Vísir - 10.07.1964, Side 7

Vísir - 10.07.1964, Side 7
7 Ung stúlka við hannyrðir sínar í „spánska þorpinu“ í Barcelona. Þar er sýndur heimilisiðnaður frá ýmsum landshlutum og byggðarlöguin Spánar og vinnubrögðin sjálf einnig sýnd. BARCELONA eftir Þorstein Jósepssón )»:• ■ v •$0»- . •, >-. y«$ Þorsteinn Jósepsson blaðamaður hjá Vísi fór fyrir nokkrum dögum, ásamt tveim öðrum ís- lenzkum blaðamönnum, í boði Flugfélags íslands og spánska flugfélagsins Iberia tii Barcelona. Hér birtist fyrsta grein hans úr þeirri för, en sú grein fjallar um Barcelonaborg sjálfa. Ferð til Spánar er talsvert æv- intýri fyrir okkur Islendinga. Það ber margt til. Landið er í senn ólíkt okkur og líkt. Litafegurð er þar meiri og fjölbreyttari heldur en í flestum löndum sem ég þekki í Evrópu. Þar er hægt að ganga dögum saman um gróðurlausar eyðimerkur, sem í sumu líkjast undarlega mikið Sprengisandi. Munurinn ,.r þó sá, að Sprengi- sandur er grár á litinn, auðnin á Spáni er rauðbrún, meira samt rauð en brún. Svo er það fólkið. Það er held- ur ekkert líkt okkur í sjálfu sér, en í aðra röndina er það nauða líkt. Það er hlédrægt fólk næstum 'eimið, vingjarnlegt, greiðvikið og gestrisið. Þessa eiginleika kann- ast maður líka við hjá landan- um, þótt við hins vegar þekkjum minna til blóðhita Spánverjans og viðbragða hans í gleði, reiði eða sorg. Þau viðbrögð eru önnur en hjá okkur. Að ég geri Spán og Spánverja að umtalsefni í þessari stuttu grein er af sérstöku tilefni. Til- efnið er þáð*;að ég er nýkouijpp þaðan qg iíka hitt að mér þótti svo gaman 1 þessari ferð að mér fannst það ævintýri líkast. Ég hef reyndar komið til Spánar áð- ur og ferðazt þar nokkuð um. Og venjan hefur verið sú að hafi ég komið aftur eða ítrekað' til einhvers lands, hefur mér þótt minna til þess koma í seinni skipt in. I þessu tilfelli var það öfugt. Og meira að segja það sem ég hef fordæmt Spánverja mest fyr- ir — pautaatið — fyrirbæri sem ég hét með sjálfum mér að horfa aldrei framar á, fyrst þegar ég sá það, varð mér nú að stórbrotn- um leik. Að vísu níðingslegum leik og ægilegum, en að hinu leytinu svo listrænum, æsandi og dirfskufullum, að maður stendur hugfanginn og heillaður og bíður með eftirvæntingu eftir hverju at- riði og hverri smáhreyfingu jafnt nautsins sem nautabanans. í þetta skipti ætla ég ekki að hafa fleiri orð um nautaat — heldur um borgina þar sem ég horfði á nautaatið á dögunum. Sú borg heitir Barcelona. Ég hafði einu sinni komið til Barcelona áður og varð hrifinn af henni og umhverfi hennar, en hrifnari þó nú. Það verður að vísu að hafa það í huga að Barcelona er óspánskasta borg Spánar. Hún er sú borgin sem orðið hefur fyrir mestum utanað- komandi áhrifum allra borga Spánar, ekki aðeins I byggingar- Stíl, heldur menningu allri. Þetta er hafnarborg og verzlunar- borg og hún ber blæ af því. Um hana er mestur ferðamanna- straumur allra borga Spánar og það hefur ekki hvað minnst að segja. fjrfeað mestiÉ4V.e&ir þó um'^pSunfclf^unu. hún er stóátiimt 'frá-ííaridíftiMrtÖri^! og því tiltölulega auðvelt fyrir íbúa hennar að tileinka sér menn ingarstrauma framandi þjóða. Barcelona er þýðingarmesta borg Spánar. íbúafjöldinn áþekk- ur og í höfuðborginni, Madrid. Hún er auk þess hvort tveggja í senn aðalhafnarborg landsins og líka langstærsta iðnaðarborg- in. Um hana streymir hið lang- þráða gull inn í landið, gullið sem Spánverjar hafa þráð allt frá því löngu fyrir daga Kolum- busar og allt fram á daginn í dag. Viðhorfið er reyndar að Jjví leyti breytt að nú fá þeir ekki lengur gull án fyrirhafnar eins og í gamla daga, heldur verða þeir að vinna fyrir því í sveita síns and- litis eins og aðrar þjóðir. Frá Barcelona flytja Spánverjar iðn- aðarvörur sínar til framandi Ianda, svo og ávexti, vín og ann- að það, sem þeir eru aflögufærir með. Barcelona er öðrum borgum fremur lífæð Spánar. Ég játa það hreinskilnislega að ég kveið því að koma til