Vísir - 06.05.1964, Side 7

Vísir - 06.05.1964, Side 7
Vt SIR . Mlðvikudagur 6. maf 1964 7 Spjall Ingólfur Jónsson landbúnað- arráðherra ritar athyglisverða grein í síðasta blað Suður- lands og ræðir efnahagsmálin. Þar segir hann m. a.: ® Mikil breyting til batnaðar Hvaða skoðun sem menn hafa á stjórnmálum, verður því ekki neitað, að mikil breyt- ing hefur orðið til batnaðar á valdatíma núverandi rfkis- stjórnar. Þarf ekki að hafa mörg orð um það sem öllum er sýnilegt og áþreifanlegt. Það vita allir, að þjóðin hef- ur eignazt allmyndarlegan gjaldeyrisvarasjóð og að um óreiðuskuldir erlendis er ekki lengur að ræða. Það er einnig kunnugt, að krónan er skráð í erlendum bönkum eins og gjaldmiðill annarra sjálf- stæðra þjóða. Það er og áþreif anlegt að atvinnuvegirnir starfa með þeirri afkastagetu, sem möguleg er og að nú er ekki lengur rætt um atvinnu- leysi heldur vöntun á fólki til ýmissa starfa. Fjölskylduhljómsveitin á æfingu. Frá vinstri: Inga Rós, Unnur María, Vilborg, Þorgerður (við flygilinn), Rut og frú Inga, móðir þeirra og aðalhljómsveitarstjóri. (Mynd: I. M.) Þær eru fimm systum- ar, frá ellefu ára til tví- tugs, dætur frú Ingu Þor- geirsdóttur kennara og Ingólfs Guðbrandssonar söngstjóra. Syngja allar eins og englar og spila á hljóðfæri - a. m. k. þrjú- fjögur hver, ef ekki fleiri. Fiðlur og flautur, klarí- nett, þríhymingar og tmmbur, bjöllubumbur og sem sagt sláttarhljóðfæri af fleiri gerðum en ég kann að nefna liggja eins og hráviði um gólfið í herbergjunum, flygillinn trónar við gluggann í setustofunni, og hvar- vetna getur að líta háa stafla af nótnabókum, slitnum og þvældum af mikilli notkun- að vill heppilega til, að Hof- teigur 48 er einbýlishús, þvl að hér er spilað og sungið frá morgni til kvölds og kannske á næturnar lfka. Jafnvel matmáls- tímarnir eru notaðir í þágu tón- listargyðjunnar — um leið og diskamir eru lagðir á borðið, er útbýtt heyrnarþjálfunarbókum, svo að hægt sé að æfa sig að syngja eftir nótum milli munn- bita. Og gestir, sem að garði koma, eru umsvifalaust drifnir inn I stofu og fengin I hendur hljóðfæri og nótur. Því fleiri, þvi betra, þeim mun stærri verður hljómsveitin. „En ef þeir kunna nú ekki að spila?" „Þá látum við þá syngja“ svar- ar elzta systirin, Þorgerður, sem stundar guðfræðinám við Háskól- ann. „En fáið þið aldrei ómúsíkalska gesti I heimsókn — ég meina fólk, sem hvorki getur spilað né sungið?“ „Ja, þeir verða allir músíkalsk- ir, um leið og þeir koma inn úr dyrunum, a. m. k. þegar við spil- um frumskógasinfónfurnar". „Frumskógasinfóníur?“ „Já, allir geta tekið þátt í þeim. Þá spilar bara hver upp úr sér það sem andinn inngefur honum, og við semjum verkin jafnóðum. Sannkölluð villimannamúsík". „Og hvaða hljóðfæri notið þið helzt?“ „Þau sem til eru, heilmikið af alls konar trumbum og slagverki; við eigum líka strengjahljóðfæri og blokkflautur, klarínett og barnaklarínett og ýmiss konar flautur í tonnatali. Oft koma gest- imir með sln eigin hljóðfæri með sér, og þá verður hljómsveitin þvf betri“. „Okkur vantar cellista f fjöl- skylduna", segir frú Inga, móðir þeirra. „Annað hvort verð ég sjálf að fara að læra á celló eða ná mér f tengdason, sem spilar á það. Okkur dauðvantar djúpa undfrtóninn f hljómsveitina". 'J'vær yngstu systurnar, Inga Rós, 11 ára, og Unnur Marfa, 12 ára, eru enn f barnaskóla, Vil- borg, 15 ára, er að lesa undir landspróf, Rut, 18 ára, les fimmta bekk Menntaskólans utanskóla, og Þorgerður, 20 ára, lauk stúd- entsprófi í fyrravor og er nú við guðfræðinám, en hyggst leggja fyrir sig tónvfsindi. AHar eru þær í Tónlistarskólanum nema Vil- borg, sem sleppti þessum eina vetri þar til að geta lesið í næði undir landsprófið. En hún fær æf- ingu í samspili með hinum. „Þegar fjölskyldan kémur sam- an, er hver stund notuð til að iðka tónlist“, segir frú Inga. „Spilar þú ekki líka?