Vísir - 09.02.1965, Qupperneq 16
VÍSIR
Þriðjudagur 9í febrúar 1965
Strokumenn
frá Gunn-
ursholti
hundteknir
á Selfossi
1 gær barst lögreglunni til-
kynning um að tveir vistmenn
hefðu strokið af hælinu í Gunn-
arsholti, en þar eru drykkju-
sjúklingar hafðir til meðferðar
og lækninga.
Var einnig haft samband við
lögregluna á Selfossi og tókst
henni að handsama flóttamenn-
ina þegar þeir ætluðu sér f gegn
um þorpið áleiðis til Reykjavík-
ur.
Mennimir voru fluttir sam-
stundis austur að Gunnarsholti
aftur.
Rolls-Royce 400 rædd / Reykjavík
Koupa Loftleiðir tvær vélur til viðbótur uf Cuitadair-flugvélaverksmiðjunni?
Fulltrúar Loftleiða og
Canadair-flugvélasmiðj-
anna sitja nú á degi
hverjum við samninga-
borðið suður á Reykja- efnið er flugvélakaup
víkurflugvelli í hinum Loftleiða, sem væntan
glæsilegu skrifstofum jeg em
Loftleiða þar. Umræðu- Loftleiðir hafa nú átt tvær
Canadair-flugvélar síðan í
haust, en fyrri vélin kom hing
að í maí s. 1. Hafa vélamar
lfkað mjög vel, bæði af far-
þegum og starfsmönnum og
Framh. ð bls. 6.
Mynd þessi var tekin f bækistöð Loftleiða á ReykjavíkurflugveHi af nokkrum fulltrúa kanadísku flugvélaverksmiðjanna
Canadair þar sem þeir vora að halda til fundar við stjóm Loftleiða og ræða við þá um möguleikana á kaupum á tveimur
risastóra faregaflugvélum til viðbótar. Á myndinni sjást talið frá vinstri: Mr. P. E. Heybrook, Mr. R. F. Conley formaður
samninganefndar og sölustjóri Canadair, Mr. R Schuttevaer frá fyrirtækinu Lockheed í Bandaríkjunum, sem sér um viðhald
Loftleiðavélanna, Mr. Max Helzel einnig frá Lockheed, Mr. F. C. Lazier frá Canadair, þá kemur Jóhannes Ámason verk-
fræðingur hjá Loftleiðum og Mr. Tommy Dance eftirlitsmaður hjá fslenzku Flugmálastjóminni.
Þing NorðurlandaráSs sett á laugardaginn
23 erlendir ráðherrar. Dagskrá fundarins rakin
Nú er allt undirbúið
undir þinghald Norður-
landaráðs í Reykjavík,
sem á að hef jast á laug-
ardaginn. Má búast við,
að fyrstu fulltrúamir
fari að koma nú á
fimmtudaginn. Dagskrá
fundahaldanna er þegar
ákveðin og þau sam-
kvæmi og fundir sem
haldnir verða.
er nú ljóst, að erlendir
sem hingað koma verða
Það
gestir
miblu fleiri en í fyrstu var áætlað.
Fyrst var talið að þeir yrðu ekki
fleiri en um 180 en nú er sýnt, að
þeir verða um 250. Virtist þessi
óvænta fjölgun ætla að skapa | hafa náðst við stúdenta sem búa I meðan og búa fleiri saman í nokkr-
húsnæðisvandamál. En svo virðist á görðunum, að þeir gangi úr rúmi um herbergjum sfnum.
sem allt hafi tekizt að leysa. Hef- fyrir erlendum gestum. Munu Fundur Norðurlandaráðs hefst
ur það m.a. orðið úr, að samn'ingar I stúdentarnir þá þrengja að sér á | með fundi formannaráðs klukk-
an sex síðdegis á föstudag.
Ekki verða þó allir fulltrúamir
mættir þá. Eftir því sem bezt er
vitað munu 23 ráðherrar af hinum
Norðurlandaþjóðunum koma hing-
Framh. á bls 6
Verðlaun ætti aðeins að veita
ungum og efnilegum mönmm
Samtol Vísis í morgun við William Heinesen
n«u. . - - *i
í morgun átti Visir simtal við
færeyska skáldið William
Heinesen, en hann býr f húsi
sínu í útjaðri Þórshafnar. Blað-
ið óskaði honum til hamingju
með verðlaun Norðurlandaráðs
og spurði hann, hvers vegna
hann kæmi ekki á fund Norð-
urlandaráðs til þess að taka á
móti verðlaununum.
— Ég get það ekki, sagði
Heinesen, af - persónulegum á-
stæðum. Ferðin tekur svo lang-
an tíma, ég þyrfti fyrst að fara
með skipi til Hafnar, síðan með
flugvél til Reykjavíkur og svo
TOLLA LÆKKUN A
VÉLUMIVÆNOUM
Á fiskiðnaðarvélum lækkar tollurinn nú í 10%
1 gær lagði fjármálaráðherra,
Gunnar Thoroddsen, fram
frumvarp á Alþingi um, að toll
ar á fiskiðnaðarvélum verði
lækkaðir um 25% eða úr 35%
í 10%. Ennfremnr sagði ráð-
herrann, að gert væri ráð fyrir
að lækka tolla á véíum og tækj
um, sem notuð væru við út-
flutningsframleiðslu og fram-
leiðslu yfirleitt. En inn í þær
breytingar hefðu snunnizt víð-
tækar breytingar á tollskránni,
og þess vegna hefði ekki verið
hægt að flytja frumv. um þær
lækkanir nú þegar.
En þar sem vertið væri nú að
hefjast og atvinnuvegunum
nauðsyn á að flytja þessar vél
ar inn nú strax, þá hefði orðið
að ráði að gera possa sérstöku
breytingu.
Sagðist ráðherrann vona, að
frumvarpið fengi skjóta af-
greiðslu á Alþingi.
aftur með sömu samgöngutækj-
um til baka. Og ég er nú að
skrifa atriði, sem ég á ekki svo
gott með að taka mig upp frá.
— Það hefur verið sagt,
Heinesen að þér væruð ef til
vill ófús á að koma á norræna
ráðstefnu vegna þess, að Fær-
eyjar fengju ekki að eiga sinn
sess þar eða fána. Er nokkuð
til í þvf?
— Ne'i, það er ekki þess
vegna. Ástæðan er einungis sú
sem ég nef:-.'.i. Hins vegar veit
ég vel um það, að það hafa
komið fyrir leiðinleg atvik,
vegna þess að sóma Færeyja
hefur ekki verið gætt á norræn-
um ráðstefnum. Ég held hins
vegar að það hefð'i ekkert komið
til greina hér. Ég fæ verðlaunin
sem danskur rithöfundur, enda
skrifa ég allar bækur mínar á
'dönsku.
— Já, þér skrifið á dönsku
líkt og Gunnar Gunnarsson?
— Nei, ekki er það nú alveg
sambærilegt, því að Gunnar
varð að læra málið frá rótum.
En það vill nú svo til að móðir
mín var dönsk og danska er
þannig mitt móðurmál.
— Hvernig líkaði yður annarg
að fá þessj verðlaun og hver
William Heinesen
er afstaða yðar til verðlauna-
veitinga?
— Ég var auðvitað mjög
glaður að fá þessa viðurkenn-
ingu og lö met hana mikils. Ég
hef heyrt að Svíinn, sem deildi
verðlaununum með mér sé líka
mjög glaður yfir því. En annars
finnst mér þetta ekki rétt að-
Framh. á bls. 6