Vísir - 27.05.1964, Page 5
V f S IR . Miðvikudagur 27. maí 1964.
5
útlorid £ niorgun
útlönd í morgun útlönd í morgun
útlörid í mopgun
Fær Makarios vopn hjá Rússum?
Einmanalegur, lítill áheyrandi
að ræðu Hækkerups
Fyrir skemmstu var sagt frá
því í fréttum frá Kýpur, að
stjórn eyjarinnar hefði í huga
að efla varnir hennar með því
að kaupa nýtízku hergögn, jafn-
vel herþotur og hraðbáta, og
nú er sagt í fréttum — óstað-
festum að vísu — að Kýpur-
stjórn þreifi fyrir sér um slík
kaup hjá Krúsév, og hann muni
taka málaleitaninni vel.
Tyrkir telja, að hér sé um á-
form að ræða til þess að kúga
tyrkneska þjóðernisbrotið ger-
samlega, og sé það haft að
skálkaskjóli, að Tyrkir hafa
haft viðbúnað að koma tyrk-
neskum mönnum á eynni til
hjálpar, ef ofsóknirnar keyrðu
úr hófi. Og Tyrkir saka Maka-
rios og stjórn hans um að fara
sínu fram gagnvart minnihlut-
anum, I trausti þess, að Sam-
einuðu þjóðirnar og lið þeirra
láti það gott heita.
En það hefir verið látið í það
skína, að gæzluliðið, sem nú er
KONA ÓSKAST
Vönduð og lipur kona óskast í sumar annað
hvert kvöld til afgreiðslu í söluturni. Væri
heppilegt fyrir konu búsetta í Háaleitishverfi
eða þar í grennd. Tilboð sendist Vísi fyrir
fimmtudagskvöld merkt: „Létt starf — 946“
TÚLKUR ÓSKAST
um á að gizka 3ja vikna skeið, frá 11. júlí—
4. ágúst, til að ferðast með þýzkum sjón-
varpsleiðangri. Þarf að kunna þýzku og
ensku. Æskilegt ef viðkomandi hefði umráð
yfir, eða gæti útvegað, Station-bíl eða Volks-
wagen-rúgbrauð. Upplýsingar í síma 16473
kl. 1-2 eða 7-8 e. h.
MÚRARI
Múrari vill taka að sér vinnu úti á landi. —
Tilb. merkt „Múrverk“ sendist Vísi sem fyrst.
BIFREIÐIR RYÐBÆTTAR
Ryðbætum með trefjaplasti gólf og ytra byrði.
Nýkomið efni á mjög lágu verði. — Fljót af-
greiðsla. Komið og reynið að Þingholtsbraut
39, Kópavogi.
TIMBUR TIL SÖLU
Timbur í uppistöður og girðingarstaura er til
sölu, ásamt byggingarkrana, sem framlengja
má upp í 14 hæðir. Uppl. í síma 3-50-80.
Húsfélagið Sólheimum 23.
fullskipað, muni hér eftir taka
ákveðnari afstöðu en áður.
Reyndin verður ólygnust um
það eins og fleira, en enn —
eftir að liðið var fullskipað
um seinustu helgi, er skotið á
liðið við skyldustörf — tyrk-
neskumælandi menn hafa gert
það tvívegis nú í vikunni og
grískumælandi einu sinni, en
enginn féll eða særðist.'en þeg-
ar skotið er margsinnis á gæzlu-
liðið sýnir það ljóslega, hve
erfitt hlutverk þess er, að halda
í skefjum mönnum, sem eru því
vanir að beita skammbyssunni
eða hnífnum, ef þeim býður
svo við að horfa.
Myndin, sem fylgir fréttinni
var tekin I Kaupmannahöfn er
danskir lögreglumenn lögðu af
stað til Kýpur um seinustu
helgi, en þar starfa nú austur-
riskir, borgaralegir lögreglu-
menn, og hafa nú Danir tekið
við sams konar skyldustörfum,
en auk þess hafa svo Danir
sent nærri 700 menn í sjálft
gæzluliðið.
Við burtför lögreglumann-
anna flutti Per Hækkerup utan-
ríkisráðherra ræðu og óskaði
þeim heilla í ábyrgðarmiklu
starfi.
Miiming:
Stefán Jakobs
son frá
GaltafeUi
Fæddur 7. marz 1895.
Dáinn 18. maí 1964.
„Þetta er vegurinn okkar allra,
Sveinn minn“, sagðir þú, þegar þú
varst lagður upp í þína helför.
Góð var þln fyrsta ganga, þegar
leiddu þig móðir þín og móðir mín
og góðar allar síðan. Grýtt var
leiðin, björgum rutt úr vegi, greru
blóm á leið þinni og góðs föru-
nautar.
Sakna þín nú félagar og frænd-
ur. Muna nú vinir handtakið
drengilega og hlýja. Syrgja þig
kona og góðir synir. Stendur nú
gneypur Galti, en Þökk grætur
þurrum tárum.
Sveinn Ágústsson.
VÉLVIRKJANEMI
Ungur vélvirkjanemi óskar eftir vinnu á
kvöldin og um helgar. Sími 13034 eftir kl. 7
á kvöldin.
MOLYKOTE
®
rr
YFIR 210,000 KÍLÓMETRA...
. . . . ég hef ekið meira
en 210,000 km. I Volks
wagen smíðaár 1957,
með sömu vélinni, og
sjaldan langar ferðir,
aðallega í mikilli um-
ferð innanbæjar. Samt
sem áður er benzín-
eyðslan undir 10 lítr
um og olíubrennsla
svo lítil, að ekki er
nauðsynlegt að bæta
olíu á á milli þess sem
skipt er um. Eins og
meðfylgjandi llnurit
sýnir er þjöppunin
fast að því eins há og
í nýlegri vél, sömu
Ástæðan fyrir þessari góðu end-
urnýjun olíunnar, er þó fyrst
og fremst sú, að MOLYKOTE
“A” hefur verið blandað saman
við olíuna frá því að bíllinn var
nýr.
.... Erhard Schwarz, Munchen
Reg. trade mark Alfa-Molykote
corp., Stamford, Conn.
Fæst hjá
Shell, Esso og BP
Bílavarahlutabúð og bílaverk-
stæði um allt land.
gerðar.
Fahrzeug
Kompressions-
2 3 4 5 6
Nr.........
druck in kg/cnv
7 8 9 10 11 12
Gestell Nr VK 12
Dat.
Einkaumboð á íslandi fyrir MOLYKOTE
KÍSILL H.F.
Lækjargötu 6 B
Sími 15960