Vísir


Vísir - 10.07.1964, Qupperneq 6

Vísir - 10.07.1964, Qupperneq 6
>.90 Cjör rétf — Þo! ai órétt itstjórar: Gunnar Gunnarsson og Sverrir H RÁÐSTEFNA í LUXEMBORG Dagana 26. apríl til 6. maí var haldin i Luxemborg ráðstefna, er fjallaði um „hlutverk Evrópu í bandalagi Atlantshafsþjóða“. Ráðstefnuna sóttu þrír ungir ís- Iendingar, þeir Gunnar Hólm- steinsson, viðskiptafræðingur, Hilmar Björgvinsson, stud. jur. og Sveinn Jónsson, bæjarstjóri. Fór síðan þess á leit við Hilmar, að hann segði í stuttu máli frá ferð þeirra félaga. — Ráðstefnan var haldin á vegum „Cercle Des Jeunesses Politiques" sambands stjórn- málafélaga ungs fólks. Þarna var saman komið fólk frá ölium lördum Atlantshafsbandalagsins, og ég held mér sé óhætt að full- yrða fyrir hönd okkar þriggja, sem sóttum ráðstefnuna, að vera okkar í Luxemborg hafi verið sérstaklega ánægjuleg og fróð- leg. — Hafa ráðstefnur sem þessi aldrei verið haldnar á íslandi? — Jú, árið 1962 var ein slík haldin að Bifröst í Borgarfirði og sóttu hana um 50 manns og það er e.t.v. sérstök ástæða til að geta þess, að sú ráðstefna þótti hafa tekizt mjög vel hvað allt skipulag snerti. — Hvernig fara þessar ráð- stefnur fram? Þrír ungir íslendingar sækja ráöstefnu æsku- lýðsfélaga Atlantshafs- ríkjanna í Luxemborg — Ræður og fyrirlestrar eru haldnir um ýmis efni, en þátt- takendum er skipt í umræðu- hópa, sem ræða fyrirlestrana og efni þeirra. Að þessu sinni var fjallað um þau efni, sem hæst hefur borið að undanförnu. Auk þess, sem fluttir voru fyrirlestr- ar um efnahags- og stjórnmál í einstökum ríkjum, var fjallað sérstaklega um Efnahags- og samvinnustofnun Evrópu (OECD), Kola- og stálsamsteyp- una, svo og að sjálfsögðu um Efnahagsbandalag Evrópu, kosti þess og galla. Ég tel varla nauð- syn að geta þess, að í.umræðu- hópunum urðu deilur hvað harð- astar, þegar rætt var um Efna- hagsbandalagið, og bar oft mikið á milli, sem von er. — Hvert virðist þér vera mat Luxemborgar á þátttöku þeirra ' Atlantshafsbandalaginu? — Ég færist e.t.v. heldur mik- ið i fang með því að reyna að gera grein fyrir afstöðu Luxem- borgar í smáatriðum, en í heild virðist mér sem samvinna við ríki Evrópu og Amerfku sé metin { réttu hlutfalli við nauðsyn hennar. Luxemborgarar leggja mikla áherzlu á að taka þátt í H lmar Björgvinsson fjölþjóðlegum samtökurli á sem breiðustum grundvelli. Segja má, að landið hafi miklu betri að- stöðu til fjölþjóðlegrar sam- vinnu en t.d. ísland, legu sinnar vegna, og eftir þvi sem ég komst að með viðræðum við innfædda þátttakendur á ráðstefnunni, hef- ur aukin þátttaka Luxemborgar í ýmsum samtökum mjög stuðlað að aukinni velmegun landsins og fannst mér það vera álit manna, að afkoman hefði aldrei verið betri en nú. — Þú segir, að Luxemborg leggi mikla áherzlu á samstarf við aðrar þjóðir á sviði stjórn- mála og efnahagsmála. Hver er þá t.d. afstaðan til fyrirtækja eins og Loftleiðir, sený télja verð- ur alþjóðlegt? — Ég held mér sé óhætt að fullyrða. að hvert mannsbarn í landinu kannist við nafn Loft- leiða. Loftleiðir njóta mjög mik- ils álits í Luxemborg og gera stjórnendur flugmála þar í landi sér vel ljósa þá staðreynd, að