Vísir - 06.05.1964, Side 9

Vísir - 06.05.1964, Side 9
Eisenhower Dwight D. Eisenhower, fyrrum Bandaríkjaforseti, hefur nýlega sent frá sér bók um tímabil sitt f Hvfta húsinu í Washington. Vísir birtir hér stutta kafla úr bókinni, en þeir snerta nokkrar þýðingarmiklar ákvarðanir sem Eisenhower varð að taka á stjómarferli sfnum. Kjamorkustríð í Kóreu? Ekkert þeirra mörgu vanda- mála er ég stóð andspænis, snemma árs 1953, krafðist nán- ari afskipta minna en styrjöld- in f Kóreu. Miðað við tölu mannslífa var þessi styrjöld þegar orðin fjórða stærsta í sögu okkar. Eins og aðrir bandarískir borgarar gramdist mér innilega hin tilefnislausa og kaldrifjaða árás á Suður-Kóreu, morguninn 25. júní 1950, þegar um það bil sjö sveitir landgönguliða og ein herdeild skriðdreka úr „AI- þýðuher" Norður-Kóreu tóku sig óvænt upp af stöðvum sín- um, meðfram 38. breiddagráðu og réðust á hinn máttarminni her lýðveldisins Kóreu. Við gát- um ekki leyft okkur að gefa eftir fótmál af landi til hinna kommúnistisku árásarmanna. Sameinuðu þjóðirnar brugð- ust þegar f stað við og 26. júni hét Truman forseti aðstoð Bandarikjanna. Bandaríkin blönduðu sér í styrjöldina til að hafa með höndum „lögregluað- gerðir" og án annars markmiðs en þess að reka heri kommún- ista frá Suður-Kóreu. En þegar á leið, ákvað Mac Arthur hershöfðingi réttilega að mínum dómi að hefja hernaðaraðgerðir norðan 38. breyddarbaugs í þvf skyni að gereyða herjum Norður- Kóreu. Vlglínan myndaðist aðal lega þar sem gagnsókn Van Fleet hershöfðingja hafði stöðv- azt, að langmestu leyti norðan 38. breiddarbaugsins. Síðar á sumrinu 1951 áttu sér stað á- köf átök. En upp frá því voru bardagar staðbundnir, en engu síður blóðugir, og háðir með styrkleik um það bil einnar her- deildar. Ýmsar tillögur til aðgerða voru hugleiddar, með tilliti til þess að klnverskir kommúnist- ar neituðu að fallast á vopnahlé innan skynsamlegs tíma. Eitt KYNNIMÍN AT FRÆCUM SAMTlDARMÖNNUM NOKKRAR ENDURMINNINGAR EISENHOWERS varð fljótlega ljóst: Til að valda okkur sem minnstum skaða ef til árásar kæmi yrðum við að beita kjamorkuvopnum. MacArthur hershöfðingi benti mér á nauðsyn þessa, meðan ég bjó enn í New York, og beið þess að taka við embætti. Bandaríska herráðinu leizt ekki alltof vel á möguleikana á því að beita kjarnorkuvopnum við sjálfa víglínuna, með hliðsjón af þeim miklu neðanjarðarvíg- hrelðrum, sem kínversku komm únistunum hafði tekizt að byggja. En þessi vopn myndu augljóslega skipta miklu máli ef þeim væri beitt gegn hernaðar- lega þýðingarmiklum stöðum í Norður-Kóreu, Mansjúrfu og á strönd Kína. Yrði niðurstaðan sú, að hefja nýja tegund gagnaðgerða myndi óhjákvæmilegt að taka upp nýja stefnu (policy) og afla henni samþykkis hjá banda- mönnum okkar. Þar myndi beit- ing kjarnorkuvopna skipta mestu máli. Hvað þetta atriði snertir hafa Bandaríkjamenn ætíð verið á talsvert annarri skoðun en bandamenn okkar, einkum Bretar. Auðvitað var á önnur vanda- mál að líta, t.d. þann möguleika, að 5ovétríkin gerðust