er staddur hérlendis
um þessar mundir. Hann flytur
fyrirlestur í boði Háskóla Islands
í kvöld um höfundagrciningu ís-
lenzkra fornsagna eftir málsein-
kennum þeirra. Fyrirlesturinn
verður fluttur í I. kennslustofu
Háskólans og hefst kl. 6.15 e. h.
Öllum er heimill aðgangur.
Jónsson í Stykkishólmi og kvaðst
hann hafa komið á Hellissand um
hádegið í gær til að setja rétt í
málinu, yfirheyra vitni og rann-
saka vettvang atburðarins. Kvaddi
hann sér til aðstoðar tvo menn
úr tæknideild rannsóknarlög-
reglunnar I Reykjavik, þá Ragnar
Vignir og Guðmund Erlendsson
sem fóru flugleiðis vestur á Hellis-
sand í gær.
Hinrik sýslumaður sagði að at-
burðurinn hefði átt sér stað í ver-
búð hraðfrystihúss Hellissands,
uppi á lofti í húsinu. Þar bjó margt
fólk og m. a. nýkomin ung hjón
eða kærustupar frá Akranesi, sem
voru komin vestur fyrir um það
bil viku, ásamt barni á að gizka
15 mánaða gömlu sem þau áttu.
Um eittleytið á sunnudaginn var
móðir barnsins að elda mat í eld-
húsi, en heyrði þá einhvern háv-
aða í svefnherberginu þeirra.
Skrapp hún þangað inn til að vita
hverju þetta sætti, en um leið og
hún kom inn I herbergið rak hún
upp angistaróp og kallaði á hjálp.
Fólk þusti að, en þá var faðir
barnsins með það látið I fangi
sér og kvað það mundi hafa dottið
úr vöggu niður á gólfið.
Greinilegt var þó eftir áverkum
á barninu að dæma að það gat
ekki verið dánarorsökin, heldur
myndi hennar að leita annars
staðar. Sást og greinilegt far, um
það bil á stærð við undirskál, í
vegginn sem er texklæddur á tré-
grind. Rannsóknarlögreglumenn-
irnir söguðu þetta út úr veggnum
og fóru með það suður til nánari
rannsóknar.
Þá skýrði Hinrik sýslumaður enn
fremur frá því að lík barnsins hefði
verið sent til krufningar f rann-
sóknarstofu Háskóla íslands.
Foreldrar stúlkunnar, móður
barnsins, komu frá Akranesi strax
og þeim barst fréttin af slysinu
og sóttu hana á sunnudaginn. En
í gærmorgun fór faðir þess, öllum
að óvörum, einnig suður á Akra-
nes, en þar var hann handtekinn
í gær og mun þá hafa játað á sig
verknaðinn, sem hann taldi þó
einvörðungu slysni og óviljaverk.
Saltskortur —
Framh af bls 16
Vísir átti tal við þá aðila, er
flytja inn salt, þ. e. Kol & Salt
og Ólaf Gíslason & Co. Var blað
inu tjáð, að Kol & Salt ætti von
á saltskipi um helgina en Ólafur
Gfslason & Co sagði, að óvíst
væri^ hvort þeir fengju saltskip,
sem nú er við Færeyjar. — Salt-
notkunin hefur verið óeðlilega
mikil f aflahrotunn; undanfarið.
Ber þar einkum tvenn til. í
fyrsta lagi hefur nær allur fiskur
inn farið f salt vegna þess hve
stór hann hefur verið og erfiður
til frystingar ,og herzlu. I öðj-u
lági héfur 'efekí vérS8 víánuafl tilj
þess að umsaltá en’Við umsölt-
un fæst venjulega mikið salt
sem nota má aftur.
Sumarfagnaður stúd-
enta að HÓTEL BORG
Annað kvöld efnir Stúdentafélag
Reykjavíkur og Stúdentaráð til
sumarfagnaðar að Hótel Borg.
Munu stúdentar, eldri sem yngri
kveðja þar veturinn, á síðasta
vetrardegi.
Ýmislegt verður til skemmt-
unar á fagnaði þessum. Frið-
finnur Ólafsson forstjóri stjórn
ar m. a. nýstárlegri ræðukeppni,
sem ýmsir þjóðkunnir menn
munu taka þátt í, ásamt stú-
dentum. Ómar Ragnarsson stud.
jur. flytur skemmtiþátt og á
miðnætti verður sumri fagnað.
