Vísir - 27.05.1964, Blaðsíða 11

Vísir - 27.05.1964, Blaðsíða 11
VÍSIR . Miðvikudagur 27. maí 1964. 11 bók eftir Barböru Tuch- mann, II. Hersteinn Pálsson les. 22.30 Lög unga fólksins. Bergur Guðnason kynnir Sjónvarpið Miðvikudagur 27. maí. 16.30 Captain Kangaroo 17.30 The Price Is Right 18.00 Sea Hunt 18.30 Biography 19.00 AFRTS NEWS 19.15 The Sacred Heart 19.30 The Dick Van Dyke Show 20.00 The Garry Moore Show 21.00 Navy Band Concert 21.30 The Untouchables 22.30 Jack Benny 23.00 AFRTS Final Edition News 23.15 The Tonight Show Orðsending Fyrrverandi nemendur Löngu- mýrarskóla, sem áhuga hafa á að komast í hópferð á afmælisr mót skólans laugardaginn 30. maí, eru beðnir að hringja í slma 40682 eða 40591. # # % STJÖRNUSP.Á Átta nýir leikarar Spáin gildir fyrir fimmtudag- inn 28. maí. Hrúturinn, 21. marz til 20. aprll: Þú hefur nú tilhneigingu til að tefla á tvísýnu, sem gæti orðið persónulegum fjármunum þínum og lífsorku dýrt spaug. Reyndu að halda þig að þvl, sem alltaf hefur reynzt vel. Nautið, 21 apríl til 21. maí: Dagurinn kynni að reynast þeim nokkuð örðugur, sem standa í hjúskapardeilum eða deilum við félaga sfna. Það yrði öllum til góðs að finna einhverja mála- miðlunartillögu. Tvíburarnir, 22. maí ti) 21 júní: Óheilbrigt sálarástand má oft rekja til of mikillar ábyrgð- ar eða rangra lifnaðarhátta. Reyndu að fá tækifæri til að slaka algjörlega á. Krabbinn, 22 júni til 23. júlí: Það er auðvelt að fara út I öfgar í lífsgleðinni og skapa á þann hátt deilur við nána félaga sfna. Varaðu þig á þeim, sem gefa stóru loforðin. Ljónið, 24 júli til 23 ágúst Vmis ágreiningur við skyldfólk þitt gæti endað þér í óhag um þetta leyti. Þú ættir að reyna að ávinna þér traust og vináttu þessara aðila. Meyjan. 24 ágúst tii 23 sent Tilraunir kynnu að vera gerðar til að fá þig til að endurskoða afstöðu þína til málanna. Það kynni að verða þér í óhag að láta undan með slíkt. Vogin, 24 snpt til 23 okt.. Þú verður að reyna að telja þá, sem eiga sameiginlega hnúta að binda í fjármálunum með þér á, að draga úr eyðslusemi sinni. Drekinn, 24. okt til 22 nóv.. Vera kann, að þú sért ekki eins viss um sannleika og réttlæti þess málstaðar sem þú heldur fram við þá, sem þú deilir við. Forðastu deilur við vinnufélaga. Bogmaðurinn, 23 nóv til 21 des.: Þú ættir ekki að láta þér sjást yfir þau einkenni, sem stuðla að persónulegri vanlíðan þinni. Gakktu úr skugga um, að öll tæki og vélar séu í góðu lagi. Steingeitin. 22 des til 20 jan.: Einhver, sem kynni að vera að reyna að hafa áhrif á þig gegn betrj sannfæringu þinni, kynni að gera svo í eig'ngjörn- um tilgangi. Stattu fastur fyrir. Vatnsberinn, 21 jan til 19 febr.: Það er sjálfsagt að gera ráð fyrir nokkrum erfiðleikum og misskilningi, þegar meTi hátt ar breytingar eru framkvæmdar. Slíkt stuðlar að öryggi þínu. Fiskarnir 20 febr til 20 marz: Það gæti verið viturlegt af þér að draga ferðalög á lang inn þangað til í næsta mánuði, þegar afstöðumar verða hag- stæðari. S1 laugardag var leiklistar- skóla Þjóðleikhússins slitið og brautskráðust þaðan 8 nemend- ur eftir tveggja ára nám. Leik- listarskóli Þjóðleikhússins er tveggja ára skóli og útskrifast leiklistarnemar þaðan annað hvert ár. Þeir, sem útskrifuðust að þessu sinni eru Arnar Jóns- son, Anna Herskind, Bryndís Schram, Jón Júlíusson, Leifurn ívarsson, Oktavía Stefánsdóttir, Sverrir Guðmundsson og Þórunn Magnúsdóttir. Þetta er 9. árgangurinn, sem brautskráður hefur verið frá leiklistarskóla Þjóðleikhússins, en samtals hafa 55 nemendur lokið prófi frá skólanum. Kennarar við skólann í vetur voru leikararnir Gunnar Eyjólfs- son, Kristín Magnús, Klemenz Jónsson, Benedikt Árnason og Jón Sigurbjörnsson, sem kenndi til áramóta. Elizabeth Hodghson ballettmeistari kenndi sviðshreyf ingar og ballett. Auk þess kenndu prófessorarnir Steingrímur J. Þorsteinsson og Símon Jóhann Ágústsson við skólann, héldu þar m.a. fyrirlestra um sálfræði leiklistarsögu o.fl. Skólastjóri er Guðlaugur Rós- inkranz þjóðleikhússtjóri. Þrír af nemendunum, sem út- skrifuðust að þessu sinni, hafa farið með stór