Vísir - 11.12.1964, Síða 6

Vísir - 11.12.1964, Síða 6
6 ■nr VÍSTR FösTiidagur H. desember 1964. Jakob — Frapih. at bls 1 x. ustu árin, var f vexti fram að 1962. -Virtist hlutur íslenzka stofnsins tiltölulega lítill í heild arútkomunni á sumarsíldveið- um 1963 og 1964, og í haust virtist mjög lítið síldarmagn vera út af Suður- og Suðvestur- landi. Þetta má fullyrða vegna þess að mikið var leitað þar að síld. Hefir síldin þá gengið á önnur svæði, og hvar eru þau þá? Um það er enn ekki hægt að fullyrða, en þó svo væri þarf það ekki að vera varanlegt þar eð alltaf koma síldarleysisár, sem ekki er hægt að skýra til fulls hverju sinni. Eða stafar síld arleysið syðra nú beinlínis af því að gengið hafi verið óeðli iega mikið á íslenzka stofninn? Sú spurning er mjög alvarleg og verður tekin til sérstakrar yfirvegunar, reynt að ganga úr skugga um hvort um ofveiði geti verið að ræða seinustu ár in, sagði Jakob Jakobsson. Austurlandssíldin: Um hana sagði Jakob eftirfarandi: Vetur setustöðvar norsku síldarinnar eru þarna djúpt út af Austfjörð um eins og sakir standa, hún safnast þarna saman þegar ætis tímabilinu lýkur seint í septemb er, f vesturjaðrinum á Austur- fslandsstraumnum. En búizt er við að meginhluti þessa norska síldarstofns út af Austurlandi hrygni við Noregsstrendur í marz í vetur og er þvf ekki ó- Ifklegt að þessi síld taki að fjar lægjast landið upp úr áramót um og síldveiðin eystra fari þá að minnka. Þó gæti hún orðið lengur fram eftir vetri, a.m.k. er gífurlegt síldarmagn eystra ennþá, enda fer norski stofninn vaxandi. Veguóætflun — ~ tramn -u ois i þörf er á hraðbrautum út frá Reykjavík á næstu árum. Gert er ráð fyrir samkv. áætluninni, að þjóðbrautir verði alls 2961 km eða 31,5% af öllu vegakerf inu. Mestur kostnaður við ein- SKIPAFRÉTTm SKIPAUTGCRÐ RÍKISINS Ms. Skjaldbreið fer vestur um land til Akureyrar 15. þ.m. Vörumóttaka í dag og ár degis á morgun til áætlunarhafna við Húnaflóa.^og Skagafjörð, Ólafs fjarðar og Dalvíkur. Ms. Skjaldbreið fer vestur um land 15. þ.m. Vöru móttaka á mánudag til Ólafsvíkur, Grundarfjarðar, Stykkishólms og Flateyrar. staka vegi er við vegina uin Múla til Ölafsfjarðar, sem ljúka eigi á næsta ári, svo og vegur til Siglufjarðar, sem lokið verði 1966. Landsbrautir samkv. á- ætlun verða 6272 km. eða 67% af vegakerfinu og aðal- fjallvegir eru 444 km. Um brúargerð segir, að til stórbrúa séu áætlaðar 53 millj. alls og verði væntanlega hægt að byggja 12 brýr fyrir það fé. Mikið verkefni sé þó fram und- an því 9 stálbrýr 35 — 65 ára gamlar, sem þurfi að endur- byggja, séu í notkun, auk all- margar óbyggðra. Ár á þjóð- vegum sem yfir þurfi 10 m. brýr eða lengri eru 69 og á sýsluvegum 54. Smábrýr sem vantar eru 254. í kaflanum um véla og áhalda kaup vegagerðarinnar segir, að vélakostur hennar sé orðinn all- bágborinn. Fjárveiting til véla- kaupa næstu 4 ár er áætluð 76,6 millj. og verður varla nægi legt til að endurnýja vélakost. Vegir með varanlegu slitlagi eru aðeins 0.4% af öllu þjóðvega- kerfinu. Sé hins vegar á það litið, að aðeins sé stefnt að því, að hraðbrautir og þjóðveg- ir í þéttbýli verði lagðir