Vísir


Vísir - 21.04.1964, Qupperneq 9

Vísir - 21.04.1964, Qupperneq 9
VlSIR . ÞriBjudagur 21. apríl 1964. 06 FISKISÆLD spjallað við „heioismethafa" i ■ fiskveiðum; sem er nú á föram til Eðaregs að sæhja nýjan bút Finnbogi Magnússon. Fiskur og fiskafli er mjög almennt umræðu- efni manna um þessar mundir, og ekki að undra, því aldrei hefur slíkur landburður borizt af fiski. Bátarnir koma drekkhlaðnir að landi og heimsmet eru sett í afla- magni annan hvern dag eða svo, og þegar bátarn ir koma að landi eftir sól arhring eða minna með yfir 100 tonn hrista gömlu sjómennimir höf- uðin og segja: „Þetta er nú bara talsvert meira en við höfðum yfir alla vertíðina í gamla daga“. Einn þeirra manna, sem hvað mest hefur verið í afla- fréttum undanfarin ár, er Finn- bogi Magnússon, skipstjóri á Lofti Baldvinssyni frá Dalvík, en hann hittum við á Hótel Borg um helgina og röbbuðum 'lítillega við hann. Við spurðum Finnboga fyrst um heimsmetið, sem hann og áhöfn hans á Helga Helgasyni setti I fyrra, þegar báturinn veiddi 1452 tonn á vetrarvertíð í fyrra. „Já, þið blaðamennimir köll- uðuð þetta heimsmet, en ég veit nú eiginlega ekki hvað skal segja um það. Liklega er þetta heimsmet f þorskinum, en ef- laust hafa erlendir bátar veitt meira af öðmm tegundum, ég veit það satt að segja ekki“. — Og nú skiptlr þú um bát, og enn gengur vel? „Þetta hefur gengið eins og í sögu í vetur hjá okkur. Þeg- ar ég fór var aflinn samtals orðinn 1200 tonn, sem er 100 tonnum meira en I fyrra um sama leyti. Nú, veðurfarið hef- ur Iíka aldeilis gælt við okkur í vetur, sérstaklega á netunum, sem byrjuðu 22. febrúar, línan gekk verr“. ...í 4- Og hvernig stendur á að þú ert staddur hér í borginni um hábjargræðistimann? „Það stendur svo á þvi, að ég fer utan til Noregs á miðviku- daginn, en þar sæki ég nýjan bát í skipasmíðastöðina i Molde. Þetta verður fallegur bátur, rúm 200 tonn og svipaður nýrri bát- unum, sem hingað hafa flutzt undanfarið. Við komum með hann eftir mánuð og gemm hann út á síld í sumar“. — Markar ekki koma bátsins tímamót hjá Patreksfirðingum? „Það vonum við að hann geri. Mér finnast Patreksfirðing- ar hafa orðið illilega undir í bátaflóðinu undanfarið. Þar voru tveir bátar fyrir 5 og 7 ára camlir. Það er mjög aðkall- ahdi fyrir Patreksf jörð að endur- nýja flotann og auka hann. Að- stæður á Patreksfirði em mjög góðar, enda em bátarnir þaðan með Ianghæstan meða’afla af öll um verstöðvum á landinu. Fólks fjölgunin á Patreksfirði hefur til þessa verið alltof hæg. Fyrir nokkrum dögum náðj kaupstað- urinn reyndar merkum áfanga, en þá kom 1000. bæjarbúinn, einhleypur maður, sem flutti úr einni af nærsveitunum til bæj- . arins“. — Einhver atvinnuaukning ætti að verða að nýja bátnum ykkar? „Já, ég reikna með að vlð þurfum 35 manns til að starfa við hann, skipverja og land- menn“. — Er ekki spennandi að vera að sækja nýtt skip? „Jú, ekki er því að leyna. Það er þetta, sem nagar mann: Verður heppnin með manni á nýju skipi, eða ekki“. — En þú skiptir um bát 1 fyrra, varst með Helga Helga- son, en tókst við Lofti Bald- vinssyni, og nú virðist fiskur- inn jafnt hafa sótt til þín. „Já, fiskurinn hefur Iöngum viljað sækja til mín, og satt bezt að segja, á ég enga skýr- ingu sérstaka við því. Ég hef jafnvel verið heppinn á laxveið- um, þegar ég hef haft tækifæri á að komast í hann á haustin eftir sumarvertíðina í Langadals á í ísafjarðardjúpi. Sumir segja, að þessi heppni fylgi þeim, sem fæddir eru undir tvfburamerk- inu, kannski, ég veit ekki“, sagði aflakóngurinn að lokum og brosti íbygginn. Á 5. hurJrað misferlibrot y Ri ikunmglinga á sl. árí Barnaverndarnefnd Reykjavíkur