hlutverk á leik- sviði Þjóðleikhússins á sl. vetri. Arnar Jónsson lék stórt hlutverk í Glsl, Þórunn Magnúsdóttir lék Ófelíu í Hamlet og Bryndís Schram ; lék titilhlutverkið í Mjallhvít og stórt hlutverk í Táningaást. Prófdómarar voru mjög ánægð ir með frammistöðu nemenda á prófinu og töldu þetta einn bezta árganginn sem útskrifazt hefur frá Leiklistarskóla Þjóðleikhúss- ins. Næsta haust fær Leiklistarskóli Þjóðleikhússins nýtt og rúmgott húsnæði til afnota í hinum reisu- legu salarkynnum Dagsbrúnar og Sjómannafélagsins við ,Lindar- götu. Við það fær Leiklistarskól- inn betri starfsskilyrði og mun öll kennsla fara þar fram næsta vetur. Myndin er af hinum ungu leik- urum, tekin við skólauppsögn sl. laugardag. — Talaðu ekki við mig um hreyfingu, sagði Walt Disney nýlega við einn kunningja sinn. Ég fæ alveg nóg af henni með því að vinna, eins og ég geri. Hvað segirðu? hváði vin- urinn undrandi. Hefurðu aldr- ei neina löngun tíl þess að fara i Ieikfinii, skreppa á hest bak eða spila tennis? — Ojú, svaraði Disney. Það kemur fyrir. En í hvert skipti sem tilfinningin færist yfir mig, ligg ég í sófanum mín- um, og þaðan hreyfi ég míg ekki fyrr en þetta er liðið hjá. Þegar David Morris f New York fann 21.259 dollara und- ir lausri fjöl í herberginu sem hann leigði, lét hann eíns og grandvörum borgara sæmdi, lögregluna vita. Og lögreglan tók peningana f sfna vörzlu. En nú hefur mikið vandamál risið upp, því að húseigand- inn krefst þess 'að fá penlng- ana, þar sem hann hafi keypt húsið með öllu sem í því var, og eigandi peninganna hins vegar kveðst hafa gleymt þeim þarna og heimtar að fá þá aft ur. Málið er komið fyrlr dóm- stólana og senn munu fást end anleg Iausn. Og David? Hann vonar að þeir muni hvorugur fá peningana, heldur verði þeir afhentir finnandanum. *. . -éít m Tálkynnmg Frá Mæðrastyrksnefnd: Konur, sem óska eftir að fá sumardvöl fyrir sig og börn sfn í sumar að heimili mæðrastyrksnefndar Hlaðgerðarkoti í Mosfellssveit, talið við skrifstofuna sem fyrst. Skrifstofan er opin alla virka daga nema laugardaga frá kl. 2-4 Sími 14349 í London hefur nú verið stofnaður sérstakur klúbbur fyrír sorgmætt fólk, sem ber nafnið „The Misery Club“. Og það er einkennandi fyrir klúbb inn, að langflestir meðlimir hans hafa eitthvað með bfla að gera. Það eru menn sem vinna í verksmiðjum sem fram leiða bila, menn sem skoða bíla, menn sem mála bíla, menn sem gera við bíla, og menn sem vinna hjá fyrirtækj um sem tryggja bíla. Og þeir síðastnefndu eru hvað verst leiknir, því að þeir eru að verða vitlausir af að hlusta á hinar sífelldu kvartanir og kröfur um tryggingagreiðslur út af fáránlegustu hlutum. Einu sinni á ári koma þess- ir menn saman til miðdegis- verðar, og yfir borðum er skipzt á sögum um bjánaskap viðskiptavinanna. Þeir halda þvf fram, að það sé mikill andlegur styrkur í þessu, en margir halda því fram að mesta styrkinn fái þeir frá víninu og hinum Ijúffenga mat. R I P K 8 R B Y Það er nú það segir Rip við Pennann. Leiknum er lokið hvað Fern snertir. Ég býst við að ég verði að taka því, svarar Penn- I SUPPOSE I MUST FACE n, MR. KIRBY. I KNEW IT WOULP HAPPEN SOME PAY.,. I AM TRULY FONPOF HER. TO PROVE IT, LET ME GIVE HER A LETTER ABSOLVINS HER OFANY BLAME... -x inn, og þurrkar svitann af enn- inu. Ég vissi að það hlaut að koma að því. En mér þykir vænt um hana, og til þess að sanna það, skal ég skrifa bréf, sem hreinsar hana af allri sekt. Hann hefur ekkert vopn, segir Rip við Fern, en athugaðu skrifborðið áð- ur. Frönsku læknamir eru al- veg eins óánægðir með kjör sín og hinir belgísku kollegar þeirra, sem fóru í verkfall fyr ir skömmu. En gagnstætt við þá, óska Frakkarnir eftir því að hafa sjúklingana sln meg- in, svo að þeir hafa gripið til allt annarra aðgerða. Lækn- arnir hafa öðru hvoru „fría daga“ og þarf þá sjúklingur- inn ekkert að greiða fyrir læknishjálpina. En hins vegar fær hann, auk hennar, greinar- góða Iýsingu á hinum bágu kjörum velgerðarmanns síns. Og sjúklingarnir hafa innilega samúð með læknunum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.