Vísir - 16.05.1964, Page 6
6
VfSIR . Laugardagur 16. mal 1964.
, Fermingar um
hvítasunnuna
Fermhigarböm f Kálfatjarnar-
Wrkju á hvftasunnudag kl. 2 e.h.
Stúlkur:
Bjamdís Steinþóra Jóhannsdóttir,
Holti.
Sigrún Sigurðardóttir, Sólvöllum.
Drengir:
Eyjólfur Kristján Jónsson, Hóf-
gerði 5, Kópavogi.
Helgi Ragnar Guðmundsson,
Lyngholti, Vogum.
Jóhannes Hólm Reynisson, Austur-
brún 28, Reykjavík.
Klemenz Egilsson, Minni-Vogum.
Kristján Guðmundsson, Sunnuhvoli
Magnús Kolbeinsson, Auðnum.
Pétur Fell Guðlaugsson, Nýjabæ.
Fermingarböm í Bessastaðakirkju
2. hvitasunnudag kl. 2 e. h.
Stúlkur:
Brynja Marteinsdóttir, Litlu-Brekku
Elín.Lára Sigurðardóttir, Faxatúni 2
Eva Sigurbjörnsdóttir, Lækjarfit 6
Guðný Jóna Ásmundsdóttir, Ás-
garði 4.
lón Vestdnl —
Framh .af bls. 1
og stóriðju, sem haldin verða
fyrif þróunarlöndin. Fyrsta nám
skeiðið af þessu tagi var haldið
í Krogerup á Norður-Sjálandi
dagana 2, —16. þ. m. og hafði
danska utanríkisráðuneytið all-
an veg og vanda af námskeið-
inu og sá um framkvæmd þess.
Er það hluti af framlagi því sem
Danir leggja til þróunarlandanna
á vegum Sameinuðu þjóðanna.
Þátttakendur — auk fyrirles-
ara — voru 32 frá 22 löndum
1 Asíu, Afríku og Suður-Amer-
fku. Þeim var boðið og séð fyrir
uppihaldi og ferðum þeim gjör-
samlega að kostnaðarlausu. All
ir þeir sem boðnir vom, voru
ýmist starfandi við sementsiðn-
að í heimalöndum sínum eða
vom að búa sig undir slíkan
starfa.
Námskeiðið fór fram í húsa-
kynnum lýðháskólans í Kroge-
mp og voru erindin — allt að
þrjú daglega — haldin fyrri-
hluta dags, en að þeim loknum
vom umræður, fyrirspurnir til
fyrirlesara og skýringar gefnar.
Sjónvarpið
Laugardagur 16. maí.
10.00 Kiddie’s Corner
11.30 Magic Land of Allakazam
12.00 Exploring
13.00 American Bandstand
14.00 Saturday Sports Time
16.30 Colonel Flack
17.00 The Phil Silvers Show
ÍTSO Current Events
18.30 Candid Camera
18.55 Chaplain’s Corner
19.00 Afrts News
19.15 To Be Announced
19.30 The Jackie Gleason Show
20 30 Lawrence Welk
21.30 Sing Along With Mitch
22.30 Gunsmoke
23.-00 Afrts Final Edition News
23.15 Northern Lights Playhouse
,,‘t'ast Flight".
Heiða Sólrún Stefánsdóttir,
Lækjarfit 6.
Helga Guðmundsdóttir, Vesturbæ
Helga Sófusdóttir, Goðatúni 3
Inga Sonja Eggertsdóttir, Ara-
túni 11
Ingigerður Guðbjörnsdóttir,
Lækjarfit 5.
María Högnadóttir, Melási 6.
Sigríður Guðfinna Karlsdóttir,
Gerðakoti.
Svandís Ingibjartsdóttir,
Smáraflöt 14.
Þorbjörg Hjörvarsdóttir,
Faxatúni 15.
Þómnn Erla Guðmundsdóttir,
Görðum.
Drengir:
Erlendur Karlsson Garðaflöt 1
Guðmundur Friðrik Kristjánsson,
Lækjarfit 5
Gunnar Jón Hilmarsson, Ásgarði 3
Hrafnkell Gunnarsson, Laufási 4
Ingimar öm Ingimarsson, Breið-
ási 9.
Sigurlinni Sigurlinnason, Hraun-
hólum 6.
Snæbjöm Tryggvi össurarson,
Löngufit 34.
Svavar Gunnarsson, Norður-
Eyvindarstöðum.
Sverrir Friðriksson, Faxatúni 10.
Ægir Ómar Þorsteinsson Hraundal,
Garði.
iamskip —
Framh. af bls. 1
en 30% greiðir félagið á næstu
tveim ámm, Afhending skipanna
á að fara fram 1 febrúar 1965 og
janúar 1966. Verða þau bæði 2670
tonn að stærð og svipuð Fjallfossi
og systurskip hans.
