Vísir - 06.05.1964, Síða 5

Vísir - 06.05.1964, Síða 5
V í S I R . Miðvikudagur 6. maí 1964 ' 5 .'miönd "í . morsúií l%.Xöiíá mbr-gyn útlönd ol mor^un utl pnd' 1 mongun Harðir bardagar á landamærum Yemen iasser hefir þor 40,000 naíina her U Thant staðfesti það í gær- kvöldi í greinargerð sem hann lagði fyrir Öryggisráðið, að Nass er hefði sent fleiri hermenn til Yemen, og væri þar nú 40.000 manna egypzt lið búið nýtízku vopnum, en fyrir ári um 38.000. Krúsév. Samkomulag var um það, að bæði Arabíska sambandslýðveld ið (Egyptaland) og Saudi-Arabía kölluðu heim hersveitir vegna á- takanna í Yemen, en þetta sam komulag hefir Nasser ekki virt, eins og greiniegt er af skýrslu U Thant. Hann lagði hana fyrir Öryggisráðið vegna þess, að það sendi nefnd manna til þess að fylgjast með að ofangreint sam- komulag væri virt, og vill U Thant nú að dvalartími hennar verði nú enn framlengdur um 2 mánuði. Bretar, sem samningum sam- kvæmt eiga að veita Suður- Ara bíusambandsríkinu stuðning sé á það ráðizt, hafa krafizf. brott- flutnings liðs Nassers, sem í ferð sinni til Yemén nýlega marghótaði Bretum og hvatti til heilagrar styrjaldar gegn þeim, ef þeir hyrfu ekki á brott frá Aden, sem er brezkt vernd- arríki í S. Arabíusambandinu. Þegar Butier utanríkisráðherra Lausafréttir herma, að Soraya, fyrrv. Iransdrottning, hyggist kaupa smáey á Miðjarðarhafi, en eigendur vilja ekki selja hana nema þeim, er hafa kristna trú, en Sor- aya er Mohammeðstrúar. Nú kvað Soraya ætla að taka rómversk- kaþólska trú, til þess að fá eyna, og svo er Max Schell, austurríski leikarinn, rómv.-kaþólskur, en þau hafa verið miklir vinir í 2 ár og miklar tilgátur um að þau ætli að giftast. Nasser. Breta var í Washington á SEATO-fundinum nú fyrir skemmstu hvatti hann Banda- ríkjastjórn til þess að hætta efnahagslegum stuðningi við Nasser, nema hann tæki frið- samlegri stefnu, þótt ekki sé vitað með vissu um undirtektir, er talið að Bandaríkjastjórn telji ekki heppil. að hætta efna- hagslegum stuðningi við Nasser, og allra sízt nú, er Krúsév er á leið til hans í heimsókn. Auk þess telur Bandaríkjastjórn minni hættu stafa af Nasser ann ars staðar, vegna þess, að hann hafi bundið helming herafla síns i Yemen. En Nasser hefir einn- ig haft í hótunum við ísrael, þar sem nú er lokið framkvæmdum við að veita Jórdan á Negebauðn ina í Suður-Israel þar sem ekk ert er nema sandflæmi en öll hin arabisku nágrannaríki ísraels með Nasser fremstan í flokki hafa hótað ísrael styrjöld, ef þessi áform verði framkvæmd. Er nú byrjað að veita á vatni £ tilraunaskyni og verður það gert næstu vikur Og nú spyrja menn: Hvað verður úr hótunun- um? Strikar Nasser yfir stóru orðin og horfir á, eða heldur hann áfram að hvetja til stríðs líka gegn ísrael. Og til hvers hvetur Krúsév hann, sem nú er á leiðinni sjóleiðis til Alex- andriu, og ætlar að dveljast í heimsókn í Egyptalandi í rúman hálfan mánuð. UR SORA YA KAÞÓLSKA TRÚ? NÝJAR FRÉTTIR í STUTTU MÁLI Franska stjórnin sinnir ekki mótmælum Bandaríkjastjórnar út a fsölu á 20 diesel-reiðum til notkunar á járnbrautum Kúbu. Johnson Bandaríkjaforseti hef ir sent nefnd manna til Evrópu landa til þess að vinna að sölu á bandarísku nautakjöti. Aliar horfur eru á samkomu lagi um nýja stjórnarskrá fvrir Norður Rhodesíu. Hún mun fá sjálfstæði í október og verða áfram í Brezka samveldinu og fær þá nafnið Sambia. — Ráð- stefna um stjórnarskrá sjálf- stæðrar Norður-RIiodesíu er nú haldin í London og situr hana Kaunda forsætisráðherra. Yfir 30.000 