fékk á árinu sem Ieið 305 börn til meðferðar vegna samtals 425 mis- ferlibrota af ýmsu tagi. Börnin eru á aldrinum 7—16 ára. Meiri hlutinn af þessum börn- um og unglingúm eru drengir. Þeir eru 253 talsins en telpur ekki nema 52. Versta aldursskeiðið virðist vera 15 ára aldurinn hvað afbrotahneigð snertir. Á þvi ald- ursári eru 59 piltar og 39 stúlkur staðin að afbrotum eða misferli. Athyglisverð er tala þeirra ung- linga sem staðnir eru að ölvun. Þeir eru samtals 24. Þar af 9 stúlkur og 15 piltar. Þau yngstu eru 14 ára. Annars ber mest á skemmdarverkum alls konar, sam- tals 117 tilfelli og þar næst hnupl og þjófnaður, 111 tilfelli. Flakk og útivist eru 76, innbrot 41, ýmsir óknyttir 35, meiðsl og hrekkir 6 tilfelli, og svik og fals- anir í 4 tilfeilum. Barnaverndarnefnd getur þess að misferlibrotum hafi fækkað frá árinu 1962, einkum þjófnaðar- brotum og útivist barna. Það ár hafði nefndin afskipti af 401 barni, sem höfðu samanlagt 639 brot að baki. Skemmdarverk og spellvirki unglinga hafa aftur á móti færzt mjög i vöxt. Nefndin lætur þess getið, að ofangreindar tölur sé ekki nein t'temandi heimild um vandamál barna og unglinga í borginni. Vit- að sé að fjöldi brota komizt aldrei til vitundar nefndarinnar. Einkum eigi þetta við um útivist, ölvun og lauslæti. Að áliti þeirra, sem bezt þekkja til, færist áfengis- neyzla unglinga mjög í aukana, þótt ekki verði færðar fyrir því tölulegar sannanir. Samfara brotunum eru oft ýmis önnur vandræði, sem ekki er að jafnaði getið í skýrslum nefndar- innar. Má hér t.d. nefna fjarvistir barna úr skólum. Mörg börn á fræðsluskyldualdri hætta að sækja skóla, án lögmætra ástæðna, og án þess að rönd verði við reist við núverandi aðstæður. Flest eru börn þessi á tveim síðustu árum fræðslu skyldunnar, en önnur hafa ekki Iokið barnaprófi, er skólavist þeirra lýkur. Eru sum þeirra mjög fákunnandi, jafnvel ólæs. Er hér um vanda að ræða, sem nauðsyn ber til að taka föstum tökum. Mestur þrándur í götu er skort- ur á hvers kyns barnaheimilum og uppeldisstofnunum. Þessi skortur veldur þvf, að nefndin getur lítið sem ekkert gert til bjargar hluta þeirra barna og unglinga, sem til hennar er vísað og þarfnast hjálp- ar. Þegar um yngri börn er að ræða, má nokkuð bæta úr þessum skorti með því að vista börnin á góðum einkaheimilum, einkum þegar sýnt er, að þeim þarf að ráðstafa til langframa. Þegar um eldri börn og unglinga, . með langþróaða hegðunarerfiðleika er að ræða, horfir öðru vísi við. Erfitt er að finna einkaheimili, sem vilja taka að sér þessi börn og fáum heimil- um treystandi til að annast endur- uppeldi þeirra. Þessi börn eru mesta og erfiðasta viðfangsefni nefndarinnar. í Iandinu er einungis ein uppeldisstofnun fyrir börn af þessu tagi, vistheimili drengja í Breiðuvík. Heimili þetta, sem rek- ið er af ríkinu, er ætlað drengjum hvaðanæva af landi.iu, en láta mun nærri, að Reykjavfk hafi not- ið um 10 þeirra 16 plássa, sem þar eru. Þar sem venjulegur dvalar- tími hvers drengs er um tvö ár, getur Barnaverndarnefnd Reykja- víkur komið þangað um 5 drengj- um til jafnaðar á ári. Samkvæmt nýlegu yfirliti lenda hins vegar um 14 drengir árlega í ítrekuðum hegningarlagabrotum, eða um helmingi fleiri en komið verður til Breiðuvíkur. Er því ljóst, að þegar er orðin full þörf á öðru drengjaheimili af svipaðri stærð og Breiðavík. MOÐIR JORÐ Ásmundarfélagið og Reykja- hefur það verið sett upp 1 víkurborg hafa keypt listaverk- skrúðgarðinum í Laugardal. — ið Móður jörð, eftir Ásmund Myndina af „Móður jörð“ tók l’ Sveinsson myndhöggvara, og ljósm. Vísis B. G. -<é> /

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.