Vísir - 16.05.1964, Qupperneq 15
VfSIR . Laugardagur 16. maí 1964.
75
Daginn eftir a5 það hafði
gerzt, sem sagt hefir verið frá
hér á undan, ^sátu þeir Luigi og
Paroli í skrifstofu hins síðar-
nefnda í lækningastofnunni, því
að loknum stofugangi hafði Par-
oli gert boð eftir honum.
Angelo Paroli taldi óþarft að
ræða um það, sem gerzt hafði
é bökkum Marne, því að hann
efaðist ekki um að Óskar Ri-
gault væri dauður — hinn síð-
asti þeirra, sem hann þurfti að
óttast.
Og nú fannst honum brautin
vera greið framundan. Er þeir
höfðu ræðzt við um stund sagði
Paroli:
- Segið mér, slysið þarna í
Batignolles-leikhúsi — það hef-
ur væntanlega ekki vakið nein-
ar grunsemdir?
- Nei, alls engar.
- En það fór fram yfir-
heyrsla.
- Já, en hún leiddi ekki til
þess, að ákæra kæmi fram á
einum eða neinum. Vopnið var
lélegt, en hafði lengi verið með
al vopnabirgða leikhússins. Ég
hafði gert allar nauðsynlegar var
úðarráðstafanir.
- Og hvað gerist nú?
- Damala ólst upp sem mun-
aðarleysingi á kostnað hins op-
inbera. Hann átti enga ættingja
svo að vitað sé og leikhússtýran
sér um útförina. Hún fer fram
í dag, ætli leikarar fjölmenni
ekki og slíkt fólk?
- En hvað segið þér mér um
Jeanne Dortil?
- Það er nú önnur saga. Hún
hefur náð sér í slægan lögfræð-
ing og krefst skaðabóta af leik-
húsinu, en leikhússtýran reynir
að kenna meistara mínum um,
en hann getur sannað, að vopn-
ið var ekki keypt hjá honum.
Annars er ég engan veginn sann
færður um, að Jeanne Dortil fái
sér dæmdar neinar skaðabætur.
- Hve mikið fer hún fram á?
- Fimmtíu þúsund franka.
- Hún missti framan af tveim
ur fingmm?
— Já, það verða 25.000 á
putta. Ég þekki marga, sem
myndu taka við 50.000 frönkum
fyrir heila hönd.
— Það var skrafað mikið um
nýjan sjónleik?
— Ja, um morðið í hraðlest
nr. 13 - en ég held að það sé
úr sögunni að taka þetta leik-
rit til meðferðar - það var
ekki einu sinni fullsamið, þeg-
ar slysið varð, og Darnale lýk-
ur ekki við það héðan af. Ég
held líka að leikhússtjórinn hafi
misst áhugann á því.
— Er nokkuð að frétta frá
La Pie?
— Ekki grjón.
- Og það sannar hvílíkir
erkibjálfar lögreglumenn París-
ar eru. Þejr komast aldrei að
neinu.
— Þeir gætu verið að leita -
einhvers — og haldi sér saman
eins og sakir standa.
— Leiti þeir bara, - það
skiptir engu. Engan grunar okk-
ur. Þér ættuð að hætta hjá meist
ara yðar, Luigi, - þér þurfið
ekki heldur að vinna. Peninga
getið þér fengið hjá mér.
— Ég geri það á morgun, ég
segi honum, að ég hafi erft
smáskika úti á landi og ætli
að setjast þar að.
— Fyrirtaks. hugmynd.
Luigi stóð upp og gekk út að
glugganum. Allt í einu náföln-
aði hann og skelfing lýsti sér í
hverjum andlitsdrætti hans.
— Hvað gengur að yður, sagði
Paroli og kenndi beygs sjálfur.
Luigi gat engu svarað. Hann
svitnaði og þreif í hálsmál sitt,
því að honum fannst hann
vera að kafna. Hann gat bara
bent út. Paroli gekk til hans
og nú greip hann svo mikill
skjálfti, að hann titraði frá
hvirfli til ilja. Hann gat ekki
trúað sínum eigin augum. Hann
hlaut að sjá ofsjónir. Þetta gat
ekki verið.Eða voru það í raun
og veru þeir de Gevrey og de
Rodyl, ókunn kona og Emma
Rósa, sem voru að koma? Nú
námu þau staðar í tfu skrefa
fjarlægð frá inngöngudyrum
og töluðu við einn starfsmann
stofnunarinnar.
— Stúlkan er á lífi, stamaði
Paroli loks, hún er á lífi.
— Við erum glataðir, sagði Lu
igi í örvæntingu.
— Hver hefir bjargað henni?
Hver hefur dregið hana upp úr
Mame? Og hvers vegna kemur
hún í fylgd með réttvísinni? Og
hver er þessi kona?
- Hún er Angela Bernier, móð
ir hennar, hvíslaði Luigi.
- Angela Bemier — henni
hefir þá verið sleppt út úr fang-
elsinu?
- Við getum ekkert aðhafzt,
sagði Luigi, við emm glataðir.
— Vitleysa, sagði Paroli heift
arlega. Nú má kjarkurinn ekki
bila — við verðum að berjast —
fyrir lífi okkar.