Sfðan verður dansað til kl 2
eftir miðnætti.
r m m
Sár harmur er kveðinn að
foreldrum þessarar litlu fallegu
stúiku, sem hét Guðrún Ágústa
Gunnarsdóttir og átti heima að
Vestmannabraut 53 í Vest-
^ mannaeyjum.. Hún var úti að
leika sér miðvikudaginn 15. þ.
m. en lenti þá undir bil og
beið samstundis bana. Guðrún
Ágústa var aðeins 5 ára gömul.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
Fundir voru í báðum deiidum
og sameinuðu þingi í gær. í sam-
einuðu þingi var tekið fyrir kjör-
bréf, f efri deild voru m. a. á dag-
skrá frumvörp um loftferðir, ríkis
borgararétt og um varöskip Iands
ins og skipverja á þeim. í neðri
deild var til 2. umr. frv. um Seðla
banka fslands, sem miklar umræð
ur urðu um í vetur.
SEÐLABANKI fSLANDS.
Mathías Á, Mathíesen mælti
fyrir áliti meirihl. fjárhagsnefndar
á frv. um Seðlabankann. Sagði
hann að hér
væri um að
ræða heimild
fyrir Seðlabank-
ann að auka
sparifjárbind-
ingu sína úr 15
-20% i 25%.
Hér er farið
fram á að láta
ákveðinn hluta af fé landsmanna
liggja í Seðlabankanum til styrkt-
ar efnahagslífinu, og þegar litið er
á þróun þessara mála frá 1960,
þá sést hve gagnlegt þetta er.
Hitt er svo matsatriði hve há
prósentutalan á að vera. En eins
og einstaklingar safna sjóðum í
bönkum. þá þarf þjóðarbúið í
heild að safna gjaldeyrisvarasjóði.
Þá kvaðst ræðum. hafa, ásamt
viðskiptamálaráðherra, rætt við
stjórn Seðlabankans um Iagfær-
ingu á vaxtakjörum bankanna á
þessum bundnu innstæðum. Sagð
ist hann hafa von um, að þessi
iagfæring kæmist í framkvæmd.
Þá segir í 2. grein frv. að Seðla-
bankanum sé heimilt að gefa út
innanlands gengistryggð verð-
bréf. — heildarinnstæður í
bönkum og sparisjóðum hafi auk-
izt um 100% sl. 3 ár. En þar sem
nokkuð hefur dregið úr hinni
hröðu aukningu sparifjár síðustu
mánuði, þykir rétt að hafa mögu-
leika til þess að bregðast við þeim
vanda, sem að kann að steðja I
þessum efnum.
Næstur tók til máls Einar
Ágústsson. Taldi hann, að með
frv. væru viðskiptabankarnir gerð
ir óhæfir til að
gegna hlutverki
sínu, þegar taka
ætti samkv. því
555 millj. króna
frá þeim.
Þá taldi hann
mjög varhuga-
vert að láta
Seðlabankann
njóta þeirra forréttinda að mega
einn gefa út gengistryggð skulda-
bréf, einkum þó á verðbólgutím-
um.
Viðskiptamálaráðherra, Gylfi Þ.
Gíslason, svaraði ræðu Einars
nokkrum orðum, einkum fyrir-
spumum, sem fram höfðu kom-
ið í ræðu hans.
Við þeirri
fyrstu, hvort
nota ætti þessa
nýju bindingar-
heimild til fulls,
svaraði hann
því, að það hefði
engum dottið í
hug, heldur væri
hér aðeins um
hámarksheimild að ræða. Og hver
yrði innstæðubindingin i ár hlyti
að fara eftir efnahagsástæðum
eins og ríkisstjórnin og stjórn
Seðlabankans metur það á hverj
um tíma. Þetta frv. er tæki til
þess að hafa skynsamlega stjórn
á efnahagslífinu í heild og til að
skapa festu. Og við þeirri spurn-
ingu til hvers hugsanleg sparifjár-
aukning ætti að ganga, svaraði
ráðherrann því til að höfuðtilgang
urinn væri að koma upp gjaldeyr-
isvarasjóði án þess að draga úr
stuðningi við aðalatvinnuvegina.
Væri þessj sjóður nú kominn upp
í 1353 millj. króna. En' hvers
vegna þarf þá hækkaðar heimild-
ir?