Skip E.í. fluttu á árinu 1963
samtals 326.823 tonn sem er 8
þús. tonnum meira en árið áður.
Þar af er innflutningur 155 þús.
tonn en útflutningur 131 þús.
tonn. Árið 1960 fluttu skip félags-
ins út tæp 40.000 tonn af hrað-
frystum fiski, en sá flutningur
hefur farið síminnkandi og fór nið-
ur I 14.200 tonn nú. Farþegar með
skipum félagsins vom á árinu
6.612, sem er nokkru færra en árið
áður. Meginhluti þessara farþega
ferðaðist með Gullfossi eða 5987
talsins. Samt varð að fresta 5 ferð-
um vegna brunans 1 Kaupmanna-
höfn.
Skv. efnahagsreikningi E.I. námu
eignir félagsins um síðustu áramót
24t5.147.165.87 en skuldir 258.517,-
196.44 þannig að skuldir umfram
eignir eru 13.370.030.57. Hlutafé
Eimskipafélagsins hefur nú verið
hækkað um kr. 15.126.750 í kr.
16.807.500 enda þótt enn hafi i
hin nýju jöfnunarhlutabréf með tí-1
földu nafnverði ekki öll verið gef-;
in út. Skip félagsins 12 að tölu j
em bókfærð á nær 85 milljónir!
sem vitanlega er langt fyrir neðan j
sannvirði, sem án efa er á 300 millj j
Sama er um fasteignir félagsins að ;
segja, en þær eru bókfærðar á 50 |
millj. kr.
Samþykkt var á fundinum í gær
að greiða hluthöfum 5% arð.
í stjórn félagsins voru kjörnir:
Einar B. Guðmundsson, Birgir
Kjaran, Thor R. Thors, Pétur Sig-
urðsson, Páll Sæmundsson, Jón
é .........
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við and-
lát og jarðarför
MAGNÚSAR BERGMANN FRIÐRIKSSONAR.
Aðstandendur.
Árnason, Grettir Eggertsson og
Ámi B. Eggertsson. Bjarni Bene-
diktsson, forsætisráðherra, baðst
eindregið undan endurkosningu. í
hans stað var kjörinn Loftur
Bjarnason, útgerðarmaður í Hafn-
arfirði.
Tilruunsistöð
Frh. af bls. 1:
vísindalegar rannsóknir og at-
huganir geta látið I té. Hingað
til hafa forgöngumenn skóg-
ræktarinnar hér á landi orðið
að láta sér nægja seinfengna al-
menna reynslu í starfi sínu. Að
vfsu hafa þeir einnig stuðzt við
vísindalegar rannsóknir í öðrum
löndum,, sérstaklega þó Noregi,
sagði Hákon.
Eftir ræðu Hákons stakk ut-
anríkisráðherra fyrstu skóflu-
stunguna að hinni væntanlegu
tilraunastöð. Viðstaddir athöfn-
ina vom m. a .norski sendiherr
ann og fleiri helztu forystumenn
skógræktar hér á landi.
Eins og fyrr segir, keypti rfk-
issjóður jörðina, en % hlutum
norsku þjóðargjafarinnar, sem
var 1 milljón norskra króna,
verður varið til byggingar sjálfr
ar tilraunastöðvarinnar. Gert er
ráð fyrir, að stöðin sjálf kosti
með nauðsynlegum tækjum um
4 milljónir ísl. króna. Teikning-
una og uppdrætti að bygging-
unni hafa þeir Hörður Bjarna-
son og Gunnlaugur Pálsson
gert f samráði við Hauk Ragn-
arsson tilraunastjóra. Byggingu
húsa og mannvirkja mun Hlöð-
ver Ingvarsson húsasmiður ann
ast. Skógrækt ríkisins hefur
þegar að mestu girt og friðað
landið, en næsta umhverfi
sjálfrar tilraunastöðvarinnar og
græðireitir hennar mun síðar
girt skjólbelti og limgirðingum.
Sýning Hnndíðn og
myndlöstnslfólans
Handiða og myndlistaskólan-
um var slitið í gær. Um leið opn
aði skólastjórinn, Kurt Zier, vor
sýningu skólans, en þar em
sýndar myndir eftir um 50 nem
endur. Nafni skólans hefur nú
verið breytt f Myndlista og hand
íðaskóla Islands. Alls voru í skól
anum f vetur 280 nemendur, en
kennarar vom 17 talsins.
