Vísir - 01.10.1964, Blaðsíða 7

Vísir - 01.10.1964, Blaðsíða 7
VÍSIR . Fimmtudagur 1. október 1964. 7 Ítalski Mannlicher Carcano riffillinn, niorðvopnið, sem Oswald hafði sjálfur sannanlega keypt. Riffillinn er hér sundurtekinn. Bréfpokinn, sem fannst við gluggann á 6. hæð. Hann var mátulegur tM að flytja í riffilinn sundurtekinn. Oswald í sambandi , i I siðasta hluta þessa greina- flokks um Warren-skýrsluna var greint frá því, að fjöldi sjón- arvotta hefði séð by'.suhlaupið í hornglugganum á 6. hæð bi'.' - geymsluhússins í Dallas. Eru all ir þessir vitnisburðir sammála um að rifflinum hafi verið beint að forsetabílnum og frá þessu vopni komu skothvellirnir, sem heyrðust. Sjónarvottum kemur hins vegar ekki fullkomlega sam an um, hvað skothvellirnir voru margir. Langflestir telja að þeir hafi verið þrír, nokkrir halda að þeir hafi verið tveir og nokkr ir halda að þeir hafi verið fjórir. Síðan finnur lögreglan riffil ítalskan að gerð uppi í geymslu salnum og þrjú tóm skothylki á gólfi við fyrrnefndan glugga. Lögreglan tekur riffilinn til rann sóknar. Kúlumar voru úr ítalska rifflinum. Þegar komið var með hina særðu, Kennedy forseta og Con- ally fylkisstjóra til Parkland- sjúkrahússins voru þeir bornir til aðgerðarstofu á sjúkrabör- um. Skömmu eftir að Conally hafði verið tekinn af sjúkrabör- unvm finna menn byssukúlu liggjandi á börum hans. Kúla þessi er tekin og afhent lögregl- unni. Við nákvæma leit í for- setabílnum fundust í honum tvö byssukúlubrot. Þau voru mjög skemmd og hnoðuð. Nú tóku sérfræðingar bæði byssuna, sem fannst uppi á 6 hæð bókageymslunnar og þessi kúlubrot og rannsökuðu hvort ' * þau væru úr sömu byssu. Heila | kúlan, sem fannst á börum Con- 8 ally fylkisstjóra, sýndi nákvæm- lega sömu för og kúla, sem skotið var úr byssunni. Og þrátt fyrir það að hin kúlubrotin I' væru hnoðuð, báru þau greini- leg einkenni, sem sönnuðu að þau væru úr umræddri byssu. Byssuför á kúlum eru aldrei eins úr tveimur byssum. Hér var því komin niðurstaða, sem °kki verður um v'llzt, kúlurnar voru úr þessar byssu og engri annarri. Hvemig riffillinn var seldur. Nú leitaði lögreglan upplýs- inga um það, hver hefði verið eigandi þessarar byssu. Riffillinn var af tegundinni Mannlicher-Carcano, ítalskur að gerð með 6,5 mm hlaupvídd. Bandariska sambandslögregl- an FBI fékk nú upplýsingar um að innflytjandi slíkra riffla frá Ítalíu væri fyrirtæki eitt í New York, sem kallaðist Crescent Firearms. Var nú fyrirspurn send til þessa fyrirtækis hvort það íiefði flutt inn riffil af þess- ari tegund með skrásetningar- merkinu C-2766, og hvert hann hefði verið sendur. Svarið frá Crescent Fire- arms barst þegar að kvöldi 22 nóvember. Skjöl sýndu, að fyr- irtækið hafði flutt umræddan riffil inn og selt hann til fyrir- tækis I Chicago, sem verzlar með sportvörur og heitir Klein Sporting Goods Co. Var haft samband við forstöðumenn þessa fyrirtækis þegar um kvöld ið. Er þetta gríðarstórt fyr’ir- tæki, sem verzlar mikið í póst- sendingum. Hófst leitin í skjöl- um þess kl. 10 um kvöldið og var farið í gegnum gífurlegt magn af fylgiskjölum, þar til öll plöggin varðandi þennan riffil fundust kl. 4 um morguninn Það kom þá í Ijós, að riffill nr. C-2766 hafði verið sendur í pósti 20. marz 1963 til „A Hidell, Póst Box 2915, í Dallas, Texas. Klein Sporting Goods Co. fékk pöntun á rifflinum 13. marz 1963. Var pöntunin á úr- klippingi af auglýs’ingu fyrirtæk isins, sem birzt hafði í tímarit- inu American