Vísir - 10.07.1964, Blaðsíða 16
Föstudagur 10. júlí 1964.
;la við stórslysi
0 Akronesi
Litlu munaði að einn starfsmanna
Sementsverksmiðjunnar léti lífið i
| fyrradag er verið var að tæma
leðjugeymi.
Maður þessi heitir Guðmundur
i Þórðarson og er vélstjóri. Hann
hafði þurft að fara vegna bilunar
á svokölluðum Manhól sem er und
ir geyminum, niður i hann, en
festist i Ieðju sem hrundi yfir Guð
mund og gat hann enga björg sér
veitt.
Einhverjir vinnufélagar Guð-
mundar höfðu séð hann fara niður
í leðjugeyminn og tóku að furða
sig á hversu lengi honum dvaldist
þar niðri. Tóku þeir að svipast um
eftir honum um það leyti sem
hringt var til hádegisverðar. Sáu
þeir þá hvernig komið var fyrir
honum og tók það langan tíma
að Iosa um hann. Var Guðmundur
þá nær meðvitundarlaus orðinn og
aðfram kominn. Hann var strax
fluttur í sjúkrahús og kom þar í
ljós að hann var höfuðkúpubrotinn
—ekki þó aivarlega að því er lækn
ar telja. Hann var ennfremur skrám
aður í andliti og Iíklegt að hafi
hlotið einhver innvortis meiðsl, því
hann kvartaði undan þrautum fyrir
brjósti og kviðarholi. Á að taka af
honum röntgenmyndir í dag. Guð-
mundi leið eftir vonum í morgun. !
Tóif hvalir dregnir á land í gær
Tæplega 190 hvalir veiðzt i sumar
í gær var blæjalogn í Hval-
firði, og hver hvalurinn á fætur
öðrum barst á land. Þetta var
langbezti dagurinn á sumrinu
enn sem komið er, hvað veður
snertir, og all-göður afladagur.
Alls voru 12 skepnur dregnar á
land síðastliðinn sólarhring.
Fréttamaður blaðsins heiin-
sótti hvalstöðina upp úr hádegi.
>á var verið að skera búrhval,
sem er lýsishvalur, en kiötið af
honum er, sem kunnugt er, ekki
notað ti! manneldis. Milli nóns
og miðaftans var svo langreyður
dregin á land, en liana hafði
Hvalur 7 fangað um 190 sjó-
mílur frá hvalstöð eða nánar
tiltekið beint út af Látrabjargi.
Þetta var 181. hvalurinn í sum-
ar og skytta var Friðbert EIí
Gíslason. Langreyður sú var 62
fet á lengd (eða rúmir 20 metr-
ar), 50 tonn að þyngd, en kjöt-
magn 10 tonn.
Síðasti báturinn Hvalur 8 kom
að landi kl. 2 í nótt méð 3 hvali,
og kl. 9 í rnorgun voru allir a
birkjaðir í bunkum á planinu.
Þegar síðast spurðist, var Hval-
ur 5 lagður af stað frá miðum
með tvær iangreyðir. Hvalur 6
og 7 eru nú báðir í Reykjavík
vegna kctilbilunar
Langreyður dregin upp á planið í Hvalstöðinni i gærdag. (Ljósm. stgr.)
f
Eigandinn, Bjarni a Laugarvatni, t&lur álög geta valdið
Gulur vinnur kappreiðar Fáks
Sá atburður varð austur á
Laugarvatni í fyrrakvöld að einn
frægasti og skjótasti veðhlaupa-
hestur landsins, Gulur Bjarna
fyrrverandi skólastjóra, datt
dauður niður að loknum ætinga
spretti Hann átti að keppá á
fjórðungsmóti hestamanna á
Þingvöllum á sunnudaginn og
var talinn sigurstranglegasfi
stökkhesturinn. Eigandi Guls,
Bjarni Bjarnason, hefir misst
marga stólpagripi með undar-
legum og voveiflegum hætti á
undanförnum árum og sagði tíð
indamanni Vísis eftirfarandi
sögu í því sambandi í morgun:
Álagabletturinn: I túninu að
Laugarvatni er hóll, sem Barn-
hóll nefnist og er talið að þar
sé barnsleiði. Þau álög hvíla á
að ekki má slá hólinn og ligg
ur það við að ábúandinn missi
kostagrip. Böðvar á Laugarvatni
lagði bann við að slá hólinn og
eins gerði Bjarni, er hann fékk
jörðina til ábúðar. En eitt sinn
fær hann kaupamann, sem var
ókunnugur öllu og gleym-
ir að taka honum vara fyrir að
slá hólinn og kaupamaður slær
hann í fjarveru Bjarna. Daginn
eftir finnur Bjarni langbeztu
mjólkurkú sína dauða í fjósinu
og veit ekki fyrr en eftir þann
atburð að hóllinn hefir verið
sleginn í ógáti. Síðan hefir
Bjarni misst þó nokkra góð-
hesta og stólpagripi með ótrú-
lega slysalegum hætti, og nú
dettur Gulur dauður niður rétt
áður en hann á að keppa á
Þingvöllum. Bjarni kvaðst ekki
vera hjátrúarfullur maður en sér
lægi við að setja öll þessi óhöpp
i samband við þáð að Barnhóll
var sleginn hér um áriö. Því
fremur rifjast þetta nú upp íyr
ir Bjarna er Gulur dettur dauð-
ur niður einmitt nú er mikið rót
er allt í kringum Barnahól vegna
fyrirhugaðs landsmóts ung-
mennafélaganna á Laugarvatni
næsta sumar Malarvöllur er ,iú
kominn austan við hólinn og
grasvöllur suður af honum og
verið er að gera upphækkuð á-
horfendastæði upp af þeim velli
alveg upp að Barnhól sem er f
brekku. Hóliinn sjálfur er þó
ósnertur.
Gulur var einn bezti hlaupa-
hestur landsins.
Mikill skaði er að hesti beim,
sem féll frá í fyrrakvöld. Hann
var bleikur að lit, 13 vetra gam-
all og vann flest mót sem hann
tók þátt í. T.d. var hann fyrstur
að marki í stökkkeppni á kanp
Framhald á bls. 5.
Gos á Laufásvegi
Urn fimm-leytið í morgun
sprakk ein af bremur aðalæðum
Hitaveitunnar hér í borginni.
Æðin liggur m. a. eftir Laufás-
vegi og sprakk hún móts við
Njarðargötu. Það var 12 tommu
pípa, sem sprakk og var guíu-
strókurinn milli 20 og 25 nt. hár,
enda þrýstingurinn mikill, ca.
4 kg. á hvern fercrn. Samkvæmt
upplýsingum frá Hitaveitu
Reykjavíkur mátti búast við, að
viðgerð á æðinni yrði lokið
skömmu eftir hádegi í dag.
Æðin sem sprakk er orðin all
gömul. Hún liggur m. a. eftir
Laufásvegi og kvíslast síðan
vestur í bæ. Sjónarvottar segja,
að gosið hafi verið líkast' þvi
að kraftmikil borhola hefði ver-
ið opnuð. Mikill þrýstingur var
Framh á bls 5
Myndin er tekin á Laufásvegir.um, nukkru el'tir klukkan fimm í morgun. Strókurinn sést korna upp úr göt-
[ mnj og vaínsúða leggur inn i garð Laufásborgar.