Vísir - 01.08.1964, Side 7

Vísir - 01.08.1964, Side 7
V í S I R . Laugardagur 1. ágúst 1964 7 KVEÐJA Hannes B. Árnason Fæddur 9. ágúst 1917 - Dáinn 25. júlí 1964. „Mjök erunik tregt tungu at hræra“. Hvernig er hægt að sætta sig við þann skapadóm, að maður í blóma lífs síns hverfur okkur jarðar búum sjónum, maður sístarfandi og sífellt sækjandi á brattann sífellt vinnandi að heill og hamingju fjöl- skyldu sinnar og vina? Það er hægt með því einu móti að sættast við guð sinn, alvizku hans, og leita hans aðstoðar. Hannes Árnason er horfinn sjón um vorum langt um aldur fram. Hans æðsta hugsjón var að búa fjölskyldu sinni fullkomið skjól í stormum lífsins. Hann batt þó ekki þá hugsjón við fjölskylduna eina, heldur var sífellt tilbúinn að hjálpa beim, sem hjálpar þurftu. Heimili hans og Hlífar Bjarnadóttur hinnar myndarlegu eftirlifandi konu hans stóð ættmennum og kunningjum stöðugt opið. Þannig var það, er ég ■em þetta rita kom fyrst til Reykja- víkur alls ókunnur unglingur úr sveit að þangað leitaði ég og það hef ég gert mjög oft síðan. Þar var öll aðstoð sjálfsögð án þess að lokkurn tíma væri ætlazt til endur gjalds og þar var mér sem annað heimili hvort sem dvalizt var Iengur eða skemur. Þannig munu fleiri geta mælt. Hánnes Árnason var fæddur og uppalinn að Krossgerði á Berufjarð arströnd. Hann fór ungur að heim- an og kom þá víða við á sió og landi. Hann kvæntist eftirlifandi konu sinni, Hlíf Bjarnad. 13. maí 1939 og stofnuðu þau strax heimili hér f Reykjavík. Þeim varð fimm sona auðið en urðu fyrir þeim mikla harmi að missa elzta son sinn fyrir fáum árum. Hannes var vel gefinn maður og vel menntaður þótt hann ætti ekki kosí á lsngri skólagöngu. Hann þyrsti í hvers konar fróðleik og las mikið þrátt fyrir langan vinnudag. Hann var búinn að vera starfsmaður póst- hússins í Reykjvík yfir 20 ár, er bann lézt. Hann gekk að hverju ■tarfi með fullri einlægni og trú- mennsku og atorku þótt hann gengi 'öngum ekki heill til skógar. Er 'lannes varð að hætta störfum egna vanheilsu sinnar, tók hann erfiðleikunum með aðdáanlegri still ■ ingu, þrátt fyrir áhyggjur af af- komu og framtíð fjölskyldunnar. < Honum var þó huggun og styrkur í erfiðleikum að mannvænlegum sonum góðri tengdadóttur og lítilli sonardóttur og þó sérstaklega að hinni góðu eiginkonu, sem var hon um styrk stoð og sat nótt sem dag við sjúkrabeð hafis síðasta mánuð inn, sem hann lifði allt til hinztu stundar. Hann lézt á Landakots- spítala eftir þunga legu. Mikill harmur er kveðinn að hinni hug- prúðu eiginkonu, sonum og tengda dóttur og öðrum ættingjum og vin um, en minning hans lifir. Kristján Sigurðsson. riMBURIIREINSUNIN, sími 20614. > Hreinsum fleka og mótatimbur áherzlu á góða vinnu. Leggjum MERCEDES BENZ 180 -’58 innfluttur í úrvals- standi. Ný dekk — út- varp. Stólar. Til sýnis og sölu. Bíla- og bóvélasalan við Miklubraut. Simi 23136. Blömabúbin Trisateig 1 amar 38420 & 34174 \ \' u wm FLUGFAR STRAX - FAR GREiTT SÍÐAR Loftleiðir. bjóða íslenzkum viðskiptavinum sínum þriggja til tólf mánaða greiðslufrest á allt að helmingi þeirra gjalda, sem greidd eru fyrir flugför á áætlunarflugleiðum félagsins. ÞÆGILEGAR HRAÐFERfllR HEIMAN OG HEIM Vegna góðrar samvinnu við önnur flugfélög geta Loftleiðir útvegað flugfarseðla til allra erlendra flugstöðva. Upplýs- ingar eru gefnar í skrifstofum Loftleiða og fyrirgreiðsla fúslega veitt. — TRYGGIÐ FAR MEÐ FYRIRVARA. © i aomiwm

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.