Vísir - 14.09.1964, Síða 15

Vísir - 14.09.1964, Síða 15
V1SIR . Mánudagur 14. september 1964. smanmm 15 ☆ 1 1 FRAMHALDSSAGAN: 2 1 tiel garfrí44 ☆ 1 | ARTHUR GORDQN Veðrið var gott þar til flugvélin nálgaðist írlandsstrendur. Lending gekk að óskum, en svo varð nokk- urra stunda töf í Shannon vegna þoku og rigningar, og þar af leið- andi var langt liðið á dag, er Norma loks komst til London. Þegar lokið var tollskoðun á farangri hennar og vegabréfið hafði verið stimplað flýtti hún sér í tal- sfmaklefa og hringdi til Molly. — Norma, kallaði hin brúnhærða og hjartahlýja vinkona hennar, og var röddin þrungin undrun. — Ég átti á dauða mínum von frekar en að heyra í þér og að þú værir komin — af hverju léztu okkur ekkert um þetta vita fyrir fram? — Það var enginn tími til þess. Og svo langaði mig til þess að koma Eric á óvart. Ég hef ekki einu sinni hringt til hans. Mér hafði dottið I hug að fara til ykkar og vera þar, þegar hann kæmi heim úr vinnunni. — Já, vitanlega. Var það eitthvað ,sem hún gerði sér í hugarlund, en var ekki einhver órói, jafnvel kvíði eða undiralda kvíða og óróleika, sem mátti kenna í rödd Molly. — Fáðu þér leigubil, Norma, sagði Molly svo. Komdu beint hing- að. Og, Norma, þú býrð vonandi hjá okkur, því að þú ert vonandi ekki rokin burt aftur strax? — Jú, heimsóknin verður eins stutt og hægt er, sagði Norma hlæjandi, ó, ég veit vel, að Eric reynir að fá mig til þess að fara ekki aftur, en þú veizt, ég ætla að reyna að fá hann til þess að koma aftur til New York. Það er vegna starfs míns og framtíðar- möguleika, skilurðu, ég hef sagt frá þessu fyrr, og ég segi þér nán- ar frá því, þegar við hittumst. Meðan hún ók eftir götunum — röngu megin fannst henni, af því að hún var vön hægri akstri — hugleiddi hún fyrstu heimsókn sína til Lundúna. Þau höfðu verið þar í brullaups- ferð hún og Eric. Þá höfðu þau kreppt hnefann um hverja krónu áður en þau eyddu henni. Það var á litlu gistihúsi í Chelsea borgarhverfi, sem þau höfðu búið. T A R Z A N Mér var kennt I Mombuzzi, að smáhlutir gætu oft verið mikil- vægir Tarzan, segir Tshulu, við vitum ekki hvernig á því stendur að maðurinn var hér e'inn Það hét „Brúna akurhænan". Þau höfðu haft þar herbergi á fjórðu hæð og lyftan var aldrei í lagi. En það hafði verið alveg dásamleg vika. Hún brosti ósjúlfrátt, er hún hugsaði um sjálfa sig sem brúði — feimna unga stúlku, dálítið kenj ótta, með stór augu. ----- -'stínin skein úr. Og í V" ' nnni fundizt hún eigr. F.ric — hún væri eins c; ; .ungs- jurt, sem hefði þó stcrkaii trjábol sér til stuðnings. — En það var orðið Iangt síðan þetla var — og allt var breytt — líka vlðhorf henn ar. Veika plantan var orðin nægi lega sterk til þess að standast hin- ar sterkustu vindhrinur. Húsið við Sloane-torg var stórt og skuggalegt, og einhver ömur- leikabragur á öllu, en það var inni- legur fögnuður í rödd Molly, þegar hún bauð hana velkomna, og það var það, sem mestu máli skipti, að vera velkomin. — Ó, Norma, sagði Molly og þrýsti henni að sér, hvað það er indælt að sjá þig. Og ég var svo hrædd um, að Riv kæmi heim á undan þér. Hann getur komið á hverju augnabliki. Ef þú ætlar að skipta um föt verðurðu að hafa hraðan á. Ég set töskurnar þínar upp í herbergið hans — aðrar dyr til vinstri, þegar þú kemur upp stigann. Baðherbergið er eins og safn frá fyrri öld, en það er þó heitt vatn þar... Þegar Norma var á leið upp stig- ann fannst henni einkennilegt um það að hugsa, að í rauninni var eitt hvað óvanalegt við framkomu allra, svip manna, tal — það var engu líkara en merin væru að leika einhver hlutverk — og að þetta hefði alt saman verið sett á svið. Hún reyndi að komast til botns í þessu, en tókst það ekki. Það er kannski vegna hraðans, sem á öllu er, hugsaði hún, — og henni fannst, er hún hugsaði þetta nánar, að kannski væri engin furða þótt mönnum fyndist allt kynlegt og undarlegt, eftir að hafa farið „hálf- an hnöttinn kring“ á nokkrum ldukkustundum. En hún hafði farið milli heims- álfa fyrr og það ekki haft þessi áhrif á hana. Hvað var á seyði? Eitthvað grunsamlegt? Eitthvað, sem varðaði Eric — hana sjálfa — eða þau bæði? Hún opnaði aðrar dyr til vinstri, er upp var komið, gekk inn og starði á dökkmáluð, stórgerð hús- gögnin, rúmið með hálfþaki yf- ir... Þetta hafði þá verið hvíldar- og svefnstaður Erics þessa mánuði. Hún kunni ekki við sig