Vísir - 06.05.1964, Side 1

Vísir - 06.05.1964, Side 1
ÆSSKii'S 54. árg. — Miðvikudagur 6. mai 1964 — 102. tbl. BAKKAFOSS FÉKK A SK BROTSJÓ Bakkafoss, eitt af skip lands, fékk á sig mikinn um Eimskipafélags ís- brotsjó, snemma í gær- Myndin sýnir vel hinar hættulegu aðstæður á slysstaðnum, sem lýst er í meðfylgjandi frétt, morgun. Afturþil beygl aðist, 3 hurðir brotnuðu og sjór komst inn í eld- hús, vistageymslu og einnig lítilsháttar í vistar verur. Bakkafoss kom inn til Hafnarfjarðar í morgun. Bakkafoss fékk á sig brotsjó snemma í gærmorgun, þegar skipið var statt suður af Port- landi. Vindur var n.a. og stór- sjór. Tvær hurðir brotnuðu aftan til á skipinu en þær eru að eldhúsi og þvottaklefa. Aftur- þil beyglaðist og innrihurð, sem er að vistageymslu brotnaði einig. Þá urðu nokkrar minni- háttar skemmdir. Sjór komst inn í eldhús og vistageymsluna og einnig lítilsháttar inn í ganga og vistarverur skipsmanna. Eins og fyrr segir var þungur sjór og vont veður. Beið þvi skipið fram til kl. 2. Bakkafoss kom inn til Hafnarfjarðar um 11-leytið £ morgun, en þar fer fram nánari athugun á skemmd unum. FJÚRBA DAUÐASL YSID A SAMA KAFLA SUDURLANDSBRAUTAR Átakanlegt slys varð á Suð- urlandsbraut á móts við Múla- hverfið í gær. Kona er að koma úr strætisvagni, á austurleið, með þrjú börn, hið yngsta á handleggnum og annað sér við hönd, en missir þriðja bamið frá sér, sem var þriggja ára gamalt stúlkubarn. Barnið hleypur fram fyrir strætisvagn- inn, þrátt fyrir aðvaranir móð- urinnar, og í áttina heim til sín yfir Suðurlandsbrautina. Fólks- bíll, sem var á leið austur Suð- urlandsbraut fram hjá hinum kyrrstæða strætisvagni, snar- hemlar og kemst þar með hjá þvf að aka’ á barnið, sem var að hlaupa yfir götuna. Vörubíl- stjóri, sem var á leið vestur brautina, sér tii ferða barnsins og fólksbílsins og hemlar þeg- ar, en þá bila helmarnir, bíllinn ekur yfir barnið, sem bíður þeg- ar bana, og stöðvast ekki fyrr en hann hefir runnið 70 metra vegalengd frá þeim stað, er hemlarnir biluðu. Móðir, bömin hennar tvö og fjöldi fólks, verða sjónarvottar að bessu hörmuléga slysi. Hættulegt aðgerðarleysi. Á kafianum á móts við Múla- hverfið á Suðurlandsbraut hafa orðið alls 4 dauðaslys eftir því sem næst verður komizt og eru þar sumstaðar stór- hættulegar aðstæður, sem auð- velt er þó að bæta úr. Alkunn- ugt er, að Suðurlandsbrautin er alltof þröng fyrir þá miklu umferð, sem um hana er, og á þessum stað eru biðstöðvar fyrir strætisvagna beggja vegna götunnar, og standast næstum því á. Norðan við götuna, þar sem umræddur strætisvagn nam staðar í gær, er bókstaflega ekkert útskot og er þó mjög auðvelt að gera það, breikka götuna til norðurs, þar er að- eins tún og engin mannvirki. Má furðulegt heita, að það skuii ekki hafa verið gert fvrir löngu Þetta þarf að framkvæma: Að sjálfsögðu verður að breikka Suðurlandsbrautina alla inn að Elliðaám til mik- illa muna, en meðan það er ekki gert þarf bráðnauðsynlega og tafarlaust að gera bráða- 'birgðaráðstafanir til að draga úr hinni miklu umferðarhættu á þessari götu. í fyrsta lagi þyrfti að gera rúmgóð útskot alls staðar, þar sem strætisvagnastöðvar eru á þessari braut, og setja upp grindverk á alllöngum kafla við hverja biðstöð, meðfram ak- brautinni, svo að böm geti ekki riiaupið beint út á götuna, er þau koma út úr strætisvögnum í öðru lagi ætti algerlega að banna framúrakstur á Suður- landsbrautinni milli Nóatúns og Grensásvegar meðan akbrautin er jafn þröng og nú er. I þriðja lagi vantar sum- staðar gangbrautir fyrir vegfar- endur á umræddum kafla Suð- urlandsbrautarinnar, svo að gangandi fólk freistast til að ganga á akbrautinni, einkum þegar blautt er og mikil eðja utan við malbikið. 1 fjórða lagi er hin merkta gangbraut yfir Suðuriandsbraut ina inn undir Múla beinlínis hættuieg. Það er ekki nóg að þar sé afmörkuð gangbraut heldur þarf þar blikkljós svo að ökumenn greini úr fjarlægð að þarna sé gangbraut. Yfir þessa gangbraut þurfa t.d. skólabörn úr Múlahverfinu að fara, og þar var ekið á tvær stúlkur í fyrra. En aðstæðurnar hafa ekkert breytzt til bóta þótt um þetta væri skrifað opinberlega og bent á að bæta þyrfti úr. Bls. 3 Myndsjá — 4 Flotvarpan hefur sannað gildi sitt. — 7 Þær þurfa ekkert sjónvarp. — 8 Eftirhreytur Pro- fumo-málsins. — 9 Kynni Eisenhowers af frægum mönnum. Bræla á síldarmiHum og litlar lóBningar Síldarleitarbáturinn Fanney leit- ar nú síldar eins og frá var sagt i blaðinu í gær. Fréttir frá henni i morgun herma, að lóðningar hafi verið lélegar undanfarið. Fanney hefir leitað austur undir Vestmannaeyjar og var í morgun fyrir sunnan Reykjanes. Fremur fáir bátar hafa þreifað fyrir sér um síld undangenginn sól- arhring, enda bræla á miðunum, og nótabátar ekki getað verið fjær landi, og er það á grunnmið- um, sem nokkrir bátar hafa fengið slatta, 250 upp í 600 — 700 tn., eða kannski vel það, og landað á Akra- nesi, Keflavik og í Reykjavík. Von manna er, að afli glæðist aftur, með batnandi veðri. Mun það fara eftir því hvort afli glæð- ist hver þátttaka verður, en ann- ars fer nú að líða að því, að farið verði að búa bátana undir sumar- síidveiðarnar fyrir norðan. , Nýr framkvæmdn- stjóri Æskulýðsrdðs Ráðinn hefur verið nýr fram- kvæmdastjóri Æskulýðsráðs Reykjavíkur, Reynir Karlsson, kennari. Séra Bragi Friðriks- son, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra Æskulýðs- ráðs hefur verið skipaður sókn- arprestur á Keflavikurflugvelli og einnig mun hann vinna að æskulýðsmálum í Kjalarnes- prófastsdæmi. Hinn nýi framkvæmdastjóri Æskulýðsráðs, Rfeynir Karls- son, er íþróttakennari að mennt og hefur stundað framhaldsnám í þeirri grein £ Köln í Þýzka- landi. Reynir hefur kennt að undanförnu við Vogaskólann

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.