Vísir - 01.10.1964, Blaðsíða 10

Vísir - 01.10.1964, Blaðsíða 10
10 'ÍSITt Flannixúaaur 1. ol;iúI;ór 1934. emawMEgjBTOuimjiiaRBSEB^EBKHniag-aiaiaBcat Warren-skýrslpn - Frh. af .7 vinnu í skólabókageymslunni, tók hann sér á leigu herbergi í Oak Cl'iff hverfi í Dallas, með- an kona hans og börn bjuggu hetma hjá vinkonu þeirra, Ruth Paine í Irving, um 25 km fyrir utan borgina. Hjá henni var hin l'itla búslóð þeirra geymd. Þar var riffillinn líka geymdur. — Hann lá úti í bílskúr vafinn inn * í grænan og bláan dúk. Það vildi svo til, að I byrjun október fór Matina Oswald út í bflskúr að leita að stykki í barnsvögguna. Hún sá þennan samanvafða dúk með strengdu snæri utan um og hélt að það sem hún væri að leita að væri innan í honum. Þegar hún fór að vefja dúknum af, sá hún í byssuskeftið. Paine- hjón'in sáu þennan samanvafða pakka oft í bílskúrnum og Michael Paine færði hann til. Hann hélt að í honum væru ein- hverjir sporthlutir eins og sund- urteknar tjaldsúlur eða jafnvel sundurtekin skófla, en hann gáð'i aldrei, hvað væri í pakk- anum. Oswald svaf í leiguherbergi sfnu virka daga, en á föstudags- kvöldum var hann vanur að fara til Irving og dveljast þar um helgina með konu sinni. Það vild'i svo til að einn starfsfé- lagi hans, Buell Wesley Frazier bjó í Irvi"g skammt frá húsi Paine-hjónanna og var hann van ur að aka með honum þangað á föstudagskvöldum og aftur í vinnuna á mánudagsmorgna. Að sækja glugga- tjaldastengur. Nú gerðist það við lok Vinnu- dags 21. nóvember, sem var fimmtudagur að Oswald kom til Fraziers og bað um að fá að sitja með honum í bílnum út til Irving. Frazier var undrand'i og spurði, hvers vegna hann færi heim á fimmtudagskvöldi. Os- wald svaraði: „Ég ætla að fara heim og sækja gluggatjaida- stengur til að setja I herberg'ið mitt". Þeir fóru tveir úr vinn- unni kl. 4.40 síðdegis og óku til Irving. Morgun'inn eftir fór Oswald snemma á fætur og gekk út úr húsi Paine-hjónanna um kl. 7,15 áður en aðrir fóru á fætur. Þeg- ar hann kom að húsi því, sem Frazier bjó í, sá systir Fraziers hann fyrst og tók eftir að hann var með þungan aflangan, brún- an bréfpoka. Hann opnaði aftur- hurð á bíl Fraziers og lagöi oakkann aftur í bílinn. Þegar henni var sýndur bréfpokinn, sem fannst við gluggann á sjöttu hæð bókageymslunnar, taldi hún að það væri eins poki. Frazier kom út úr hús'inu og þeir settust báðir upp í bílinn. Frazier tók eftir pakkanum i aft ursætinu og spurði: „Hvað ertu með í pakkanum, Lee?“ Oswald svaraði: „Gluggatjaldastengur“. Svo óku þe’ir af stað. Frazier spurði einnig: „Af hverju ertu ekki með matarpakka með þér?“ Oswald svaraði: „Ég ætla að kaupa mér mat í dag“. Kvaðst Frazier hafa undrazt þetta, því að Oswald hefði alltaf verið van ur að taka matarpakka með sér. Þegar þeir komu að bókageymsl unni lagði Frazier bílnum á bíla stæði eins og hann var vanur. Eitt undraðist hann enn. Þegar þeir komu saman í vinnuna voru þeir vanir að ganga sam- síða að húsinu, en í þetta sk'ipti tók Oswald aflanga pakkann úr aftursætinu og hraðaði sér inn í húsið. Hann ví^Ti um 15 metr- um á undan Fraziwr og vissi sá síðarnefndi ekk'i hvert hann fór með pakkann, því að Oswald var horfinn úr forstofunni, þeg- ar hann kom inn á eftir honum. Það getur varla farið á milli mála, að í þessum brúna pakka hefur Oswald flutt riffilinn. Auð Velt er að taka riffilinn sundur ■V setja hann saman á skömm- im tíma og þarf ekkert verk- færi til þess nema