þátttak- endur f styrjöldinnl. Við vissum að þau áttu allmikið magn kjamorkuvopna og reiknuðum með að þau myndu brátt sprengja tilraunavetnissprengju. En brátt vænkaðist útlit fyr- ir vopnahlé. Það var undirrit- að 27. júlí 1953. Þrjú ár hetju- dáða, örvæntingar og blóðbaðs áttu sín endalok. Prófraun á Oppenheimer. Annan dag desembermánaðar átti ég langt símtal við Wilson. landvarnarráðherra. Ráðherr- ann skýrði mér frá skýrslu sem honum og Lewis Strauss (for- manni Kjarnorkumálanefndar) hafði borizt beint frá Edgar Hoover, yfirmanni bandarlsku ríkislögreglunnar. í skýrslunni voru ásakanir — sumar nýjar — á hendur snjöllum vlsinda- manni, sem hafði verið leiðandi afl Við smlði kjarnorkusprengj- unnar — dr. J. Robert Oppen- heimer. Mér brá við lestur skýrslunn- ar. Dr. Oppenheimer hafði ver- ið formaður aðalráðgjafanefndar Kjamorkumálanefndar Banda- ríkjanna. Hann skipaði mikil- vægan sess í sögu kjarnorku- málanna og honum var vel kunnugt um mörg af þýðingar- mestu leyndarmálum ríkisins. Næsta morgun, eftir að ég hafði ráðfært mig frekar, til- kynnti ég utanríkisráðherran- um, formanni Kjarnorkumála- nefndarinnar og fleirtun, að þeim bæri að halda dr. Oppen- heimer frá hvers konar við- kvæmum leyndarmálum, þar til fullkomin rannsókn hefði farið fram I máli hans. Ég sendi skila- boð til dómsmálaráðherrans með ósk um að hann aflaði sér frá bandarlsku rlkislögreglunni allra gagna um mál Oppenheim- ers, og tæki þau til gaumgæfi- Iegrar rannsóknar. Dr. Oppenheimer kvaðst vita að tilgreind gögn fælu í sér upplýsingar, sem þörfnuðust endurskoðunar og samþykkti að yfirheyrslur yrðu látnar fara fram. Honum var tjáð að ekki væri unnt að veita honum að- gang að skjölum er snertu ör- yggi rlkisins, fyrr en rannsókn hefði farið fram. Rannsóknin var framkvæmd af þriggja manna nefnd, sem hlýddi á 40 vitni, en það tók nokkrar vikur. Síðan komst nefndin að þeirri niðurstöðu, með tveimur atkvæðum gegn einu, að dr. Oppenheimer skap- aði hættu fyrir öryggi rlkisins, en væri engu að slður dyggur þjóðfélagsborgari. Þann 27. mal var þessi oiðurstaða lögð fyrir Kjamorkumálanefndina, en hún staðfesti niðurstöður rann- sóknarnefndarinnar með fjórum atkvæðum gegn elnu. Vinir dr. Oppenheimers héldu því fram að niðurstöður þessar væru eingöngu byggðar á því að Oppenheimer hefði verið andvlgur smlði vetnissprengj- unnar. Auðvitað kom það aldrei málinu við, f mínum augum, og ég er sannfærður að það skipti nefndirnar heldur engu máli. Andstaða Oppenheimers gegn smlði vetnisspreneiu gat verið samvizkuspurning, það gat hafa verið sannfæring hans að heim- inum kæmi betur að þessi áform köfnuðu I fæðingunni. Mörgum árum áður hafði ég af eigin rejmslu lært að ágrein- ingur sem þessi þurfti ekki að fela I sér að hægt væri að á- kæra deiluaðila fyrir ógnun við öryggi rlkisins, þótt ákveð ið og djarft væri deilt. Þetta átti sér stað árið 1945 þegar hermálaráðherranr Stimson, heimsótti mig í bæki- stöðvar mlnar I Þýzkalandi og tjáði mér að stjórnin væri reiðu búin til að fyrirskipa að kastað yrði atómsprengju á Japan. Ég var I hópi þeirra, sem töldu nægar ástæður vera til að efast um viturleik slíkrar ákvörðun- ar. Ég var ekki beðinn opinber- lega að segja álit mitt á þessu máli, vegna þess að þetta skipti ekki beinlínis máli á vlgstöðv- unum I Evrópu, sem ég stjórn- aði á, en ráðherrann spurði engu siður um álit mitt og bjóst sýnilega við ákveðnum stuðn- ingi mlnum. 