Loftleiðir tengja saman tvær heimsálfur með flugleiðinni New York—Luxemborg. Þessi leið, sem er þekkt og vel kynnt í Bandaríkjunum, hefur mikil og góð áhrif á ferðamannastraum til landsins. Auk þess sem ráða- menn Luxemborgar hafa þetta í huga, þá álít ég, að þeim þyki það vel sæma að eiga góða sam- vinnu við eitt af þeim löndum Evrópu, sem fámennara er en Luxemborg. Fyrirhugabar eru i sumar kvöldferðir — sunnudagsferðir — helgarferðir — veiðiferðir Fyrir nokkru samþykkti stjórn Heimdallar ferðaáætlun félagsins í sumar en fyrir iá tillaga ferðanefndar Heimdail ar sem unnið hefur mikið og gott starf að gerð áætlunarinn ar. Formaður ferðanefndar er Gylfi Þ. Magnússon. Ferðirnar, sem ákveðnar hafa verið eru miðaðar við sem flestra hæfi. Þannig eru ráðgerðar 3-4 klst. kvöldferð- ir fyrir þá sem eiga erfitt með að fara í Iengri ferðir. Fyrsta kvöldferðin var einmitt farin fyrir nokkru og heppnaðist hún i alla staði mjög vel. Lagt var af stað um kl. 20.00 og ekið austur að Þingvallavatni en rétt hjá er hellir er nefnist Gjá bakkahellir Var gengið í gegn- um hellinn og tók sú ferð um klukkutíma Komið var aftur til borgarinnar um miðnætti. Þess ar kvöldferðir hafa orðið mjög vinsælar á undanförnum árum og heimsóttir hafa verið ýms- ir fróðlegir staðir í nágrenni Reykjavíkur m.a. Reykjanes- skagi, Tröllafoss í Mosfells- sveit og nýlega fór hópur Sumarferðaáætlun í heild er ferðaáætlun in þannig: Sunnudagur 12. júlí Gönguferð á Botnssúlur Laugardagur 18. og sunnu dagur 19. júlí ferð í Kerl- ingarfjöll og að Hvera- dölum. — Laugardagur 15. ágúst og sunnu- dagur 16. ágúst ferð í Eld- gjá og Landmannalaugar. Laugardagur 29. og sunnudagur 30. ágúst Ferðanefnd Heimdallar að störfum. Frá vinstri: Davíð Þorsteinsson, Jón Magnússon, Karl F. Garðars son og Skarphéðinn Þórisgon. Á myndina vantar form. nefndarinnar Gylfa Þ. Magnússon. Heimdellingar í gróðursetning- arferð í Heiðmörk. félagsins veiðiferð í Hlíðarvatn í Selvogi. Sunnudagur 6. september Ferð í Raufar- hólshelli. Laugardagur 12. og sunnudagur 13. ágúst. Veiðiferð. Auk kvöldferðanna býður félagið einnig upp á nokkrar eins dags ferðir, m. a. gönguferð á Botnssúlur, en þar mun vera eina v'ðsýnast í góðu skyggni og ráðgerð er ferð í Raufarhólshelli. Allar þessar ferðir verða farnar á unnudegi. Fjórar helgarferðir eru einn ig í ferðaáætlunini í Kerlingarfjöll og að Hvera völlum verður farið í lok júlí og um miðjan ágúst er ráðgerð ferð í Eldgjá með viðkomu í Landmannalaugum. Veiðiferðir félagsins sem ávallt hafa ver- ið vel sóttar verða tvær sú fyrri í Hlíðarvatn í Selvogi en ákvörðun hefur ekki enn verið tekin um hinn veiðistaðinn. í helgarferðirnar verður ávallt lagt af stað kl. 2 e.h. frá Val- höll við Suðurgötu. Gönguferð á Botnssúlur t Heimdallur F.U.S. efnir til S gönguferðar á Botnssúluf n.k. 1 sunnudag 12. júlí kl. 10.00 f.h. t og verður lagt af stað frá Val- / höll v/Suðurgötu. Þeir ungu } sjálfstæðismenn sem áhuga hafa 1 fyrir ferðinni og vilja leita nán- i ari upplýsinga, skal bent á að l hringja í síma 17100. Ætlast er | til að þátttakendur hafi með sér J eigið nesti. I

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.