“ Hún vill sem minnst gera úr því, en Þorgerður grípur fram í. „Mamma syngur og spilar á píanó, og svo er hún þessi fyrir- taks hljómsveitarstjóri. Og hún spilar líka á fiðlu og flautu“. „Nei, elskan mín, ég rétt næ lagi, ekkert fram yfir það“, and- mælir móðir hennar. „Ég má heldur aldrei vera að því að æfa mig. En ég læri að þekkja lögin, sem þær eru með. Það er oft hálfskringilegt að sitja uppi á lofti og hlusta, þegar þær æfa sig af kappi hver f sínu herbergi, ein kannske á pfanó, önnur á klarínett, þriðja á flautu og tvær á fiðlu — og engar tvær með sama lagið". gíðasta viðbótin er langspil, ný- lpmið á heimilið. En þær eru ekki byrjaðar að læra á það enn. Þorgerður er aðalpfanóleikarinn og útskrifast úr kennaradeild Tónlistarskólans næsta vor, Rut er konsertmeistari hljómsveitar- innar, Vilborg leggur rækt við klarínettið, og Unnur María og Inga Rós spila mest á fiðlu. En allar spila þær meira eða minna á mörg hljóðfæri og syngja ynd- islega. „Við þurfum ekkert sjónvarp á þessu heimili", segir frú Inga. „Það yrði aldrei tfmi til að opna fyrir það. Ég er viss um, að ungt fólk hefur ákaflega gott af að iðka tónlist eða eiga önnur skap- andi áhugamál. Þá þarf því aldrei að leiðast, og þannig fær það út- rás á jákvæðan hátt fyrir bældar tilfinningar og lífsfjör“. Litla hljómsveitin er farin að spila, þegar Ingimundur kemur að taka myndir. Hann hlustar með augljósri ánægju, enda mik- ill tónlistarunnandi, en þegar leiknum er lokið, lítur hann kank- víslega á ungu músíkantana. „Hvernig er það, ætli það sé ekki hægt að fá ódýrar íbúðir hérna í nágrenninu?“ spyr hann í léttum stríðnistón. — SSB • Skilningur almennings. Það sem áunnizt hefur í efnahagsmálum landsmanna má ekki glatast. Það eru því gleðileg tíðindi að svo virðist vera, að almenningur hafi átt- að sig á þvf hvað er um að ræða. Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir því að leiða kaupgjalds- og verðlagsmálin farsællega til lykta. Það er gleðiefni ef verka lýðsforystan vill í einlægni leggja sig fram til þess að sem bezt megi takast í þessu efni. Ef svo giftusamlega tekst til, eins og margir vilja ætla, að samvinna takist mjlli rfkis- stjómarinnar og verkalýðsfor- ystunnar um þessi mál, má fullyrða að þjóðin hefur aldrei staðið betur að vfgi en nú, til þess að treysta efnahags- legt öryggi og áframhaldandi framkvæmdir í landinu. @ Hættur sundur- þykkjunnar. Þjóðin getur því litið björt- um augum á framtíðina, ef hún verður ekki sjálfri sér sundurþykk. Tækifærin til að vinna að margháttuðum framförum og velgengni verða meiri en nokkm sinni fyrr, ef farsæl lausn fæst á þeim málum, sem hér um ræðir. Þessi orð eru sannarlega í tíma töluð hjá Ingólfi Jóns- syni. Velsæld þjóðarinnar og verklegar framfarir f landinu eru undir því komnar að friður haldist á vinnumarkaðinum. Öðrum þjóðum hefir tekizt að ná slíkum friði. Hvf skyldi okkur ekki takast það líka, ef skynsamlega er á málum hald ið? Það er hið mikla verkefni sem framundan er. WIPAC Framlukfir speglar og gler í Austin, Bedford, Commer, Ford Anglia, Consul, Prefect, Zephyr, Zodiac, Ford 8—10 H.P., Hillman, Humber, Landrover, Morris, Singer, Standard, Vauxhall, -olseley. Á Hofteigi 48 spila og syngja allir ÞÆR ÞURFA EKKERT SJÓNVARP

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.