Vísir - 01.12.1964, Side 5
V í SIR . Þriðjudagur 1. desember 1964.
ÚtlÖíld í
•moí’gmi
utlönd i morgun
útlönd í-morgun utlönd í morgun
Frimerki, islenzk og erlend, frímerkjaaibúm,
merkjapakkar, kílóvara fjölbreytt úrval.
Allt fyrir frímerkjasafnara.
FRÍMERKJ AMIÐSTÖÐLN
Týsgötu 1 Sími 21170
Kornverðið
lækki í
júií 1967
Belgíska fallhlífarliðið komið heim
Efnahagsmálaráðherra Vestur
Þýzkalands Kurt Schumuecker
lýsti yfir því á ráðherrafundi
Efnahagsbandalagsins í gær i
Briissel, að stjórn V.-Þ., væri
fús til þess að fallast á sam-
eiginlega verðlækkun á komi i
EBE-löndum frá 1. júlí 1967.
Vestur-þýzka stjórnin hyggst
þannig lækka kornverðið hjá
sér (og bæta bændum það upp).
en kornverð er hærra í V.-Þ.
en í öðmm EBE-löndum
Belgiska fallhlífaliðið er komið
heim. Hefir þannig verið afsann-
aður áróður kommúnista, sem hafa
haldið því fast fram, að um hern-
aðaraðgerð hafi verið að ræða af
hálfu Belga og Bandaríkjamanna,
að senda fallhlífaliðið, en það mun
hafa bjargað að minnsta kost'i
2000 manns — ef til vill fleirum
— og er lokið var við að bjarga
þeim, sem bjargað varð með þess
aðstoð, var lið'ið sent heim eins
og í upphafi var lofað.
Sjálfsagt hefði það komið sér
vel fyrir aðþrengt lið stjómar
hersins í Stanleyville, að geta haft
fallhlífal'iðið sér tli hjálpar við að
verja flugvöllinn þar, en það var
ekki þess þlutverk, heldur að
bjarga mannslífum. Og enn er ver-
ið að bjarga lífi hvítra manna í
tugatali í Kongó, fólki, sem fali-
hlífaliðið náði ekki til. Hersveitir
stjómar'innar í Leopoldville björg-
uðu seinast í gær 44.Evrópumönn
um. Þeir segjast hafa verið lamdir
og sætt hörkulegri meðferð hiá
uppreistarmönnum, sem m. a. haci
hótað að drepa börn þeirra.
Uppreistarmenn héldu, er síðast
fréttist, uppi harðri skothríð á
flugvöllinn I Stanleyville var búið
að loka honum fyrir ailri venju-
legri flugumferð. Flugvél sem í
gær var á leið þangað með mik-
ilvægan skotfærafarm, var snúið
við á miðri leið.
í neðri málstofu brezka þingsins
var samþykkt tillaga um skjótar
aðgerð’ir af hálfu stjórnarinnar til
þess að bjarga brezku fólki í
Kongó. Áður en tillagan var sam-
þykkt hafði verið lýst yfir if
hálfu stjórnarinnar, að ekki væri
framkvæmanlegt að senda í því
skyn'i leiðangur sem hinn belgisk-
bandaríska, sökum þess hve dreifð,-
ir Bretar væru í Kongó.
Baldvin (Boudoin) konungur og
Fabiola drottning voru viðstödd
komu fallhllfaliðsins til Briissel i
morgun. I dag gekk það í fylking-
um um götur borgarinnar og var
vel fagnað af almenningi.
Skáldsagan KARLOTTA LÖVENSKJÖLD eftir Selmu
Lagerlöf i þýðingu Arnheiðar Sigurðardóttur.
Selma Lagerlöf er mikilsvirtur höfundur og samdi fjölda skáld-
rita á langri ævi. Fjölmörg verka hennar hafa verið þýdd á
íslenzku, þeirra á meðal Gösta Berlingssaga og Jerusalem. í
skemmtilegu viðtali við skáldkonuna, sem birtist í sænsku dag-
blaði sama árið og hún andaðist, víkur hún að því i gaman-
sömum tón, hversu sumar af sögupersónum sínum hafi reynzt
sér baldnar og óstýrilátar við nánari kynni og samskipti. Nefnir
hún þar fremstan í flokki Karl Arthúr, sem lesendur eiga nú
fyrir höndum að kynnast í sögunni um Karlottu Lövenskjöld.
Karlotta Lövenskjld er stórbrotin ættar- og ástarsaga.
Afgreiðslustúlka
Stúlka óskast til afgreiðslustarfa í matvöru-
verzlun, helzt eitthvað vön. Sími 11851 kl.
5—7.
Skoda varahlutir
Kveikjur, platínur, hraðamælar, rafgeymar,
rafgeymasambönd kertaþráðasett vatnsþétt,
fiautur, viftureimar, ioftmælar.
SMYRILL . Laugavegi 170, sími 1-22-00
Veiting prestakalla — Aðstoð við fatlaða
í gær voru fundir í báðum deild
um Alþingis.
í efri deild voru 3 mál á dag-
skrá, þingsköp Alþingis aðstoð við
fatlaða og frv. um ferðamál til
3. umræðu. í neðri deild voru
5 mál á dagskrá, en aðeins 2
þeirra voru tekin fyrir eða veiting
prestakalla til 1. umræðu og frv.
um Ieiklistarstarfsemi áhuga-
manna var afgreitt til efri deildar.