Vorsýning skólans var opnuð
í gær, og stendur hún til sunnu
dags. I sambandi við sýninguna
var efnt til verðlaunasamkeppni,
og fyrstu verðlaun hlaut 9 ára
gömul stúlka, Kristfn Guð-
mundsdóttir. Skólastjórinn, Kurt
Zier, sagði á fundi með frétta-
mönnum í gær, að fyrir 3 ámm
hefði verið mótað sérstakt skipu
lag fyrir skólann, og nú væri
unnið markvisst að því.Allirhafa
aðgang að svokölluðum forskóla
sem er tveir vetur, en eftir fyrri
veturinn verða nemendur að
standast próf, sem gerir þeim
kleift að stunda nám áfram í
skólanum. Eftir að nemendumir
hafa lokið tveggja vetra forskóla
námi, fá þeir að velja sér á-
kveðna sérgrein. Um 50 nemend
ur hafa stundað nám f dagdeild-
um f vetur, en auk þess hafa
fjölmargir nemendur sótt kvöld
námskeið, sem skólinn hefur
gengizt fyrir.
Tónlisfarskóli —
Framh. af bls. 16
staðir úti á landi, nytu styrks til
byrjendakennsla en hér í höfuðborg
inni væru aðeins tveir einkatón-
listarskólar. Hannes Flosason benú
á að í Smáíbúðahverfinu einu væru
um 2000 börn og unglingar á skóla
skyldualdri og mikill tónlistaráhugi
sem lýsir sér m.a. í því að skóla-
hljómsveitir hafa verið stofnaðar
f báðum fyrrnefndum skólum þar,
og getur blaðið bætt því við að
Hannes Flosason hefir sjálfur beitt
sér fyrir stofnun þeirra og stjórnar
þeim.
HLJÓÐFÆRASKÓLI
Hannes Flosason kvaðst nefna
skóla sinn Hljóðfæraskóla. Nem-
endur hefðu verið 43 í vetur og þeg
ar haldið tvenna tónleika. Kennt
er þar á mörg hljóðfæri, pianó,
fiðlu, orgel, knéfiðlu, kontrabassa
og blokkflautur. Geta má þess að
lokum að skólastjórinn hefur sjáif
ur lært fiðluleik hjá Birni Ólafs-
syni í Tónlistarskólanum í Reykja-
vík.
Bridge —
Framhald af bls. 2.
D’AIelio opnaði á tveimur grönd-
um á vestur spilin, sem sýndi langa
lágliti og lokasögnin varð 7 tfglar.
Mitchell spilaði út hjarta og sagn-
hafi varð að velja á milli tveggja
aðalleiða í úrspilinu. Hann gat
tekið ás og kóng í trompi (ef
trompin eru 2-2, þá stendur spilið)
og síðan trompaði laufin í borði.
Þessi spilamennska heppnast eins
og spilið liggur, en gæti verið
hættuleg ef suður ætti tvö lauf og
þrjú tromp, eða ef norður ætti t.d.
þrjá spaða, fimm hjörtu, þrjá tígla
og tvö lauf.
D’Alelio, tók hina leiðina. Blind-
ur átti hjartaslaginn og vestur
kastaði spaða ofan f annað hjarta.
Þá kom spaðaás og spaði, sem var
trompaður. Síðan kom tromp á ás-
inn í blindum, annar spaði tromp-
aður og spilað laufi á kónginn f
blindum. Nú var síðasti spaðinn
trompaður og sagnhafi hafði þar
með trompað alla „pslagi a„ en
var inni á hendinni. Þar eð Stay-
man hafði kastað laufi í fjórða
spaðann, þá gat sagnhafi ekki kom-
ist inn til þess að taka trompið af
suðri og fékk hann þvf hinn ör-
lagarfka slag á tromptíuna.
Á hinu borðinu spiluðu Banda-
ríkjamennirnir Jordan og Robin-
son sex tfgla, sem þeir unnu og
græddu Bandaríkjamenn því 14
punkta á spilinu.
Firmakeppni Bridgesambands Is-
lands er nýlokið og sigraði Örn
Guðmundsson. Hann spilaði fyrir
Olíuverzlun íslands og hlaut 1133
stig. 1 öðru sæti var Jón Ásbjörns
son með 1129 stig, sem spilaði
fyrir Kiddabúð. Þriðji var Hjalti
Elfasson með 1106 stig og spilaði
hann fyrir Fasteignasölu Einars
Sigurðssonar. 1 fjórða sæti var Jón
Magnússon með 1090 stig og spil-
aði hann fyrir Lýsi h.f.
Guðrún Bjarna —
Framh. af bls. 16
í New York og stundaði vinnu
sem fyrirsæta með náminu,
svo ég hafði nóg að gera
allan tímann. Bergoff-skóli:.n
er talsvert frægur. Bergoff er
stórt nafn á Broadway og það
er kona hans líka, hún er sænsk
og heitir Ouda Hagen, en Berg-
off er því miður ekki eins mik-
ill kennari og hann er góður
leikari."
