Vísir - 01.08.1964, Síða 6
6
SIR . Laugardagur 1. ágúst 1964
• **JilP.HIWPIVfcrasWV
Frábærar Ijósmyndir af tunglinu
Bandarískir geimvísindamenn
náðu mjög merkilegum árangri í
gær þegar eldflaug þeirra Rang-
er VTT hitti miðjuna á hinni upp-
lýstu hlið tunglsins.
Það merkasta við þennan at-
burð er, að síðustu sextán mfn-
útumar áður en eldflaugin féll
niður á tunglið votu myndavél-
ar hennar og sjónvarpssendi-
I
tæki í fullum gangi og sendu til
jarðar yfir 4000 ljósmyndir sem
teknar voru í mismunandi hæð,
sumar rétt við yfirborð tungis
ins.
Yfirmaður tilrauna þessara í
eldflaugastöðinni í Pasadena
segist þegar hafa milli handanna
nokkrar Ijósmyndir af tunglinu
og segir að þær séu frábærpr
að skýrleik og gæðum. Nokkr-
ar þeirra verða birtar á laugar-
dagskvöld. Þessar ljósmyndir
munu veita miklar upplýsingar
um tunglið, sem menn hafa ekki
áður vitað.
Hiálparsveit
verður í
Þórsmörk
HjálpársVéit skáta í Reykja-
vfk verður með sjúkrahjálp inni
i Þórsmörk nú yfir verzlunar-
mannahelgina. Myndin er tekin
í gærdag, þegar nokkrir af með;
limum sveitarinnar voru að||
ganga frá farangrinum. Sveitin
hefur til umrúða nú yfir helgina;
góðan Weaponbíl.búinn talstöð. ;
Á myndinni má m. a. sjá saman
brotið sjúkratjald, sjúkrabörur
og hjúkrunargögn. Auðólfúr
Gunnarsson læknir verður
Þórsmörk yfir helgina og fórl
hann með Hjálparsveit skáta í
gær. ( Ljósm. Vísis B.G.)
Auðólfur Gunnarsson, læknir,
sést hér ganga frá hjúkrunar-
vörunum, sem hann hafði með
sér inn í Þórsmörk.
!
i
I
I
Lilja —
•-ramnalr' at bls 9
fyrir. Viðskiptavinirnir eru yf-
irleitt mjög elskulegir, og það
kemur varla fyrir að nokkur
þeirra sé frekur. En ef svo er,
þá reynir maður bara að gera
honum til hæfis, og þakkar svo
guði fyrir að losna við hann —
í bili á.m.k.
— Lestu ekki mikið af því
sem þú verzlar með?
— Nei, því miður er ekki mik-
ill tími til þess. Það er yfirleitt
nokkuð stöðugur straumur af
fólki.
— Og hvert ætlar þú svo
um verzlunarmannahelgina?
— Tja, það er nú það. Ég er
bara ekki búin að ákveða það
ennþá. Ég hef hundrað staði
í huga, en er með þeim ósköp-
um fædd að taka aldrei ákvörð-
un fyrr en á sfðustu stundu. Þá
fleygi ég einhverju niður í bak-
poka og þýt af stað.
Theódóra —
Framh. af bls. 9.
urðarsýningu?“
„Það er svo þreytandi, ekki
eins mikil sælutilfinning og
margir ætla — ég ætla aldrei
að keppa oftar.“
„Ætlið þér að leika í kvik-
myndum — ég hef heyrt það?“
„Ég fékk mörg tilboð — ég
veit það ■ ekki.“
„Hafið þér þá ástríðu að aka
hratt?"
„Ég viðurkenni það.“
„Er það nautn?"
„Því fylgir sælutilfinning."
„Hvemig?“
„Þegar hann er kominn yfir
hundrað, þá ..,
„Eruð þér trúlofaðar?"
„Nýlega ... og ég er mjög
hamingjusöm."
Þess má geta, að unnusti
Theódóru er verzlunarmaður,
Þorgeir Daníelsson.
Ragnar —
Framhald af bls. 9.
V.R., en síðan hann gerðist
,,boss“ hefur hann skiljanlega
ekki verið meðlimur). Hann
talaði um gamla félagsheimilið
og rifjaði upp góðar minningar
■ um það. — „Okkur vantar hús,
þar sem við getum komið
saman“.
Kona kom og bað um enskt
sultutau, góða tegund. Ragn-
ar afgreiddi konuna á
svipstundu og mælti með
ákveðinni tegund, en hall-
mælti annarri, sem konan hafði
augastað á. Hún trúði kaup-
manninum sfnum.
„Hvernig á að laða að fólk-
ið?“
Þessu vildi hann ekki svara
beint (hann er hógvær og ó-
grobbinn), en sagði, að hver
kaupmaður yrði að leggja á-
herzlu á að selja góða vöru,
mæla með góðum vörum, en
hiklaust að vara við lélegum,
enda þótt þær væru á boðstól-
um í verzlun hans. Nú var
ekki smekklegt .að. tg|jf„I^gpar
leiiguf. 'Fíann baö Visi um
kveðju til stas gamla góða fé-
lags, V.R., l' tílefni af helginni
með óskum um gleðilega hátíð.
„Ég vona að allt gangi vel nú
um helgina".
Fyrsti laxinn —
Framh at bls 16
viðnámsþróttinn nokkra stund.
'Er þetta geft til að laxinn merj-
ist ekki, en honum er mjög hætt
við því, þegar hann gengur upp
í árnar, spikfeitur og vel alinn.
I Kollafirði er unnið mjög
merkilegt starf á vegum ríkis-
ins. Þarna er unnið að því að
koma upp laxastofni, Iaxinn
hreinlega ræktaður og síðan
"sleppt að eldi loknu í stöðinni.
