Vísir - 08.12.1964, Side 3
☆
Kristján Aðalsteinsson, skipstjóri, frú Bára eiginkona hans, Felix yfirtollvörður og Iiaraldur Nordal, tollvörður.
í vetrarferð með Gullfossi
awcjæsss
v i s i K . PriS'judagu.
desembei 19G4.
SI. sunnudagskvöld kom Gull-
foss úr sinni annarri vetrarferð,
með 176 ánægða farþega eftir
velheppnaða ferð og lestimar
fullar af jólavarning. Ekki má
heldur gleyma jólatrjánum, en
í þessari ferð flutti Guilfoss
hvorki meira né minna, en 20
tonn af jólatrjám, m. a. Osló-
tréð sem prýðir Austurvöll yfir
hátíðarnar.
Myndsjáin í dag er tekin um
borð f Gullfossi, þegar hann lá
úti á ytrihöfn á sunnudagskvöld
og farþegarnir biðu þess að toll-
verðirnir afgreiddu skipið. —
Blaðamenn Vísis skruppu um
borð í Gullfoss á sunudagskvöld
ið f fylgd með fríðum flokki
tollvarða, sem var undir stjórn
Felixar yfirtollvarðar.
Tollvarðirnir sneru sér beint
að sínum skyldustörfum og
dreifðu sér um skipið til þess að
tollskoða hjá áhöfininni, en við
röltum um skipið og spjölluðum
við farþegana. Flestir höfðu far
ið alian hringinn með skipinu,
en auk þess höfðu nokkrir far-
þegar komið um borð í Kaup-
mannahöfn, einkum þó skólafólk
sem var að fara heim fyrir jólin
og einnig bættust nokkrir farþeg
ar við í Lith.
Fyrst lá leiðin upp í brú, þar
sem við hittum fyrir Kristján
Aðalsteinsson, skipstjóra, en
með honum í þessari ferð var
eiginkona hans frú Bára Ólafs-
dóttir. Þar voru og fyrir Felix,
yfirtollvörður og Haraldur Nor-
dal, sem var að yfirfara toll-
pappíra. Kristján sagði okkur að
þessi hringferð hafi í alla staði
gengið mjög vel, farþegarnir
samstilltir um að skemmta sér
og njóta ferðarinnar sem 1 bezt,
og auk þess hefðu nokkrir hald
ið upp á afmæli, en það er
ákaflega mikið um það nú orðið
að fólk haldi upp á stórafmæli
með því að skreppa í vetrarferð
með Gullfossi.
GuIIfoss fer alls 8 vetrarferð-
ir og er þegar fuiibókað í nokkr
ar. í vetrarferðunum fer skipið
fyrst til Hamborgar og hefur
þar eins dags viðdvöl og siglir
síðan til Kaupmannahafnar, en
þar liggur skipið í 4—5 daga.
Farþegarnir búa i skipinu á með
an, en m. a. eru skipulagðar ferð
ir fyrir þá út á Sjáland og einn
ig um íslendingaslóðir i Höfn.
Gullfoss fer i næstu hringferð
11. desember.
Þessar blómarósir sungu og skemmtu sér frammi á gangi á meðan þær biðu eftir þvi að Gullfoss sigldi
upp að bryggju, en þá fóru þær út á þiifar og sungu„Nú er frost á Fróni“ Ljósm. Vísis B.G.
isleifur Þorkelsson, innheimtum. og frú. Margir vallargestir kannast
við ísleif, þar sem hann hefur verið dyravörður í mörg ár. ísleifur
hélt upp á fimmtugsafmælið með því að fara í vetrarferð með Gull-
fossL
Hremn Pálsson, forstjóri Oiiuverzlunarinnar og frú voru meðal farþega í síðustu vetrarferð.