— Sástu ekki mikið af leik-
ritum á Broadway?
„Nei, ekki get ég sagt það,
en hins vegar sá ég allar þær
kvikmyndir, sem ég mögulega
komst yfir að sjá. Eitt leikrit
langaði mig talsvert til að sjá
á Broadway, en það var HAM-
LET, sem var leikinn af Richard
Burton en miðinn á þá sýningu
kostaði 25 dollara".
— Er ekki erfitt að komast
í hlutverk í Bandaríkjunum?
„Jú, mjög erfitt að komast
f almennileg hlutverk, en hins
vegar er hægt að gera alls
konar samninga við kvikmynda
félögin, t.d. gat ég fengið
samning við 20th Century Fox,
— en þeir Vildu binda mig til
7 ára. Það er ekkert vit í slík-
um samningum. Þeir geta látið
fólkið fara þegar þeim þóknast,
en sé fólkið hæft og geri góða
hluti, er það rígbundið af lé-
legum samning. Mér voru
boðnir 200 dollarar á viku, en
ég leit ekki við því, þvf ef mér
tekst að nema leiklist, vinn og
aftur vinn, og verð heppin þá
er ekki ólíklegt að mér bjóðist
margfalt betri kjör eftir tvö ár
eða svo, hver veit“.
— Hvernig líkaði þér í Banda
ríkjunum?
„Æ, ég kann aldrei almenni-
lega að meta Bandaríkin. Mér
Finnast Evrópumenn svo miklu
viðfelldnari, kurteisari og laus-
ari við þetta eilífa peningatal
í tfma og ótíma. Það er líka
mjög dýrt að búa f New
York og ódýrasta fæðið kostar
upp undir 10 dollara á dag“.
— Og nú heldurðu til Parísar?
„Já á miðvikudaginn fer ég
til Parísar og held áfram námi
við leikskóla þar og vinn með
sem fyrirsæta. Þetta verður allt
miklu auðveldara og léttara en
í Ne York. Annars er fyrirsætu
starfið alltaf mjög erfitt. Við
þurfum að sjá um auglýsingar
okkar sjálfar og göngum milli
fyrirtækja og útdeilum mynda-
bæklingum, sem við gefum út
með eintómum myndum
af okkur. Það getur líka verið
erfitt að sitja fyrir heilu tfm-
ana í sterku Ijósi á myndastof-
unum“.
— Er ekki auðvelt fyrir
stúlku, sem hefur verið kjörin
„fegursta stúlka heims" að fá
góð störf erlendis?
„Biddu fyrir þér, ég mundi
aldrei láta nokkurn mann vita
af þvf að ég hefði tekið þátt f
fegurðarsamkeppni. Það mundi
alveg eyðileggja mig í starfinu.
Það er alltaf litið svo á að
stúlkur sem hafa sigrað í feg-
urðarkeppni séu brjóstamiklar
og heldur grófar „týpur", en
það mega fyrirsætur ekki vera.
Ég hef alveg haldið þeim sigri
leyndum, ætlaði raunar aldrei f
keppnina, en gerði það fyrir þrá
beiðni fólks hér heima. Auð-
vitað var mjög gott að fá
10,000 dali í verðlaun, enda
veitti ekki af“.
— Þykir þér það skemmtilegt
starfa að vera fyrirsæta?
„Nei, ekki get ég sagt það
með sanni. Mér leiðist það og
það er alls ekki það sem ég er
spennt fyrir, heldur leiklistin.
Mér leiðist allt prjálið, og ég
er nú einu sinni svo mikil
sveitastúlka ennþá f mér að ég
get ómögulega fellt mig við öll
þau cocktail-partý, sem ég þarf
að mæta f. Ég bragða ekki á-
fengi og kann ekki við mig f slík
um veizlum".
— En ertu ekki hamingju-
söm?
„Jú það er ég. Ég vil njóta
lífsins meðan ég er enn ung.
Ég tel mig kornunga, aðeins 21.
árs og mér liggur ekkert á að
binda mig strax, enda er ekki
hægt að blanda fjölskyldu sam-
an við leiklistarnám erlendis,“
sagði þessi aðlaðandi Njarðvfk-
urstúlka, sem nú er orðin
heimskona, eftirsótt og vinsæl
sem fyrirsæta. Vonandi tekst
henni innan fárra mánaða að
snúa frá því starfi að þvf hugðar
efni sem henni er hjartfólgnast
og hefur verið það frá
bamsaldri, starfið í musteri
leiklistargyðjunnar Thalíu.