pening til að skrúfa eina skrúfu. Sundur- tek'inn komst riffillinn vel fyrir í brúna bréfpokanum, sem síð- an fannst uppi á 6. hæð við glugga morðingjans. Viðbrögð frú Marinu Oswald. Daginn sem morðið fór fram sat frú Marina Osvvald við sjón- varpið og var þá sagt frá því að skotið hefði verið á forset- ann. Skömmu eftir fyrstu frétt- irnar ræddi frú Paine um það Við Marinu, að skotið hefði ver- ið á forsetann ,,úr byggingunni, sem Lee vinnur í“. Marina Oswald skýrði síðar frá því í framburði sínum að „Ég fékk sting fyrir hjartað. Ég fór strax út í bílskúr'inn til þess að athuga. hvort riffillinn væri þar og ég sá að saman- vafði dúkurinn var þar á sín- um stað og ég sagði við sjálfa mig „Guði sé lof“.“ Hún tók dúkinn ekki í sundur, sá aðeins að hann var á sínum stað g að það virtist eitthvað vera innan í honum. Það leið ekki langur tími þanp að til iögreglumenn komu, um kl. 3 til að rannsaka húsið. Frú Paine sagði þéim að mestur hlut inn af eigum Oswalds lægi úti í skúr. Þau fóru svo út i skúr- inn lögreglumennirnir. Marina og Ruth Paine, sem tók að sér hlutverk túlksins, þar sem Mar- ina var ekki góð í ensku. Rose Málverkasalan LAUGAVEGl 30 er miðstöfi málverkaviftskiptanna Allt listafólk er velkomið með verk sin til sölu. - IVlá’verkasalan tekur á móti málverkum. sem fólk vill selja á upp- boðum og hefui ávallt fallegt málverkaúrvaí ti) tæki færisgjafa. - Opið frá kl 1,30 Sími 17602 FLUGKENNSLA Helgi Jónsson Sími 10244 leynilögreglumaður spurði hvort Oswald hefð'i átt riffil. Ruth Paine svaraði í fyrstu, að hann hefði ekki átt r'iffil, því að hún vissi ekki um neinn riffii, en þegar hún þýdd'j spurninguna fyrir Marinu, svaraði hún st.rax: „Já, hann átti riffil“ og benti á dúkstrangann. Rose lögreglumaður iyfti dúkstranganum upp, hann hélzt ekk'i stífur, heldur löfðu báðir endar niður, þegar hann tók í miðjuna á pakkanum. Þá fyrst varð Marinu Oswald það ljóst, að riffillinn var ekki á sínum stað. Varðandi söguna um glugga- tjaldastengurnar fengust upp- lýsingar um, að t leiguherbergi Oswalds var fullkominn glugga- tjaidaútbúnaður svo að hann hafði ’enga þörf fyrir tjald- stengur þar. Þá kom í ljós að gluggatjaldastengur lágu að vísu í bílskúrnum í Irving, en við þeim hreyfði Oswald ekki. Það voru því örugglega ekki gluggatjaldastengur sem hann var með í brúna pokanum. - VINNA- KÓPAVOGS- BÚAR! Máiið sjálf við lögum fyrir ykkur litina. Fullkomin þjónusta. LITAVAL Álfhólsvegi 9 Kópavorp Sími 41585 Véldifi'eiiigeming Vanir og vandvirkir menn. Ódýr og örugg bjónusta. ÞVEGTLUNN Simi 36281 NÝJA TEPPAHREINSUNIN ftjj: : :.:éag. . | EINNIG VÉLHREIN GERNING- \R. Nýja téppa- og húsgagnn lireinsunin Simi 37434 VÉLHREINGERNING Vanir menn. Þægileg Fljótleg Vönduð vinna. ÞRIF — ■ Sími 21857 -L-3HHií «8 40469. VÉLAHREINGERNINGAR "" OG TEPPA- ÞÖRF HREINSUN ÞÆGILEG KEMISK VINNA SÍMI 20836 SLYSAVARÐSTOFAN faranótt 2. okt.: Bragi Guömunds Opið allan sólarhringinn Simi son, Bröttukinn 33. Sími 50523. 