í fyrsta lagi vegna þess að nú
liggur við að hámarksheimild til
sparifjárbindingar sé náð, og ef
hún er ekk; hækkuð þá minnkar
hlutdeild Seðlabankans í sparifjár
aukningunni.
í öðru lagi hafa komið fram
auknar kröfur um stuðning við
atvinnuvegina, einkum við iðnað-
inn, og til þess þarf meira fé,
nema gengið sé á gjaldeyrisvara-
sjóðinn, sem enginn mun nú víst
óska eftir.
Þá rakti ráðherrann hve afurða
Iánin hafi stórhækkað á síðustu
árum, s.l. ár hafi þau verið 905
millj. og á árinu ’62 — ’63 hafi þau
aukizt um 180 millj. Og það gefur
auga leið, að þessa auknu byrði
getur Seðlabankinn ekkj tekið á
sig nema með aukinni nýtingu
sparifjár.
Og hvað snertir útgáfu verðbréf
anna, sagði ráðherrann, að heim-
ild yrði ekki notuð nema að vand
lega íhuguðu máli og f samráði
við viðskiptabankana. Var málið
síðan tekið út af dagskrá.
Miðar að fagnaðinum verða
seldir- á morgun að Hótel Borg
frá kl. 5 e. h. Stúdentar eldri
sem yngri eru hvattir til þess
að fjölmenna á sumarfagnað-
SBægt um borð
í háfunum
Vísir hefir frétt, að sökum
erfiðleika á að taka á mótí
fiski, jafnmikið og berst að,
en þeir erfiðleikar stafa að veru
legu leyti af fólkseklu, hafi
stærstu fiskmóttakendur til-
kynnt, að þeir geti ekki i bili
tekið við fiski, nema hann sé
slægður um borð í bátunum.
Fyrirsjáanlegt er nú saltleysi
næstu 5—6 daga í nær öllum
ef ekki öllum verstöðvum hér
syðra.
Skotárás ---
Framh .af bls. 1.
brothljóð, er skotið var í gegn
um rúðu á vinnuskúr, sem stend
ur rétt við grunninn. Rétt á
eftir heyrðist annað skot og fór
kúlan gegnum rúðu á bílkrana,
sem var þar að vinnu, og fór
hún aðeins hársbreidd frá krana
stjóranum, Garðari Guðmunds-
syni. Mennirnir sáu að skotin
komu frá manni, sem stóð úti á
svölum fjórðu hæðar á næsta
húsi. Kölluðu þeir til hans og
báðu hann að hætta þessu. En
hann sinnti því ekki <?g hélt
áfram. Hringdu þeir þá til lög-
reglunnar og tilkynntu henni
um verknaðinn. Þegar lögreglan
kom á staðinn, hóf hún þegar
að leita uppi skotmanninn. Opn
aði hann fyrir lögreglunni, þeg
ar hún knúði á dyr hans og
benti henni á skotvopnið, sem
er 22 cal. riffill með kíki. Einn
ig fékk hann lögreglunni pakka
með skotum í, svo og byssu-
leyfi, sem hann hafði undir
höndum. Maðurinn er bæði mál
laus og heyrnarlaus, og er því
ekki nema von að köll verka-
mannanna hafi ekki borið árang
ur.
Hann mun hafa skotið 3 — 4
skotum. Maðurinn er tæplega
40 ára gamall. Sagður hæglæt-
ismaður, en þegar hann bragðar
áfengi, þá hefst hann ýmislegt
að, sem hann getur ekki gert
sér grein fyrir á eftir.
FÉLAGSLÍF
Knattspymufélagið Valur —
knattspyrnudeild. Meistara, I. og
II. flokkur. Áríðandi æfing í kvöld
kl. 7,30. Þjálfarinn.
K. F. U. K. A.D. Munið vorfund-
inn í kvöld kl. 8.30. Kvikmynd o.
fl. Hugleiðlng, séra' Lárus Hall-
dórsson. Afmælisfundurinn verður
þriðjudaginn 28. þ. m. Vegna veit-
inga eru félagskonur beðnar að
vitja miða í húsi félaganna þessa
viku, eða eigi síðar en 26. þ. m.
Stjórnin.
12
U E R Z l U N
^G'unXme
3 <~7' BRffÐRnBORGARSTIlí'22
Smábarnafatnaður, leikföng, bali
ettvörur og ^nyrtivörur.
3