Vísir - 11.12.1964, Page 15

Vísir - 11.12.1964, Page 15
VlSIR . Föstudagur 11. desember 1964. I 75 WE 70N'T tCWOW WHY YET, SIR, BUT \ THE OMWÍS WANTE7 THE HUMAN HA.M7S THEY BOUSHT FRO/ATHESE 4 VAGABUN70S TO BE SMO<E-7RIER.. SO THEY C0UL7 BE ICEPT A L0W6 TI/AE! Copr. ÍML *!*« IW »uttoo«m. Uð/-Tm. »M. C. ■- T»« O*. Distr. by Unlted Feature Syndicate, Inc. THESE OMAKS EVI7ENTLY NEE7 PROOF-FOR SOMEONE, CAPTAIN TSHULU, THAT THEY > l CARRY OUT'OKPERS SIVEKI THEM. J— var komin í þeirra hóp. Ég hafði ekki ætlað mér það. Það hafði bara atvikazt þannig. Ég var sannast að segja ósköp ánægð með tilveruna. Ég var önn- um kafin, en gat skemmt mér að vild á milli, og hugurinn beindist aldrei að gömlu góðu barnstrúnni, fyrr en rétt fyrir jólin eitt árið, þegar Danny Seymour kom til mín og sagði: — Komdu nú heim með mér um jólin, ef þú hefur ekki ákveðið neitt annað. Ég starði á hann meir en lítið hissa. Danny vann við sama blað og ég. Við vorum góðir kunningjar. Við neyttum stundum hádegisverð- ar saman, ekki af því að við mælt- um okkur mót saman, heldur vegna þess, að við borðuðum oftast há- degisverð í sömu matstofu. — Herra trúr, þetta kemur sann- arlega óvænt, sagði ég — mér gat ekki dottið neitt annað í hug. — Ég býst við því, sagði Danny og brosti til mín — hann brosti manna fegurst, þegar hann vildi svo við hafa — mér datt bara í hug að þetta gæti orðið ánægjulegt fyrir okkur bæði. Komdu með, Dína. Ég fór að huglqiða á ný jóla- áætlunina mína og> ég komst nefni- lega að raun um — og var sann- ast að segja búin að komast að raun um það, þótt ég kynni vel við starfið og gæti skemmt mér að vild á milli, að ég hafði ekki eign- azt neina vini, — bara kunningja. Ég átti engan sannan vin eða vin- konu, og á jólunum hurfa allir þess ir kunningjar eins og út í buskann. Og ég vissi ekkert um hvert þeir fóru eða hvað þeir höfðu fyrir stafni. Pabbi og mamma voru dá- in og ég var ekki lengur í nánum tengslum við systkini mín og frænd fólk — eins og gengur, þegar fólk trénast upp á bréfaskriftum. Á jólum hafði mér oft verið boð- ið ,,að líta inn“ einhvers staðar. „Komdu og fáðu jólasnaps“ og þar fram eftir götunum. En ég hafði fengið nóg af slíkum boðum, Öllum stóð í rauninni á sama hvort ég kom eða ekki. Og ég var hætt gð hlakka til jólanna. Og nú mundi ég sennilega verja tímanum til að þvo mér um hárið og sýsla um það, sem ég hafði vanrækt, stoppa í sokka, gera við fötin mín, reyna að hafa allt hreint og snyrtilegt í kringum mig f jólaeinverunni. — En, Danny, sagði ég, ég er bláókunnug öllum á heimili þínu — það væri átroðningur — hvað mundi fólkið þitt halda um mig? — Vertu ekki að hugsa um það, sagði Danny. Það verður margt um manninn heima, en þar er aldrei svo þröngt, að ekki sé hægt að taka á móti einum til viðbótar. Og svo varð þetta að samkomu- lagi og við töluðum ekki meira um það, en ég hugsaði sem svo, að ég hagaði mér heimskulega, því að í rauninni þekkti ég Danny ekki að neinu ráði, og vissi ekki út á hvaða braut ég var að leggja. En svo varð ég allt f einu gripin gömlu tilhlökkuninni til jólanna. Ég varð giöð og létt f spori og ég keypti öskju með súkkulaði og einn af þessum stóru hringlaga konfekt- kössum og nokkra vindlingapakka og fleira. Ég gat ekki komið alveg með tvær hendur tómar f jólaheim- sókn, en að kaupa reglulegar jóla- gjafir kom vitanlega ekki til mála, þar sem ég þekkti þar engan — nema Danny auðvitað. Það var um hádegisbilið, sem jólaleyfi okkar beggja byrjaði