VEITING PRESTAKALLA
Benedikt Gröndal mælti fyrir
frv. um breytingar á lögum um
veitingu prestakalla. Er frv. þetta
komið frá menntamálanefnd, sem
flytur það samkv. ósk dóms- og
kirkjumálaráðherra. Áður hefur
verið skýrt frá frv. þessu hér i
blaðinu, en höfuðefni þess er á
bá lund, að lagt er til að prests-
•osningar verði lagðar niður, en
staðinn koml kjörmenn, sem
;ru sóknarnefndarmenn og safn-
aðarfulltrúar, sem kjósi þá prest-
inn.
Sigurvin Einarsson tók næstur
til máls og sagði hann, að undir-
tektir almennings við þetta frv.
væru harla litlar
að Alþingi
hefði engar upp
lýsingar um
skoðun almenn-
ings á frv. sem
gerði ráð fyrir að
kosn-
til að
prest væri
afnuminn. Frumvarpið væri mjög
ólýðræðislegt og hann spyrði,
hvers vegna sporið væri ekki stig
ið til fulls og prestskosningar af-
numdar með öllu. Hér ætti vilji
safnaðarmeðlima að víkja fyrir
vilja örfárra kjörmanna biskups
og ráðherra. Að lokum sagðist
hann álíta að ef skerða ætti það
frelsi sem nú ríkti innan kirkjunn
ar væri stigið stórt spor aftur á
bak.
Kirkjumálaráðherra, Jóhann Haf-
stein. hóf mál sitt á því að gera
grein fyrir frv.
væri fram komið
og hvernig það
en sagðist síðan
vera sammála
Sigurvin að af-
greiða ætti mál
ið á þessu þingi,
á hvaða hátt
sem það yrði, til
að ekki væri sí-
fellt verið að
ræða málið og
gera um það
samþykktir á kirkjufundum.
Þá sagðist hann ekki vilja leyna
því, að hann væri þeirrar skoðun
ar að afnema bæri prestskosning-
ar. Hins vegar væri hann ekki
viss um, að þessi millileið sem
valin væri í frv. væri rétt leið.
Mikið hefði verið talað um lýð
ræði í þessu sambandi, og það
væri svo sem ósköp fallegt að
tala um lýðræði og að söfnuðirn
ir fái að kjósa sinn prest En bæði
væri það, að oft hefði þetta lýð-
ræði verið misnotað og hvaða lýð
ræði væri það, að þeir sem fengju
kosningarrétt stuttu eftir prests-
kosningar, en þessi prestur sæti
e.t.v. í 40 ár án þess að þeir gætu
haft þar nokkur áhrif á. Það værí
ekkert lýðræði að fá ekki að ráða
því hve lengi prestur situr 1 lok
ræðu sinnar vék hann að öðrum
málum, sem komið höfðu frá
kirkjuþingi og þá einkum stofnun
kristnisjóðs. Sjóður þessi á að
vera til að launa guðfræðikandí-
data, sem aðstoðarmenn í fjöl-
mennum söfnuðum svo og aðra
safnaðarstarfsmenn. Taldi ráðherr
ann mál þetta eiga mikinn rétt
á sér og væri það nú í athugun.
Seinastur tók Einar Olgeirsson
til máls. Sagði hann, að það væri
ótvíræður réttur
lútherskra safn-
aða á íslandi að
fá að ráða sín
um starfsmönn-
um alveg eins
og aðrir söfnuð
ir. Ennfremur
sagði hann, að
sporna bæri
gegn því, að ríkisvaldið sölsaði
undir sig rétt almennings og nokk
uð ríkrar embættismannatilhneig
ingar gætti hjá kirkjuhöfðingjum
við þetta frv.
Að lokum mælti hann með því,
að frv. fengi afgreiðslu á þessu
þingi.
Síðan var umræðum frestað og
málið tekið út af dagskrá.
AÐSTOÐ VIÐ FATLAÐA.
Félagsmálaráðherra, Emil Jóns-
son, lagði fram í efri deild stjórn
arfrv. dm aðstoð við fatlaða.
Samkv. þessu
frv. er gert ráð
fyrir, að skattur
sá, sem Iagður
er á hvert fram-
leitt sælgætis-
kíló og gengur
til fatlaðra,
verði hækkaður
ú 3 kr. i 3.50
og gangi hækkun þessi óskipt til
blinds fólks.
Sagði ráðherrann, að skattur
þessi, ef samþykktur yrði kæmi
að miklu gagni og mundi nægja
að svo komnu máli.
Að lokum sagði ráðherrann, að
verk og gott og hann vænti þess
verk og gott, og hann vænei þess,
að deildin tæki þessu máli vinsam
lega.
í STUTTU MÁLI.
Forsætisráðherra, Bjarni Bene
diktsson, mæltj fyrir frv. um
breytingu á þingsköpum Alþingis
í efri deild. Er frv. þetta komið
frá neðri deild og gerir ráð fyrir
að tala nefndarmanna í deildum
verði 7 í stað 5 áður. Frumvarp
um ferðamál var afgreitt til neðri
deildar. Samgöngumálanefnd fluttj
2 breytingatill við frv. sem sam-
þykktar voru, en breyttill. frá
Páli Þorsteinssym o. fl. var felld.
Þá var frv. um leiklstarstarf-
!semi áhugamanna, sem lagt var
fram í neðri deild vísað til efri
deildar. Enginn þingfundur verður
í dag.