Þessi lax var hinn fyrsti, sem
heimsótti bernskustöðvarnar og
færði heim sanninn um að starf
ið er ekki unnið fyrir gýg. Það
eru aðeins 3 ár sfðan byrjað var
á þessu starfi í Kollafirðinum.
Laxinn, sem nú náðist, var tvö
ár f eldisstöðinni, en hefur ver-
ið ár í burtu. Fyrsta stigið í
þróuninni er klakstöðin, síðan
aflangir stokkar, þar sem seiðin |
hafast við í þúsundatali, en þá j
koma eldistjarnir af mismun- :
andi gerðum, sem hafa verið út-
búnar fyrir 4—6 sm löng seiði I
og venjulega er seiðunum
sleppt eftir 2 ára veru í eldis-
stöðinni.
Starfið í Kollafirði hefur ver-
ið nokkuð erfitt undanfarin 3
ár, bað hefur raunar verið tvö-
falt, þannig að skipta hefur orð-
ið fjárveitingunni f bygginga-
framkvæmdir auk eldisins sjálfs.
„Nú höfum við lokið öllum okk-
ar byggingaframkvæmdu n í bili
og munum á næstunni einungis
snúa okkur að fiskeldinu sjálfu“,
sagði veiðimálastjóri okkur. —
Ekki kvaðst hann vera viss um,
hvort fleiri fiskar mundu leita
aftur á uppeldisstöðvar sínar í
sumar, enda hefði aðeins litlu
magni af seiðum verið sleppt í
fyrra.
Stöðyarstjóri í eldisstöðinni í
Kollafirði er Erik Mogensen,
en 4 menn starfa þarna við að
fóðra laxaseiðin og við ýmsa
vinnu aðra f þessu sambandi.
Einn starfsmannanna f stöðinni,
Höjby Christensen að nafni,
fann laxinn í fyrradag, þar sem
hann var að svipast um eftir
fiski í skurðinum. Var auðvelt
að háfa hann upp þar sem hann
var og va£ þann síðan fluttur í
einn eldiskássann.. .
Sýaið tillitssemi —
Framh. at bls. 1.
reiðaeigenda. Slysavarnafélag-
inu, Bindindisfélagi ökumanna,
Flugbjörgunarsveitinni og frá
öðrum félögum áhugamanna um
slysavarnir.
Þótt miklu megi áorka með
sameiginlegum átökum framan
greindra aðilja og góðri aðstoð
blaða og útvarps, varðar þó
mestu, að hver og einn borgari
geri sitt til að vama slysum.
— Það er því rfk ástæða,
sagði lögreglustjóri, og sérstak-
lega um þessa helgi að skora á
alla ökumenn og aðra vegfarend
ur að gæta þeirrar varúðar sem
þeim er skylt, bæði sjálfs sín
vegna og annarra.
Vil ég beina beim tilmælum til
ökumanna, að sýna tillitssemi
og meta rétt umferðaraðstæður,
þannig að ekki sé stofnað til
umferðarhættu með of hröðum
og gáleysislegum akstri.
w
Olympíumeistari —
Framhald af bls. 16.
inanna f borginni og keppir að
auki vikulega eða meira allt ár-
ið á skíðum.
Bonlieu vann sem kunnugt er
frækilegan sigur fyrir Frakka í
sviginu á Olympiuleikunum í
Austurrfki f vetur. Honum var
spáð sigri nokkrum dögum síð-
ar í stórsviginu og sjálfur seg-
ist hann hafa búizt við að fá
að heyra „Marseilles“, —
franska þjóðsönginn — og fána
lands síns dreginn að húni eftir
þá keppni. Þetta brást þó, „....
og það var hroðalegt að finna
það, að maður var að detta
sem auðvitað þýddi, að sigurinn
var útiIokaður“, sagði Bonlieu.
„ég varð bara að hugga mig v!B
að hafa unnið svigið“, sagði
hann.
Bonlieu sagðist hlakka miklð
til að reyna sig í Kerlingarfjöll-
um. Hann kvaðst aldrei hafa
farið f skíðabrekkur svo fjarri
mannabyggðum fyrr, en hér
væri um sérlega skemmtilegt
tækifæri að ræða.
Ekið á dreng
Um áttaleytið í gærkvöldi varð
drengur fyrir bfl, móts við Frakka-
stíg 22. Drengurinn var fluttur á
Slysavarðstofuna, en sem bétur fer
! reyndist hann lítið meiddur.
Bítlarnir í
landsliðið
Landsliðið í knattspyrnu gegn
„pressuliði“ var valið f gær-
kvöldi og eru aðalbreytingarnar
þær, að „bítlarnir“ Rúnar og
Karl koma I framlínu Iiðsins, I
sem er þá þannig skipuð:
Heimir Guðjónsson, KR, Hreiðar ,
Ársælsson, KR, Jón Stefánsson,
Ákurevri, Sveinn Teitsson, Akra I
nesi, Högni Gunnlaugsson, |
Keflavík, Jón Leósson, Akra- ,
nesi, Eyleifur Hafsteinsson,
Akranesi, Ríkarður Jónsson,1
Akranesi (fyrirliði), Rúnar Júlí-1
usson, Keflavík, Ellert Schram, (
KR, .Karl Hermannsson, Kefla- (
vík.
Iþróttablaðamenn eiga eftir I
að velja sitt Iið, en varamenn |
fyrir liðin verða sameiginlegir.
BIFREIÐASÝNING í DAG
Gjörið svo vel og skoðið bílana.
BIFREIÐASALAN Borgartúni 1.
Símar 18085 og 19615