Vísir - 16.10.1964, Side 2

Vísir - 16.10.1964, Side 2
2 V1S IR . Föstudagur 16. október 1964. KEMUR MÉR GERSAMLEGA Á VÆNTÍ IKKl STEFNUBREYTINGA — segir Brynjólfur Bjesrnuson um breytingurnur í Sovétríkjunum Vísir átti i morgun tal við nokkra af forustumönnum ís- lenzkra kommúnista um breyt- ingarnar á æðstu stjórn Sov- étríkjanna. Hafði blaðið tal af Einari Olgeirssyni, Brynjólfi Bjarnasyni, Lúðvík Jósepssyni og Páii Bergbórssyni. Brynjólfur Bjarnason sagði, að sér kæmu brcytingarnar eystra gersamlega á óvart. Ekki kvaðst hann telja líklegt, að þær myndu hafa stefnubreytingu í för með sér, þar eð nánustu samstarfsmenn Krúséffs tækju við af honum. Fréttamaður Vísis spurði Brynjólf, hvort hann teldi, að tilgátur erlendra fréttamanna um að ágreiningurinn við Kína væri að einhverju leyti orsök breytinganna, hefðu við rök að styðjast. Kvaðst hann telja ólík- legt að svo væri. Ekki vildi Brynjólfur segja meira um mál- ið að svo stöddu. Einar Olgeirsson var sammála Brynjólfi um það, að ekki væri von á stefnubreytingu eystra i kjölfar afsagnar Krúsjeffs. Hann kvaðst telja mikilvægustu breyt- inguna þá, að nú væri skipt því embætti, er Krúsjeff hefði áður haft einn með höndum. Bresh- nev yrði nú aðalritari kommún- istaflokksins, en Kosygin for- sætisráðherra. Kvaðst hann telja þá breytingu til góðs, þar eð draga ætti mörk milli flokks- ins og ríkisins í sósfalistiskum rikjum. Lúðvík Jósepsson vildi ekkert segja um breytingarnar. Hann kvaðst enn ekki geta áttað sig á þeim. Páll Bergþórsson, for- maður Sósíalistafélags Reykja- vikur, sagði, að sér fyndist nógu erfitt að átta sig á atburðum, er gerðust hér nær, þó hann færi ekki að dæma atburði austur í Sovétríkjunum. Bretland Framh. af 1. síðu: Þegar talið hafði verið í 430 kjördæmum hafði Verkamanna flokkurinn unnið 48 þingsæti flest frá Ihaldsflokknum. Þá höfðu 6 ráðherrar fallið, en aðrir sigrað með minni meiri hluta en síðast. í kjördæmi for sætisráðherrans i Skotlandi verður ekki búið að telja fyrr en sfðdegis, en í kjördæmi Har- olds Wilsons leiðtoga jafnaðar manna f Lancashire eru úrslit kunn, Wilson þrefaldaði fylgi sitt. Verr fór fyrir Patrick Gord- on Walker, sem á sæti í skuggastjórninnj (Shadow cab- inet) og var utanríkisráðherra efni flokksins. Hann féll í Smethwick-kjördæmi í Liver- pool. Um 36 milljónir manna voru á kjörskrá og neyttu um 76% kosningaréttar síns. Veður spiliti kjörsókn sums staðar og var hún öllu minni en f almennu þingkosningunum 1959. Þegar atkvæði höfðu verið Kosygin forsætisráðherra Seint hefði því verið spáð, að það ætti fyrir Alexei Kosygin að liggja að verða æðsti maður Sovétrfkjanna og þótt hann taki nú við embætti forsætisráð- herra er ekki talið, að hann sé sjálfur hinn eiginiegi valdamað- ur. Hann er slíkur persónuleiki, kaldur embættismaður, sem vart hefur getað barizt til forustu- hlutverks. Má þvf ætla að það sé Breshnev sem er aðalvalda- maðurinn og e. t. v. standa Suslov og Mikoyan að baki Kosygins. Aiexei Kosj gin er fæddur 1904 í Leningrad, sem þá hét Pétursborg. Faðir hans var iðn- verkamaður og sjálfur gerðist Kosygin verkamaður f vefnaðar verksmiðju á fyrstu árum bolsé vismans. Hann vann sig upp sem verkstjóri og síðan sem fram- kvæmdastjóri verksmiðju, þang- að til hann komst undir vernd- arvæng Mikoyans og reis upp til æðri'virðinga. Það er um það leyti, sem Stalin er að framkvæma hreins- anir sínar fyrir