Vísir - 06.05.1964, Page 15

Vísir - 06.05.1964, Page 15
V í S IR . Miðvikudagur 6. maí 1964 15 sara*K»vaT*J^ax,,ssÆ=ri Þegar læknirinn kom aftur sagði Soffía honum frá þessu — inni í herbergi Óskars. — Þetta virðist vera mjög al- varlegt, læknir? sagði Soffía með spurnarhreim. — Ég get komið hitanum niður, en það er sjón stúlkunnar sem veldur mér miklum áhyggjum, og ég er smeykur um, að þar geti ég ekki hjálpað. — Þér haldið þó ekki, að hún sé að missa sjónina? — Ég held ekkert um það, ég er alveg viss um það. — Blessuð stúlkan, er ekkert hægt að gera? sagði Soffía, sem fann sárt til með henni. — Ég get því miður ekkert gert, sagði læknirinn. Ég er ekki sér- fræðingur í augnsjúkdómum. Það er hvítur, stækkandi blettur á homhimnunni — ört stækkandi. Ef til vill væri hægt að bjarga sjóninni með uppskurði — ég þori ekki um það að segja. Ég get ekki tekið á mig neina ábyrgð. Það verður að leita álits sérfræðings, og það er nóg af þeim í París. Soffía var hryggari en frá verði sagt og vissi ekki hvað gera skyldi. Hún þorði ekki að fara frá Emmu-Rósu og svo jók það á- hyggjur hennar, að Óskar, var ó- kominn. Soffía gætti þess að segja Emmu-Rósu ekkert um hvað farið hafði milli hennar og læknisins og fór ekki frá henni fyrr en klukkan ellefu. Og þá var Óskar enn ó- kominn. Eftir að Emma-Rósa hafði verið flutt f íbúðina, sem Óskar hafði leigt í Guenegaud-götunni, hafði Soffía tekið snöggum og miklum breytingum. Hún var steinhætt að fara í Ölduna, og hún gerði sér ljóst, að René Dharville hafði vakið aðrar tilfinningar í brjósti hennar en aðrir karlmenn, en ann- ars var aðalbreytingin í því fólgin, að hún fann til nýrrar köllunar — að sinna hinni veiku stúlku, og hún var hjá henni öllum stundum á daginn, þegar Mariette gat ekki verið hjá henni. Og þá var hugur- inn allur hjá Emmu-Rósu, en ekki hjá René. Emma-Rósa þjáðist meir andlega en líkamlega. Hún hugsaði slegin ótta til framtíðarinnar, því að þótt hún talaði ekki um það var henni fullljóst að hverju stefndi — að hún yrði brátt blind. „Það á fyrir mér að liggja, að verða blind, hugsaði hún, og ég fæ ekki einu sinni að hafa mömmu hjá mér, og ekki get ég verið þessu góða fóíki til ævinlegrar byrði. Hvað verður um mig? Ef Leon vissi allt þetta mundi hann þá koma og annast mig? Já, hann mundi vera hlýr og samúðarríkur, en hvað gæti hann gert með vesa- Iings blinda stúlku, er hann ætti að sjá um? Hann yrði að hugsa um framtíð sína, nám sitt, hann gæti enga framtíð átt mér við hlið. Ó, ég vildi, að ég væri dáin. Það væri víst bezta lausnin, en dauðinn kemur ekki þótt maður kalli á hann. Og ef ég varpaði mér í Signu mun guð fyrirgefa mér? Ó, mamma, mamma, Leon“. Og tárin streymdu niður kinnar hennar og hana sveið í sjúk augun og hún lá andvaka fram undir morgun,. er hún loks féll í þungan, óværan svefn. Soffía var farin að verða óróleg, er hún heyrði ekkert frá Óskari. og snemma um morguninn sendi hún Mariette í Guenégaud-götuna til þess að athuga hvort hann væri kominn heim. Þernan, sem að sjálfsögðu hafði Iykil að íbúðinni, fór fyrst inn í herbergi hans, er hún kom þar, og sá þegar að rúm hans var óbælt og uppbúið. Hann hafði því ekki komið heim um nóttina. Svo Iæddist hún á tánum inn til Emmu-Rósu, en er hún sá, að hún svaf, fór hún jafn hljótt og hún kom og sagði Soffíu, að Óskar hefði ekki komið heim um nóttina. i'.'YHRUBJ Nú varð Soffíu ekki um sel og fór að óttast, að eitthvað hefði komið fyrir hann. Klæddi hún sig í snatri. Hún hélt til blaðsölu- skúrsins, og á leiðinni þangað ró- aðist hún nokkuð af tilhugsuninni um, að hann hefði ef til vill setið að sumbli með einhverjum félög- um um nóttina, en er f blaðsölu- skúrinn kom, var Óskar þar ekki, heldur blaðsölukonan gamla. Soffía spurði hana spjörunum úr, — hvort hún hefði ekki séð unga manninn, sem leigt hefði hjá henni skúrinn í nokkra daga. — Nei, það hefi ég ekki, svar- aði gamla konan, og ég furða mig á því, — ég kom eins og vant er klukkan sjö til þess að fá 5 frank- ana mfna, en enginn veit neitt um hann, og ég neyddist til að fá smið til að opna skúrinn, því að hann hefir lykilinn. — Vitið þér hve lengi hann var hér í gær? — Hann mun hafa farið um átta leytið og það er það eina sem ég veit. Hefir hann ekki komið heim til sín? — Nei. — Guð minn góður, það skyldi þó ekki eitthvað hafa komið fyrir hann. Er hann kannski maðurinn yðar? — Nei, hann er bróðir minn. — Þér verðið víst að snúa yður til lögreglunnar — eða spyrjast fyrir f líkhúsinu. Það fór hrollur um Soffíu, er hún hugsaði til þess, að Óskar kynni að hafa verið fluttur þangað um nóttina Iiöið lík. Hún fór til lögreglustöðvarinnar og var kurteislega tekið, en enginn með þessu náfni hafði verið hand- tekinn um nóttina. Og svo gekk hún raunamædd til líkhússins. 