21230 Nætur og heiaidagslæknir I sama síma Næturvakt i Reykjavík vikuna 26. sept. — 3. okt. verður i Læknavakt í Hafnarfirði að- Reykjavíkurapóteki. Vlh BLÖÐUM FLETT Ef fá menn steina fyrir brauð og fyrir rósir þyma og hamli dáðum harðbýl nauð, kann hugur brátt að stirðna. Oft næðir sárt um svalbarð lífs, ei sízt á ströndum ísa, og biturt nístir blærinn kífs, sem bannar meið að rísa. Steingrímur Thorsteinsson. Svo viðbjóðsleg kind ... Biðillinn snýr sneyptur heimleiðis aftur, og gjörir ekki erindi sitt uppskátt, sjái hann að stúlkan, sem hann hugði að fá sér til konu, sé skörnug á hörund eða í fatnaði, labbi á töpluðum, rifnum skóm, með skitna og götótta sokka, hversu dáfögur að skapnaði eða eiguleg hún annars þætti, hafi haim henni ekki jafnsóðaiega sálu sjálfur að geyma, og hugsar annars með sér: svo viðbjóðsleg kind, sem feygir eigin flíkur og kropp sinn, feygir víst og skemmir allar mínar eigur, verður sem eidur í þeim og báðum okkur til minnkunar komi hún og þær fyrir sið- samra og úieiðvirðra þrifamanna augu, og allir fá andstyggð á mínu húsi: hvörsu má hún þrifa og uppfóstra börn vel, hafa góða umsjón með húss og peningsrækt, og verka notalega mat, er ekki fær sjálfa sig skarrtmlaust þrifið. Magnús Stephensen: Handbók fyrir hvern mann. tóbaKs KORN Þá eru réttirnar hjá liðnar .. . bráðskemmtilegur dagur, rétta dagurinn, að minnsta kosti fyrir mannkindina, kannski sauðkindina líka, hafi hún vit á að greina það hlægilega í framkomu mannkindarinnar sem hún raunar hlýtur að hafa fyrst hún getur litið á lífið af þessari síjórtrandi rósemi. . . Jú, jú, þarna kom allfjölmennt lúxusbílalið úr höfuðstaðn- um, drakk svartadauða af stút á réttarveggnum, söng „eins mig fýsir1 alltaf þó“ og fékk tár í augun af ást til sveitarinnar, ■ sem það tók sprettinn burt úr, þegar það fann peningalyktina að sunn- an kitla nasir sínar og sauð- kindinni, sem Bretinn verður að kenna því að éta . .. Ég held nú þaó. Einn akfeitur stór kaupmaður, sonur Guddu kind arinnar á Feili og Brinka greys ins með tóbakstaumana — einu taumana, sem hann kunni hald á — tók um hálsinn á gamla hokurbóndanum, hon- um mér, kvaðst alltaf vera hreinræktaður sveitabóndi í eðli sínu og skældi upp á það í lykkjuföllin á .lopapeysunni sem hún núverandi tengdadótt ir mín, kvenveran, hafði þrjá mánuði á prjónunum. Á eft- ir var svo alls konar drykkja í félagsheimilinu, þar sem sum ir fluttu ræður þangað til þeir dóu, yfir þeim sem þegar lágu dauðir, annað hvort undir borðum eða moldinni í kirkju- garðinum, en aðrir sungu „blessuð sértu sveitin mín,“ eins á undan og eftir ræðun- um og á meðan þær voru flutt ar, og allir táruðust... Þar til kynnti stórkaupmaðurinn, að hann ætlaði að gefa félags- heimilinu líkneskjur af foreldr um sínum, Guddu og Brinka, höggnar í stein ... bara að út- höggvarinn gleymi ekki taum- unum . .. Það eru annars meiri lifandis ósköpin, sem sveita- ástin logar og brennur í mönn unum um réttirnar, og ég get svarið að ég heyrði ekki nokk urn mann af þessu liði minn- ast einu orði á hve kjötið væri dýrt, eða hvílíkir ómagar við, hokurbændurnir. værum á milljónurunum fyrir sunnan .. Þær fréttir hafa borizt austan úr Kína, að Mao sé orðinn bráðheilsulaus allt í einu, þrátt fyrir svona líka hraustlegt út- lit. .. Eins gott að Mangi Kjartans sé þar ekki daglegur gestur . . . ERTUSOFNUD ELSKAN? heyrðu ... viltu heyra nýjustu veiðisöguna ... átta veiðimenn sem láta birta það eftir sér á prenti, að þeir hafi fengið á 12 fjundrað pund af laxi á nokkrum dögum í sumar, segj um 11 hundruð pund, það er ekki mikill frádráttur, þegar laxveiðimenn eiga hlut að máli, og kostaði ekki pundið um 50 kall út úr búð? Ja, þeir mega eiga það, að ekki eru þeir hræddir við skattayfirvöldin, ... sem sennilega miða svo við söluverðið á reyktum laxi, þeg ar þar að kemur — og hvað verður þetta þá á mann?

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.