þarna, hvorki húsgögnin eða annað, — fannst það allt með framandi, ann- arlegum blæ, og varð gripin leiða, jafnvel kvíða ... Hún ákvað að láta ekki neinar ömurlegar hugsanir ná tökum á sér. Þegar Eric kæmi heim og þau væru ein saman yrði allt I bezta lagi, en þangað til hann kæmi vildi hún helzt vera ein með Molly. Hún opnaði aðra töskuna og tók upp það, sem hún hafði keypt til þess að gefa tvíburunum, er hún beið á flugvellinum í Shannon. Hún gekk út í göngin og hikaði þ: r andartak. Það var mikil kyrrð ríkjandi í þessu stóra húsi. Svo heyrði hún rödd Molly gegnum cpnar dyr við hinn endann á göng- unum. Norma gekk þangað og gægðist inn. Þetta var barnaherbergið og hús- gögn af þeirri stærð, sem börnum hæfði. Annað rúmanna, sem í því var, var tómt, en f hinu sat lítill snáði með úfið hár, og var kútur- i inn greinilega í uppreisnarhug. I — Og nú skal ég segja þér dá- I lítið, vinur minn, sagði Molly skip- jandi. Þú færð að dúsa þarna þar j til faðir þinn kemur heim ... Hún þagnaði skyndilega, er Norma var komin. — Hann hefur verið óþekkur aft- ur. Karen háttaði hann, og það var alveg rétt af henni. Norma sneri sér við. Ung stúlka stóð til hægri fyrir innan dyrnar. Hún gat ekki verið meira en 22—23 ára. Hún stóð þarna ósköp róleg á svip og studdi annarri hendi á öxl jóþekka drengsins. Hún hafði flétt- | að korngult hárið og vafið um ihöfuð sér, svo að það myndaði eins j og kórónu. Hún var klædd ein- jföldum, bláum ermalausum kjól. Augu hennar voru í sama lit og kjóllinn. Tillit þessara dimmbláu augna var kuldalegt og hún horfði beint í augu Normu, en hún gat ekkert lesið úr svip þeirra. Normu fannst hún vera að leyna einhverju af ráðnum hug með sinni ísköldu ró, og eins hefði verið viðbúin lengi ; þessu augnabliki, sem upp var runn ið: að fundum þeirra bæri saman, — eins og hún hefði þjálfað sig undir að vera við því búin. Normu fannst rödd MoIIy hljóma eins og úr fjarska og nú var hún j ekki í vafa um, að Molly var grip- in taugaæsingi, sem hún gat ekki | dulið. — Má ég kynna fyrir þér Karen, vinstúlku okkar frá Svíþjóð, sem gætir tvíburanna ... Karen, þetta er frú Maxon. Norma stóð eins og lömuð. Hún gleymdi gjöfunum, sem hún hélt ; á. Hún sá, að Karen kinkaði kolli, ; aðeins lítið eitt, það sást varla [hreyfing á kollinum með korngulu kórónunni. Það var eins og hún hugsaði sem svo: — Þér eruð kannski konan hans, en... En varir hinnar sænsku stúlku bærðust ekki. Normu leið eins og hún væri að kafna. Hún hafði alltaf getað varð- veitt ró sína og stillingu til þessa. Hún hafði alltaf haldið, að hún mundi ekki haggast, hvaða erfið- ólvallagötu 72 3imi 18615 | Tek hárlitun. Clairol, we’Ia og | klainol litir. Vinn frá kl. 1-5 á hárgreiðslustofunni. Perla Vitastíg 18A Sími 14143. Minna Breiðfjörð * Hárgreiðslustofan PERMA ! Garðsenda 21, simi 33968 Hárgreiðslustofan HÁTÚNI 6, simi 15493. 1 Hárgreiðslustofan jPIROL (Grettisgötu 31 sími 14787. * Hárgreiðslustofa [VESTURBÆJAR iGrenimel 9, simi 19218. > Hárgreiðslustofa [austurbæjar i fMarla Guðmundsdóttir) [ Laugaveg 13, sími 14656. I Nuddstofa á sama stað Hárgreiðslu- og snyrtistofa STEINl) og DÓDÓ | Laugaveg 18 3 hæð (lyfta) Simí 24616 ‘ Dömuhárgreiðsla við allra hæf [TJARNARSTOFAN (Tjarnargötu 11. Vonarstrætis- » megin. simi 14662 I SEE WHY SEUERAL YEATS THOUGHT VOU A VEKY S.WAK.T MAN.TSHULU. YES, EVEKI A TOOE VAGABUNPO, ITH OWLY ONE TOE ON HIS LEFT FOOT, WHO SHOKES A CLAY PIFE WITH A 3KOK.EW STE/A, WAY EE IÍAPOKTAMT TO OUK ÍMSSION. HE CAN HAVE á ferli, en við vitum að hann Yeats hershöfðingi sagði, að þú fæti og reykir leirpípu, getur ver hafði ekki nema eina tá á öðr værir mjög góður maður, segir ið mikilvægur fyrir okkur. Hann um fætinum, svo að það verður Tarzan. Það er rttt hjá þér að gæti haft einhverjar upplýsingar auðvelt að þekkja hann ef nauð jafnvel vesall einmana Vaga- sem kæmu sér vel fyrir okkur. sjm reynist. Ég skil vel'af hverju bundo, með eina tá á öðrum Við skulum sjá hvert slóð hans liggur. .V.V.W.W.VAVAVWVW ■: í :• OtJN- OG ;• FIÐURHREIN SUN \ •: Vatnsstíg 3 . Sími 18740 I NGUR £ REST BF.ZT -koddar. í Endurnýjum gömlu \ sængurnar, eiguro \\ dún- og fiSurheld ver. :• Seljum æðardúns- og / gæsadúnssængur — *: og kodda af ýmsum stærðum. í .“.‘.WrtV v/Miklatorg Sími 2 3136 Blómabúbin Hrisateig’ 1 simar 38420 & 34174

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.