Vísir - 27.04.1965, Síða 9

Vísir - 27.04.1965, Síða 9
V í S I R . Þriðjudagur 27. aprfl 1965. 9 LUTHERSK KAÞÓLSKA ☆ „Kirkjusiðir þurfa athafnir, ekki orð — Það, sem deyfir kirkjugöngur, er, að fólk er einungis áheyrendur, en ekki þátttak- endur — Það, sem er sameiginlegt kaþólskum og lútherskum, er meira umvert en hitt, sem aðgreinir — Sameining kirkjunnar verður að raunveruleika — Vitaskuld kenni ég trúna á meyfæðinguna...“ Rresturinn var kominn til borgarinnar á renóin- um sínum — suðrænt andlit í suðrænum far- kosti, bæði til að slappa af eftir helgihald stór- hátíðanna og ennfremur til að sitja sextánda landsfund Sjálfstæðis- flokksins. Á útmánuðum sat hann löngum fyrir framan skíðlogandi arineld inn heima í prestshúsinu á Sel- fossi, steinsnar frá straumiðu fljótsins, sem sést byltast fram í ýmsum litbrigðum eftir tíðar- fari og hegðan náttúruvalda, þegar horft er út um stofuglugg ann. Arinn prestsins hefur alltaf minnt á trúareldinn og fljótið, sem er litt útreiknanlegt, á óis- lenzkt skap sálusorgarans, sem hefur þjónað sunnlenzku brauði rúm þrjátiu ár. Alvara prestsins í kirkjulegum skoðunum er eins og hylur í Ölfusá, þar sem hann er djúpur. Hann er siðvandur í guðs til- beiðslu, enda lesnari og fróðari í kirkjusiðafræði (lithurgiu) en gengur og gerist. Svo mikil áhrif hefur síra Sigurður haft á hug- arfar greindra sóknarbama, að heiðarlegur marxisti í mennta- mannastétt (Sía-maður) gaf þá persónulegu játningu í samtali, að hann hefði trúað i einlægni hverju atriði og boðorði (ekki einu sinni efazt), þegar hann var tekinn í kristinna manna tölu af presti. Siðan átti hann eftir að játast annarri trú um skeið, en alltaf hefur maður það á tilfinningunni, að hann hafi varðveitt kjarnann í sér. (Kunn ingjakona sagði um Sía-mann- inn, að það væri munkalykt af honum). Kristindómur í framkvæmd. f vetur hafði síra Sigurður á prjónunum óvenjulegt ritúal innan íslenzkrar kirkju — páska vöku eins og tíðkast innan al- mennrar heilagrar kirkju úti um allan heim. Hann lagði mikla vinnu í undirbúning, æfði ferm- ingarbörn sín, kenndi þeim lögin og sönginn. „Þau voru afskaplega námfús og þæg og góð“, sagði prestur, „það var mikil árétting á fræðsl unni að gera það að athöfn“. „Hvers vegna réðuzt þér í að halda páskavöku?" „Þessi viðhöfn er upprunnin í frumkristni í Austurlöndum og táknar nýtt líf, sem hefst með komu Krists. Þetta er kristin- dómur í framkvæmd. Mér hefur alltaf fundizt páskanóttin sér- staklega til þess fallin að halda hana heilaga ekki síður en jóla nótt, og eftir þvi sem ég kynn- ist þessari athöfn nánar, komst ég að því, að seremonían hefur mikið fræðslugildi; þess vegna hef ég sett fermingarbörn fnín inn í þetta. Þau önnuðust söng og voru virkir þátttakendur". „Þér vígðuð páskakertið að hætti kaþólskra umboðsmanna Krists — hvaða skilning leggið þér í páskakertið?" „Páskakertið er lifandi tákn fyrir Krist sjálfan — og að allir fái ljós frá páskakertinu, og enn fremur er það hin lifandi von, sem er grundvöllur í uppris- unni“. Sýndinni drekkt. 