Vísir - 14.09.1964, Page 3

Vísir - 14.09.1964, Page 3
V1SIR . Mánudagur 14. september 1964. V .N? ‘^í'vV^í^s 4 •' ' spyr Hanna Guðmund öm. ,Hvað fékkstu í einkunn?1 — Nú er ég að hætta í skóla- görðunum og byrja f skólanum, sagði lítil Ijóshærð hnáta við okkur, þegar við skruppum í stutta heimsókn f skólagarðana sl. föstudag. Og síðan bætti sú litla við með mikilli áherzlu: — Já, og það er ekkert leiðinlegt að vera í skóla allt árið. Það var mikið um að vera síð asta daginn. Allir kepptust við að taka upp og ganga frá reit- unum. Foreldrarnir komu með mörgum barnanna tii þess að hjálpa þeim að ganga frá og sfðan heim með uppskeruna. — Nú geta flest fengið kál- uppbót, þar sem þjófamir hafa alveg brugðizt, sagði Sigurður Runólfsson kennari, sem veitt hefur görðunum forstöðu í sum ar. Sagði hann að á hverju sumri væri káli sáð f sérstakan reit, og það hefði oft verið gott að grípa til þess ef ein- hver reiturinn hefði orðið fyrir skakkaföllum, t. d. stolið úr honum, en slíkt hefur ekki kom Sigurður Óli Haraidsson leggur af stað heim á leið, eftir að hafa lokið við að taka upp úr reitnum sínum. ^ííííííftíSíSSS-: Þð er skylda allra að ganga snyrtilega frá sínum reit, og kálinu og öðrum úrgangsefnum er ekið sam- an í stóran haug. Indriði Jóhannsson, sem starfað hefur Iengst allra við skólagarðana, er lengst t, v. ið fyrir í sumar. Um leið og krakkarnir fóru heim, fengú þeir afhent einkunn arspjöld. Nokkrir krakkanna fengu heiðursskjal fyrir góða ástundun, en á skjalinu er á- prentuð mynd af Indriða Jó- hannssyni, sem starfað hefur lengst allra við skólagarðana. Hann hefur mætt manna fyrstur á morgnana og farið með þeim síðustu. Þau börn, sem hæstu einkunnir hlutu, fengu afhent bókaverðlaun. Sigurður forstöðumaður skóiagarðanna veitir káluppbót, vegna þess að þjófarnir hafa alveg brugðizt. Síðasta daginn koma pabbi og mamma til þess að aðstoða við að taka upp og koma uppskerunni heim.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.