varan legu slitlagi, þá sé nú komið slitlag á 16,4% þessara vega. Að lokum skal þess getið, að akfærir þjóðvegir á landinu munu vera um 8759 km. Engin skip — Framhald af bls. 1 söltunarstöðvarnar fyrir sunnan standa auðar. Sturlaugur Böðvarsson, fram- kvæmdastjóri á Akranesi, sagði blaðinu, að flutningarriir með Höfrungi III virtust ætla að ganga vel, en hann er með 2200 tuunur leið; tii Ál«%nesá. Stur laugur ságðí, að H. -Ö. væru með fjðra báta fýHr laustah. M ekftí væri enn vitað, hvort meira yrði flutt suður af síldinni. Nú væri að koma slæmt veður eystra og ekki búizt við veiði í nótt, svo Sturlaugur reiknaði ekki með meiri síld til Akraness að sinni. Gunnar Flóvenz, framkvæmda stjóri Síldarútvegsnefndar, sagði blaðinu, að sölturiin fyrir austan væri lítilfjörleg miðað við alla þá samninga, sem gerðir hafa verið um sölu á saltsíld í vetur. Meðan stæðu auðar á S-vestur landi stöðvar, sem gætu saltað 20—25.000 tunnur á dag, og væri illt til þess að vita. Fyrir austan væri svo mikil mannekla, að Iítið brot af síldinni væri salt að, þótt megnið af henni væri fyllilega söltunarhæft. Fram að þessu hafa verið saltaðar fyrir austan 5—8000 tunnur upp í Suðurlar.dssamninga. Segist Gunnar mundu fagna öllum til- raunum útvegsmanna til að flytja síldina í vinnslu til Suð- vesturlands. Vilhjálmur Guðmundsson, fram kvæmdastjóri Síldarverksmiðja ríkisins, sagði, að verksmiðjurn- ar hefðu ekki gert ráðstafanir til að afla síldarflutningaskipa eins og á sumrin. Til þess þyrfti nokkurn fyrirvara og siglingin til Islands er löng, á meðan ve’iðihorfurnar fyrir austan eru mjög ótryggar á þessum tíma árs. Hins vegar sagði Vilhjálm- ur, að verksmiðjurnar hefðu verið standsettar. Reyðarfjarð- arverksmiðjan átti að byrja að bræða í morgun og Seyðisfjarð arverksmiðjan í dag, báðar með fullum afköstum, eða um 7000 mál á dag. Svo er Raufarhafn- arverksmiðjan tilbúin, ef hinar hafa ekki undan. Sami uppgripaafli var á Aust- fjarðamiSum í nótt sem leið og var um 8 leytið kunnugt um afla 17 báta, sem höfðu fengið samtals 17.500 tunnur eða 1000 tunnur á bát að meðaltali og telst það mok afli hvort heldur er á sumar- eða vetrarvertíð. Veður spilltist er Ieið á nóttina. Allmargir bátar munu hafa verið að losa, og berst mikið til Aust fjarðahafnanna, til Fáskrúðsfjarð- ar í fyrradag 10.000 mál af 9 skip um, en frá 1. des. hafa borizt þang að 25.000 mál í bræðslu og 3000 til frystingar. Afli 33 skipa í fyrrinótt reyndist um 40.000 mál. Til Neskaupstaðar komu 14 skip með 14.200 mál. Þessir bátar fengu síld í nótt: Haraldur 1200, Súlan 950, Hrafn Sveinbjarnarson 1200 Helgi Fló- ventsson 1700, Grótta 1200, Reykja nes 900, Snæfugl 1500, Sæhrímnir 1300, Eldey 900, Þorbjörn II. 1000 Pétur Sigurðsson 700, Kristján Val geir 600, Helga Guðmundsdóttir 1300, Hilmir 400, Jón Kjartansson 700, Sigfús Bergmann 500 og Við- ey 1000. manninn hafa verið ungan, háan og grannvaxinn. Er hann hafði rænt töskunni, tók hann á sprett inn í húsagarð og þaðan voru spor hans rakin yfir garða og girðingar og yfir á Sjafnargötu. Þar hurfu sporin í troð’inni slóð og urðu ekki rakin lengra. Leidrétting Á mynd