og þegar ég settist hjá Danny í fram- sætið í bílnum hans, spurði ég: — Hvar á annars fólkið þitt heima, Danny? Þú hefur ekkert sagt mér það og ég kunni ekki við að spyrja. — Vestur í landi, sagði Danny. Vissirðu það ekki? Það er býsna langt þangað, svo að við skulum koma okkur af stað. Ökuferðin varð ekki sérlega eft- irminnileg. Þegar við vorum komin út úr Lundúnaborg stefndum við til vesturs sem auðvitað var og ég fór að hugleiða umræðuefni. Við höfðum alltaf haft nóg að rabba um þegar við neyttum hádegisverð ar saman, en það snerist allt um blaðið og það sem var að gerast þann og þann daginn, en ég vissi í rauninni ósköp lítið um hann. Og nú fannst mér Danny öðru vísi, dálítið hærri og kannski enn ung- legri, hann leit sannast að segja allt öðru vfsi út, fannst mér, og ég taldi mér trú um, að það væri vegna þess að hann var nánast klæddur sem þeir, sem eru að 'ara eitthvað til að iðka vetraríþróttir. — Segðu mér eitthvað um fólkið þitt, sagði ég loks. Hvað eruð þið mörg? — Og þetta er nú enginn smá- hópur, máttu trúa, sagði hann glað- lega: Pabbi, mamma, einn bróðir og nokkrar systur, og er þá fátt eitt talið. Bíddu bara og sjáðu. Hann leit til mín og brosti: — Þú þarft ekki að vera að leita að viðræðuefni. Slík leit er alltaf erfið. Hugsaðu bara um að hvílast og njóta þess, að vera komin út á landsbyggðina, og þegar svo er komið, að viðræðuefni skýtur upp kollinum fyrirhafnarlaust og af þörf skaltu masa af hjartans lyst. Mér fannst Danny ákaflega skiln- ingsgóður og fór að ráði hans. Ég man að við neyttum máltíðar ein- hvers staðar og þegar við vorum THAT'S THE TASK. TAKZAN'S W0UN7 K.EPT j US FROM COMPLETING-TARZAN THINKS, THEOMAKS ARE ONLY AGENTSf WiTH YOUR. PERIWSSION SIKVI‘LL MAKE THE .OMAKS II7EK1TIFY « 7 THEIR'BOSSES! j (XKNOWHOWTO , UAK.E THEM TALKlJ 757 komin af stað aftur sofnaði ég. Og svo man ég það næst, að Danny vakti mig af mikilli nær- færni og sagði blíðlega: — Þú verður að vakna, Dína, við erum komin. Það var orðið dimmt. Hann tók undir hönd mér og leiddi mig eftir stíg, sem runnar uxu við beggja vegna. Og allt f einu vorum við komin að aðaldyrunum á húsi, og Danny opnaði dyrnar, og það fyrsta sem ég hugsaði um var hve allt var bjart og hlýtt, og hve margt manna var þarna og allir giaðlegir og bros andi. Allir þyrptust utan um okkur og Danny sagði: — Pabbi og mamma og þið öll, þetta er Dína. .V.V.V.V.V.V.'.V.V.W.V.' SÆNGUR REST-BEZT-koddai Endumýjum gömlu sængumar, eigum dún- og fiðurheld ver. Seljum æðardúns- og gæsadúnssængur — og kodda af ýmsum stærðum DÚN- OG FIÐURHREINSUN Vatnsstig 3. Simi 18740. .w. Wólakt®isW 19<M Magnús E. Baldvinsson Við vitum ekki ástæðuna enn þá, en Ómarbræðurnir vildu hafa mannshendurnar, sem þeir fengu frá Vagabundunum reykþurrkað ar, svo hægt væri að geyma þær lengi. Þessir Omarbræður þurftu sýnilega að afla sér sannana fyrir einhverju, Tshulu kapteinn og þeir eru að framkvæma fyrirskip anir, sem þeim voru gefnar. Það er verkefnið sem sár Tarzans hindraði okkur í að Ijúka, segir Tshulu, Tarzan heldur að Omar- bræðurnir séu aðeins sendimenn. Með leyfi yðar herra þá skal ég fá Omarbræðurna til þess að I gera grein fyrir yfirmönnum sín um, ég veit hvernig ég á að fá þá til þess að taia. Laugavegi 12 . Slml 22804 Hafnargötu 35 . Keflavfk M YNDABMÓ Spi! fyrir alla — Ödýrt og skemmtilegt Börnin vilja fá Myndabingó um jólin » Fásf VÍðd Pantanir í símo 19443 M YNDABM

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.