Vísir - 05.08.1964, Síða 4

Vísir - 05.08.1964, Síða 4
I V i S IR . Miðvikudagur 5. ágúst 1964. ★ Ljósmyndirnar af tungfinij, sem geimflaugin Ranger VXI. sjónvarpaði sl. föstudag til jarð ar eru taldar fela í sér merk- ustu uppgötvanir á sviði stjörnu fræði og geimrannsókna um iangt árabil. Þær gefa svo ná- kvæmar og merkilegar upplýs- ingar, afl nú er í fyrsta skipti vitað með vissu að lending geim fars á tunglinu er fullkomlega og auðveldlega framkvæmanleg. Það kemur í Ijós, að ótti manna við þykkt sand- eða ryk lag var ástæðulaus. Menn ótt- uðust að slíkt ryklag kynni að vera svo þykkt að geimskip myndi sökkva í það. Nú sýna myndimar að yfirborð tungls- ins virðist vera fast, jafnvel myndað úr grófu eða smágrýttu efni, má vera að það líkist sums staðar hrauni en þó með þunnu ryklagi yfir og hingað og þang að liggja örsmáar gígholur flest ar þeirra aðeins um metri í þvermál og um 30 cm. á dýpt. Tjað eitt er stórmerk upp- götvun, að hægt skyldi vera að taka ljósmyndir, sem sýna fyrirferðarlitla hluti sem þessa litlu glga, sem eru aðeins á stærð við lítil kringlótt kaffi borð, því að fram til þessa hafa allra stærstu stjörnukíkjar ekki sýnt minni hluti en 200-300 m. í þvermál. Stjörnufræðingar voru komn- ir á þá skoðun að þykkt ryk- lag lægi yfir tunglinu og var hugmynd þeirra sú, að þar sem . ekkert andrúmsloft væri á tungl inu myndu geimagnir smám í saman mola allt berg og alla steina á því og hlyti rykið sfð- an að safnast saman á gígbotn- um. En fyrst ljósmyndirnar geta sýnt smágígi um 30 cm. djúpa, þá getur ryklagið ekki verið þykkt. Oanger VII. tók og sendi '■frá. sér 4316 ljósmyndir og hálfa mynd til viðbótar, sem geimflaugin hafði ekki lokið við að senda þegar áreksturinn við yfirborð tunglsins varð, en á það rakst geimflaugin með 9600 km. hraða á klst. Gerard Kuiber forstöðumaður stjörnuathugunarstöðvarinnar í Arizona, sem rannsakað hefur nokkrar ljósmyndanna segir, að ljóst sé af þeim, að sumir gíg- imir á tunglinu hafi myndazt fyrir eldsumbrot á tunglinu sjálfu. Aðrir hafa hins vegar „Allt i myndazt við það, að loftsteinar hafa fallið á yfirborð þess, svo að báðar kenningar um eldsum brot og loftsteina virðast hafa nokklið til síns máls. Kunnur bandarískur jarðfræð ingur, dr. Eugene Shoemaker, sem rannsakaði myndimar frá jarðfræðilegu sjónarmiði, kveðst nú ekki vera hræddur við að stökkva út úr geimskipi á tungl inu og stíga á yfirborð þess. Þó er aðeins eitt sem skortir upplýsingar um, hver er styrk- Ieiki steintegundanna í yfirborð- inu. Eru þær nægilega sterk- ar eða eru þær úr einhverju efni álíka og vikur, sem getur hrunið saman, þegar þungt geimskip lendir þar. T>andaríkjamenn ráðgera að ** senda enn tvær Ranger Myndin sem hér birtist af hluta af yfirborði tungisins sýnir staöinn þar sem Ranger VII lenti. Hún var tekinn úr um 600 km fjarlægð frá yfirborði tunglsins og sjónvarpað til jarðar. mei ai lenda á tunglim geimflaugar til tunglsins, sem þeir munu kalla Ranger VIII. og Ranger IX. og verður hlut- verk þeirra hið sama og þessar ar geimflaugar að taka Ijós- myndir af yfirborði tunglsins. Þeim verður þó beint að öðrum stöðum á tunglinu. Með þeirri nákvæmni, sem Bandaríkja- menn hafa nú öðlazt í notkun Ranger-geimflauganna munu þeir nú geta hafið nákvæma rannsókn á yfirborði tunglsins og kortlagt það margfalt ná- kvæmar en áður hefur verið hægt. Á næsta ári munu þeir senda fyrstu rannsóknarstöð- ina, sem verður látin lenda með iitlum hraða á tunglinu. Kallast þær Surveyor. Þær verða mann lausar en búnar margs konar sjálfvirkum tækjum sem munu taka jarðefnaprófanir og efna- greina þær, bora niður í yfir- borð tunglsins og jafnframt munu Surveyor-tækin geta tek ið nákvæmar landslagsmyndir á tunglinu í eðlilegum litum, sem þau sjónvarpa til jarðar. Hitaveita um AÍaldal? Líkur benda til þess að nokkur liluti Aðal- dalshrepps í Suður-Þing- eyjarsýslu geti fengið hitaveitu í hús sín á næstunni. Jarðboranir ríkisins hafa látið bora í Hafralækjarlandi eftir heitu vatni og bar þessi borun skjótan og góðan arangur. Jarðylur hafði fundizt í landi jarðarinnar, en ekki heit upp- spretta. Þegar borað hafði verið niður á 60 metra dýpi, síðast, í gegn um basaltlag, spratt fram 75 stiga heitt vatn, 9 — 10 sek- úndulftrar, segir blaðið lslend- ingur á Akureyri. Borað var allt niður á 100 metra dýpi en ár- angur varð ekki meiri. Þetta heita vatn mun fyrst og fremst verða nýtt til upphitun- ar á skóla og félagsheimili sem ráðgert er að byggja í nágrenn- inu, en væntanlega er vatns- magnið nóg til þess að hita upp íbúðarhús nokkurra jarða á þessum slóðum.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.