1 stað þess skýrði ég honum frá alvarlegum efasemdum mln- um byggðum á því I fyrsta lagi að Japan væri þegar sigrað og þess vegna væri vörpun sprengj unnar óþarfi, og I öðru lagi taldi ég að forðast bæri að hrella þjóðir heims, með því að nota vopn sem I notkun skipti ekki lengur máli við að forða bandarlskum mannsllfum frá tor tímingu. MacCarthy Ráðherrann varð meira en lítið órólegur vegna afstöðu minnar, og brást við röksemd- um mínum, nærri þvl reiðilega. Stimson ráðherra datt aldrei I hug að efast um tryggð mína við Bandaríkin, þrátt fyrir bráð látar athugasemdir mlnar, og mér datt aldrei I hug að aðrir hugsuðu öðru vlsi um mig. Á sama hátt neitaði ég að trúa þvl að dr. Oppenheimer væri Bandaríkjunum ótryggur, vegna þess að hann hafði ekki mælt með smíði vetnissprengjunnar. Það var byggt á allt öðrum sönnunum, m.a. framburði dr. Oppenheimers sjálfs, að ég stað festi niðurstöður Kjarnorku- málanefndarinnar, en meirihluti hennar tilgreindi ósannindi I framburði Oppenheimers um kommúnista, sem hann þekkti. Dr. Oppenheimer fékk aldrei framar aðgang að ríkisleyndar- málum. Stríðshætta við Formósu. Klukkan 1.45, 3. september 1954 hófu klnverskir kommúnlst ar fallbyssuskothrlð á Quemoy- eyju, undan strönd Kína. Þessar aðgerðir voru upphafið að atburðarás sem spannaði níu mánuði, og hafði næstum skapað klofning milli Bandarlkjanna og bandamanna þeirra og leitt okk- ur fram á barm styrjaldar. Ég stóð frammi fyrir þelrri spumingu, hvaða stefnu Banda- ríkin ættu að taka. Það var á hernaðarlegar ástæð ur að líta, sem Radford aðmlráll hét fram um mikilvægi þess að halda eyjunum undan meginland inu og hann lagði þess vegna til að Bandaríkin skuldbindu sig til að verja þær og aðstoðuðu kln- verska þjóðemissinna við sprengjuárásir á meginlandið. Ég var á öðru máli. Við gátum ekki tekið þessa stefnu varðandi Quemoy-eyjar. „Við erum ekki að tala um takmarkað stríð“, sagði ég. „Við emm að ræða um að hætta okkur því sem næst út I þriðju heimsstyrjöldina. Ef við ráðumst á Klna, getum við ekki takmarkað aðgerðir okkar, eins og I Kóreu. Mánuði eftir að við höfðum undirritað gagnkvæma varnar- sáttmála við þjóðernisslnna- stjórnina skýrðum við frá nán- ara samkomulagi þar sem kln- verskir þjóðernissinnar hétu þvl að ráðast ekki inn á meginland- ið. 1 byrjun næsta árs tók ástand- ið að versna. í nýársboðskap sínum boðaði Chiang Kai-shek styrjöld „á hverri stundu". Kín- verskir kommúnistar hröðuðu byggingu þotuflugvalla andspæn is Formósu. Það var kominn tími til að taka Framh. á bls. 13

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.