Vísir - 08.12.1964, Síða 16
Þriðjudagur 8 desember 1964
Reikniheilanum komið fyrir i nýju húsi
Eðlisfræðistofnunarinnar
Ekki reiknað með að hann verði látinn
draga i happdrættinu
Reikniheilinn, sem Framkvæmda
bankinn gaf Háskóianum, er nú
kominn á sinn stað í nýju húsi Eðl
isfræðistofnunar Háskólans fyrir
vestan Suðurgötu. Þangað var hann
fluttur í gær og komið fyrir í 50
fermetra herbergi í kjallara húss-
ins. Áætlað er, að heilinn verði
kjarni væntanlegrar Reiknistofnun
ar Háskólans og mun Magnús
Magnússon prófessor stjórna þeirri
stofnun.
. Reikniheilinn er af gerðinni IBM
-1620 model 2, og reiknar hann
fjórum sinnum hraðar en heilinn,
sem var hér í vor, en hann var af
gerðinni IBM-1620 model 1. Ottó
Michelsen hafði þann heila hér
sem sýnishorn í nokkrar vikur.
Ekki er ákveðið, hvaða verkefni
heilinn fær í fyrstu, og hefur enn
ekki verið neitt afráðið um, hvort
hann verður notaður til að draga
út í Happdrætti Háskóla íslands
eins og stungið hefur verið upp á.
Magnús Magnússon prófessor seg-
ir, að það sé örugglega hægt að
nota hann til þess, en töluverð
vinna yrði í fyrstu við að undir-
búa heilann. Ráðgert er, að fljót-
lega hefjist námskeið, þar sem verK
fræðingar frá ýmsum stofnunum,
svo sem Raforkumálaskrifstofunni,
Veðurstofunni og Atvinnudeild Há-
skólans, læri meðferð heilans, en
þessar stofnanir eru allar með verk
efni, sem þær vilja gjarna láta
heilann um að leysa. Þá er og
líklegt, að heilinn verði fljótlega
notaður við að reikna út almanak-
ið, sem Þjóðvinafélagið gefur út.
Myndin er tekin, þegar reikniheilinn hafði verið tekinn úr kössunum. Frá vinstri: Þórhallur Einarsson,
Ragnar Ingimarsson, Helgi Sigvaldason, Oddur Benediktsson og Magnús Magnússon prófessor.
Stofnun samtaka til kaupa
á húsi Davíðs í athugun
— segir Þórarinn Björnsson, skólnmeistari
Þórarinn 'Björnsson, skóla-
meistari á Akureyri, sagði i við
tali við Visi í morgun, að for-
vígismenn hinna 1400 borgara
á Akureyri, sem birtu áskorun-
ina um hús Davíðs skálds Stef
ánssonar, hefðu nú til athugun-
ar í sinn hóp að gangast fyrir
stofnun samtaka, er kaupi hús
skáldsins, svo að hægt sé að
varðveita allt þar eins og það
er. Skólameistari sagði að leitað
myndi verða til þjóðarinnar allr
ar, yrði stofnað til samtaka á
annað borð, sem frekar var á-
honum að heyra, en þó væri
sérstaklega heitið á Akureyringa
og aðra Eyfirðinga sem fengið
hefðu að njóta Davíðs öðrum
fremur um hans daga.
Skólameistari taldi að i samn
ingnum sem bæjarstjórn Akur-
eyrar hefir gert myndi vera kveð
ið á um það að safnið verði flutt
úr húsi skáldsins fyrir 1. febrúar
n. k. Væri því lítill tími til
stefnu í sambandi við þá hug-
mynd að kaupa húsið, svo að
hægt yrði að varðveita bóka-
safnið'-og alla muni skáldsins
þar. Af þessum sökum m. a.
þyrfti að hraða aðgerðum í
þessu máli.
Að lokum er þess að geta, að
á mjög fjölmennum fundi ey-
firzkra bænda, sem haldinn var
á Akureyri í gær, ávarpaði Þór-
arinn Björnsson bændurna og
hét á þá til fulltingis í þessu
máli og að láta ekki sitt eftir
liggja, ef samtök yrðu stofnuð.
Bændur tóku undir þessa hug-
mynd með dynjandi lófataki.
Björn á Löngumýri
í deilu við KEA
Húni II. metinn niður um 1,3 millj. kr.
Á laugardaginn var Húni II
metinn á vegum yfirborgardóm-
ara, þar sem deila hefur risið
upp milli eigenda skipsins og
skipasmíðastöðvarinnar um verð
skipsins. Var skipið metið á
1,3 milljónum króna Iægri upp-
hæð en skipasmíðastöðin hafðis>
rukkað eigendur um.
Aðaleigandi Húna II er Björn
Pálsson, alþingismaður á Löngu-
mýri, en Skipasmíðastöð Kaup-
félags Eyfirðinga smíðaði1 skip-
ið. Kostnaður við smíðina varð
meiri samkvæmt reikningum en
Björn taldi eðlilegt, og fór mál-
ið í mat, þegar KEA vildi inn-
heimta eftirstöðvar kaupverðsins.
Ekki er enn vitað, hvort KEA
fellst á niðurstöður matsins og
lækkar reikninginn, eða hvort
málið fer í yfirmat og málaferli.
Björn mun einnig telja, að af-
hending skipsins hafi dregizt um
marga mánuði frá þeim tíma,
sem um var samið, og beri
skipasmíðastöðinni því að greiða
skaðabætur vegna aflatjóns báts
ins, en hann varð mjög síðbú-
inn á aflasæla síldarvertíð í
fyrrasumar.
Norræna
skíðagangan
Norræna skíðagangan hefsl
annað kvöld, 9. des. kl. 8 á tún-nu
við Hálogaland. Skíðadeild KR.
sér um gönguna annað kvöld. AIl-
ar upplýsingar um gönguna veitir
formaður göngunefndar Lárus E.
Jónsson, Háteigi 4.
Skíðakennsla verður fyrir börn á
Arnarhólstúni í kvöid frá kl. 8—9.
16 dagar
til jóia:
Jólin nálgast óðum og jóla-
trén „spretta upp“ í öllum bæj
arhverfum ungum og gömlum
til yndis og gleði. Jólatréð á
þessari mynd er á Miklatorpi
og var myndin tekin í morgun
af svölum húss i grenndinni.
í baksýn er Reykjavikurflug-
völlur. (Ljósm.: I.M.)