Vísir - 17.02.1965, Page 11
27 komu og nutu góðrur kennslu í
þjúlfun hjú Unglingunefnd Bf.S.Í.
Námskeiðið fór fram í
Gagnfræðaskóla Austurbæj-
ar og sóttu það 27 piltar frá
Reykjavík, Hafnarfirði, Kefla
vík, Sandgerði, Selfossi Siglu
firði og Kópavogi.
Aðalkennari námskeiðsins
var sem fyrr segir Karl Guð-
mundsson, landsliðsþjálfari,
og sá hann um hinn tækni-
1 lega undirbúning þess. Einnig
kenndi Ámi Njálsson.
Námskeiðið var tvíþætt,
annars vegar erindaflutning-
ur með töfluskýringum — og
hins vegar sýnikennsla í sal.
Við þann þátt aðstoðuðu fjór
Þátttakendur I þjálfaranámskeiðinu, stjóm Unglinganefndar KSI og kennarar.
LJngu kynslóðina, fram
tíðina í knattspyrnunni
á fslandi, ætti ekki að
skorta þjálfara. Á nám-
skeiði, sem KSÍ og Ungl
inganefnd sambandsins
stóðu fyrir á sunnudag-
inn, var mjög vel sótt og
hefur aldrei fyrr verið
haldið svo fjölsótt nám-
skeið fyrir þjálfara hér.
„Það var sönn ánægja
að starfa við þetta nám-
skeið“, sagði Karl Guð-
mundsson, landsþjálfari,
eftir námskeiðið, „það
var mikill áhugi ríkjandi
og það var ánægjulegt
að fá þjálfaraefni svo
víða að“.
ir ungir piltar úr Val, sem
framkvæmdu æfingar.
Meðal erinda, sem flutt
voru, má nefna — Tilsögn í
æfingaleikjum — stöðvaþjálf-
un á leikvelli - unglinga-
starf og þjálfunarmiðstöðvar
á Ítalíu.
Segja má, að þetta nám-
skeið hafi tekizt í alla staði
vel, enda var undirbúningur
góður. Fengu allir þátttakend
ur á námskeiðinu allt efni
þess fjölritað.
Sem fyrr segir, er þetta fjöl
mennasta námskeið, sem hald
ið hefur verið í Reykjavík
fyrir knattspymuþjálfara.
Gefur það fyrirheit um, að
ekki þurfi að kvíða þjálfara-
skorti.
Fellur Reykjavíkurlið í 2. deild?
Oft hefur verið æft illo hjó Reykju-
víkurfélögunum en sjuldun eðu
uldrei sem nú — Utunbæjurmenn
undirbúu 1. deild uf krufti
Formenn knattspyrnu-
deilda 1. deildar liðanna í
Rvík eru ekki of bjart-
sýnir, nema e. t. v. formað-
ur knattspyrnudeildar KR.
Þó er hljóðið í honum langt
frá að vera hlaðið eldmóði
eða áhuga. Því það er stað-
reynd, að Reykjavíkurliðin
og þá einkum þeir sem eiga
að skapa kjamann í liðun-
um hafa varla sézt á æfing-
um til þessa og eru þó að-
eins tveir mánuðir þar til
knattspyrnan hefst í
Reykjavík.
Sigurður Halidórsson formað-
ur knattspymudeildar KR var
bjarsýnn fremur en hitt, enda
þótt ýmsar raddir hafi til þessa
verið uppi um heldur lélega æf-
ingasókn „stjama“ liðsins. „Það
hafa verið fínar mætingar að
undanförnu hjá okkur. Guðbjörn
Jónsson hefur tekið að sér þjálf
un liðsins og við búumst við
góðum árangri hjá honum. —
Flestir okkar beztu leikmanna
æfa mjög vel og við höfum ekki
undan lélegum mætingum að
kvarta, því yfirleitt eru á æfing-
um milli 16 og 20 leikmenn. Æft
er þrisvar í viku, tvisvar inni og
einu sinni úti“.
Björn Karlsson formaður
knattspyrnudeildar Vals sagði:
„Ég verð að segja það í fullri
hreinskilni, að ég er óánægður
með mína menn. Æfingarnar
hafa verið þrisvar í viku, tvisvar
hjá Karli Guðmundssyni, og mér
finnst það hreinasta synd, að
strákarnir skuli ekki notfæra sér
betur þær ágætu æfingar, sem
hann hefur á boðstólum og þá
þjónustu sem KSÍ hefur innt af I
hendi við félögin. Eitthvað af
strákunum er í handbolta og
hafa ekki látið sjá sig ennþá.
Samt er það svo, að þeir leika
eða léku í sumar með meistara-
flokki og það er reiknað með
þeim áfram. Hins vegar hefur
það sýnt sig, að handknattleiks-
maður i þjálfun er ekki knatt-
spyrnumaður í þjálfun. Æfing-
arnar eru ekki líkar og því er
nauðsynlegt að mæta á knatt-
spyrnuæfingarnar. Fljá okkur
hafa verið 10 -12 manns og það
segir sig sjálft, að það er of lítið.
Hins vegar eru yngri flokkarnir
mjög virkir og æfingarnar þar
fjörmiklar. Aftur á móti vænti
ég þess, að strákarnir taki við
sér sem fyrst, því ekki má það
seinna vera að hefja æfingar
fyrir sumarið".
Jón Þorláksson, formaður kr.att-
spyrnudeildar Frani, var bjartsýnn
og sagði sína pilta fara að æfa
betur. Á æfingu í gær mættu 15
Framarar og voru margir þeirra úr
aðalliðinu. Framarar eru hins vegar
þjálfaralausir og ef Karl Guðmunds
son væri ekki með þessar æfing-
ar tvisvar í viku, þá væri vanda-
málið mjög erfitt Jón bar mikið
lof á æfingarnar á vegum KSÍ og
sagði, að það væri hin bezta þjón-
usta sem KSÍ gæti látið í té.
Frjálsíþróttamenn Ármanns!
InnanféBggsmóf
Innanfélagsmót i hástökki
með atrennu og hástökki án at-
rennu verður haldið í kvöld,
miðvikudaginn 17. febrúar í
íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar
kl. 7 — 8. Mætið vel og stund-
víslega.
Stjómin.