kolanámumenn og málmnámumenn eru í verkföil- um á Norður-Spáni. Chen Yi marskálkur, varafor- seti Kínverska alþýðuiýðveldis- ins, sem sagði í ræðu 1. maí, að Kina héldi óbreyttri stefnu um það tæki 10-20 eða 30 ár — að verða kjarnorkuveldi, þótt og yrði á þessu engin breyting meðan Kína væri ógnað. Þjóðaratkvæðið á Möltu fór þannig, að 66.000 greiddu at- kvæði með stjórnarskrárupp- kasti stjórnarinnar, en 55.000 á móti. Samkvæmt uppkastinu verður Malta áfrarn í Brezka samveldinu og Rómversk-ka- þólska kirkjan heldur Sömu að stöðu til áhrifa og áður í land- inu. HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN - TOLLSKRÁ í dag tók Hermann Þórarinsson sæti sr. Gunnars Gíslasonar i Giaumbæ. Hermann hefur undan- farandi ár verið sparisjóðs- og bankaútibústjóri á Blönduósi. Fundir voru í báðum deildum og sameinuðu þingi í gær. í samein- uðu þingi var tekið fyrir kjörbréf Hermanns Þórarinssonar, sem kemur i stað sr. Gunnars Gísla- sonar. I efri deild voru m.a. tekin fyrir búfjárræktarlög, lyfsölulög, skipulagsiög, Ioftferðir o. fl. í neðri deild voru á dagskrá atvinnuleysistryggingar, húsnæð- ismálastofnun, kfsilgúrverksmiðja og tollskrá. HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN Ágúst Þorvaldsson kvaðst vera á móti breyt.till. frá Ingólfi Jóns- synj um, að Stofnlánadeild land- búnaðarins á- vaxti sparifé unglinga í sveit- um í stað veð- deildar Búnaðar bankans. Sagð- ist hann ekki vilja taka þessa fjáröflunarleið af honum. Landbúnaðarráðherra, Ingólfur Jónsson, sagði að Ágúst skildi ekki hvað um væri að ræða með þessari - breyt. till. Hér væri 'ekki verið að taka neina fjár- öflunarleið af bankanum, enda væri tillagan flutt samkv. ein dreginni ósk stjómar hans. Var breyt.till. síðan samþykkt og frv. vísað til efri deildar. TOLLSKRÁ. Matthías Á. Mathiesen mælti fyrir áliti meiri hluta fjárhags- nefndar á frv. um tollskrá. Mælir hann ein- dregið með sam- þykkt þess ó- breyttu. v Einar Ágústs- son mælti fyrir áliti minnihlutans. Sagðist hann álíta að tollalögin þyrfti að endur skoða f heild, auk þess sem hann flutti nokkrar breyt.till. Fjármáiaráðherra, Gunnar Thor oddsen, tók til máls í þessu sam- bandi. Sagði hann, að í áliti minni hlutans væru ummæli, sem ekki gæfu rétta mynd af þvi, sem gerzt hefði í tollamálum yfirleitt, þar sem segir að heildarupphæð tolla hefði ekki lækkað á undanförnum árum. Við síðustu breytingu á lögum hefðu tollar lækkað um 100 millj. króna og síðan ’61 hefðu þeir lækkað a. m. k. um 200 millj. Auk þess mætti benda á, að áður hefðu tollar oft verið 200—300% en nú væri hann hæstur 125%. Voru breyt.till. Einars síðan felld- ar og frv. vísað tii 3. umræðu. Jónas Rafnar tók til máls í sam bandi við breyt.till. frá Einari Olgeirssyni við frv. kísilgúrverk- smiðju. Sagði hann, að iðnaðar- nefnd neðri deildar væri á móti tillögunni vegna þess að hér væri um tvö óskyld mál að ræða. Var tillagan síðan felld og mál inu vísað til efri deildar. Auður Auðuns mælti fyrir nefndaráliti á frv. um skipulagslög í efri deild. Var nefndin sammála um að mæla með frv. en flytur nokkrar breyt- ingartillögur. Alfreð Gíslason mælti og fyrir breyt.till. sem hann fiytur við frv. Matthías Á. Mathiesen mælti fyrir frv. um lögsagnarumdæmi Hafnarfjarðar. Kvað hann það vera fiutt samkv. ósk bæjarstjóra Hafnarfjarðar og sveitarstjórans i Garðahreppi. Jón Þorsteinsson mælti fyrir tveim nefndarálitum í efri deild, á frv. um lyfsölulög og frv. um loftferðir.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.