Rifleman. Á úr- klippinginn var skrifað með prentstöfum „A. Hidell, P. O. Box 2915, Dallas, Texas“. Úr- klippingurinn barst til fyrirtæk- isins í umslagi og var sama nafn og pósthólfsnúmer ;krifað aft- an ð umslagið. IV. hluti WA R RIN -skýrslunnar bólusetningarvottorð, sem baœ falsaði með þessu nafrrt, og hann hafði starfað undir þessu nafni í félagsskap kommúniete og Castro-sinna. Þegar kona hans Marina var spurð um þetta nafn, vissi hún að hann kallað’i sig því, en hún hélt að hann gerði það aðeins í gamni, nafn- ið væri gamansöm samlfking við mannsnafnið Fidel, en Oswald dáðist,mjög að Fidel Castro eáv- ræðisherra á Kúbu. Mynd af Oswald með ríffilinn. í ýmsum plöggum, sem fund- ust á heimili frú Marinu Oe- wald fundust og nokkrar ljós- myndir af Oswald, þar sem hann stóð með riffil og skamm- byssu. Svo langt sem séð verð- ur af ljósmyndum þessum eru skotvopn þessi af sömu tegund og riffillinn og skammbyssan, sem hér koma við sögu. Marina Oswald kvaðst sjálf hafa tekið þessar myndir af manni sínum á kassavél. Fréttastofur og blöð komust yfir þessar myndir eftir öðrum leiðum. Þar sem myndimar voru óskýrar og svarta byssuna bar við svarta skyrtu Oswalds gripu sum þéirra til þess ráðs að skýra myndina með innteikn ingu svo að kíkissigtið sæist bet ur, Slíkt var misferli í meðferð myndanna, sem kom af stað orð rómi um að myndirnar væru falsaðar. En þessi framkoma blaðanna snertir ekki á minnsta liátt rannsókn málsins. Á einni ntynd’inni er skamm- byssan í mittisslíðri, en Oswald heldur á byssunni í annarri hendi en blaði í hinni hendinni. Greina má fyrirsagnir í blaðinu og var þann’ig hægt að upplýsa, að þetta var róttækt blað, sem kallaðist „The Militant and the Worker“, e'intak sem út kom 27. marz 1963, það er réttri viku eftir að Klein Sporting Goods • Co. sendi riffilinn til Dalla^. Taustranginn í bílskúmum, 1 október og nóvember-mán- uði 1963, þegar Oswald fékk Framh. á 10. síðu Rithandarsérfræðingar frá bandaríska fjármálaráðuneytinu og frá lögreglunni voru fengn- ir sitt í hvoru lagi til að skoða rithöndina og bera saman við r’ithönd Oswalds. Þeir kváðu báðir upp þann úrskurð, að eng inn vafi væri á því að þetta væri rithönd Oswalds. Auk þessa úrklippings var í umslag- inu póstávísun að upphæð $ 21,45 og á hana ritað framsal með sömu hendi. sem rithandá- gréint pósthólf. Svar póststof- unnar var, að á tímabilinu 9. október 1962 tii 14. maí 1963 hefði pósthólfið nr. 2915 verið leigt manni að nafni Lee H. Os- wald. Pósthólfið geymdi skjöl varðandi umsókn að pósthólf- inu. Umsóknin var undirrituð með rithönd Oswalds. Þetta var ekki í eina skipt’ið, sem Oswald notaði dulnefnið A. Hídell;. Þegar hann var hand- tekinn í Texas Theatre var tekin Ljósmynd sem Marina Oswald tók af manm sinum með riitilinn og skammbyssuna. sérfræðingar sögðu að væri líka rithönd Oswalds. Klein Sporting Goods sendi riffilinn eins og um var beðið í tilgreint pósthólf. Hver hafði pósthólf 2915? Nú sneri lögreglan sér til pósthússins í Dallas með fyrir- spurn um, hver hefði haft til- af honum skammbyssan, sem hann hafði drep’ið Tippit lög- regluþjón með. Lögreglan rann- sakaði einnig hvar sú skamm- byssa hafði verið keypt. Það kom í Ijós, að fyrirtækið Ge- orge Rose & Co í Los Angeles hafði feng’ið póstpöntun á henni og sent hana til A. J. Hidell, póstboxi 2915 í Dallas. Oswald notaði þetta dulnefni oftar, hann átti vegabréf og

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.