Barcelona. Síðan ég kom í ensk- ar hafnarborgir hafa hafnarbæir jafnan farið í taugarnar á mér. Ég ímynda mér þær allar svartar af skít og kolareyk, fullar af skrölti og hávaða — sannkallaðan ó skapnað. Ég hélt að Barcelona væri með sama marki brennd og það voru I mér kvíðablandin ónot síðustu kílómetrana áður en ég kom til borgarinnar. Þeim mun meiri varð undrun mín þegar ég kom inn í hreina og fallega borg — fulla af yndisþokka og öðrum spönskum einkennum. Hún er að vísu ekki skrautleg og nokkuð þunglamalegri heldur en Madrid, svo ég tali ekki um Sevilla eða Granada. En þrátt fyrir allt er hún falleg og umhverfis hana — þar serti ekki er haf — rísa bratt- ar hæðir sem gefa henni svip og fegurð. Barcelona er ekki ýkja gömul borg og hún býr ekki yfir jafn söguríkum minjum og ýmsar aðrar borgir á Spáni. Það má segja að hún beri á sér bernsku blæ og henni hefur verið hrúgað upp af ýmsum seinni tíma stíl- ' ~jrUK---ir A þesHari ftjd -.eignaðist elona cinn sérvilraáta <>g un.d íastáí^yggIrigáH»|is»rd ald- arinnar. Hann heitir Gaudi og hefur vakið á sér heimsathygli. Höfuðeinkenni stílgerðar hans felst í bogadregnum línum. Hann er svarinn fjandmaður beinna lína Framh. á bls. 2. :■:• i .■•■ Þáttur úr Spánarferb I. :■:■ ■,*, ■:■: •íii :■:■ I 1 :■:■ .■.■ íí 1 Kirkjan á Tibidabofjallinu fyrir ofan Barcelona. Þangað leitar fólk í hjónabandshugleiðingum og þykir sérstök gifta fylgja þeim hjóna- böndum, ;em þar eru framkvæmd. :v i ^f skrifum Tímans síðustu daga gæti maður haldið að það væri stefna blaðsins að Island ætti að slíta öllu sam- bandi við vini sína og ná- granna. Blaðið hefir ritað um það dag eftir dag að stórhættu legt væri að setja heimsókn Philipusar prins í samband við landhelgisdeilu Breta og Is- lendinga á liðnum árum og full ar sættir í þeim. Ekkert liggur þó fremur í augum uppi en ein mitt það að för forsetans til London í vetur og koma prins- ins undirstrikar þá staðreynd að deilurnar milli þessara tveggja grannþjóða eru nú úr sögunni. Og heimsóknirnar hefðu reyndar verið gjörsam- lega óhugsandi fyrir 3 árum, áður en ríkisstjórn Ólafs Thors tókst að leysa vanda landhelg ismálsins. £ Milwood-málið. En Tíminn lætur sér ekki nægja að ónotast út í heim- sókn Philipusar prins. Blaðið notar hvert tækifæri til þess að reisa uggana og Milwood- málið hefir verið kærkominn reki á þess fjörur. Reynt er því dag eftir dag að blása haturs- glóð í garð Breta vegna þess máls. Tíminn veit þó mæta vel að skipstjórinn á Milwood hef ir verið dæmdur í háar fjár- sektir og að kjlenzka ríkis- stj&rnin hefir gert það sem í herinar valdi stbtidur til þess að fá hann framseldan. Engin ríkisstjórn hefði getað gert meira í málinu. En um það fást ekki pólitískir skriffinnar Tímans. Þeim nægir auvirði- legt tilefni til þess að reyna að skapa nýjar deilur milli Breta og Islendinga, níða rlkisstjórn ina og telja fólki trú um að þjóðarmetnaðurinn sé stórlega særður enn þann dag í dag vegna Milwood-málsins. Iðja slíkra skriffinna er stórhættu leg — ef til vill vegna þess að þeir vitna til lægstu hvata les- enda sinna með ósönnum full yrðingum og röngum ályktun 0 Sjónvarpshatur. Sjónvarpsmálið er enn eitt dæmið um það, hvernig stað reyndum er brenglað og ósann indi borin á borð til þess að rægja aðra vinaþjóð okkar og skapa hatur og óvild í garð hennar. Allt frá því umræður hófust um Keflavíkursjónvarp- ið hefir Tíminn aldrei setið sig úr færi til þess að koma höggi á Bandaríkjamenn og rægja varnarlið það, sem í Kefla- vík situr og gætir skinna Fram sóknar. Síðasta yfirlýsing blaðsins I málinu er að sjón- varpið sé djöfuls forsmán, og' undrast lesendur þá miklu hátt vísi I skrifum. Auðvelt hefði verið að ræða sjónvarpsmálið málefnalega. Það hafa aðrir gert. En Framsóknarflokkur- inn hlaut að nota tækifærið til þess að telja sjónvarpið sýna það hve óæskilegt væri að hafa hér vamarlið.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.