— En — þetta fólk er á leið
upp hingað.
Paroli opnaði dyr á litlu hlið-
arherbergi.
- Svona farðu þama inn, og
láttu ekki heyra til þín. Ég skal
taka á móti þeim. Ég er aftur
orðinn kaldur og rólegur. Ég
mun ekki láta þennan aðvífandi
storm steypa mér um koll —
og við skulum ekki gera ráð fyr
ir því fyrirfram, að hann hvessi.
- Ég get ekki verið rólegur,
ég...
En Paroli anzaði honum ekki
og lokaði dyrunum.
Andartak stóð hann og ein-
beitti öllu sálarþreki sínu til þess
að endurheimta ró sína og reyna
að líta út eins og hann átti að
sér. Svo settist hann við skrif-
borð sitt og setti á sig gleraugu
með dökkum glerjum.
Og hann hugsaði sem svo:
„Enginn gmnur getur fallið á
hinn fræga augnlækni dr. Paroli.
sem nýtur virðingar og álits,
mann, sem veitir forstöðu með
sæmd einni frægustu lækninga-
stofnun borgarinnar.“
1 þessum svifum var barið
að dyrum.
— Kom inn, kallaði hann
styrkri röddu.
Hann fór að blaða í skjölum
á skrifborði sínu, eins og hann
væri í miklum önnum.
Einn starfsmanna hans kom
inn.
- Herra læknir....
- Hvað er það, sagði Paroli
án þess að líta upp.
- Herra Richard de Gevrey
dómari er kominn og fleiri með
honum. Hann óskar samtals. í
hópnum er ung stúlka, sem hann
hefur fengið áhuga á, en hún
hefur misst sjónina.
— Misst sjónina, endurtók Par
oli og fannst honum nú þungri
byrði af sér varpað.
- Já, herra.
- Flýtið yður þá og bjóðið
herra de Gevrey og þessu fólki
inn.
i a ■ ■ n ■ i
DtJN- OG
FIÐURHREIN SUN
vatnsstíg 3. Sími 18740
SÆNGUR
REST BEZT-koddar.
Endumýjum gömlu
sængumar, eigum
dún- og fiðurheld ver.
Seljum æðardúns- og
gæsadúnssængur —
og kodda af ýmsum
stærðum.
SENDIBÍLASTÖÐIN H.F.
BORGARTÚNI 21 SfMI 24113
16 mm filmuleiga
Xvikmyndavélaviðgerðir
Skuggamyndavélar
Flestar gerðir sýningarlampa
Ódýr sýningartjöld
Filmulím og fl.
Ljósmyndavörur
Filmur
Frarnköílun og kópering
Ferðatæki (Transi'stor)
FILMUR OG VÉLAR
Freyjugötu 15
Sími 20285
T
A
R
Z
A
N
Joe og Tarzan ganga rólegir
áfram, þó að þeir finni á sér að
hætta er á ferðum. Þegar þeir
koma að tjáaþyrpingu segir Tarz
an. Nú erum við hálfnaðir gegn-
um Batusa land. Ég verð feginn
þegar við erum komnir alla ieið
f gegn, svarar Joe. Skyndilega
sprettur hópur Batusa stríðs-
manna upp úr jörðinni fyrir fram
an þá félaga. Villimennirnir veifa
spjótum sfnum ógnandi, og Joe
Wildcat sveiflar vélbyssunni í
skotstöðu, staðráðinn í að taka
nokkra af þessum öskrandi negr-
um með sér inn f eilífðina. En
Tarzan stöðvar hann. Rólegur
Jae, ekki skjóta segir hann. Svo
snýr hann sér að Batusunum og
hrópar: Verið róiegir Batusar, og
le^pf8 niður soiótin. Ég er Tarz-
an, vinur hins mikla höfðingja
Wawa. Batusarnir hika, en einn
þeirra gengur fram skekur spjót
ið og öskrar iliilega: Tarzan, þú
talar mál Batusanna en ég Gano
hefi aldrei heyrt þín getið. Og
enginn ókunnugur er vinur minn.
bílor
Höfum nýlega
10 — 17 farþega
Merzedes Bens-bíla
f styttri og lengri
ferðir.
HÓPFERÐABÍLAR S/F
:>! Símar 17229, 12662, 15637
VIÐ SELJUM:
Volkswagen’60
Skoda Octavia ’63
Consul Classic ’63
Ford ’58 góður
Chevrolet ’57 2ja dyra
Chevrolet ’57 6 cyi. bein-
skiptur með over-drive.
Pontiac’ 52
Austin Gipsy ’62
Landrover Diesel ’62
Landrover benzfn ’58
Við seljum. Látið bílinn
standa hjá okkur og hann
selst.
6AMLA BflASALAN
)OJl5812P<
rauðará-
SKtLAOATA 55 — SlMI 15812
KEFLAVÍK
ÖkuSeennsld
Kenni akstur og meðferð bif-
reiða fyrir minnapróf bifreiða-
stjóra.
TRYGGVI KRISTVINSSON.
Hringbraut 55, Keflavík
Sfmi 1867.
Herressokkor
crepe-nylon kr. 29.00
MikJatorgi