'C'n blessun skírnarvatnsins?" „Hugmyndin um skímar- vatnið er sótt í söguna um synda flóðið, þar sem 8 sálir frelsuðust fyrir örkina og vatnið er Rauða- hafið, sem guð leiddi lýð sinn yfir og frelsaði lýðinn. Með skirnarsáttmálanum er syndinni drekkt eins og Farö — um leið öðlast menn borgararéttindi í samfélagi Krists og verða hinn nýi ísrael". „Fóruð þér alveg eftir róm- verska ntúalinu?" „Að mestu leyti, en ég gerði athöfnina einfaldari og vék af eftir kringumstæðum. Ég sleppti t.d. messunni, vegna þess að fólk er ekki vant svona athöfn- um, en lagði þeim mun meiri áherzlu á annað, t.d. skírnar- heitið, sem er lokastig skímar- fræðslunnar, nátengt ferming- unni og fellur eins og eðlileg- ur hlutur inn í fræðsluna". „Hafið þér f huga að taka upp Sira Sigurður Pálsson: „Allt, sem er biblíulegt, var Lúther heilagt“ fleiri gamlar athafnir innan kirkj unnar?" „Ég hef hugsað mér tilsvar- andi seremoníur kringum himna förina, píslarsöguna og úthell- 'ingu heilags anda“. „Haldið þér að fólk meðtaki þetta?“ „Áreiðanlega — vegna þess að fyrir fólkinu er þetta raun- veruleg þátttaka í hlutunum. All ir kirkjusiðir þurfa athafnir, ekki orð. Það, sem deyfir kirkju göngur, er, að fólk er einungis áheyrendur, en ekki þátttakend- Ekkert kirkjuhald nema kaþólskt. 'C'r ekki hætta á því, að fólki W finnist þetta of miðaldar- legt og kaþólskt?“ „Auðvitað er þetta kaþólskt — lútherska kirkjan á ekkert kirkjuhald nema kaþólskt ..." „Nú leggja margir neikvæðan skilning í kaþólsku — gæti þetta ekki orðið þjóðkirkjunni til ó- gagns (fólk er vanabundið f mót mælendatrúnni)?“ „Það gera áreiðanlega sumir. Hins vegar er það orðið svo, að nú eftir 400 ár, að mönnum er farið að láta sér skiljast, að það, sem sameiginlegt er kaþólskum og lútherskum er meira um vert en hitt, sem að- greinir. Hin fjandsamlega af- staða innan kirkjudeilda er óð- fluga að hverfa með aukinni kynningu og meira víðsýni held ur en þrifizt gat, á meðan þjóð- imar voru eingangraðar. Stærsta sporið í þá átt að koma á gagnkvæmri viðurkenningu kirkjudeildanna var stigið af Jóhapnesi páfa á kirkjuþinginu. Nú er það svo, að kaþólskir menn hafa tekið upp lútherska sálma og sum atriði hafa þeir tekið sér til fyrirmyndar úr lúthersku safnaðarlífi, og ég er viss um, að það er ekki langt þangað til, að við getum heyrt kaþólska menn á Islandi syngja passíusálmana. Það er engu meiri fjarstæða, þó að við lærum af kaþólskum heldur en þeir af okkur“. Lúthersk kaþólska. Tjegar hér var komið, var staldrað við hjá sjálfum Lúther — þessari vætti mót- mælendakirkjunnar. „Síra Sigurður — ég heyrði þá sögu, að eitt sinn hafið þér verið spurður að þvi í alvöru á ferð í engilsaxneska heiminum, hvort þér væruð kaþólskur og þér svarað: „Of course I’m a Catholic — I’m a Lutheran Catholic“ — hvaða skilning leggið þér í að játast slfkri trú?“ „Hinn kaþólski kristindómur er hinn biblíulegi og fomkirkju- legi kristindómur. Við eigum sameiginlega sjálfa ritninguna, Jesú Krist, skírn — og kvöld- máltíð. Þegar Lúther hóf sitt starf var það meginhugsjón hans að varpa fyrir borð því, sem bætzt hafði við þennan arf og var af mönnum upp fundið en ruglað saman við hið biblíu- lega (annað vildi hann alls ekki gera) — og hefðu hin kaþólsku yfirvöld skilið það, hefði kirkj- an aldrei klofnað. Lútherskur kaþólikki er því sá, sem er trúr þeirri kaþólsku, sem Lúther vildi halda hreinni”. „Teljið þér mótmælendaprest hafa leyfi guðs á sama hátt Framh. á bls. 4 Fermingarböm á Selfossi í skrúðgönpi á páskavökn Páskaspjall við síra Sigurð Pálsson á Selfossi

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.