Vísir - 14.09.1964, Blaðsíða 1
VISIR
54. árg. - Mánudagur 14. september 1964. - 210. tbl.
AÐALSTRÆTI9C, STÓR-
SKEMMDIST í BRUNA
Allur lager heildverzlunar Jóhanns Karlssonar eyðilagðisl
Miklar skemmdir urðu af
völdum elds á hdsinu Aðal-
stræti 9 C, aðfaranótt sunnu-
dags. Heildverzlun Jóhanns
Karlssonar hefur húsið á leigu
og skemmdist allur lager fyrir-
tækisins og einnig urðu miklar
skemmdir á skrifstofunni.
Slökkviliðinu tókst að verja
nærliggjandi hús, og var eldur-
inn slökktur á um það bil
klukkustund.
Það var klukkan átta minútur
yfir þrjú aðfaranótt sunnudags
sem slökkviliðið var kvatt að
húsinu númer 9 V við Aðal-
stræti. Þegar slökkviliðið kom á
staðinn var mikill eldur laus í
húsinu. Komst eldurinn um allt
húsið og urðu á því miklar
skemmdir. Það tók slökkviliðið
um það bil klukkustund að
ráða niðurlögum eldsins. Aðal-
stræti 9 C er tvílyft hús og var
lager Heildverzlunar Jóhanns
Karlssonar á neðri hæðinni, en
skrifstofur uppi.
Á lagernum var m. a. mikið
af efni í gólfklúta og töluvert
af fatnaði, handklæðum og
sokkum. „Já, segja má, að það
sé ekki fallegt að litast hér
um“, sagði Jóhann Karlsson við
blaðamann Vfsis í morgun og
síðan bætti hann við: „Það
sem ekki hefur brunnið er
skemmt af vatni og reyk“.
Allar líkur benda til þess að
eldurinn hafi komið upp á neðri
hæðinni, enda voru skemmdir
af völdum eldsins mestar þar.
Heildverzlun Jóhanns Karlsson-
ar hefur haft húsið á Ieigu X
iy2 ár, en eigandi þess er
Ragnar Þórðarson.
Jóhann Karlsson heildsali virðir fyrir sér skemmdimar. Ljósmynd Vísis, I. M.
Gífurieg aðsókn að Kenaaraskólauum
alvarieg þrengsli í nýju byggingunni
Gífurlegt annríki lög-
reglu vegna ölvunar
Gífurleg ölvun var í Reykjavík ! í sambandi við ölvun þessara
um sl. helgi og mikið annriki hjá j manna kom til ýmiss konar bar-
lögreglunni af þeim sökum. smíða, ryskinga og óláta, en al-
---------------------- ! mennt ekki svo að til stórtfðinda
drægi né meiriháttar slysa á mönn
um. Helzta slysið varð á manni,
sem barinn var f rot inni á einu
veitingahúsi borgarinnar og lög-
reglan varð að flytja hann meðvit
undarlausan í Slysavarðstofuna.
Þar kom f ljós að maðurinn var
nefbrotinn og með sprungna vör.
Vegna drykkjuskapar voru
fangageymslur lögreglunnar yfir-
Framh. á bls. 6.
40 stúdentar setjast í skólann í haust
Dr. Broddi Jóhannesson, skóla-
stj. Kennaraskóla íslands, sagði
i viðtali við Vísi f morgun að
geysimikil aðsók:. væri nú að
skólanum, miklu meiri en
nokkru sinni áður. Nefna má
sem dæm'i að 120 verða í fyrsta
bekk f vetur og verða nýlið-
arnir nú jafnmargir og nemend
ur voru samtals í öllum bekkj-
um skólans fyrir 2 árum. Um
40 stúdentar, , flestir braut-
skráðir sl. vor, verða í Kenn-
araskólanum i vetur, og er það
allmiklu stærri stúdentahópur
en nokkru sinni áður. Alls
verða 360—370 nemendur í
BLAÐIÐ í DAG
Bls. 2 fþróttir.
— 3 Myndsjá: Siðasti
dagur í skólagörð-
unum.
— 7 Trefjaplast ryður
sér til rúms.