stríð, sem Kosy gin fer að starfa á æðstu stöð- um sem skipuleggjandi iðnaðar- mála og jafnan sem liðsmaður Mikoyans. Eftir að Krúsjeff komst til valda gerði hann Kosygin að yf irstjórnanda mikillar skipulags- byltingc. í rússneska iðnaðin- um, þar sem yfirstjórn iðnað- arins var dreift f stað þess að láta alla tauma koma saman f Moskvu. Þessi breyting tókst ekki sérlega vel og var um tíma talið að Kosygin væri í ónáð hjá Stalin. Hann hélt þó stöðu sinni í innsta hringnum. Kosygin er sagður kaldur og jafnvel er sagt, að hann sé mjög skapstyggur maður, geti ekki stjórnað skapi sínu. Hann er ekki talinn frumiegur, helztu hæfileikar hans eru taldir að hann geti framkvæmt fyrir- mæii annarra. Hann er dæmi- gerð persóna skrifstofumanns- ins, sem reiknar og stjórnar og gefur fj’rirmæli, en kann ekki að finna neina sérstaka gleði í lífinu. Leonid Breshnev verður valdamesti maðurinn Leonid Breshnev er einn af yngstu mönnunum í innsta hring rússneska kommúnista- flokksins. Hann hefur risið upp til valda sem skjólstæðingur Krúsjeffs og vitað var af um- mælum Krúsjeffs sjálfs, að hann myndi helzt kjósa hann fyrir eftirmann sinn. Þrátt fyrir það benda fréttir nú til þess, að Krúsjeff hafi ekki sjálfviljugur afsalað völdunum í hendur Breshnevs, heldur hafi þessi skjólstæðingur hans nú verið aðalmaðurinn í eins konar sam- særi gegn honum. Breshnev er Ukrainumaður, fæddur 18. desember 1996. Fað- ir hans var verkamaður. Ilann stundaði nám fyrir strfð í verk- fræði og starfaði í Dnepropetr- ovsk, þar sem eitt stærsta raf- orkuvar Rússlands er. Hann var pólitískur fulitrúi með Ukrainu- her á striðsárunum og eftir stríð h ieigðist hann æ meir til þátt- töku í stjórnmálum. Það var fyrst 1952 sem hann var kosinn varafuiitrúi í miö- stjórn flokksins og þegar Krús- jeff gekk milli bols og höfuðs á gömiu kommúnistaleiðtogunum 1957, var Breshnev einn helzti stuðnir.0smaður hans í þeim á- tökum og varð þar á eftir með- limur f miðstjórn flokksins. 7. maí 1960 tók hann víð þjóðhöfðingjastöðu sem forseti Sovétríkjanna og gegndi henni þar tii fyrir fáum mánuðum. Var talið að völd hans Iiefðu nokk- uð dvínað meðan hann gegndi forsetac-’.bættinu. Áður var Frol Koslov talinn iíkiegasti eftirmaður Krúsjeffs, en hann v'iktist í maí 1933 og var skömmu síðar farið að líta á Breshnev sem hinn líklega rík iserfingja. 15. júlí sl. urðu stöðuskipti. Mikoyan tók við forsetaembætt inu, en Brcshnev sneri sér að flokksstarfi. Ekki var með fullu vitað, hvaða stööu hann hafði, en hann var vfða áberandi sem fulltrúi kommúnistaflokksins, hann var t. d. viðjtaddur, þegar lík ítaiska kommúnistaforingj- ans Togliattis var flutt tii flug- vélar 22. ágúst og hann var einn ig aðalfulitrúi Rússa við 15 ára afmælishátíð Austur-Þýzka- lands. Breshnev er fremur hávaxinn maður Oo kraftaiega byggður I-Iann er mikili samkvæmismað- ur, gamansamur og góður ræðu maður. Hann verður nú foringi kommúnistaflokksins og hefur sýnt sig áður, að það er ennþá valdameira embætti en embætti forsætisráðherra. Má e. t. v. líta á hann sem yaldamesta mann Sovétríkjar.na í dag. talin í 420 kjördæmum hafði íhaldsflokkurinn fengið 175 kjörna og tapað 44 þings^etum, Verkamannafiokkurinn fengið 243 og uni.Ið 47, Frjálslyndir fengið 2 menn kjörna og tapað 2 þingsætum. I þeim 200 kjördæmum sem úrslit voru ókunn í snemma í morgun var miklu vafasamara um fylgisaukningu jafnaðar- manna en þeim, sem