Vísir - 23.04.1965, Síða 2
VIS IR . Föstudagur 23. apríl 1965.
Allt tll málninga
r
fná S|öfn
POLYTEX
Polytex plasfmálningm er endingar-
góð, falleg og litaval afar fjölbreyff.
Polytex plastmálningin er kjörin til
að prýða yeggi innanhúss. Polytex
plastmálningin er ennfremur notuð
sem rykbindingarefni undir gólf-
málningu og sem utanhússmálning
á múr. Polytex plastmálningin þorn-
ar fljótt, þekur vel og er mjög auð-
veld í meðförum.
©
HEX
Rex skipamálningu má nota jafnt
á tré og járn. Húseigendum skal
bent sérstaklega á, að Rex skipa-
málning er sterkasta og þar af leið-
andi ódýrasta þakmálningin. Þeim
fjölgar ört, sem nota Rex skipa-
málninguna til að prýða og vernda
húsið. Þér getið valið um eftirtalda
liti: hYÍtt, Ijósgrátt, rautt, grænt,
gult, svart, rústrautf, brúnt og b.látt.
r|x
qlíumhlning
SJÖFN AKUREYR'
m
(siöfrv)
Rex olíumálning er einkum ætluð á
eldhús, baðherbergi, glugga og
hurðir innanhúss. Ennfremur er Rex
olíumálningin notuð sem undir- og
yfirmálning fyrir spartl og sem
grunnur undir lakk. Margar gerðir
ávallt fyrirliggjandi; afgreitt í VÍ —
6 Iítra dósum. Vér höfum ennfremur
á boðstólum Rex utanhússmálningu
og Rex háglans, sem er syntetiskt
Iakk.
úretan
Úrefan lakk er notað, þar sem kraf-
izt er mikils slitþols — á stigum, í
þvottahúsi, á gólfum, á Yeggjum,
sem þarf að Yernda sérstaklega fyr-
ir hnjaski og óhreinindum. Þetta
lakk hefur mikla hörku og veitir
gott viðnám gegn kemikalium.
Þornar á 3 — 4 tímum við herberg-
ishita. Úrefan lakk fæst í eftirtöld-
um litum: hvítt, grátt, móbrúnf, mó-
grænt og glært.
Ennfremur framleiðum við kalt trélím, Rex 9 plastlím, gólfdúkalím, plastílegg, ileggskítti, kítti,
spartl, terpentínu, fernisolíu, þurkefni og línolíu.
Kári skrifar:
Fyrir nokkru las ég hér i dálkn
um stutt bréf frá bílstjóra þar
sem hann fór nokkrum orðum
um olíufélögin. í þessu bréfi
var einkum rætt um þjónustu
ollufélaganna hvað þenzínsölu
varðar og fundið að því að ekki
skyldi .vera hægt að fá keypt
benzín t.d. hér í Reykjavík eftir
venjulegan lokunartíma.
SKRÚFAÐ FYRIR VATNIÐ
Þetta rifjaðist Uþp fyrir mér,
er ég var að þVó Bflinn minn á
einni stærstu benzínstöð borgar
innar á annan í páskúm. Ég var
nýkominn úr ferðalagí og erfitt
var að greina hvaða litur væri
á bílnum fyrir aur, svo ég á-
kvað að skreppá ihn á þVótta-
plan og skola af bílnum. Svo
skeði það sem ég hef aldrei trú
að fyrr en ég reyndi. Þegar ég
var hálfnaður að þvo bílinn birt
ist einn af starfsmönnum stöðv
arinnar og skrúfaði fyrir vatnið.
Og eftir stóð ég með kústinn í
hendinni og bíllinn nýþveginn
á annarri hliðinni, en útataður
í aur á hinni.
LOKAÐ A MlNÚTUNNI
Þegar þetta skeði var klukkan
nákvæmlega sex og benzínstöð
inni lokað. Það virtist ekki
skipta neinu máli þó ég væri
hálfnaður við ao þvo bílinn,
fyrir vatnið var skrúfað á slag-
inu sex. Ég hefði aldrei trúað
því að óreyndu að nokkurt fyrir
tæki, sem kallast á þjónustu
fyrirtæki gæti leyft sér slíkt.
Auðvitað þurfa mennirnir að
komast heim og ef til vill er það
nauðsynlegt fyrir olíufélögin að
skrúfa fyrir vatnið, þegar sjálfri
benzínstöðinni er lokað, en að
skrúfa fyrir vatnið hjá mönnum
sem eru hálfnaðir við að þvo,
án þess að segja svo mikið sem
eitt orð til skýringar er einum
of mikið af því góða. Væri ekki
ráð fyrir þetta olíufélag að taka
upp þann sið að setja upp skilti
þar sem á stæði að þvottaplan-
inu yrði lokað á ákveðnum tima,
svona ca. stundarfjórðung áður
en skrúfað er fyrir, ef olíufélag
ið á annað borð treystir sér ekki
til að veita þeim bifreiðaeigend
um sem svo óheppnir eru að
vera að þvo bíla sína um lokun-
artíma ,svo mikla þjónustu að
nota vatn I fimm mínútur eftir
lokunartíma.
G. B.
AÐ KYNNA SIG
I SÍMA
Hér koma svo að lokum nokkr
ar línur frá einum „kollega“ mln
um, sem margir hafa gott af að
lesa.
J.P. skrifar:
Það er undarlegur ósiður, sem
Islendingar hafa tamið sér. Þar
á ég við að þeir geta aldrei lært
að kynna sig I síma. Þetta verð
um við blaðamenn oft varir við.
Það er hringt á blaðið og síma
stúlkan segir að viðkomandi sé
úti I bæ, en spyr hvort ekki
megi taka skilaboð, sem hægt er
að skrifa á þartilgert eyðublað
og setja á ritvél blaðamanns-
ins.
En þessari spurningu síma-
stúlkunnar er oftast illa tekið.
Hvers konar óþarfa hnýsni er
þetta í stúlkunni? Síðan hringir
þessi aðili kannski með hálftíma
millibili allan daginn án þess að
ná I þann sem spurt er ftir.
Mér finnst það sjálfsögð skylda
að þegar menn hringja, að þá
eigi þeir að segja til nafns síns.
það er auðvitað lang auðveld-
asta leiðin til að ná í ákveðna
persónu að láta liggja skilaboð
um hver hafi hringt, því þá er
hægara að aðilarnir nái tali af
hvor öðrum.
Blómabúöin
Hrisateig 1
símar 38420 & 34174
aMiTWBlWTMBBBMMaS
Hverl sem þér farið,
og hvenær sem þér fariö,
lýkur* undiPbúningi feröarinnar
með ferðaslysalryggíngu
frá „Almennum".
Sfminn er 17700.
Góða ferðl
ALMENNAR
TRYGGINGARf
PÓSTHÚSSTRÆTI 9
SfMI 17700