á forsíðu í gærdag af skíðalandsgöngunni, urðu þau mis tök að annar maður frá vinstri á myndinni var talinn vera Einar B. Pálsson, verkfræðingur, en það var ekki rétt, því að sá maður er Stef án G. Björnsson, forstjóri Sjóvá- tryggingafélags Islands og formað ur Skíðafélags Reykjavíkur. Leiðréttist þetta hér með og eru hlutaðeigandi aðilar beðnir vel virðingar á þessum mistökum. Framh. at bls. 16 Hraðkeppnismót Þróttar: Vinnur tmnað hvort liBanna úr Hafnarfírðinum í kvöld? Hraðkeppnin í handknattleik í gærkveldi, sem haldin er í tilefni af 15 ára afmæli Þróttar, færði tvö Reykjavíkurlið og tvö Hafnarfjarð arlið í undanúrslit, þ.e. KR og Árm. og Hauka og FH, en Valsmenn sátu hjá í fyrstu umíerð og kom ast því heldur rólega í úrslitin. FH hafði heppnina með sér í gær þeg- ar dregið var, situr hjá í 2. um ferð. Leikimir í gær voru allsæmilegir á að horfa, en enginn þeirra vannst þó með mjög litlum mun, en úrslit urðu sem hér segir: KR — Fram 9:4 FH — ÍR 18:11 Haukar — Þróttur 10:5 Ármann — Víkingur 9:6 Þess skal getið, að Fram sendi 2. fiokk sinn lítið styrktan eldri mönnum og stóð flokkurinn sig vel gegn nýbökuðum Reykjavíkur- meisturum KR. Hafnarfjarðarliðin stóðu sig vel í gær og virðist ekki ólíklegt að annaðhvort þeirra eða jafnvel bæði keppi um sigur í mót inu. í kvöld fara fram þessir leikir: Valur — Haukar KR — Ármann FH situr hjá. Heimdragi Fyrsta bindi nýs safnrits fyrir ís- lenzkan fróSleik, gamlan og nýjan, eftir ýmsa höfunda og víSs vegar af landinu. Kristmundur Bjamason safnaíSi efninu. sem er fjölbreytt og skemmtilegt. — Kr. 325.00 ib. Reimleikar Ámi Óla gerir í bók þessari skil all- mörgum kunnum íslenzkum fyrir- bærum, sem eru af sama toga spunn- in og hin alþjóðlegu ,,Poltergeist“- fyrirbæri. Þetta eru sannfróðar frá- sagnir af frægustu reimleikum á Is- landi, s.s. Hjaltastaðafjandanum, Núpsundrunum, Garpsdalsdraugn- um o. fl. — Kr. 265.00 ib. Lífsorrustan Ný, stór skáldsaga eftir Óskar Aðal- stein. Fyrst og fremst er þetta saga um MANN og KONU, máttugur óð- ur um ástir tveggja einstaklinga, en jafnframt hárbeitt ádeila á flokka- vald og stjórnmálaspillingu. — Kr. 280.00 ib. Neyðarkall frá norðurskauti Ný, æsispennandi skáldsaga eftir Alistair MacLean. Af fyrri bókum höfundarins fást enn Byssumar í Navarone og Til móts vi‘8 gullskipið. — Kr. 265.00 ib. Brúðarleit Hörkuspennandi skáldsaga eftir Leslie T. White. Mjög sambærileg við hinar vinsælu sögur Shellabar- gers, Sigurvegarann frá Kastilíu og Bragðaref. — Kr. 185.00 ib. Sígildar sögur Iðunnar I’ bókaflokknum Sígildar sögur IS- unnar birtast einvörðungu víðfrægar sögur, sem um áratuga skeið hafa verið vinsælasta lestrarefni fólks á öllum aldri. Nú eru nýkomnar út Skytturnar II—III og er þar með lokið útgáfu þessarar heimsfrægu sögu Alexandre Dumas. Einnig er nýkomin út sagan Börnin í Nyskógum ein vinsælasta saga Marryats. Hefur hún ekki áður verið þýdd á íslenzku. Þessar þrjár bækur kosta kr. 1 65.00 hver. Aður eru komnar út í þessum bóka- flokki sögurnar Ben Húr Kofi Tómasar f/ænda fvar hlújára Skyttumar 1. IÐUNN |

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.