19. Angela Bernier lá andvaka um nóttina og hugsaði árangurslaust fram og aftur um allt, sem gerzt hafði, reyndi að greiða úr þeim svikavef, sem hún hafði verið flækt í og dóttir hennar. — Hún vissi að leit lögreglunnar hafði eng an árangur borið. Hún efaðist, að hún mundi geta fundið nokkra leið út úr þvf myrkri, sem hún var umvafin. Hún efaðist ekki um að Femand hafði sama áhuga og hún á að finna Emmu-Rósu, en hann játaði vanmátt sitt. Mundu þá þeir Leon og René geta gert nokkuð? Og hvað gat hún beðið þá um að gera? Hún vissi það ekki, en samt yrði hún að tala við þá. Þegar hún talaði við . Fernand um morguninp, bað hún hann að grennslast eftir hvort lögreglunni hefði orðið nokkuð ágengt um nóttina, og svo fékk hún hjá hon- um heimilisfang Leons, og lagði svo leið sína til fbúðar hans og René Dharville. Þeir voru í þann veginn að fara út, er hún hringdi dyrabjöllunni hjá þeim. Leon kom til dyra og varð næstum óttasleginn, er hann sá útlit hennar. — Kæra frú, sagði hann, hve þér hafið hlotið að þjást, hálfstamaði hann, er hann hafði heilsað henni. — Já, kæri, ungi vinur minn — og ég á víst eftir að þjást meira. — Þér hafið þá ekkert frétt um Emmu-Rósu? — Nei, sagði hún döpur, allt er svo dimmt og raunalegt. — En nú eruð þér frjáls. Nú Ieitum við hennar saman. — Hvar eigum við að leita? Ég hefi tæpan hálfan mánuð til. þess að leita hennar og sanna sakleysi mitt, en í gær fann ég ekkert spor sem gæti komið mér á slóð- ina. DÚN- OG FIÐURHREINSUN vatnsstíg 3. Sími 1874C SÆNGUR REST BEZT-koddar. ■ Endurnýjum gömlu ' sængumar, eigum J dún- og fiðurheld ver. I; Seljum æðardúns- og !■ gæsadúnssængur — í og kodda af ýmsum ! stærðum. Volkswagen ’62—’60 Opel Record ’62—’60 Daf sendibíll ’63, Anglia ’60 Austin Gipsy ’62 Chevrolet, góður, ’60 Chevrolet Station ’55 Simca ’63 Zephyr ’62 Ford ’55 Pontiac ’52. Látið bílinn standa hjá okkur, og hann selst. H Hreinsum gg samdægurs | Sækjum - a?s sendum. S! Efnalaugin Lindin ík Skúlagötu 51, S sfmi 18825 Hafnarstræti 18, |j| sími 18821 T A R Z A N Við erum að fara Tarzan, segir Naomi, bíddu eftir mér þangað til ég kem aftur. Get það ekki Naomi svarar Tarzan, ég hefi ekki haft tíma til að segja þér það, en Joe Wildcat og ég erum að fara til KEFLAVfK • • Gkukennsla Kenni akstur og meðferð bif- reiða fyrir minnapróf bifreiða- stjóra. TRYGGVI KRISTVINSSON, Hringbraut 55, Keflavík Sími 1867. 16 mm filmuleiga Kvikmyndavélaviðgerðir Skuggamyndavélar .Flestar gerðir sýningarlampa Ódýr sýningartjöld Filmulím og fl. Ljósmyndavörur Filmur Framköllun og kópering Ferðatæki (Transi'stor) FILMUR OG VÉLAR Freyjugötu lð • Sími 20235 Mópferðn- | bílor Höfum nýlega 10—17 farþega Merzedes Bens-bfla í styttri og lengri ferðir. HÓPFERÐABÍLAR S/F Símar 12662-17229 Gluggaskilti úr plasti — Lausir stafir, sé um sýningar. Drekavogi 6. Sími 36067 ÖfcNfcK,AL IfcAib HAfcN’ l ANY RIGHT T0 INVOLVE. YOU IMTHIS TRIBAL mK.! THE HWIVES WILLTURHOWTOU! SENDIBfLASTÖÐIN H.F. BORGARTÚNI 21 SÍMI 24113 Ódýrar drengjaúlpur Bongolands, hér er orðsending sem við fengum frá Yeats hers- höfðingja. Yeats hershöfðingi hefur engan rétt til að biðja þig að hætta lífinu, segir Naomi æst. þega rhún hefur lesið bréfið. Hinir innfæddu munu reyna að drepa þig. Ég held að ég geti stöðvað blóðbað milli ættanna Naomi, seg ir Tarzan, ég verð að reyna. Við erum tilbúnir, Naomi kallar flug maðurinn. Farðu þá, þú þrjózki maður, segir Naomi við Tarzan, og taktu siðasta kossinn með þér þangað til þig langar I annan í Mombuzzi. Miklatorgl I

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.