talið hafði | verið f og er það ein megin á- | stæðan fyrir, að enn getur eitt hvað óvænt gerzt, eins ög t.d. það að Verkamannaflokkurinn sigraði svo naumlega, að hann hefði ekki nægilega öruggan meirihluta nema hann gæti fengið hann smátt og smátt í aukakosningum. En veik stjórn á líka á hættu að tapa f auka- kosningum, eins og sagt var f fréttaauka*í brezka útvarpinu. Framh. af 1. síðu: kínverska fréttastofa birti frétt- ina án umsagnar, en í brezka útvarpinu var sagt, eftir að rak- inn hafði verið farinn ferill Krús évs og farið um hann viðurkenn- ingarorðum, að svo hefði virzt sem hann hefði ekki í seinni tíð haft jafnöruggt taumhald á sov- ézkum málum og fyrr, en það sem mesta athygli hafi vakið út á við á síðari hluta valdatíma hans hafi verið deilan við Kfn- verska leiðtoga og þýðam í köldu styrjöldinni við vestrænar þjóð- ir. Brezka útvarpið segir, að sov- ézku þjóðinni hafi ekki verið sögð tíðindin fyrr en kl. 2 í nótt eftir sovézkum tfma, én f Moskvu vakti það mikla athygli, að kvöldútgáfa Isvestia kom ekki út á réttum tíma, og var það talið boða, að mikilla tíð- inda væri að vænta. Um kvöldið þótti það sæta nokkrum tíðind- um, að stórar myndir af Krúsév, sem settar höfðu verið upp á hátíðasvæðinu til að fagna geim- fluginu á dögunum, voru teknar niður. Síðar fréttist, að Adzhubei ritstjóri Isvestia, tengdasonur Krúsévs. hefði látið af ritstjóra \ störfum. Talið er, þótt ekki sé það op- inberlega staðfest, að miðstjórn Kommúnistaflokksins hafi sam- þykkt lausnarbeiðni Krúsévs einróma og þá tillögu hans, að Leonid Brezhnev yrði valinn eft- irmaður hans sem flokksleiðtogi. Æðsta ráðið kom samart á fund og kaus Alexei Kosygin fyrsta varaforsætisráðherra forsætis- ráðherra í stað Krúsévs. Nikita Krúsév hefir að undan- förnu vérið sér til heilsubóta suður við Svartahaf og var ekki kunnugt í gærkvöldi, hvort hann væri þar eða kominn aftur til Moskvu. Neyddur til að segja af sér. Ekki verður enn neitt sagt um það með vissu, sem tilgátur hafa komið fram um í fréttum bandarískra fréttámanna, að Krúsév hafi verið knúinn til þess að biðjast lausnar. í Moskvu var farið að siast út hvað til stæði, áður en til- kynning var birt frá Tass- fréttastofunni um iausnarbeiðn ina, og jafnvel áður en sovézku þjóðinni var sagt í útvarpi hvað gerzt hafði, var farið að taka niður myndir af Krúsév í opin- berum byggingum og gistihús- um. Hafði misst tökin. Brezka útvarpið sagði um Krúsév, að hann hefði verið valdamest-i maður Sovétríkj- anna allt frá því misseri eftir að Stalin lézt. Minnt var á hverja furðu það vaktj út um altan heim, er hann afneitaði Stalin. Brezka útvarpið kvað hann hafa fengið það mikla hlut verk á hendur, að endurvekja siðferðilegan þrótt íbúa Sovét- ríkjanna og sjálfsvirðingu þeirra og tekizt það, en margt hafi bent til, í seinni tíð, að hann hafi misst að nokkru taumhaldið á meðferð sovézkra mála. Yfirleitt er farið varlega í umstagnir urn lausnarbeiðnina og orsakir hennar, og flest af því. sem sagt er byggt á get- gátum, en því er spáð að lausn- arbeiðnin muni hafa mikil á- hrif í löndurn kommúnista, ekki sízt í Austur-Evrópu, þar sem séu leiðtogar, sem eigi Krúsév veg og völd að þakka. Sendisveinn óskast Röskur piltur eða stúlka óskast til léttra sendiferða fyrrihluta dags. HANNES ÞORSTEINSSON, heildverzl. Hallveigarstíg 10 . Sími 24455

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.