— 8 Erfiðleikar á Kýpur
— 9 Hún þýðir islendinga
sögu á ensku. Viðtal
við dr. Julia McGrew
___________________________
Kennaraskólanum á vetri kom-
anda, auk 170 barna í æfinga-
skóla Kennaraskólans, en þeim
þarf að koma fyrir ( aðalný-
byggingunni þar eð eftir er að
reisa æfingaskóla á skólalóð-
inni. AIIs verða þannig um
540 nemendur í Kennaraskóla-
húsinu í vetur, að börnunum
meðtöldum, og eru þegar orðin
ofboðsleg þrengsli í nýju bygg-
ingunni. Þessi fjöldi er f hálfu
því húsnæði sem upphaflega
var ætlað um það bil helmingi
færri nemendum, sagði skóla-
stjórinn. 1 því sambandi er
þess að geta að í framtíðinni
verður byggð ný álma til suðu-
urs úr aðalálmu Kennaraskól-
ans við Stakkahlfð og ýmsar
smærri álmur og sérbyggingar
á landi skólans.
Skólastjórinn kvað ekki gott
að segja hvaða ástæður réðu
mestu um h’ina miklu fjölgun í
Kennaraskólanum seinustu árin.
Þó mætti ímynda sér að þrennt
kæmi þar til greina; I fyrsta
lagi von um stúdentspróf frá
Kennaraskólanum, í öðru lagi
bætt námsaðstaða með nýju
skólabyggingunni og i þriðja
lagi bætt launakjör kennara al-
mennt. Þó væru nokkur dæmi
þess að nemendur hefðu hætt
námi i Kennaraskólanum þar
eð þeir hefðu getað fengið jafn
góð laun út á gagnfræðapróf
sitt (sem er inntökuskilyrði í
Kennaraskólann) og kennararnir
fá til að byrja með.
Að sjálfsögðu fjölgar mjög
kennaraliði Kennaraskólans
með hipni miklu nemendafjölg-
un þar og voru nýlega settir
þar 8 kennarar f embætti.
Norðmenn Ijúka bræðslu-
síldveiðum við ÍSLAND
Eru hæstónægðir með órangurinn, 900 þús. hektólítra
Norska útgerðarmannasam-
bandið tilkynnti í morgun, að
bræðslusíldarveiðum norska
síldarflotans við ísland væri
lokið. Hins vegar mun hluti
flotans halda eitthvað áfram
við veiðar í salt.
Norðmenn eru mjög ánægðir
með síldveiðina við Island í
sumar. Fyrir þá hefur það ver-
ið einkar hagkvæmt að síldin
hefur verið fyrir austan Island,
þeim i ,'in skemmri er siglinga-
leiðin fyrir þá.
Aflinn sem þeir hafa sett í
bræðslu er álíka mikill og í
fyrra, kannski ívið meiri, rúm-
lega 900 þúsund hektólítrar. 40
bátar eru nú á síldarmiðunum
með um 10 þúsund hektólítra
samtals og munu þeir veiða á-
fram í salt, þangað til þe'ir
snúa heim.
Biskup
Islonds
jarðsyngur
Eins og áður hefir verið
skýrt frá fer útför forsetafrú-
arinnar, Dóru Þórhallsdóttur,
fram á morgun.'
KI. 10 1 fyrramálið hefst
minningarathöfn í sóknarkirkju
forsetahjónanna að Bessastöð-
um, sóknarpresturinn, séra
Garðar Þorsteinsson, prófastur,
flytur minningarræðuna.
Kl. 14 á morgun verður út-
förin gerð frá Dómkirkjunni í
Reykjavík, biskupinn yfir ls-
landi, herra Sigurbjörn Einars-
son, flytur líkræðuna og jarð-
syngur. Útvarpað verður frá at-
höfninni í Dómkirkjunni.
Þegar Vísir hafði samband
við forsetaritara, Þorleif Thor-
lacius i morgun, laust fyrir kl.
10, höfðu alls um 1000 manns
komið í forsetaskrifstofuna í
Alþingishúsinu síðan um há-
degi á föstudag og ritað nöfn
sín og sinnr. í mi ingabók um
forsetafrúna, Dóru Þórhalls- .
dóttur. Stór hópur beið í Al-
þingishúsinu í morgun þegar
fyrrnefnt símtal átti sér stað.
Samúðarskeyti halda áfram
að berast í forsetaskrifstofuna
ír byggðarlögym landsins.